11.02.1963
Efri deild: 39. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 122 í C-deild Alþingistíðinda. (2044)

132. mál, stofnlánadeild landbúnaðarins

Flm. (Páll Þorsteinsson):

Herra forseti. Allir þm. Framsfl., þeir er sæti eiga í þessari hv. d., eru flm. að frv. því, sem nú er hér til umr. og ég mun gera nokkra grein fyrir.

Landbúnaðurinn er einn af aðalatvinnuvegum þjóðarinnar, og hann er hinn elzti atvinnuvegur í þessu landi, sá atvinnuvegur, sem lífskjör þjóðarinnar hafa á liðnum öldum verið frekar bundin við en nokkra aðra starfsemi. Það munu allir sammála um, að það er mikilvægt hverri þjóð að framleiða fæðu í eigin landi. Þetta á við um allar þjóðir og í öllum löndum, en þó einkum í landi eins og Íslandi, sem er eyja í reginhafi. En landbúnaðurinn hefur einnig menningarlegu hlutverki að gegna. Íslenzk þjóðmenning á rætur í sveitum þessa lands, og sú bæjarmenning, sem hér er að skapast, er enn þá mjög í mótun, og þó að þar megi greina ýmislegt ágætt, þá fylgja henni vissulega annmarkar og þjóðfélagið má ekki við að missa þá menningarlegu kjölfestu, sem sveitirnar veita enn í dag. Byggðin helgar fyrst og fremst rétt þjóðarinnar til landsins. Hin dreifða byggð úti um sveitirnar styrkir þennan rétt þjóðarinnar.

Hagstofa Íslands hefur um langt árabil gert skýrslur um mannfjölda og atvinnuskiptingu þjóðarinnar. Sérstaklega gerir hún nákvæmar skýrslur um atvinnuskiptinguna á 10 ára fresti, þegar svokölluð aðalmanntöl fara fram. Það er sjálfsagt nokkrum annmörkum bundið að draga þarna glögga markalínu, því að ýmsir vinna að fleiri störfum en einu samtímis og fleira fólk er í sveitum en það, sem eingöngu starfar að landbúnaði. En samkv. þessum skýrslum hagstofunnar hefur fólksfjöldinn við landbúnaðarstörf á ýmsum tímum verið sá, sem hér segir: Um síðustu aldamót er talið, að 66.5% af þjóðinni hafi stundað landbúnað, 1920 42.9%, 1940 30.6%, 1950 19.9%. Það mun ekki fyllilega búið að vinna úr manntali 1960 að þessu leyti, en samkv. bráðabirgðatölum starfa nú ekki að landbúnaði nema 14–15% af þjóðinni. En framleiðslan hefur stóraukizt þrátt fyrir þessa breytingu á skiptingu þjóðarinnar milli atvinnugreina. Og þessi fámenni hópur, þ.e. innan við 20% af þjóðinni, framleiðir í flestum greinum nægilegt magn af afurðum til nota innanlands fyrir hinn stóra og sístækkandi neytendahóp, og í sumum greinum landbúnaðarins er framleiðslan nokkru meiri en innanlandsþörfin krefur.

Þetta hefur tekizt vegna þess, að gerbreytingar hafa átt sér stað í landbúnaðinum á tiltölulega mjög skömmum tíma. Vélar hafa verið teknar til nota við svo að segja stórt og smátt í landbúnaðarstörfum, ræktunin hefur aukizt og gert það fært að beita vélaaflinu við framleiðsluna, byggingar hafa færzt í betra horf og bætt alla aðstöðu við að hagnýta jarðargróðann, og með ræktun búfjárstofnanna hefur afurðamagn búfjárins stóraukizt frá því, sem áður var.

