11.02.1963
Efri deild: 39. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 129 í C-deild Alþingistíðinda. (2045)

132. mál, stofnlánadeild landbúnaðarins

Magnús Jónsson:

Herra forseti. Ég vil taka undir lokaorð hv. 1. flm. þessa frv., að þess ber vissulega að vænta, að þau mál, sem hér eru til umr. og vakið er máls á í þessu frv., verði rædd af fullkominni alvöru og með það í huga, að þau komi landbúnaðinum og bændastétt landsins að sem mestu gagni. Hitt er svo aftur annað mál, hvort það frv., sem hér liggur fyrir, ber þau einkenni, að menn hafi lagt sérstaka áherzlu á að lita á málið með sama raunsæi og ábyrgðartilfinningu og þessi hv. 1. flm. taldi höfuðnauðsyn. Áður en ég hafði séð þessu frv. útbýtt í þessari hv. d., sá ég stóra fyrirsögn í aðalmálgagni Framsfl., þar sem boðað var frv., sem mundi, að því er manni skildist, marka mikil tímamót í lánamálum landbúnaðarins, og áður en lestrinum var lengra komið, taldi ég sennilegt, að þarna væri um að ræða einhverjar nýjar hugmyndir og því væri fýsilegt að kynna sér, hvað þarna væri á ferðinni. Reyndin er hins vegar sú, eins og hv. þm. sjá, að í þessu frv. er ekkert nýtt, ekki nokkur till. Það eru allt endurteknar till., sem fluttar voru við afgreiðslu l. um stofnlánadeild landbúnaðarins hér á síðasta þingi. En það út af fyrir sig þarf ekki að sanna neitt um það, að till. geti ekki haft nokkuð til síns máls. En það er a.m.k. ljóst af þessu, að hér er ekki um neinar nýjungar að ræða, þannig að hv. flm. virðast eftir þessa löngu íhugun hafa komizt að raun um, að ekki væri hægt að leysa þessi mál með öðrum raunhæfari hætti en þeim, sem þessar eldri till. þeirra báru með sér.

Því miður verð ég að segja það, að eins og hv. 1. flm. málsins túlkaði sitt mál og gerði grein fyrir þessu frv., þá sýnist mér í raun og veru, að með frv. þessu sé verið að grafa undan stofnlánadeild landbúnaðarins, því að það er gert ráð fyrir því í senn að taka af deildinni mikilsverða tekjustofna og að nota þær tekjur, sem hér er lagt til að varið verði til deildarinnar, á þann hátt, sem hv. flm. gerði grein fyrir, að þær mundu ekki á neinn hátt eða a.m.k. að mjög litlu leyti koma stofnlánadeildinni að haldi, því að hann gerði ráð fyrir því, að þótt hér væri lagt til að stórauka framlag ríkissjóðs og fella um leið niður þá gjaldstofna til stofnlánadeildarinnar, sem lögfestir eru í lögum um stofnlánadeild landbúnaðarins, þá yrði þetta fé að verulegu leyti notað til þess að greiða vaxtahalla hjá stofnlánadeildinni, þannig að með þessu móti væri sáralítið fé fengið til þess að byggja stofnlánadeildina upp, heldur ætti að byggja hana upp á þann veg einan, að það ætti að nota til þess lánsfé, og eyddi hv. þm. allmiklum tíma í að útskýra, hve geysileg sparifjármyndun væri í bönkum og það væri þar af leiðandi af nógu fé að taka til þess að leysa vandamál stofnlánadeildarinnar að þessu leyti.

Nú kann þetta allt að vera góðra gjalda vert. En manni verður að spyrja: Er hægt að ábyrgjast, að Framsfl. verði ekki í stjórn næstu áratugi? Það vill svo til, og byggi ég það á þessum ummælum hv. þm. sjálfra, að þeir telja, að nú hafi skapazt á þessum voðalegu viðreisnartímum alveg sérstakur grundvöllur undir það að fá bæði stórhækkuð framlög úr ríkissjóði og stórhækkuð lán til allra framkvæmda, vegna þess að allir sjóðir séu að springa af fé. Þessa stefnu telja þeir ákaflega ógiftusamlega fyrir þjóðina og það þurfi að hverfa að þeim gamla tíma, þegar hvergi var til peningur. Og hvernig á þá að leysa vandamál stofnlánadeildarinnar, nema svo heppilega vilji til fyrir þjóðina, að þeir komist ekki í stjórn? Það kann vel að vera, að það verði séð um það. En þetta er þó engan veginn alveg öruggt, en á því byggist í rauninni hugsun sú, sem liggur að baki kenningu hv. flm. þessa frv.

