18.12.1962
Neðri deild: 30. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 301 í B-deild Alþingistíðinda. (221)

46. mál, ríkisreikningurinn 1961

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Ég hafði ekki ætlað mér að taka til máls um ríkisreikninginn, en í tilefni af því, að hér hefur verið minnzt á samgmrn. og hlut þess í sambandi við Keflavíkurveginn, þykir mér rétt að segja hér aðeins frá því, að ráðuneytisstjórinn í samgmrn. hefur tekið saman skýrslu varðandi lánsheimildina.

Ég var undrandi, þegar ég heyrði það fullyrt í útvarpinu af hv. 1. þm. Austf. (EystJ), að lán til Keflavikurvegar hefði verið tekið í heimildarleysi. Minntist ég þess þá, að í fyrra, þegar lán var tekið til vegarins af svokölluðu PL-láni gegnum Framkvæmdabanka Íslands, þá var athugað nákvæmlega, hvort nauðsyn bæri til að leita heimildar fyrir lántökunni. Niðurstaðan varð sú, að það væri heimild fyrir hendi og þyrfti þess ekki með.

Þegar ég daginn eftir að þessar umr. fóru fram, þar sem hv. 1. þm. Austf. viðhafði fullyrðinguna, fór að tala við ráðuneytisstjórann um þetta mál, sagði hann og reyndar fleiri, sem ég hafði rætt við: Hann hefur aðeins sagt þetta í hita dagsins óhugsað, og þetta verður tæplega endurtekið. — Ég hygg, að hæstv. fjmrh. hafi hugsað eitthvað svipað og þess vegna ekkí fundizt taka því að svara þessum ásökunum.

Ég bað ráðuneytisstjórann um að taka saman grg. um þetta, svo að hún væri til, ef svo ólíklega skyldi ske, að enn væri haldið áfram að fullyrða, að hér væri um lögleysur að ræða.

Það er rétt, sem hv. 1. þm. Austf. sagði hér áðan, að lántökur heyra ekki undir samgmrh. og þess vegna mætti hann láta sig einu skipta, hvað fullyrt væri í þessu efni. Það væri hæstv. fjmrh., sem ætti að bera af sér sakir. En ég ætla, að ég hafi gefið nokkra skýringu á því, hvers vegna hann hefur ekki gert það. En þá geta menn spurt: Hvers vegna getur þú þá ekki einnig litið svo á, að þessi fullyrðing sé ekki svaraverð? Ég hygg, að það sé vegna þess, að ég er ekkí lögfróður maður og tel þess vegna dálítið miklu skipta að hafa þetta á blaði, staðfest af færum lögfræðingi. Hæstv. fjmrh. er hins vegar lögfróður maður og telur, að þegar hv. 1. þm. Austf, er með fullyrðingar eins og þessar, þá sé tæplega ómaksins vert að vera að hrekja þær. En það, sem ráðuneytisstjórinn tók saman í sambandi við lánið, er sem hér segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Samkvæmt lögum nr. 17 1953, 1. gr., er Framkvæmdabanki Íslands sjálfstæð stofnun í eign ríkisins. Skv. 9. gr. sömu l. er ríkisstj. heimilað að ábyrgjast erlend lán bankans, allt að 80 millj. kr., sem síðan var hækkað með l. nr. 39 14. apríl 1954 í 225 millj. kr., með I. nr. 35 29. maí 1957 um 150 millj. þessu til viðbótar eða í 375 millj. kr. alls, með l. nr. 13 29. marz 1961 var ábyrgðarheimildin loks hækkuð í 600 millj. kr., reiknað á því gengi, er var í gildi, er til skuldar var stofnað. Í fjárl. fyrir árið 1961, 22. gr., er ríkisstj. heimilað að ábyrgjast lán, jafnvirði allt að 1 millj. 388 þús. Bandaríkjadollara, sem Framkvæmdabanki Íslands tekur af lánsfé því, sem til fellur skv. samningi um kaup á landbúnaðarvörum, PL-480, sem undirritaður var milli ríkisstj. Íslands og Bandaríkjanna 6. apríl 1960. Skv. samningi 14. júní 1961 milli ICA, Framkvæmdabanka Íslands og Vegagerðar ríkisins var ákveðið, að Framkvæmdabanki Íslands tæki skv. síðarnefndri heimild af PL-480 fé 10 millj. kr. lán, sem endurlána skyldi Vegagerð ríkisins til lagningar Keflavíkurvegar. Gengið var frá lánssamningi um þetta fé 7. des. 1961 milli Framkvæmdabanka Íslands og Vegagerðar ríkisins. Eru þar ákvæði um endurgreiðslu lánsins, lánstíma, vaxtakjör og 1% lántökugjald til Framkvæmdabanka Íslands. Skuldabréf fyrir framangreindri upphæð gaf lántakandi, Vegagerð ríkisins, út 11. júlí 1962 til lánveitanda, Framkvæmdabanka Íslands. Er tilgreint í bréfinu, að þessir aðilar séu lántakandi og lánveitandi.

Heimild Framkvæmdabanka Íslands til lántöku og ábyrgðarheimild ríkissjóðs skv. 22. gr. fjárl. 1961 hefur ekki verið vefengd. Lítið hefur verið svo á, að ekki þyrfti sérstaka lagaheimild til þess, að ríkisstofnun, Vegagerð ríkísins, mætti taka lán sem þetta hjá annarri ríkisstofnun, Framkvæmdabanka Íslands, enda ljóst, að ríkissjóður er þegar skuldbundinn með ábyrgð á hinu erlenda láni, er Framkvæmdabankinn tekur það, og skuldbinding ríkissjóðs eykst ekki, þótt fé þetta sé endurlánað annarri ríkisstofnun.

Um skuld þá, sem getið er um í nál. minni hl. við Seðlabankann, er það að segja, að það var aðeins bráðabirgðalán, sem gerðar hafa verið ráðstafanir til að væri greitt og greiðist af láni, sem fer í gegnum Framkvæmdabankann.“

Ég hef ekki meira um þetta að segja. Ég ætla, að fleiri lögfræðingar en ráðuneytisstjórinn í samgmrn. hafi séð þetta plagg og ekki haft við það að athuga. Ég var ekki inni, þegar hv. 1. þm. Austf. var að tala áðan, en það mun þó hafa komið fram hjá honum, að öll meðferð á lagningu Keflavíkurvegar væri nokkurs konar feluleikur, að vegamálastjóra hafi verið sagt að láta þetta ekki koma fram í ríkisreikningunum o.s.frv. Þetta er náttúrlega reginmisskilningur og alls ekki rétt að vera að drótta því að vegamálastjóra, að hann láti nota sig þannig, sem væri þá sama sem að falsa reikninga, enda þótt það þætti boðlegt að bera það á, ráðuneytið.

En það þarf enginn feluleikur með þetta að vera og hefur ekki verið. Lánin, sem hafa verið tekin til vegarins, hafa verið tekin skv. heimildum, og Keflavíkurvegurinn, eins og sagt var hér áðan, kemur vitanlega fram í ríkisreikningnum fyrir árið 1962.

Menn eru stundum að velta því fyrir sér, hvers vegna hv. 1. þm. Austf. endurtekur þessar fjarstæður. Ég hefði vel getað fyrirgefið honum, þótt hann hefði sagt þetta einu sinni í hita dagsins óvart. En að endurtaka þetta æ ofan í æ og prenta þetta í víðlesnu blaði, skrökva þannig vísvitandi að öllum landslýð, það er nokkuð, sem er ekki sæmilegt.