17.12.1962
Neðri deild: 29. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 299 í B-deild Alþingistíðinda. (219)
46. mál, ríkisreikningurinn 1961
Eysteinn Jónsson:
Hæstv. ráðh. segir, að samgmrn. líti svo á, að fullkomin lagaheimild hafi verið fyrir ríkislántöku í Keflavíkurveg og hafi útbúið grg, um það. En hefði ekki verið meiri ástæða til þess fyrir hæstv. fjmrh. að segja, hvert álit fjmrn. er á því? Heyra ekki lántökur ríkisins undir fjmrn.? Ég hygg, að það sé algerlega ljóst, að lántökur ríkisins heyri undir fjmrn. Ég vil því fá að heyra grg. hæstv. fjmrh. fyrir því, hvar í lögum sé heimildin til þess að taka lán í þennan veg. Það gæti verið fróðlegt fyrir okkur, sem höfum verið að flytja hér frv. og till. um lántökur til annarra vega, ef einhver slík leyniheimild til lántöku í vegagerðir er allt í einu til í lögum.
Ég vildi því óska þess, að hæstv. fjmrh. gerði okkur grein fyrir þessu, því að þessum lántökum í Keflavíkurveg hefur verið haldið áfram á þessu ári og búið er að leggja marga milljónatugi í þennan veg, sem vafalítið hefur nærri því allt, ef ekki allt, verið tekið að láni.
Hæstv. samgmrh. hefur hvergi neinar heimildir til þess að taka lán fyrir ríkið. Ríkislántökurnar heyra undir fjmrn. En hér hefur verið farið fram hjá öllum lögum, líka í því, að samgmrn. mun hafa verið látið ganga fram hjá fjmrn. og auðvitað viljandi, og einn af embættismönnum ríkisins hefur verið látinn skrifa undir lánið, sem er þó algerlega skuldbinding ríkisins og ríkissjóðs.
Ég spyr því hæstv. fjmrh. og vil, að hann svari því greinilega: Telur hann ekki, að þessi lán, sem tekin hafa verið til Keflavíkurvegarins, séu skuldbindingar ríkissjóðs? Er það ekki alveg ljóst, að þetta séu skuldbindingar ríkissjóðs? Í því sambandi duga ekki sams konar vífilengjur og í fyrra, þegar talað var um, að þetta væru skuldbindingar vegagerðarinnar. Getur vegagerðin tekið milljónatugi að láni? Og hver á að borga það? Auðvitað ríkissjóður. Vill ekki hæstv. ráðh. gera það alveg ljóst, segja okkur skoðun sína á því, hvort nokkur vafi sé á því, að hér sé um lán að ræða, sem ríkissjóður verður að standa skil á? Og þá er hér um ríkislántöku að ræða, sem ég endurtek að ekki hefur verið lagaheimild til, svo að nokkrum þm. sé kunnugt um, sem ég hef boríð þetta í tal við.
Ég tek það enn fram, að það er málsmeðferðin, sem er fyrir neðan allar hellur og óhugsandi er fyrir hæstv. ráðh. að verja, svo að nokkru gagni komi, en ekki lagning Keflavíkurvegarins.
Ég endurtek: Vill ekki hæstv. fjmrh. skýrt og skilmerkilega, því að undir hann heyra lántökur ríkisins, gera okkur grein fyrir því, hvar lagaheimildin er fyrir því að taka þetta lán?
Hæstv. ráðh. er að reyna á mjög ómyndarlegan hátt að skjóta sér á bak við embættismenn ríkisins í þessu máli. Hann var eitthvað að lesa hér áðan í hálfum hljóðum, sem mér skildist hann hafa eftir ráðuneytisstjóranum í fjmrn. Og síðan er hann að vitna í vegamálastjóra í þessu sambandi. Það er ekki þessara embættismanna að ákveða, hvernig fara skuli með ríkislántökur. Og mér er kunnugt um, að vegamálastjóri skrifaði undir þetta lán eftir fyrirmælum frá hæstv. samgmrh. Það er orðið eitthvað undarlega starfað á vegum hæstv. fjmrh., ef honum er gersamlega ókunnugt um slíkar lántökur, enda vitum við, að honum er vei kunnugt um þær. Og hann getur ekki skotið sér á bak við neina undirmenn sína í þessu efni eða komið nokkurri sök yfir á þá, því að þeir eru ekki í neinni sök.