Það hefur áður verið á það bent oft og mörgum sinnum, hvað það hafi verið mikið óhapp, að það hafi þurft að taka erlend lán til stofnlána í landbúnaði og það sé í rauninni ógerlegt að byggja upp stofnlán í landbúnaði með erlendum lánum, því að það er ekki hægt að endurlána til almennra framkvæmda bænda erlent lánsfé. Meðan hv. framsóknarmenn réðu hér allmiklu, varð að leysa vegna lánsfjárskorts innanlands vandamál stofnlánadeildarinnar með erlendu lánsfé. Við sjáum alveg augljóslega, að ef þeirri stefnu yrði fylgt, sem hér er lagt til að marka, að leysa vandamál stofnlánadeildarinnar alltaf með lánsfé, þá byggist það algerlega á því, hvernig lánsfjármarkaðurinn er hverju sinni. Ef innlent lánsfé þrýtur, þá verður að grípa aftur til erlendra lána. Og hvar er þá stofnlánadeildin stödd?

Hv. flm. sagði, að öll ógæfa og allur vandi stofnlánadeildarinnar stafaði af hinum erlendu lánum. En það er auðvitað ekki rétt, að allur vandinn stafi af þeim, en það er að mjög miklu leyti, sem vandinn stafar af þeim. Hann sneri að vísu málinu þannig, að þessi vandi væri fyrir hendi vegna þess, að gengisbreyting hefði orðið. Hver getur ábyrgzt, að það verði ekki aftur gengisbreyting? Mér er ekki kunnugt um annað en það standi ómótmælt, að hv. framsóknarmenn hafi í tíð vinstri stjórnarinnar talið heppilegast að framkvæma gengisbreytingu. Það var þá framkvæmd, eins og hv. frsm. sagði, dulbúin gengisbreyting, sem er nú sannarlega ekki betri en opinber gengisbreyting, heldur aðeins verið að villa fyrir fólki um staðreyndir. Slíkt getur auðvitað hent aftur, og er auðvitað engum stjórnmálaflokki eða ríkisstj. um að kenna, heldur er það þróun fjármálalífsins á hverjum tíma, sem veldur því, hvort óumflýjanlegt er að grípa til gengisbreytingar eða ekki. Við skulum vona, að til þess þurfi ekki að koma, en það er að sjálfsögðu engin vissa. Og ef svo færi og væri á ný tekið að leysa þetta með erlendum lánum, þá sjáum við, hvílíkt kviksyndi væri út í stefnt. Þessa stefnu verð ég mjög að harma, og ég álít, að hún leiði ekki til neinnar hagsældar fyrir íslenzka bændastétt og horfi alls ekki til þess, sem ég vil taka undir með hv. 1. flm. að er hin mesta nauðsyn, að efla sem mest uppbyggingu í íslenzkum landbúnaði. Þetta er áreiðanlega ekki leiðin til þess, og þetta er ekki leiðin til þess að horfa með raunsæi á hlutina. Hitt er svo aftur annað mál, að það er auðvitað aldrei vinsælt að leggja á skatt, og hv. framsóknarmenn hafa komizt að raun um það, að það mundi vera mjög heppilegt og hyggilegt að snúast öndverðir gegn þeirri lausn, sem fundin var á uppbyggingu stofnlánadeildarinnar, og vera á móti því, að bændur borguðu framlag til hennar, og jafnframt á móti því, að neytendur borguðu sitt framlag til hennar, þetta skyldi heldur allt takast á þann einfalda hátt að láta ríkissjóðinn, eins og hér er lagt til, leggja fram 30 millj. kr. á ári. Þetta er ákaflega einföld lausn, ef er horft á það eitt út af fyrir sig. Og ég er ekkert fjarri því, að miðað við fjármálastjórn hæstv. núv. fjmrh., munaði hann kannske ekkert óskaplega mikið um 30 millj. á ári, muni kannske ekki meira um það en á sínum tíma var a.m.k. látið sig muna um, meðan 4 millj. kr. framlagið var, sem aldrei fékkst hækkað, þó að það væri sýnilegt, að það nægði engan veginn til þess að standa undir vaxtahalla á ræktunarsjóði og byggingarsjóði, meðan hv. framsóknarmenn fóru bæði með landbúnaðarmál og fjármál, af hvaða ástæðu sem það hefur verið. En þeir aðilar, sem þá réðu, hafa vafalaust haft sín rök fyrir því.

