06.11.1962
Efri deild: 13. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 252 í C-deild Alþingistíðinda. (2211)

75. mál, lausn á síldveiðideilunni sumarið 1962

Sjútvmrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Þetta frv. til l. um lausn á síldveiðideilunni sumarið 1962 er flutt til staðfestingar brbl., sem út voru gefin 24. júní s.l. Rökin fyrir því, að þessi brbl. voru út gefin, eru talin í forsendum fyrir brbl. og voru í aðalatriðum þau, að þrátt fyrir margra vikna samningaumleitanir á milli L.Í.Ú. annars vegar og stéttarfélaga sjómanna innan Alþýðusambands Íslands og Farmanna- og fiskimannasambands Íslands hins vegar um kaup og kjör sjómanna á síldveiðum á sumrinu 1962, höfðu samningar ekki tekizt. Þetta var talið mundu hafa í för með sér stöðvun flestallra síldveiðiskipa og valda óbætanlegu tjóni, bæði fyrir fiskimennina sjálfa, fyrir útgerðarmennina og fyrir þjóðarbúið í heild. Það var þess vegna talin brýn nauðsyn að koma í veg fyrir slíka stöðvun síldveiðiskipanna án tafar og gefa út brbl., sem gerðu veiðiskipunum mögulegt að hefja veiðar, og kjör síldveiðisjómanna yrðu ákveðin síðar.

Málin stóðu þannig, að útgerðarmenn eða L.Í.Ú. hélt því mjög ákveðið fram, að með hinum aukna tilkostnaði, sem útgerðarmenn höfðu lagt í með mikilli stækkun veiðiskipanna og með fullkomnari búnaði þeirra, þá þyrfti þeirra hlutur í aflanum að vera meiri en áður hefði verið, meðan skipin voru smærri og tækin ýmist lélegri eða engin. Um þetta stóð deilan, og gerði hvorki að reka né ganga. Þetta virtist vera alveg óleysanlegur hnútur og ekki annað að gera en að höggva á hann, þar sem talið var, að frekari dráttur mætti ekki eiga sér stað á því, að skipin kæmust á veiðar. Þegar þetta var gert, 24. júní, var síldin talin komin fyrir nokkru og útlendingar, sem hér höfðu veiðiskip við landið, byrjaðir að veiða með góðum árangri.

Nú hefur það verið svo undanfarin ár, að síldin hefur ekki stöðvazt lengi við Norðurlandið, heldur flutt sig austur á bóginn og verið megnið af síldveiðitímanum á svokölluðu austursvæði. Það var þess vegna mjög mikil hætta á ferðum fyrir staði á Norðurlandi, eins og t.d. Siglufjörð, sem byggja að verulegu leyti afkomu sína á síldveiðum Norðurlandssíldarinnar. Ef ekki hefðu verið skapaðir möguleikar til þess, að skipin gætu farið á veiðar og lagt upp síldina, á meðan hún var enn fyrir Norðurlandinu, þá voru miklar líkur til þess, að a.m.k. Siglufjörður og kannske fleiri staðir mundu að verulegu leyti verða út úr því, sem kallað er, vegna þess að þeir gætu ekki af austursvæðinu fengið neina síld að ráði til söltunar, og erfiðara líka um flutning síldarinnar til þeirra til bræðslu. Það var þess vegna ekki einasta mál útgerðarmanna og sjómanna að komast á veiðar og þjóðarbúsins í heild sinni, heldur voru til staðir, sem voru í mikilli hættu um það, að þeir mundu að verulegu leyti verða án veiðinnar, ef ekki væri gripið í taumana og reynt að koma í veg fyrir frekari stöðvun. Þetta var líka því hatramlegra sem fregnir bárust af því, að síld væri þarna komin allmikil og útlendingarnir, sem á miðin voru komnir, hefðu fengið góða veiði.

Lögin, sem sett voru, brbl., fóru í aðalatriðum fram á það, að óheimilt væri að hindra lögskráningu skipverja á síldveiðiskip á sumarsíldveiðum 1962 upp á væntanlega samninga eða hindra á nokkurn hátt afgreiðslu skipa. Þetta var fyrsta atriðið og kannske meginatriðið, til þess að skipin gætu komizt á veiðar. Í öðru lagi var aðilum gefinn nokkur tími til að freista þess að ná samkomulagi sín á milli um málið, þó að skipin væru farin á veiðar, og reyna að leiða málið til lykta á þann hátt með samningum eins og venjulega. Til þessa var gefinn rúmlega hálfs mánaðar tími eða til 10. júlí 1962, ef sáttasemjari ríkisins hefði ekki lýst því yfir fyrr, að áframhaldandi viðræður væru þýðingarlausar, en ef samningar hefðu ekki tekizt fyrir þann tíma, skyldu kjörin ákveðin af gerðardómi. Í þriðja lagi var svo ákveðið, að ef þetta samkomulag tækist ekki, skyldi gerðardómur skera úr, og þessi gerðardómur var ákveðinn þannig: Hæstiréttur skipaði formanninn og tvo meðdómendur, í allt þrjá, en aðrir tveir meðdómendur skyldu vera tilnefndir, annar úr L.Í.Ú., en hinn úr hópi sjómanna, tilnefndur sameiginlega af Sjómannasambandi Íslands, Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands og Alþýðusambandi Íslands. Síðan eru nánari ákvæði um meðferð málsins, kostnað og brot, og sé ég ekki ástæðu til þess að rekja það.

