08.11.1962
Efri deild: 14. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 275 í C-deild Alþingistíðinda. (2216)

75. mál, lausn á síldveiðideilunni sumarið 1962

Sjútvmrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Ég vildi mega gera nokkrar aths. við einstök atriði, sem fram komu í ræðum þeirra hv. 5. þm. Norðurl. e. (BjörnJ) og hv. 3. þm. Norðurl. v. (ÓlJ), sem ræddu báðir um þetta mái nokkuð í fyrradag, þegar málið var hér til umr.

Hv. 5. þm. Norðurl. e. hóf mál sitt á því að telja, að frv. væri nokkuð seint fram komið, og gat sér þess til, að það kæmi til af því, eð enginn hefði viljað leggja nafn sitt við það að flytja frv. í minni fjarveru. Ég vil út af þessu segja það, að það er lítið, sem ekki er notað í þessu sambandi, því að það voru ekki liðnar nema þrjár vikur af þingi, þegar frv. var lagt fram, og tvær af þeim þrem vikum hafði ég verið fjarverandi og lagt svo fyrir, áður en ég fór, að það yrði ekki flutt, fyrr en ég kæmi til baka, því að mér þótti það eðlilegast, að ég hefði það forsvar, sem þyrfti að hafa, og svaraði þeim aðfinnslum, sem gerðar kynnu að verða, því að segja mætti, að ég hefði mest til matarins unnið með því að gefa lögin út.

Þá sagði hv. þm., að hér væri um sögulegan atburð að ræða, þar sem þetta væri í annað sinn á sama árinu, þar sem ég og þá formaður Alþfl. ætti hlut að því, að sett yrðu lög um lausn deilumála milli verkalýðssamtaka og atvinnurekenda með gerðardómi. Hið fyrra sinn, sem hv. ræðumaður mun eiga við, er það, þegar lögin um ákvörðun fiskverðs voru sett hér á síðasta þingi, þar sem gert er ráð fyrir, að ef ekki takist samningar á milli aðila, þá fari það til dóms, svokallaðs verðlagsdóms, sem ákveður verðið. Að þessu leytinu er það rétt, að ég hef í tvö skipti á þessu ári átt hlut að því, að svipuð lög og hér eru til umr. hafa verið sett. Og ég mæli mig hvergi undan þeirri ábyrgð, sem því fylgir.

Hv. þm. þótti, að nú væri komið nokkuð annað hljóð í strokkinn hjá Alþfl. heldur en fyrr á árum, þar sem Alþfl. hefði mjög eindregið barizt á móti því, að slíkar deilur yrðu útkljáðar á þennan hátt. Það er mergur málsins, að Alþfl. hefur ekki sömu afstöðu til þessa máls nú eins og hann hafði þá, og liggja til þess ýmsar ástæður. M.a. kemur þetta í ljós af því, að fulltrúi Alþfl. í þeirri nefnd, sem fjallaði um verðlagsdóminn og ákvörðun fiskverðsins, var eindregið með því sem formaður Sjómannasambandsins, að þessi háttur yrði hafður á, og yfirleitt hafa hugir ýmissa Alþýðuflokksmanna hneigzt í þá átt, að það væri erfitt, þegar um langar og illvígar deilur væri að ræða, að þola það, að ekki yrði af hálfu hins opinbera á einhvern hátt leitazt við að koma í veg fyrir það tjón, sem af því leiðir. Enda hefur þessi háttur verið upp tekinn á ýmsum öðrum sviðum og sýnir, að ýmsir aðilar í þessu landi hafa hneigzt að þeirri skoðun, að slíkt mætti ekki viðgangast, án þess að reynt væri að hafa uppi einhverja tilburði um lausn, og kemur það víða fram. Ég nefni t.d. lögin um afurðasölu landbúnaðarins, þar sem gert er ráð fyrir því, að landbúnaðarvöruverðið sé endanlega útkljáð með dómi, ef ekki næst samkomulag á milli aðilanna. Ég nefni líka það samkomulag, sem tókst í vor í máli opinberra starfsmanna, þar sem inn á það var gengið, að ef ekki næðist samkomulag um kaup og kjör þessa starfsmannahóps ríkisins, þá færi það fyrir svokallaðan kjaradóm, sem hefði hið síðasta orð að segja, þannig að það eru fleiri en ég og fleiri en við Alþfl.menn, sem höfum hneigzt að þeirri skoðun, að þessi mál mætti ekki láta þróast þannig, að til stórtjóns horfði, ekki einasta fyrir þá aðila, sem að deilunni standa, bæði atvinnurekendur og hið vinnandi fólk, heldur líka og þá kannske alveg sérstaklega fyrir þjóðfélagsheildina, sem missir af starfi hjá þessum mönnum, sem í þessum deilum standa. Hitt vil ég svo undirstrika, að æskilegast er, að þessi mál geti orðið útkljáð með samningum milli aðila, og efast um, að það sé rétt, sem hv. 3. þm. Norðurl. v. gerðist hér talsmaður fyrir í sinni ræðu, að það yrði þegar í upphafi vinnudeilna leitazt við að hafa áhrif á gang málsins. Ég held, að það sé a.m.k. enn sem komið er eðlilegt, að það verði til þrautar reynt hjá aðilunum sjálfum að koma sér saman án nokkurrar íhlutunar, fyrr en málið er komið á það stig, að tæpast verði viðunandi lengur.