Það er hans skylda, hæstv. fjmrh., að sjá um, að ríkislén séu rétt tekin og talin fram og ekki leikinn með þau feluleikur á vegum annarra ráðuneyta, eins og manni virðist ráðherrann gefa í skyn um samgmrn. í þessu sambandi.
Það vita allir, að vegamálastjóri hefur auðvitað ekkert í þessu gert annað en fara eftir fyrirmælum frá sínum yfirmönnum, og það dettur engum manni í hug að lá honum það. En þá eiga ekki heldur yfirmenn hans að vera að reyna að skjóta sér á bak við hann á einn eða annan hátt í þessu efni, heldur taka karlmannlega afleiðingunum af því, sem þeir hafa raunverulega gert.
Hingað til hefur það ekki verið siður ráðh. að skjóta sér á bak við einstaka embættismenn varðandi hápólitísk mál, eins og þetta er allt saman, því að þetta er til komið og allt sett á leiksvið á þennan hátt til þess að fara á bak við Alþingi, til þess að komast fram hjá Alþingi.
Ef það var ekki meiningin var hægt að fara með þetta á eðlilegan hátt, leita sér lánsheimildar, sem vafalaust hefði verið samþykkt. Fjmrn. hefði getað tekið lánið, eins og það á að gera samkv. stjórnskipuninni, því að ríkislántökurnar heyra þar undir, og fært það strax og blátt áfram í ríkisreikninginn. Í staðinn er leikinn allur þessi feluleikur og allur þessi skollaleikur, aðeins til þess að komast fram hjá Alþingi og ekki af neinum öðrum ástæðum.
Svo vil ég að lokum benda á að gefnu tilefni frá hæstv. ráðh., að það eru ekki færðar afborganir og vextir af þessu láni í fjárlagafrv. Kannske það sé líka vegamálastjóra að kenna? Kannske vegamálastjóri hafi gert fjárlfrv. eða átt að sjá um það að þessu leyti? Kannske hæstv. fjmrh. ætli að segja okkur, að honum hafi verið algerlega ókunnugt um þetta mál, sem ofan á allt annað hefur hvað eftir annað borizt í tal hér á Alþingi. En hæstv. ráðh. hefur ekki svarað öðru en hálfgerðum útúrsnúningi og vífilengjum um þetta, eins og t.d. í fyrra, þegar ég spurði um lántökur ríkisins hér í hv. Alþingi, þá tók hæstv. ráðh. þetta lán á lánalistann, en þegar ég spurði hann um heimildir og annað í því sambandi, þá sagði ráðh., að þetta lán væri nokkuð sérstakt, það væri tekið á vegum vegagerðarinnar.
Það var eins og vegagerðin væri allt í einu orðin eitthvert sjálfstætt ríki, sem hefði tekið þetta lán, og þá gefið í skyn, að þetta væri óviðkomandi fjármálum og fjárhag ríkissjóðs. Þetta kalla ég vífilengjur, vegna þess að það vita allir, að vegagerðin er ekkert annað en skrifstofa, sem sér um vegamálin, hefur engar sjálfstæðar tekjur, og lán, sem hún tekur eftir fyrirmælum ríkisstj., eru hrein ríkislán og heyra undir hæstv. fjmrh., og hann á að sjá um, að þau komi í ríkisreikninginn eins og önnur ríkislán. Það er ekki skylda vegamálastjóra að semja ríkisreikninginn og ekki heldur fjárlög.
Það er ljóst mál, að greiðslur af þessu láni eru ekki færðar í fjárl., og þó er lán til Keflavíkurvegarins nú orðið miklu, miklu hærra heldur en nemur þeirri fjárhæð, sem tekin var 1961, því að það hefur verið lagt stórfé í veginn á þessu ári. Samt sem áður er ekkert í fjárl. vegna lánanna.
Ég spurði ráðh., hvort hann vildi halda því fram, að það væri vafi á því, að ríkissjóður yrði að standa skil á þessu láni. Hann svaraði því engu. Auðvitað er enginn vafi á því, þannig að við þurfum ekkert svar frá honum í því efni.