En það eru líka fleiri hliðar á þessu máli, og ég verð mjög að harma það, að jafnmætir menn og hér eiga hlut að máli skuli ekki hafa tekið höndum saman við þá, sem stóðu að þessari löggjöf, um að byggja upp stofnlánasjóðina eins og þar er lagt til, því að ég lýsi því sem minni bjargföstu skoðun, að hér hafi verið mjög skynsamlega að farið og hyggilega og það muni eiga eftir að verða til mikillar giftu fyrir íslenzka bændastétt, þegar árin líða og þegar þessi stofnlánadeild er orðin voldugur stofnsjóður, sem er þess umkominn, eins og vissulega er þörf, að stórauka lánveitingar í íslenzkum landbúnaði. Þetta hika ég ekki við að segja, þótt hitt kunni vafalaust hjá ýmsum að vera vinsælla, að menn vilji ekki skattleggja bændur, þótt að vísu sömu aðilar geti skattlagt bændur til að byggja hótel í Reykjavík, en það er önnur saga.

En með þeirri leið, sem nú er farin, að það sé í senn framlag frá bændum, framlag frá neytendum og framlag frá öllum almenningi í gegnum fjárlög, þá er hér farin hyggileg leið og sú eina leið, sem hægt var að fara, án þess að hún drægi annan dilk á eftir sér, því að það er það, sem þessum hv. þm. láist oft að líta á, að það eru til fleiri stofnsjóðir og það eru til fleiri atvinnugreinar í þessu landi en landbúnaður, sem líka telja sig eiga sinn rétt. Og ég geri ráð fyrir, að það yrði ekkert einfalt mál að flytja till. um það, að án allra mótframlaga legði ríkissjóður fram 30 millj. á ári í stofnframlag til stofnlánadeildar landbúnaðarins. Hvað um aðra sjóði? Iðnlánasjóður fær 2 millj. á ári. Hér er frv., sem var nýlega útbýtt hér á hinu háa Alþingi um nýja löggjöf um iðnlánasjóð, þar sem ekki er lögð til nein hækkun á því gjaldi. Fiskveiðasjóður fær 2 millj. á ári frá ríkissjóði, og að öðru leyti eru allar hans tekjur greiddar af sjómönnum og útvegsmönnum. Og ef við lítum með alvöru á þessi mál, þá sjáum við í hendi okkar, að möguleikinn til þess að fá stórhækkað framlag ríkissjóðs, eins og reyndin var, þegar l. um stofnlánadeildina voru sett, byggðist ekki sízt á því, að það var hægt að benda hér á, að aðrir aðilar legðu fram á móti. Það voru auðvitað mjög sterk rök í málinu. Og með þessu móti er tryggt stóraukið framlag ríkissjóðs, sem fer vaxandi ár frá ári með aukinni framleiðslu landbúnaðarvara, og jafnframt tekjustofnar bæði frá bændum og neytendum, sem einnig hljóta að fara hækkandi með aukinni sölu, framleiðslu og hærra verði varanna, þannig að með þessu móti er stofnlánadeildin byggð upp á þann hátt, að það er ekki ástæða til að halda annað en hún geti eflzt á þann veg, sem bent hefur verið á í sambandi við þetta mál, þegar það var hér til meðferðar.