Það þarf enginn að furða sig á því, þó að gerbreyting eins og þessi, sem gerist á svo skömmum tíma, hafi kostað mikil átök og mikið fjármagn, meðan þessi uppbygging átti sér stað. Og sem betur fer, er slíkri uppbyggingu engan veginn lokið, enda þarf slík þróun að halda áfram sí og æ. Þessi átök í landbúnaðinum hefur ekki verið hægt að gera öðruvísi en með allmikilli lánastarfsemi. Og það er alls ekki óeðlilegt, þegar á þetta er litið, þó að bændurnir eigi fullörðugt með að standa straum af þeim byrðum, sem þeir hafa tekizt á herðar í þessu sambandi. Bændastéttin hefur að sönnu notið stuðnings við þessar framkvæmdir af hálfu þjóðfélagsins fyrir forgöngu ríkisvaldsins, bæði með lagasetningu og stjórnarathöfnum ýmsum. Það má telja jarðræktarframlög, sem greidd eru á ræktun og útihúsabyggingar í sveitum, en hitt vegur þó að mínum dómi meira, sú lánastarfsemi, sem bændurnir hafa átt aðgang að á síðustu áratugum. Og sú lánastarfsemi, þ.e. stofnlánasjóðir landbúnaðarins, hefur ekki a.m.k. fram til þessa tíma verið rekin út frá kaldrænu bankasjónarmiði eða fjármagnssjónarmiði, þannig að markmiðið hafi fyrst og fremst verið það að ávaxta fé í landbúnaðinum, heldur hefur hitt sjónarmiðið setið í fyrirrúmi, að veita landbúnaðinum stuðning með lánastarfsemi. Og vegna þess að það sjónarmið hefur verið lagt til grundvallar, hefur verið svo um hnúta búið um langt skeið, að það var Alþingi sjálft, sem ákvað lánakjörin, þ.e. vaxtahæðina á stofnlánum landbúnaðarins, og í megindráttum lánstímann líka. En á þessu var gerð breyting með efnahagslögunum nr. 4/1960, eins og kunnugt er, og þetta vald er nú lagt í hendur Seðlabankans og ríkisstjórnarinnar.

Af þeirri efnahagsstefnu, sem hófst 1960 og núverandi hæstv. ríkisstjórn hefur fylgt, hefur leitt gífurlegar verðhækkanir í landinu. Þær verðhækkanir bitna á landbúnaðinum og bændastéttinni áreiðanlega eigi síður en öðrum stéttum þjóðfélagsins. Og þessar öru og miklu verðhækkanir hafa það í för með sér, að aðstaða bændanna verður af þeim sökum enn þá misjafnari en áður var. Þeir bændur, sem voru búnir að búa þannig í haginn, áður en verðhækkanirnar fóru að segja til sín, að þeir gátu um skeið komizt hjá því að leggja í byggingarkostnað eða kaupa vélar, standa vitanlega miklum mun betur að vígi en hinir, sem voru skammt á veg komnir í framkvæmdum og hafa nú á síðustu árum þurft að ráðast í framkvæmdir, sem kosta mjög mikið fé, eða kaupa vélar, til þess að auðið sé að halda búskapnum í sæmilegu horfi. Og þetta hefur það í för með sér, að það er enn þá örðugra en áður var fyrir ungt fólk að hefja búskap, því að stofnkostnaðurinn nemur svo háum fjárhæðum, eða að koma búrekstri í það form, sem talið er hæfa nútímabúskap. Landbúnaðurinn sem atvinnugrein stendur því nú höllum fæti og vissulega á nokkrum vegamótum. Um þetta vitna samþykktir félagssamtaka bændastéttarinnar, sem gerðar hafa verið nú að undanförnu, enda er það á allra vitorði, að viðreisnin er sveitafólkinu mjög þung í skauti. Þessa ályktun má einnig draga af því, að dregið hefur úr stofnun nýbýla nú að undanförnu. Og landbúnaðurinn sem heild nýtur ekki þess góðæris, sem þjóðin vissulega hefur átt við að búa undanfarin 2 ár frá náttúrunnar hendi með hinum aukna sjávarafla og sæmilega hagstæðu verði á sjávarafurðum, því að nú hin síðustu ár hefur landbúnaðurinn, a.m.k. í sumum héruðum, átt við verulega erfiðleika að stríða, í sambandi við kal í túnum og tíðarfar, sem hefur reynzt fremur áfallasamt, a.m.k. í sumum landshlutum. Það er því vissulega svo komið nú, að það er allmikið los á byggðinni í sveitum þessa lands. Og ríkisvaldið — hv. Alþ., ríkisstjórn og ríkisstofnanir — má ekki láta þetta fram hjá sér fara án þess að gefa því gaum. Það verður að líta á þetta með fullu raunsæi og koma í veg fyrir, að fólksflótti örvist eða skapist að nýju úr sveitunum og frá landbúnaðinum, og það ríður á miklu, að ekki falli undan, að þessu sé gefinn gaumur, því að enn eru í gildi þau orð, að „öllum hafís verri er hjartans ís, sem heltekur skyldunnar þor“.