Þá sagði hv. 5. þm. Norðurl. e., að útgerðarmenn hefðu verið orðnir ákveðnir í því að hafa ákvörðun L.Í.Ú. að engu og að eftir 1–2 daga hefði sjálfsagt verið hægt að sjá síðasta bátinn sigla úr höfn og fara á veiðar, þó að ekki hefði verið gripið í taumana af hálfu ríkisstj. og lagaboð sett um málið. Ég leyfi mér að vefengja þetta stórlega, og ef hv. þm. hefur einhverja sönnun fyrir því, að þetta hefði orðið svo, þá vildi ég gjarnan, að hún kæmi fram. Ég hef leitað eftir henni. Mér hafa verið nefndir menn, sem sagt var að hefðu verið tilbúnir til að gera þetta. Ég hef leitazt við að fá upplýsingar hjá þeim um það, hvort þetta hafi verið rétt, og hef fengið upplýsingar um það gagnstæða, að það hafi ekki verið rétt, að þeir hafi verið tilbúnir til þess að hefja veiðar að deilunni óleystri, nema þá upp á væntanlega samninga, sem er nákvæmlega það sama sem gerðardómslögin fjölluðu um eða ákváðu. Ég held þess vegna, að það sé alveg út í hött hjá hv. þm. að slá því föstu, að deilan hefði leystst innan stutts tíma á þennan hátt með því, að útgerðarmenn hefðu hafið veiðarnar, án þess að lausn á sjálfu deiluatriðinu væri fengin.

Þá var það atriði, sem hv. þm. og raunar báðir þessir ræðumenn, sem ég nefndi, vildu gera að meginatriði síns máls, að með gerðardómnum hefði hásetahluturinn verið skertur frá því, sem var, um 13–15%, og vildi meina, að þessi 13–15%, sem hann nefndi og ég skal ekki vefengja, þau næmu á meðalhlut um 10 þús. kr. Þetta er aftur á móti mjög hæpin fullyrðing. Hann sagði, hv. þm., að meðalhlutur á síldveiðunum í sumar hefði orðið í kringum 60 þús. kr., og það mun vera rétt. Meðalhluturinn mun hafa orðið um 60 þús. kr. Og ef við tökum 14% lækkun, eins og hann nefndi, sem meðaltal, þá eru 14% af 60 þús. kr. ekki 10 þús., eins og hann sagði, heldur 8400 kr., fyrir það fyrsta, þannig að brúttótekjur þess manns, sem fékk meðalhlut af síldveiðum s.l. sumar, munu hafa reynzt 8400 kr. lægri en hann mundi hafa fengið, ef gamli samningurinn hefði verið óbreyttur, og er þó ýmislegt við það að athuga, eins og t.d. fjöldi staða, sem hann skiptist í, og raunar fleira, sem kemur til greina í þessu sambandi og ég mun lítillega víkja að síðar.

En segjum nú bara, að brúttóhluturinn hefði orðið 8400 kr. lægri, þá er það að athuga, að nettó-tekjur þessa manns lækka ekki um þessa upphæð, því að með þessum tekjum yfir sumarmánuðina er alveg vafalaust, að þeir komast allir í hámark útsvars- og tekjustigans, þannig að frá þessari upphæð dragast á báðum stöðunum í kringum 30% eða 60% í allt, eða í tölum talið 5 þús. kr. rúmar, og verða þá eftir í kringum 3360 kr., sem segja má að hlutur þeirra hafi rýrnað nettó frá því, sem mundi hafa orðið, ef gamli samningurinn hefði gilt. En þessi tala er hámark, eins og ég sagði, því að þarna koma ýmis önnur atriði líka til greina.