Tvö önnur atriði þessa frv., önnur en að fella niður framlagið til stofnlánadeildarinnar og að festa framlag ríkissjóðs, eins og hér er gert ráð fyrir, eru þau, sem áður hafa að vísu margoft verið rædd og komið fram till. um, bæði í sambandi við frv. um stofnlánadeild og í ýmsu öðru sambandi varðandi vextina, að ríkisábyrgðasjóður eða ríkissjóður taki á sig gengishalla af hinum erlendu lánum, og hins vegar, að vextir af þessum lánum verði lækkaðir. Það þarf ekki að eyða mörgum orðum að fyrra atriðinu, varðandi yfirtöku þessara lána. Vissulega er það hárrétt, að það hefði verið stórkostlega mikið atriði fyrir ræktunar- og byggingarsjóð, ef það hefði verið létt af þeim þessum gengishalla. En ég verð hins vegar ákveðið að segja það, að ég álít, að það hefði að því leyti verið til tjóns, að það eru litlar líkur til, að það hefði þá verið gerð jafnvíðtæk breyting og endurskipulagning á allri lánastarfsemi landbúnaðarins og gerð var. En á hitt er svo einnig að líta, að hv. framsóknarmenn gerðu 1958 engar ráðstafanir til að létta þessum vanda af, sem varð til með yfirfærslugjaldinu. Í annan stað er mér ekki kunnugt um, að þeir hafi flutt nokkra till. í sambandi við l. um efnahagsmál um, að þessum gjöldum væri þá létt af sjóðunum. Það skiptir ekki meginmáli, heldur er það kjarni málsins, að hér er um að ræða skuldir, sem eru allt annars eðlis en þær, sem létt var af í sambandi við gengistap bankanna. Þá var eingöngu um að ræða viðskiptaskuldir bankanna, það sem var í gangi þá hjá gjaldeyrisbönkunum á hinum almenna viðskiptareikningi þeirra og hjá Seðlabankanum. Niðurstaðan í því uppgjöri öllu var sú, að viðskiptabankarnir báðir urðu að skila allverulegum gengishagnaði, en á Seðlabankanum varð gengishalli mikill, og þessi gengishalli stafaði eingöngu af því hjá Seðlabankanum, að hann hafði tekið bráðabirgðalán, hvar sem hægt var höndum undir að koma, til þess að geta flutt nauðsynjar til landsins, og það var í sambandi við þessar skuldir einar, sem í rauninni voru engar venjulegar skuldir, heldur aðeins bráðabirgðayfirdrættir, sem þessi jöfnuður gengishalla og hagnaðar fór fram. En mér er ekki kunnugt um, að það hafi verið nokkur föst lán hjá nokkrum aðilum, sem hafi komið þarna undir. Þetta held ég, eftir því sem ég bezt veit, að sé alveg rétt. Það kann vel að vera, að það hafi mátt hugsa sér að láta þetta á einhvern hátt ná til annarra lána, en mér er ekki kunnugt um, að á því hafi sérstaklega verið imprað þá, og þetta er alveg í samræmi við það, sem gert hefur verið áður, þegar gengisbreytingar hafa orðið. Það er ekki látið ná til annarra en þessara gangandi viðskiptaskulda bankanna, sem hafa þannig verið jafnaðar í gegnum þennan reikning.

Ég held því, þegar þetta er efnislega skoðað niður í kjölinn og menn vilja viðurkenna staðreyndir málsins, þá sé ekki beinlínis hægt að segja, að það hafi verið neitt eðlilegt við það að taka þennan gengismun, og raunverulega ekki aðeins, að það hafi ekki verið eðlilegt, heldur að það hefði hlotið að draga á eftir sér fleiri dilka, því að það eru fleiri aðilar, sem hafa tekið erlend lán og hlutu þá einnig að hafa komið þarna undir, ef hefði átt að fara út á þessa braut, og er þá kannske vandséð, hver hefði að lokum átt að bera allan þann halla.