Þetta verður að mínum dómi og okkar flutningsmanna að gera eftir ýmsum leiðum. Það þarf að auka jarðræktarframlögin frá því, sem nú er, enda er svo komið, að hlutur þjóðfélagsins af stofnkostnaði ræktunar er miklu lægri en hann var t.d. 1955 hjá öllum, sem komnir eru yfir markið um 10 hektara túnstærð, en þeir, sem eru undir því marki í ræktuninni, njóta sérstakrar fyrirgreiðslu af löggjafans hálfu, eins og kunnugt er. Þetta þarf einnig að gera með aukinni lánastarfsemi og bættri aðstöðu til handa sveitafólkinu í því efni. Og vitanlega þarf í sambandi við þetta einnig að endurskoða afurðasölulögin og gæta réttar bændastéttarinnar í því efni, enda er það nú mjög á dagskrá hjá félagssamtökum bændanna, að þau mál þurfi endurskoðunar við.

Þó að ég hafi í upphafi máls míns gert þetta almenna yfirlit, þá er í þessu frv., sem hér liggur fyrir, einungis fjallað um einn þátt þessara mála.

Með lögum, sem sett voru í fyrra um stofnlánadeild landbúnaðarins, landnám, ræktun og byggingar í sveitum, var að því stefnt að efla stofnlánasjóði landbúnaðarins frá því, sem orðið var, og gera þeim fært að losna við fjárhagsbyrðar, sem á þá voru fallnar. En leiðin, sem farin var að þessu marki með löggjöfinni í fyrra, er sú að láta bændastéttina sjálfa í stórkostlega vaxandi mæli byggja upp sína eigin stofnlánasjóði. En eins og viðhorfið er nú í landbúnaði og ég hef lauslega drepið á, þá er ráðið til þess að koma í veg fyrir aukinn flótta fólks úr sveitunum og frá landbúnaði ekki það að skattleggja bændurna sjálfa til þeirrar lánastarfsemi, sem þeim er nauðsynleg.

Með 1. gr. þessa frv. er lagt til, að á þessu verði gerð breyting. Og sú stefnubreyting, sem fyrir okkur flm. vakir að þessu leyti, er sú, að stofnlánasjóðir landbúnaðarins njóti eftirleiðis fjármagns af því veltufé, sem til umráða er og útlána í þjóðfélaginu, en að álagt ríkisframlag verði ákveðið 30 millj. kr., og er það fyrst og fremst miðað við að greiða vaxtamismun, sem af starfsemi stofnlánadeildarinnar leiðir, samkv. þeirri stefnu, sem við setjum fram í þessu frv.

Rétt er að gera sér grein fyrir því, hvað hér er raunverulega um stórt viðfangsefni að ræða. Skv. Hagtíðindum eru heildarútlán í bankakerfinu 4–5 milljarðar, og það þykir mjög fréttnæmt um þessar mundir, að sparifé landsmanna aukist hröðum skrefum. En að sama skapi vex umráðafé bankanna, og það á að auðvelda þeim að hlaupa undir bagga í því efni, sem hér um ræðir, eins og raunar á fleiri sviðum.

Í skýrslu frá Búnaðarbanka Íslands, sem gerð var heyrinkunn nú eftir síðustu áramót, segir, að sparifé sparisjóðsdeildar Búnaðarbankans hafi á árinu 1962 vaxið um 98.2 millj. kr. og að innstæður á hlaupareikningi hækkuðu á sama tíma um 38.9 millj. kr. En á undanförnum árum hafa útlán úr stofnlánasjóðum landbúnaðarins numið því, er hér segir, samkv. opinberum tölum um það efni: 1959 42.7 millj. kr., 1960 63 millj. kr., 1961 49.5 millj., og í skýrslu Búnaðarbankans, þeirri er ég vitnaði til, segir, að á árinu 1962 hafi verið lánað úr stofnlánadeild 834 lán, samtals 70.4 millj. kr. Af þessu er auðsætt, að hér er ekki um stærra viðfangsefni að ræða en svo, að það er aðeins örlítið brot af því fjármagni, sem í umferð er í bankakerfinu, sem stofnlánadeild landbúnaðarins þarf á að halda, og á árinu 1962 jókst sparifé sparisjóðsdeildar Búnaðarbankans eins, þó að ekkert annað sé talið, um 28 millj. kr. hærri fjárhæð en öll útlán stofnlánadeildarinnar námu á sama ári.

