12.02.1963
Efri deild: 43. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 148 í C-deild Alþingistíðinda. (2052)
132. mál, stofnlánadeild landbúnaðarins
Ólafur Björnsson:
Herra forseti. Ég hef að því leyti ekki ástæðu til þess að lengja þessar umr. sem neinu nemur, að því hefur ekki verið haggað, sem var aðalatriðið í því, sem ég sagði hér við umr. í gær. Ég benti á það ósamræmi, sem kæmi fram hjá hv. framsóknarmönnum í því, að annars vegar bera þeir fram margvíslegar till. og kröfur um fjárframlög til allra mögulegra hluta, en hins vegar hafa þeir ekkert nema neikvætt til þeirra mála að leggja, hvernig eigi að auka það fjármagn, sem til ráðstöfunar er, til þess að koma á móts við óskirnar um lánakröfur, ef sleppt er, eins og ég tók líka fram í ræðu minni, athyglisverðri till., sem að vísu kom fram á fyrstu þingum þessa kjörtímabils, um verðtryggingu sparifjár. Ég benti á það, að ef fullnægja ætti þessum kröfum, sem ég engan veginn ber á móti að æskilegt sé, því að vissulega vantar fjármagn, bæði til landbúnaðar og annarra atvinnuvega og ýmiss konar verklegra framkvæmda annarra, þá yrði það ekki gert nema með aukinni fjármagnsmyndun í landinu, og væri það komið undir árangrinum í þá átt, hvað hægt væri að gera til þess að bæta úr lánsfjárskortinum. En megintill., sem hv. framsóknarmenn hafa borið fram í því efni, hefur verið sú að lækka innlánsvexti, sem ótvírætt hlýtur að draga úr sparifjármynduninni og þess vegna verða spor í gagnstæða átt við það, að hægt sé að auka fjárframlög til atvinnuveganna og verklegra framkvæmda.
Hv. 1. þm. Vesturl. (ÁB), sem talaði hér áðan, gerði enga aths. við þetta, en fór hins vegar, þegar hann vék að ræðu minni, út í nokkuð aðra sálma, sem ég skal þó viðurkenna að engan veginn eru óviðkomandi því máli, sem hér er til umr. Hann spurði mig um álit mitt á því, hvaða vexti íslenzkir atvinnuvegir gætu þolað, að mér skildist miðað við núv. ástand í efnahagsmálum þjóðarinnar. Þetta er stærri spurning en svo, að henni verði svarað í stuttu máli. En í þessu sambandi vil ég leyfa mér að vitna í blað hv. þm., Tímann, sem bæði að undanförnu og um langt skeið hefur gert vaxtamálin að sérstöku umræðuefni. Þar hefur verið á það bent, að það sé í rauninni rangt, þegar því sé haldið fram, að svo vel hafi verið gert til sparifjáreigenda að undanförnu, sem stjórnarblöðin að áliti þessa blaðs gera, vegna þess að þá sé ekki tekið tillit til þeirrar verðrýrnunar sparifjárins, sem orðið hefur að undanförnu. Það er sá sannleikskjarni í þessu, að spurningu hv. þm. verður ekki svarað nema með tilliti til þeirrar verðlagsþróunar, sem er á hverjum tíma. Þegar gera skal grein fyrir því, hver séu þau raunverulegu vaxtakjör, sem lántakendur og lánveitendur njóta á hverjum tíma, þá verður ekki hjá því komizt að taka tillit til þróunar verðlagsins. En þá er ekki hægt að gera það á þann hátt, sem þetta heiðraða blað gerir, að líta eingöngu á verðrýrnunina, þegar málin eru rædd frá sjónarmiði sparifjáreigenda. Auðvitað verður að gera það sama, þegar þetta er rætt frá sjónarmiði lántakenda, því að það, sem sparifjáreigendurnir tapa vegna verðrýrnunarinnar, hlýtur auðvitað að verða hagnaður þeirra, sem peningana taka að láni. Ef ég hef fengið lán til eins árs, jafnvel þó að það sé með 10% vöxtum, og verðlagið hækkar um 10% á þessu ári, sem ég hef peningana til umráða, þá þýðir það, að ég endurgreiði lánið í 10% verðminni peningum en þeir voru, þegar ég tók það, og það verður auðvitað minn hagnaður. Þetta ber auðvitað líka að hafa í huga, þegar lán eru tekin til atvinnuveganna. Það má segja, að það færi lántakanda að vísu ekki beinlínis pening í vasann, þó að skuld hans rýrni að verðmæti. En með flesta er það þannig, að þegar verðlagsþróunin almennt fer upp á við, þá hækka tekjur manna, bæði þeirra, sem taka kaup, afurðir bændanna hækka o.s.frv., svo að einnig á þann hátt kemur það fram, að skuldabyrðin verður léttari, þar sem um fastákveðnar krónuupphæðir er að ræða, þegar lán er borgað niður, fyrir þann, sem fær hækkaðar tekjur. Ef svara á því, hvaða vextir séu hæfilegir í þjóðfélaginu, þá hlýtur svarið auðvitað að verða komið undir því að verulegu leyti, hvort maður gengur út frá því, að verðlagið sé stöðugt,eða að það sé á stöðugri hreyfingu, annaðhvort upp á við eða niður á við.