Þá kem ég loksins að vöxtunum. Hv. flm. sló dálítið úr og í með vextina: annars vegar væri þetta mál, sem væri bændanna mál, og hins vegar kannske væri það ekki síður mál, sem snerti allan almenning í landinu. Auðvitað snertir vaxtapólitík yfirleitt allan almenning í landinu, og því lægri vextir sem eru, þá má segja, að það sé á margan hátt þægilegra um allar framkvæmdir og það gæti þá komið til lækkunar á verði vara, alveg nákvæmlega eins og það, að afnám tolla verkar auðvitað í sömu átt. Hv. framsóknarmenn hafa nú mjög tekið upp þá stefnu hér í þinginu að flytja í senn till. um lækkun vaxta og jafnframt afnám tolla til þess að lækka vöruverð. Mér hefði þótt ákaflega fróðlegt og lærdómsríkt, ef þannig hefði staðið á, að þessar till. yrðu fluttar einhvern tíma seinna, og ef svo kynni einhvern tíma að fara, sem vonandi verður ekki í náinni framtíð, að hv. formaður Framsfl. yrði fjmrh., að heyra rökstuðning hans og svör við slíkum kenningum og hversu skynsamlegar þær þjóðhagslega væru. Það liggur auðvitað í augum uppi, að þessi mál er ekki hægt að taka svona einfaldlega og líta á þetta frá þeim bæjardyrum einum, að það sé vinsælt að lækka tolla á vissum vörum og það sé vinsælt að lækka vexti. Þetta er auðvitað meginþáttur efnahagspólitíkur á hverjum tíma. Og það vill svo til, að vaxtamálin í dag, — ég ætla ekki að fara út í þá sálma almennt, en vextirnir í dag eru einn meginþátturinn í sambandi við það fjármálakerfi og þær fjármálaráðstafanir, sem við nú búum við. Og það er alveg ljóst, enda veit ég, að það er ákaflega vel ljóst jafnglöggum manni og hv. frsm. þessa máls, að það er auðvitað engin leið að lækka stofnlánavexti í landbúnaði, eins og hér er gert ráð fyrir, á annan hátt en lækka þá líka stofnlánavexti í öðrum atvinnugreinum, það gefur auga leið. Það er ekki hægt að taka þetta mál út af fyrir sig. Hann vitnaði hér áðan í grein, sem var mjög skynsamlega rituð af Arnóri Sigurjónssyni, og það vildi svo til, að í þeirri grein sagði hann, ef ég tók rétt eftir, að það væri tvennt, sem hefði þurft að gera til þess að leggja grundvöll að starfsemi búnaðarsjóðanna: það var annars vegar að létta af gengishallanum og hins vegar að hækka útlánsvexti. Þetta er mjög skynsamlega athugað af þeim glögga manni, að það er auðvitað engin leið til þess, á meðan lánamarkaður er þannig, að það þarf að taka lánsfé fyrir þessa sjóði eða fyrir stofnlánadeildina með miklu hærri vöxtum, jafnvel ef þessir vextir yrðu lögfestir með tvöfalt hærri vöxtum en stofnlánadeildin lánar út fé, þá gefur auga leið, að það er um að ræða slíkan vaxtamismun, að það mundi væntanlega éta upp að verulegu leyti, eins og hv. frsm. segði, það framlag, sem frá ríkissjóði er ætlað til deildarinnar, þannig að við héldum þá áfram á þeirri braut, sem átti líka sinn þátt í að grafa undan sjóðunum, að lána út féð með stórfelldum vaxtahalla. Hitt er svo aftur hárrétt hjá hv. frsm., að það auðvitað þarf að hafa vexti stofnlána í landbúnaði svo lága sem mögulega er auðið á hverjum tíma. En það, sem leggur grundvöll að því, að hægt sé að lækka slíka vexti, er fyrst og fremst, að stofnlánadeildin eigi nægilegt eigið fé, til þess að hún sé ekki algerlega háð lánsfjármörkuðum. Og það er ekki hvað sízt þetta, sem bent var á í sambandi við myndun stofnlánadeildarinnar og fjárhagsgrundvöll hennar, að með þeim till. væri gert ráð fyrir því að afla mikils eigin fjár til stofnlánadeildarinnar og þá væri verið að leggja traustan grundvöll að því, að það væri hægt að lækka vexti verulega án þess um leið að tefla fjárhagsafkomu deildarinnar í voða.