2. gr. þessa frv. fjallar um það, að ríkið skuli hér eftir standa straum af þeim gengishalla, sem á byggingarsjóð sveitanna og ræktunarsjóð hefur fallið vegna breytingar á verðgildi ísl. krónu á undanförnum árum.

Þegar þetta mál um stofnlánadeild landbúnaðarins var hér til umræðu á síðasta þingi, var leitað upplýsinga um, hve miklu þessi fjárhæð nemur. Þá lágu ekki fyrir opinberar tölur um þetta, en eftir þeim upplýsingum, sem þá voru lagðar fram, var það látið koma fram í umræðum, hvað hér væri um mikla fjárhæð að ræða. En síðan hefur það gerzt, að nú liggja fyrir um þetta opinberar tölur, og vil ég, með leyfi hæstv. forseta, vitna til þeirra. Í tímariti bændasamtakanna, Árbók landbúnaðarins, skrifar ritstjóri Árbókarinnar, Arnór Sigurjónsson, ritgerð um þessi mál, og þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta, um byggingarsjóð sveitabæja og ræktunarsjóð Íslands:

„Þessir sjóðir námu vaxa og vel dafna fram til ársloka 1957, en þá var hrein eign ræktunarsjóðs 65.2 millj. kr., en byggingarsjóðs 44.1 millj. kr. En svo komu bjargráð og viðreisn stjórnmálamannanna með dulbúinni gengisfellingu 1958 og opinberum gengisfellingum 1960 og 1961, er kostuðu sjóði þessa alla eign og nokkru meira þó. Ef reiknað er frá erlendum skuldum í árslok 1959, en önnur gögn hefur ritstjóri Árbókarinnar ekki í hendi, hafa bjargráðin og hinar opinberu gengisfellingar kostað ræktunarsjóð 103.4 millj. kr., en byggingarsjóð 27.7 millj. kr., eða báða sjóðina 131.1 millj. kr., þar af bjargráðin 31.7 millj. kr., en gengisfellingarnar 99.4 millj. kr.“

Það er staðreynd, sem hér er dregin glögglega fram í Árbók landbúnaðarins, að fram til ársloka 1957 stóð hagur þessara sjóða með blóma, þeir námu vaxa og vel dafna, eins og hér segir og gripið til gamals máls. Allur vandi þessara sjóða stafar af gengisbreytingunum, við skulum segja bæði hinni dulbúnu, eins og hér er sagt, 1958, og hinum opinberu gengisfellingum 1960 og 1961, og hlutföllin eru þessi samkv. opinberum tölum, að 31.7 millj. kr. af hallanum eru vegna bjargráðanna svokölluðu 1958, en 99.4 millj. kr. vegna gengisfellinganna 1960 og 1961. Þetta er allur vandi sjóðanna, og viðfangsefnið er það, hvernig eigi að snúast við þessum vanda eða hvernig hafi átt að snúast við þessum vanda og leysa þessi mál. Og ég leyfi mér enn, hæstv. forseti, að vitna hér til umsagnar ritstjóra Árbókar landbúnaðarins um þetta efni. Hann segir svo:

„Ritstjóri Árbókarinnar lítur svo á, svo sem hann hefur áður lýst yfir hér í Árbókinni, að byggingarsjóður og ræktunarsjóður hafi frá upphafi til endaloka starfað samkv. fyrirmælum ríkisvaldsins, en verið einskis ráðandi um þau bjargráð og viðreisn, er ríkisvaldið bjó þjóðinni, og því hafi ríkisvaldið borið siðferðilega og fjárhagslega ábyrgð á sjóðunum og þá einnig verið skylt að taka á sig skakkaföll þeirra við bjargráðin og viðreisnina, þ.e. tap þeirra við gengisfellinguna. Ef ríkisvaldið hefði viljað viðurkenna þetta drengilega og opinskátt, hefði ekki þurft neina nýja löggjöf, heldur hefðu sjóðirnir haldið áfram í sama horfi og áður, haldið nöfnum sinum, sem vinsæl voru orðin af starfi þeirra, aðeins hefði þurft að hækka framlag ríkisins í öfugu hlutfalli við verðgildi ísl. kr. og ef til vill hækka útlánsvexti sjóðanna. Þetta hefði einnig verið viðurkenning á því. sem ritstjóri Árbókarinnar álítur réttast, að bændastétt landsins, sem sjóðanna hefur notið, eigi allra atvinnustétta minnst sök á verðfellingu íslenzkra peninga, og henni eigi því sízt allra að refsa fyrir þá verðfellingu.“