Í gerðardómnum voru líka tekin upp ýmis ákvæði sjómönnunum til hagsbóta, sem voru ekki í gamla samningnum, og er sjálfsagt að meta þau líka til nokkurs fjár. Í gerðardóminn var t.d. tekin upp líf- og örorkutrygging upp á 200 þús. kr., sem var ekki í gamla samningnum. Það var tekin upp ábyrgðartrygging upp á 500 þús. kr., sem var ekki heldur í gamla samningnum. Það var líka tekið upp í gerðardóminn 1% gjald í sjúkrasjóð undirmanna, sem var ekki í gamla samningnum. Það var líka tekin til greina krafan um það, að matsveinshluturinn hækkaði úr einum hásetahlut upp 1¼ úr hásetahlut. Það var ekki í gamla samningnum og var mikið deiluatriði á milli aðilanna, sem gerðardómurinn afgreiddi á þann hátt, að hann varð við ósk sjómannanna að þessu leyti. Og síðast, en ekki sízt, vil ég nefna, að kauptrygging hásetanna, sem var samkv. gamla samningnum 5365 kr. á mánuði, hækkaði samkv. gerðardómnum upp í 6610 kr. eða um rúmar 1200 kr. Þetta er ekki þýðingarlítið atriði fyrir þá, sem lægst kaupið hafa á þessum veiðum, en það eru þeir, sem komast undir kauptryggingu.

Í sambandi við kauptrygginguna og greiðslu samkv. henni vil ég láta þess getið hér, af því að það hefur komið fram í blöðum, að veiðarnar hafi nú ekki gengið betur en það, að um 40 bátar hafi gert upp með kauptryggingu, að þetta er ekki rétt. Bátarnir voru ekki 40, sem gerðir voru upp á þennan hátt, heldur 4, þannig að allir aðrir bátar, sem stunduðu veiðar s.l. sumar, fengu hærra út úr veiðunum en kauptrygginguna, af því að afli þeirra var það mikill. Hins vegar hefur kauptryggingarupphæðin að sjálfsögðu mjög mikla þýðingu, þegar um litla veiði er að ræða og margir bátar komast í það að gera upp samkv. henni. En ég vil út af vertíðinni í sumar aðeins að það komi fram hér, að bátarnir, sem gerðu upp á þennan hátt, voru ekki 40, eins og skýrt hefur verið frá, heldur aðeins 4.

Þá hefur það verið undirstrikað í umr., að hinn vinnandi maður ætti ekki að gjalda þess, að ný tæki og betri væru fengin á skipin, kaupið ætti ekki af þeim orsökum að lækka. En hér er bara ekki um það að ræða, að kaupið hafi lækkað. Það, sem hefur gerzt, er það, að skiptaprósentunni hefur verið breytt til lækkunar. En með aukinni veiði þarf það ekki að þýða lækkun á kaupi, heldur þvert á móti getur það þýtt hækkun á kaupi. Og þannig hefur það líka orðið í sumar. Meðalhásetahlutur í fyrrasumar var um 48 þús. kr. En meðalhásetahlutur í sumar, reiknaður samkv. gerðardómsúrskurðinum, er 12 þús. kr. hærri, eða 60 þús. kr., þannig að þrátt fyrir það, sem gerzt hefur í málinu, hefur hásetahluturinn hækkað um 12 þús. kr. frá því, sem var, áður en gerðardómsúrskurðurinn tók gildi. Það kemur náttúrlega til af því, að með þessum bættu tækjum eykst veiðin og möguleikarnir fyrir sjómanninn til þess að hafa miklar tekjur vaxa, þó að skiptaprósentan lækki eitthvað. Ég held þess vegna, að það sé ekki hægt að túlka málið á þann hátt, að lækkun í skiptaprósentu um einhver fá prósent, hvort sem það er eins mikið og hér er gert ráð fyrir eða ekki, þurfi að lækka hlut hásetans, þegar veiðin byggist á þeim nýju tækjum, sem í skipin hafa verið fengin. Hásetahluturinn á 40 lægstu bátunum í sumar var 21 þús. kr. rúmar, eða 21300 kr., en hásetahluturinn á 40 hæstu bátunum varð að meðaltali 108 þús. kr. rúmar, hvort tveggja án orlofs. Og ég er ekki í vafa um það, að aflahækkunin í sumar á fyrst og fremst rætur sínar að rekja til hins bætta útbúnaðar, sem útgerðarmennirnir hafa lagt í til þess að auka veiðina og liggur til grundvallar kröfu þeirra um að fá þennan tilkostnað eitthvað bættan.

