01.04.1963
Efri deild: 65. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 232 í C-deild Alþingistíðinda. (2161)

192. mál, lækningaleyfi

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Þetta litla frv. hefur þegar hlotið afgreiðslu í hv. Nd. og varð þar ekki að neinu ágreiningsefni. Tilgangur þess er sá að greiða fyrir nauðsynlegri skýrslusöfnun í heilbrigðismálum og á þann veg að færa fjárhæð dagsekta til nútímahorfs, en þær voru orðnar svo lágar, að segja mátti, að þær væru gagnslausar eins og er samkv. núgildandi lögum.

Ég legg til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.