19.11.1962
Neðri deild: 16. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 201 í C-deild Alþingistíðinda. (2127)
87. mál, innlend endurtrygging o.fl.
Sjútvmrh. (Emil Jónsson):
Hæstv. forseti. Þetta frv. til l. um breyt. á l. um innlenda endurtryggingu ber það eitt í sér, að arðgreiðsla eða heimild til arðgreiðslu handa hluthöfum er lítils háttar hækkuð frá því, sem nú er í lögum. Þessi arðgreiðsla hefur nú verið takmörkuð við 6% og hefur yfirleitt verið það nema um skeið, þegar hún var ákveðin aðeins 5%. Þessar hámarkstölur hafa verið við það miðaðar að vera 1–2% hærri en venjulegir innlánsvextir í sparisjóði Landsbanka Íslands. Breytingin, sem hér er lagt til að gerð verði á lögunum, felur það í sér, að hámarksupphæðinni verði breytt, þannig að það sé jafnan heimild til að hafa arðgreiðsluna miðaða við innlánsvexti, en allt að 2% hærri. Enn fremur er í þessum breytingum gert ráð fyrir, að arðgreiðslur megi færa á milli ára, ef ekki er hægt að greiða þær upp samkv. ákvæðum laganna eitthvert árið.
Aðilar að þessari tryggingastarfsemi eru: Ríkissjóður, sem hefur lagt til 1 millj. og 850 þús. kr. í áhættufé, tryggingafélögin, Tryggingastofnun ríkisins 136 þús., Brunabótafélag Íslands 136 þús. og Sjóvátryggingafélag Íslands 136 þús., eða samtals þessi tryggingafélög 408 þús. Enn fremur útgerðarmenn nokkrir, sem samanlagt hafa lagt fram 2 millj. 706 þús. kr. Áhættuábyrgðirnar eru dreifðar á sömu aðila nema útgerðarmennina, þ.e. ríkissjóð og tryggingafélögin þrjú, sem ég nefndi. Það hefur orðið vart óánægju með það, að þessir aðilar, sem eiga hlut að endurtryggingunni, hafa ekki átt kost á að fá sparisjóðsvexti af sínu fé, og frá þeim eru tilmæli um þessa breytingu komin.
Ég vildi leyfa mér að leggja til, að frv. yrði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og sennilega hv. sjútvn.