Ég tilfæri þessi orð hér úr tímariti bændasamtakanna vegna þess, að ég ætla það mála sannast, að þau séu í fullu samræmi við skoðanir alls þorra bændastéttarinnar sjálfrar á þessu máli. Og ég tilfæri þau einnig hér til þess að sýna það hér ótvírætt, að það eru fleiri, sem um landbúnað hugsa af gaumgæfni og fullri alvöru og velvild í garð þess atvinnuvegar, heldur en við flm. þessa frv., sem líta þannig á, að sú stefna, sem við setjum fram í 2. gr. þessa frv., sé fyllilega réttmæt.

Það er ríkisvaldið, sem ákvað gengisfellingarnar, sem skapað hafa allan vanda þessara sjóða. Og ríkisvaldið ákvað þessar gengisfellingar, að því er talið er, vegna atvinnuveganna og þá fyrst og fremst útflutningsframleiðslunnar. En um leið og ríkisvaldið taldi þetta nauðsynlegt vegna útflutningsframleiðslunnar, þá ber því sama ríkisvaldi skylda til að líta þannig til hins annars aðalatvinnuvegar þjóðarinnar, að hann og þeir menn, sem við hann starfa, þurfi ekki að mæta sérstökum skakkaföllum vegna þessarar ákvörðunar.

Næst vil ég leyfa mér að fara nokkrum orðum um vextina af stofnlánum landbúnaðarins. Í 3. gr. þessa frv. er svo mælt, að vextir af lánum til íbúðarhúsa í sveitum skuli vera 3½% og af öðrum lánum stofnlánadeildar 4%. Þetta er sami vaxtafótur á þessum stofnlánum og í gildi var, áður en viðreisnin var sett á laggirnar á árinu 1960. Ég vek enn athygli á því, sem ég drap á fyrr í ræðu minni, að um áratugaskeið var það löggjafaratriði, hverjir vextir væru ákveðnir af stofnlánum í landbúnaði, og í meginatriðum um lánstímann einnig. Þetta var löggjafaratriði vegna þess, hve þýðingarmikið þetta er fyrir alla afkomu bændastéttarinnar, og löggjafinn vildi áreiðanlega búa svo um hnúta, að hin fyllsta sanngirni gagnvart bændunum væri sýnd við framkvæmd þessa máls.

Landbúnaðurinn er þannig atvinnugrein, að það er ekki auðið að safna stórfelldum gróða, a.m.k. ekki á skömmum tíma, í þeim atvinnurekstri. En í þeim atvinnurekstri gerast á hinn bóginn miklu minni sveiflur en í ýmsum öðrum atvinnugreinum þessarar þjóðar. Landbúnaðurinn er því ekki fær um að bera mjög þunga vaxtabyrði af þeim stofnlánum, sem honum eru veitt. En í þessu efni kemur fleira til en það, sem snýr að bændastéttinni sjálfri. Þetta mál er miklu víðtækara og hefur áhrif út í fjárhagskerfi þjóðfélagsins, eins og ég skal nú með nokkrum orðum gera grein fyrir.