Þegar þessi þrjú meginatriði þessa frv. eru athuguð, í fyrsta lagi að afnema hina föstu tekjustofna að undanskildu framlagi ríkissjóðs, sem fyrst og fremst mundi þurfa að fara til þess að greiða vaxtahalla, í öðru lagi að létta af gengishallanum, sem ég út af fyrir sig væri ákaflega ásáttur með, ef að því fengist málefnalegur grundvöllur, og í þriðja lagi að lögfesta, svo sem hér er gert, þá vexti, sem hér er um að ræða, þá fæ ég ekki séð, að sé verið að vinna í þá átt, sem hv. flm. taldi að nú væri brýnast. Og ég sé ekki, að það sé grundvöllur undir því að auglýsa mál sem þetta fyrir bændum sem einhver sérstök bjargráð til lausnar þeirra fjárhagslegu vandamálum. Það er vissulega margt ógert í sambandi við lánamál landbúnaðarins, stofnlánamál hans. Það þarf að auka enn verulega lánin til stofnframkvæmda, þannig að ekki þurfi að myndast miklar lausaskuldir hjá bændum vegna framkvæmda. Af hálfu hæstv. núv. ríkisstj. og hæstv. landbrh. var höfð forganga um það að breyta lausaskuldum bænda í föst lán, og það eru 65 millj. kr., sem þannig hefur verið breytt í gegnum veðdeild Búnaðarbankans í 20 ára lán. Þetta var mjög merkileg ráðstöfun, en kemur vitanlega ekki að gagni fyrir framtíðina, nema jafnframt séu aukin útlán stofnlánadeildar og hækkuð lánin, til þess að koma í veg fyrir, að óeðlilegar lausaskuldir myndist. Og það er þess vegna vissulega þörf á því, að allir, sem eru bændastéttinni velviljaðir, reyni af einlægni að kryfja til mergjar, hvernig þetta verður bezt gert. Ég held, að það verði ekki gert heppilega með því að reyna að skapa úlfúð til þeirra ráðstafana, sem nú hafa verið gerðar til þess að leggja grundvöll að stofnlánasjóði landbúnaðarins. Ég held, að það leiði ekki til farsældar fyrir bændastéttina og uppbyggingu sveitanna að reyna að hafa slíkt mál sérstaklega að kosninga- og áróðursmáli. Hitt er annað mál, að í hópi hv. framsóknarmanna, þegar flokksblærinn er burt tekinn, eru margir hinna ágætustu manna, sem eru margir velviljaðir landbúnaði og uppbyggingu hans, og það væri áreiðanlega hægt að hafa samstarf um marga hluti, ef menn geta horft á þau án þess að líta fyrst í gegnum pólitísk flokksgleraugu. Það væri vissulega til mikilla hagsbóta fyrir landbúnaðinn og alla uppbyggingu í sveitum landsins.

Þetta vildi ég sagt hafa varðandi stofnlánadeildina og það, sem hér er um hana sagt.

En varðandi svo aftur síðasta lið þessa frv., veðdeildina, þá vildi ég fyrst benda hv. flm. á, að það er auðvitað ekki eðlilegt og í rauninni ekki hægt að setja ákvæði um veðdeild bankans inn í lögin um stofnlánadeild, vegna þess að stofnlánadeildin og veðdeildin eru aðskildar deildir og um veðdeildina eru ákvæði í lögum bankans. Þetta er auðvitað fyrst og fremst formsatriði, sem skiptir kannske ekki meginmáli og væri hægt að laga í meðferð máls. En það væri óeðlilegt að hafa bein ákvæði um veðdeildina í lögum um stofnlánadeild.