Hv. þm. minntist á það, að ríkisstj. hefði viðurkennt, að þeir vextir, sem voru ákveðnir með efnahagsmálalöggjöfinni í febr. 1960, væru of háir, þar sem þeir hefðu verið lækkaðir síðar og auk þess hefðu verið gerðar sérstakar vaxtaráðstafanir gagnvart lausaskuldum bænda o.s.frv. Ég man nú ekki betur en það væri beinlínis tekið fram, að þeir háu vextir, sem ákveðnir voru í febrúar 1960, ættu aðeins að standa til bráðabirgða og þeir yrðu lækkaðir svo fljótt sem efnahagsástandið í þjóðfélaginu í heild leyfði slíkt. Það var líka tekið verulegt spor í þá átt ári síðar, og hefði tekizt að halda verðlagi stöðugu þann tíma, sem liðinn er frá því, að efnahagsmálaráðstafanirnar voru gerðar, þá tel ég mjög miklar líkur á því, að hægt hefði verið að lækka vextina meira. Hinu má ekki loka augunum fyrir, að í þjóðfélagi eins og okkar hlýtur vaxtafóturinn alltaf að verða tiltölulega hár. Það stafar bæði af þeirri miklu eftirspurn, sem er eftir lánsfé til alls konar framkvæmda, og svo því, að sparifjármyndun hefur verið minni en æskilegt er, og auðvitað á sú verðbólga, sem við höfum átt við að etja, sinn þátt í því. En hitt vil ég að lokum undirstrika sérstaklega, og það var aðalatriðið í því, sem ég sagði í fyrri ræðu minni, að það þýðir ekki með lögum eða á annan hátt að ætla sér að lækka vextina til hvers sem vera skal, nema möguleikar séu fyrir því að útvega fjármagn á þessum hagstæðu vöxtum, ef ekki er séð fyrir því, þá eru þeir, sem njóta eiga góðs af hinum lágu vöxtum, hvort sem það eru bændur eða aðrir, litlu bættari. Felst þó ekki í þessum orðum það, að ég telji það óverjandi, sem viðurkennt hefur verið af öllum að átt geti við, að lækka vexti til tiltekinna framkvæmda og í þágu tiltekinna atvinnuvega, enda er það, eins og kunnugt er, þannig, að enda þótt æskilegt kynni að vera að skapa skilyrði fyrir því, að vextir yrðu almennt lækkaðir, þá eru stofnlán og afurðalán til landbúnaðar á lægri vöxtum en hinir almennu vextir í þjóðfélaginu. Við því er í sjálfu sér ekkert að segja. En frá hagsmunasjónarmiði landbúnaðarins væri vitanlega æskilegt, að framleiðni hans gæti aukizt svo mikið, að hann yrði fyllilega samkeppnisfær við aðra atvinnuvegi og aðra, sem á lánum þurfa að halda, þannig að hann geti greitt þá vexti, sem almennir eru í þjóðfélaginu. Ef þessu skilyrði er ekki fullnægt, þá er mjög hætt við því, að erfitt verði að útvega nægilegt fjármagn til landbúnaðarins á hinum hagstæðu vaxtakjörum. Reynslan hefur og sýnt, og ekki sízt hér á landi, að viðleitni til þess að útvega fé með sérstaklega lágum vöxtum hefur strandað á því, að vegna hins mikla fjármagnsskorts í þjóðfélaginu almennt hefur ekki verið hægt að útvega fjármagnið með þessum kjörum.