Vextir þeir, sem færðir eru inn í verðlagsgrundvöll landbúnaðarafurða, greinast í þrjá liði. Einn liðurinn eru vextir af lausaskuldum bænda. Þar er vaxtafóturinn 9%, og miðað er við almenna útlánsvexti í bönkum landsins. Annar liðurinn eru vextir af stofnlánum í landbúnaði. Aðferðin til þess að ákveða þann lið er sú, að það er leitað eftir meðaltali vaxtahæðarinnar, sem bændastéttin raunverulega greiðir af stofnlánum sínum í Búnaðarbankanum. Enn er allmikið af stofnlánum í Búnaðarbankanum með lágu vöxtunum, sem giltu, áður en viðreisnin kom til sögu. Og þeir vextir lækka enn sem komið er þetta meðaltal. En eftir því sem lengur líður, greiðast eldri lánin upp, en nýjum er bætt við með viðreisnarvöxtunum, svo að óðar en varir hlýtur þetta að fara þannig, að það verði viðreisnarvextirnir, sem munu verða einráðir um þennan lið í verðlagsgrundvelli landbúnaðarafurða. Þriðji liðurinn eru svo vextir af eigin fé bóndans í búinu. Á undanförnum árum hefur sá liður verið miðaður við að greiða 3½% vexti af því fé, sem talið er að bóndinn eigi sjálfur í meðalbúi. Og þetta 3½% eru þeir allra lægstu stofnlánavextir, sem landbúnaðurinn hefur búið við. En í verðlagsgrundvellinum, sem nú er í gildi, var þessu þokað upp í 5% og fjármunir bóndans í meðalbúinu þá metnir, að mig minnir, um 370 þús. kr. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að um þennan lið verðlagsgrundvallarins ríkir mikill ágreiningur og fulltrúum bændanna finnst, að eigin fjármunir í búinu séu of lágt metnir og vaxtafóturinn af því of lágur, svo að bændurnir hljóta að einbeita sér að því að fá þennan lið leiðréttan þannig, að þessi liður vaxtanna hækki, að almennum útlánsvöxtum í landinu óbreyttum. Þetta hnígur því allt að því, að vaxtaliðurinn í verðlagsgrundvelli landbúnaðarafurðanna hlýtur að hækka og hafa áhrif á verðlag landbúnaðarafurðanna í æ ríkara mæli, ef ekkert er að gert til breytinga á stofnlánavöxtunum. Hærri vextir kalla á hærra afurðaverð, en hærra afurðaverð kallar á hærri greiðslur til útflutningsuppbóta, svo framarlega sem eitthvað af landbúnaðarvörum er selt úr landi. Og hærra landbúnaðarverð innanlands kallar á annaðhvort hærri niðurgreiðslur eða ýtir undir kröfur um hærra kaupgjald, þar sem landbúnaðarafurðirnar eru mjög ríkur þáttur í vísitöluútreikningnum og í því verðlagi, sem miðað er við, þegar metinn er kostnaður fjölskyldu vegna lífsframfæris hennar. Kerfið er svo þannig, að þessu er mætt að nokkru leyti með fjölskyldubótum, en talið er, að greiðsla fjölskyldubóta með 1. og 2. barni í fjölskyldu kosti ríkissjóð nú yfir 120 millj. kr. á ári, og þessu er svo enn fremur mætt með niðurgreiðslum, og þær fjárhæðir, sem til þess fara af fjárl., eru nú ekki takmarkaðar við milljónatugi, heldur milljónahundruð. Samkv. fjárl. undanfarinna ára hafa fjárveitingar á fjárl. til niðurgreiðslu og útflutningsuppbóta numið 1960 307.9 millj., 1961 314.9 millj., 1962 300 millj., 1963 430 millj. kr. Og mikill hluti af þessu fé er svo dreginn saman með álögum á almennt vöruverð í landinu. Þannig er þá þetta kerfi, að það er mynduð þessi hringrás. Vaxtaliðurinn í verðlagsgrundvelli landbúnaðarins verður æ áhrifaríkari um landbúnaðarvöruverðið, dýrtíðarmyllan, sem hrundið er af stað með hinum háu vöxtum, — stofnlánavöxtum í landbúnaði, — verður sjálfvirk, og hún malar þeim mun örar, því meiri framkvæmdir sem verða í landbúnaðinum og því meiri sem fjármunamyndunin er í þeim atvinnuvegi. Þannig er þetta gert. Með því að verja nokkru af ríkisfé, eins og hér er lagt til, til þess að jafna vaxtamismun vegna stofnlána í landbúnaði, er verið að snúa við á þessari braut, það er verið að draga úr áhrifum þessarar sjálfvirku myllu.