Það er auðvitað mjög góðra gjalda vert, og það er alveg rétt hjá hv. frsm., að vandamál veðdeildarinnar eru mjög alvarlegs eðlis, og það ber brýna nauðsyn til þess að auka fjárráð hennar. Í sambandi við stofnlánadeildarlögin var gert ráð fyrir því, að stofnlánadeildinni yrði heimilað að kaupa allt að 10 millj. kr. á ári í veðdeildarbréfum, þegar henni yxi fiskur um hrygg. Það verður væntanlega erfitt á þessu ári, því að þetta er fyrsta árið, sem skilar þeim tekjum, sem stofnlánadeildin á að fá, en ætti í framtíðinni að vera auðið að koma því við. Hitt er mér kunnugt um, að það er í senn að sjálfsögðu mikið áhugamál bankans og áhugamál hæstv. landbrh. að reyna að efla veðdeildina með einhverjum ráðum, og ég er ákaflega hræddur um það, þótt það sé góðra gjalda vert, eins og ég sagði, að fá aðstoð til þess að koma því máli fram með einhverjum skynsamlegum ráðum, þá sé þetta engin lausn í því máli, sem hér er bent á, einfaldlega vegna þess, að það hefur verið í lögum síðan 1954, að Landsbanki Íslands ætti að kaupa árlega rúmlega 1 millj., — það var nú ekki meira en það, 1 millj. í bréfum veðdeildarinnar, sem notað yrði svo sérstaklega til að lána til jarðakaupa. Úr þessu hefur ekkert orðið, þó að þessi lagaheimild væri til staðar. Og það hefur aldrei fengizt neitt samkomulag við Landsbankann um, að þetta fé yrði látið, og ég er ákaflega dauftrúaður á það og tel enda, að bankalega séð sé ekki heppilegt að fara að lögfesta, að einhverjum banka skuli skylt að lána til ákveðinna hluta, það hljóti að verða samningsmál milli viðkomandi ríkisstj. hverju sinni við höfuðbanka landsins, eins og hér er gert ráð fyrir, hvað hann treysti sér til að lána í þessu efni eða öðru. Það vita allir hv. þm., að ríkisstj. þarf á hverjum tíma að leita til Seðlabankans með fjölda mála. Og ég held, að það mundi sannarlega ekki greiða neitt fyrir málefnum veðdeildarinnar eða leysa neitt öngþveiti, þó að sú leið yrði farin að ætla að festa í lögum skyldu Seðlabanka Íslands til að veita lán, eins og hér er gert. Ég hef ekki trú á því.

Það, sem er höfuðnauðsyn fyrir veðdeildina, er að fá fastan tekjustofn á einhvern hátt árlega, ekki svo háa fjárhæð sem hér er gert ráð fyrir í einu, enda mun það sennilega ekki vera tilgangur flm., heldur væri það mikil nauðsyn, að hún gæti fengið jafnvel þótt ekki væri meira en 10 millj. kr. á ári, og væri það mikil stoð, því að það er mjög tilfinnanlegt og það finnur enginn betur en þeir, sem eiga að standa andspænis þeim beiðnum bænda, að hafa ekki fé til þess að lána bændum, sem eru að kaupa sér jarðir. Að vísu er það í mörgum tilfellum orðið svo, að það hvíla svo há lán á jörðum, að eignayfirfærsla á þeim yrði ekki mjög erfið, og jafnvel ekki auðið að veita veðdeildarlán út á það til viðbótar. En hins vegar er auðvitað fjöldi jarða, sem lítið hvílir á, og það er mikil nauðsyn, að viðkomandi aðili geti fengið lán til að borga útborgun í þeim jörðum. Ég skal því mjög taka undir með hv. frsm. um nauðsyn þess, að það verði úrræði fundin til að leysa þetta mál. En miðað við reynsluna af því að lögfesta skyldu til að kaupa 1 millj. kr. á ári, hef ég ekki ákaflega mikla trú á, að það verði betri niðurstaða úr því að ætla að fara að fyrirskipa Seðlabankanum að lána í þessu sambandi 50 millj. kr. og jafnframt að ákveða, með hvaða vöxtum hann skuli lána sitt fé í einu tilteknu tilviki. Það held ég, að sé ekki mjög heppilegt og ekki líklegt til að þjóna þeim tilgangi, sem ég veit að hv. flm. hafa í huga.

Varðandi svo síðasta atriðið í þessu frv., um sérstakan fjárstyrk, sem segir í 6. gr., þá er ég hv. flm. algerlega sammála um, að það er mikil nauðsyn að sinna því efni, og það er mjög slæmt, að það skuli ekki hafa fengizt fjárveiting í þessu skyni. Það er ekki nýtt mál, það er búið að þrefa árum saman um fjárveitingu til þessarar sérstöku nefndar til að leiðbeina bændum um gerð bygginga, og það væri vissulega æskilegt, að það gæti orðið samkomulag um, að fjárveiting fengist í þetta sérstaka viðfangsefni, svo sem gert er ráð fyrir í lögum.

Herra forseti. Ég skal ekki eyða að sinni fleiri orðum um þetta mál, en taldi rétt, að þessi atriði kæmu hér fram við 1. umr. málsins.