Niðurstaðan af þeim samningaumleitunum, sem hófust strax eftir að skipin höfðu farið af stað, var sú, að þeir komu sér ekki saman um neitt annað en lýsa því yfir, að þeir gætu ekki komið sér saman. Það var þeirra niðurstaða, og þess vegna var gefin út sú yfirlýsing, sem gert er ráð fyrir í 2. gr. laganna, af hálfu sáttasemjara um það, að frekari samningaumleitanir væru þýðingarlausar, og málinu þess vegna vísað til gerðardómsins.

Hann tók svo málið í sínar hendur. Hæstiréttur tilnefndi 3 menn til þess að skipa dóminn: Í fyrsta lagi hagstofustjórann Klemenz Tryggvason sem dómsforseta, í öðru lagi Jón Þorsteinsson alþm. og Guðmund Ólafs bankastjóra. Útvegsmenn skipuðu af sinni hálfu Ágúst Flygenring útgerðarmann, og Sjómannasambandið eitt skipaði síðan Jón Sigurðsson, formann sinn, til þess að skipa sæti í dómnum, en hin samtökin, sem lögin gerðu ráð fyrir, vildu ekki eiga hlut að dómnum og skipuðu þess vegna engan fulltrúa af sinni hálfu og tóku ekki þátt í tilnefningunni.

Þessi dómur tók síðan til starfa og kvað upp sinn dóm, sem öllum er kunnugt um og ég skal ekki fara frekar út í að ræða — að sinni a.m.k., en auðvitað heyrir hann í sjálfu sér ekki með til þessarar lagasetningar, því að niðurstaða hans er byggð á mati þeirra manna, sem dóminn skipuðu, og er ekki ástæða til að vefengja, að allir þeir, sem hann skipuðu, hafi leitazt við að leysa deiluna á þann skynsamlegasta og sanngjarnasta hátt, sem þeir höfðu vit og getu til. Og eins og ég segi, allt voru þetta ágætismenn, valinkunnir menn, sem engin ástæða var til að ætla að hafi ekki gert sitt bezta.

Skipin fóru síðan á veiðar og það nægilega snemma til þess, að flest þeirra fengu ágætisafla, mörg metafla, og í heild varð síldaraflinn sumarið 1962 meiri en hann hafði orðið nokkurn tíma áður.

Eftir að gerðardómurinn var kveðinn upp, var hafinn hatramur áróður gegn dómnum og reynt að gera hann tortryggilegan, sérstaklega í augum sjómanna. Það var í blöðum reiknað út, hversu mikið sjómenn hefðu misst með þessum gerðardómi, og jafnvel komizt svo að orði, að það var freistað að reikna, hversu miklu stolið hefði verið af sjómönnum með dómnum, og þá alveg sérstaklega, hversu miklu ég hefði stolið af þeim með því að gefa út brbl. Út í þennan ljóta leik skal ég ekki fara, nema sérstakt tilefni gefist til. Það var ekki reynt að flytja þetta mál af neinni sanngirni. T.d. heyrði ég aldrei um það getið, hver mundi hafa orðið hlutur sjómannanna, ef ekki hefði verið skorizt í leikinn af ríkisstj. og lögin gefin út, því að sannfærður er ég um það, að ef dráttur hefði orðið verulegur á útgáfu þessara laga og sjómenn ekki komizt á veiðar fyrr en eitthvað seinna, bara nokkru seinna, þá hefði þeirra tap á því orðið miklu meira en það tap, sem þeir vildu gefa í skyn, áróðursmennirnir, að sjómennirnir hefðu orðið að þola vegna gerðardómsins.

Það er alveg gefið mál, að svo mikill afli var einmitt fyrri hluta þessa tímabils og raunar einnig allt tímabilið, að ef nokkur hluti þess eða mikill hluti þess hefði tapazt, þá hefði hlutur sjómanna og útgerðarmanna og þjóðarinnar í heild orðið rýr, svo að ekki sé meira sagt. Mín skoðun er þess vegna sú, og það er skoðun ríkisstj. allrar, að við svo búið hefði ekki mátt standa, það hefði verið nauðsynlegt að gripa í taumana og gera þær einu ráðstafanir, sem hugsanlegt var að gera, sem var útgáfa þessara brbl.

Ég get ekki látið hjá líða að benda á í þessu sambandi einmitt þá hluti, sem nú eru að gerast. Það er enn síldveiðideila í landinu, það er enn deilt um kaup og kjör sjómanna á þessum síldveiðum. Og þær samningaumleitanir, sem farið hafa fram í því sambandi, standa yfir enn og er enn ólokið, og ekki séð enn, hvernig fara muni. Ég tel alveg víst, að ef sú deila hefði verið leyst, áður en síldarvertíðin hófst hér í haust eða hefði átt að hefjast í haust, þá hefði bæði sjómönnum og útvegsmönnum verið að því miklu meiri hagur en sem nam þeirri upphæð, sem sjómennirnir eru taldir hafa tapað með gerðardómsfrv. í sumar. Vonandi leysist sú deila og vonandi án íhlutunar hins opinbera, enda er sjálfsagt, að á það reyni nú, hvort samningar geti tekizt milli þessara aðila, eða hvort það sannist, sem haldið var fram í sumar, að ekki hefði verið möguleiki á að leiða deiluna til lykta nema á þann hátt, sem gert var.

Ég tel svo ekki ástæðu til, að svo stöddu a.m.k., að fara um þetta frv. fleiri orðum. Ég vil leyfa mér, herra forseti, að leggja til, að frv. verði að þessari umræðu lokinni vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.