Samkv. ákvæðum frv. er því lagt til, að vaxtafóturinn verði lögbundinn eins og áður var lengst af um stofnlán til landbúnaðarins. Það er verið að leggja til að létta vaxtabyrði bændanna, og jafnframt miðar þetta að því að draga úr vexti einnar þeirrar kvíslar, sem myndar hina miklu dýrtíðarelfu viðreisnarinnar, sem nú hefur raunar brotizt yfir alla bakka og flæðir um svið þjóðlífsins.

Þá er í þessu frv. ákvæði um að efla fjárþörf veðdeildar Búnaðarbankans allverulega frá því, sem nú er. Þó að við flm. þessa frv. viljum, að sem allra mest kjölfesta sé í landbúnaðinum og búsetu fólksins í sveitum, og stefna þessa frv. miði að því að stuðla að því, að svo verði, þá eru það aðeins eðlilegir viðskiptahættir, að jarðeignir eða fasteignir í sveitum gangi kaupum og sölum við og við, einkum þegar eldri kynslóðin hverfur frá atvinnurekstri fyrir aldurs sakir eða verður af öðrum ástæðum að hverfa frá störfum og hinir yngri eiga að taka við. Veðdeild landbúnaðarins á að gegna því hlutverki að veita lán til þess að greiða fyrir viðskiptum af þessu tagi, en um langt skeið hefur veðdeildina skort tilfinnanlega fjármagn til þess að geta gegnt þessu hlutverki, svo sem til er ætlazt og þörf krefur. Með þessu frv. er lagt til, að Seðlabankanum verði gert skylt að lána veðdeildinni 50 millj. kr. til 20 ára með 5% vöxtum. Enn fremur er gert ráð fyrir, að veðdeildinni veitist heimild til að gefa út nýjan flokk bankavaxtabréfa, er notuð verði til þess að greiða fyrir viðskiptum með fasteignir í sveitum landsins. Verði þetta samþykkt, verða tekjustofnar veðdeildarinnar þannig, að í fyrsta lagi heldur hún því, sem hún hefur nú samkv. heimildargrein í stofnlánadeildarlögunum, og eldri tekjustofnum, og til viðbótar fær hún þá fjárhagslegu aðstoð, sem við gerum ráð fyrir með þessu frv.

Í gildandi lögum er gert ráð fyrir því, að sett verði á fót nefnd, sem hafi með höndum byggingarrannsóknir. Þessa nefnd hefur skort mjög fé til þess að geta sinnt þessu starfi, og við gerum ráð fyrir í þessu frv., að ákveðið verði fast framlag í þessu skyni, eigi minna en 350 þús. kr. á ári. Hér er áreiðanlega um mjög gagnlega starfsemi að ræða, sem á, þegar fram í sækir, að geta leitt af sér sparnað og hagkvæmni við byggingu húsa, einkum útihúsa í sveitum, en það er einn þáttur þessara mála, sem vissulega er þörf að gefa gaum, bæði vegna bændanna sjálfra, sem í framkvæmdunum standa, og vegna þeirrar lánsstofnunar, sem veitir fé til stuðnings þessari uppbyggingu. Ég vil enn fremur taka það fram, að við flm. þessa frv. teljum, að fleiri breytingar þurfi að gera á l. um stofnlánadeild, landnám, ræktun og byggingar í sveitum heldur en fram koma í þessu frv., sérstaklega sé brýn þörf á að breyta ákvæðunum um stuðning við ræktun á jörðum, sem hafa minna en 10 hektara tún, og færa það mark upp sem verulegu nemur. En með tilliti til þess, að sérstakt frv. liggur fyrir þessu þingi um þann þátt mála, vildum við ekki blanda því inn í þetta frv., en munum taka afstöðu til þeirra atriða, þegar það frv., sem flutt hefur verið og um þetta fjallar, kemur til kasta þessarar hv. deildar.

Ég vil að lokum segja, að okkur er það vitanlega ljóst, að með flutningi þessa frv., þótt að lögum yrði, leysist ekki allur sá vandi, sem að bændastéttinni steðjar um þessar mundir. En það er skoðun okkar, að með samþykkt þessa frv. yrði lánamálum bændanna komið í betra horf en þau eru nú, og við væntum þess, að þetta mál verði skoðað allt saman með fullri sanngirni og alvöru, þannig að hlutur bændanna geti orðið sem allra beztur.

Ég legg svo til, að þegar þessari umr. lýkur, verði málinu vísað til landbn.