11.02.1963
Efri deild: 39. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 143 í C-deild Alþingistíðinda. (2048)
132. mál, stofnlánadeild landbúnaðarins
Magnús Jónsson:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð, því að fundartími er að verða liðinn,
Ég vil fyrst taka það fram, að það var misskilningur hjá hv. frsm., að ég hefði sagt, að Framsfl. hefði ekkert gert fyrir stofnlánasjóði landbúnaðarins. Ég minntist ekki einu orði á það. Ég var aðeins að ræða um, hvaða óhöpp hefði leitt af gengishallamálinu og þeim erlendu lánum, sem tekin voru. Ég vék ekki einu orði að því, að Framsfl. hefði ekkert gert fyrir þessa sjóði, enda er það vitanlega ekki rétt, því að hann hefur átt hlut að því ásamt öðrum, að það væri varið til þeirra allmiklu fé á undanförnum árum. Hitt var svo nokkru hæpnara hjá hv. þm., að hann sagði, að Framsfl. hefði lagt grundvöllinn að allri þessari starfsemi. Það er að vísu rétt í upphafi, en þá fyrst fór að muna nokkuð verulega um starfsemi þessara sjóða, þegar löggjöfin um það var endurskoðuð í tíð nýsköpunarstjórnarinnar.
Þá vil ég aðeins benda á það, án þess að fara út í þá hluti nánar, að ef það hefði verið ætlunin 1958 að létta af þeim bagga, sem þá þegar var kominn á stofnlánasjóðina, var ákaflega handhægt að gera það í sambandi við fjárlfrv. og hefði að sjálfsögðu verið eðlilegast, ef það hefði verið hugsunin. Þegar það var samið, mun ekki hafa verið reiknað með því, að vinstri stjórnin væri að fara frá völdum.
Það, sem ég þó sérstaklega vildi minnast á hér, var í sambandi við vextina. Ég veit, að hv. flm. sér sjálfur, hversu fráleitir þeir reikningar eru, þegar hann er að tala um framlög bænda til stofnlánadeildarinnar, að reikna þá með framlögum bænda vextina af lánunum. Það liggur auðvitað í augum uppi, að sá, sem fær lán, hlýtur alltaf að borga vexti. En að vera að tala um það sem sérstakt framlag bænda í þessu sambandi, það er auðvitað algerlega óeðlilegt.
Ég vildi sérstaklega láta það koma fram hér í sambandi við vextina, sem ég gleymdi áðan í ræðu minni, að þótt vextirnir hafi hækkað á þessu tímabili, eins og við vitum, þá er ekki þar með sagt, að af því hafi leitt stórauknar álögur á bændur. Það kemur ljósast fram í því, þegar athugaður er verðlagsgrundvöllur landbúnaðarvara. Og ég tel rétt að láta það koma hér fram við þessar umr., sem raunar mörgum hv. þm. mun vera kunnugt, að 1958 eru vextir í verðlagsgrundvelli landbúnaðarvara reiknaðir 8188 kr. En nú, haustið 1962, eru hinir greiddu vextir bóndans áætlaðir 24792 kr., og mér skilst, að þá hafi verið tekin til greina að fullu sú krafa, sem af hálfu bænda var haldið fram í þessu efni. Af þessu verður ljóst, að það er að sjálfsögðu mjög verulegur hluti af þessum vöxtum og hlutfallslega miklu meiri hluti en áður var, sem kemur fram í landbúnaðarverði, sem sýnir, að bændur hafa fengið upp borna hina háu vexti.
Ég vil að lokum segja, að þegar hv. 5. þm. Austf. var að tala um þá bágbornu smíð ríkisstj., að hún mundi hrynja, ef vextir lækkuðu, þá fer því vissulega fjarri, en vaxtatekjur mundu minnka. Ef litið er á viðbrögð framsóknarmanna til þessarar lélegu smíðar, þá sé ég ekki betur en verið sé að grafa gersamlega undan löggjöfinni um stofnlánadeildina. Það er það, sem ég harma, — ég efast ekki um góðan vilja ýmissa framsóknarmanna, en frv. stefnir í þá átt.