Það hefur í þessu sambandi aðeins verið minnzt á tvö tæki, sem valdi því, að kostnaður útgerðarmannsins hefur vaxið, þ.e.a.s. hina svokölluðu kraftblökk og fiskileitartæki. En það er fleira, sem síldarútvegsmaður þarf að hafa í sínu skipi og kostar mikla peninga. Það er t.d. varla hægt að reka síldveiðar bæði norðanlands og sunnan á djúpu vatni og grunnu, án þess að lagt sé í það að kaupa a.m.k. tvær og helzt þrjár síldarnætur, og þær kosta mikið fé nú á dögum. Reyndur og hygginn útgerðarmaður, sem ég hef talað við, hefur tjáð mér, að kostnaðurinn við öll þessi tæki, bæði næturnar og leitartækin og blökkina sé vægt metinn á 2 millj. kr. og jafnvel 2½. Auk þess kemur svo það, að stærð skipanna hefur aukizt mjög mikið og kostnaður af vöxtum og viðhaldi þeirra o.fl. vaxið. Ég held þess vegna, að það liggi nokkur rök fyrir því, að það sé ekki óeðlilegt, að útgerðarmaðurinn beri eitthvað meira úr býtum líka hlutfallslega heldur en hann gerði áður vegna þessara kaupa. Hvort það á að vera nákvæmlega eins mikið og ákveðið var með gerðardómnum eða eitthvað minna, það skal ég ekki dæma um til fulls. Ég hef ekki sett mig inn í þann útreikning, sem þar liggur til grundvallar. Það gerðu þeir fagmenn, sem höfðu með málið að gera, og bar þar að vísu ekki fullkomlega saman. Eins og menn muna, voru tveir af meðlimum dómsins, sem greiddu sératkv., og vildi annar alls ekki inn á þessa lækkun ganga, en hinn vildi ganga inn á nokkrar breytingar. Og sjálfsagt verður þetta í flestum tilfellum matsatriði, sem erfitt verður að gera upp með alveg óyggjandi nákvæmni. En mín skoðun er sú, að það sé ekki óeðlilegt, að einhver prósenta verði fengin útvegsmanninum í hendur meiri en hann áður hafði til þess að mæta þessum kostnaði.

Þá minntust báðir þessir hv. ræðumenn á, að það væri grunsamlegt nokkuð með gildistíma laganna. Hann hefði verið látinn renna út um það leyti, sem Alþingi kom saman, og þess vegna væri það þýðingarlítið eða raunar þýðingarlaust, hvort Alþingi samþykkti lögin eða samþykkti þau ekki. Og virtist mér a.m.k. hv. 5. þm. Norðurl. e. þykja þetta mjög miður. En þá vildi ég spyrja hann á móti: Vildi hann, að þessi gerðardómsúrskurður hefði verið látinn ná til haustvertíðarinnar líka? Það var aldrei meiningin hjá ríkisstj., að þessi málsmeðferð yrði höfð um annað en sumarsíldveiðina og að henni lokinni yrðu teknir upp samningar að nýju. En mér er sem ég sjái það, ef við hefðum látið þessa ákvörðun gilda lengur en gert var eða svo lengi, að Alþingi hefði getað verið komið saman, áður en hún gekk úr gildi, hvort þá hefði ekki verið gagnrýnd sú ákvörðun að fella ekki þetta úr gildi fyrr. Það var vitaskuld, þar sem þér var aðeins um sumarsíldveiðarnar að ræða, ekki annað fyrir hendi en láta þessi ákvæði falla úr gildi á þeim tíma, sem gert var, hvort sem Alþingi hafði þá komið saman eða ekki.

Hv. 3. þm. Norðurl. v. var á allt öðru máli um aðalefni málsins heldur en hv. 5. þm. Norðurl. e. Og það, sem hann hafði út á málsmeðferðina að setja, virtist mér aðallega vera það, að ríkisstj. hefði ekki gripið inn fyrr en á síðasta stigi þess. Mér virtist, að hann hugsaði sér það sem næstum því að segja algilda reglu, að hið opinbera færi strax á fyrsta stigi vinnudeilu að hafa hönd í bagga með þróun málanna og reyndi að ná endunum saman. En ég held, að hann eða hans flokkur, sem mér virtist hann tala fyrir, sé einn um það að hafa þessa skoðun, því að það yrði þá kannske ögn erfitt að koma sættum á, ef alltaf væri vitað, að hið opinbera mundi gripa inn í deilu. Og sá háttur, sem hann vildi leysa þessa deilu á í sumar, og mér virtist, að sú aðferð kæmi að hans dómi til álita um fleiri deilur og kannske allar, væri sá, að það yrði að greiða hinum vinnandi mönnum það kaup, sem þeir færu fram á, og síðan yrði mismunurinn á milli þess og þess, sem útvegsmennirnir eða vinnuveitendurnir vildu greiða, jafnaður úr ríkissjóði. Þetta þykir mér alveg furðuleg aðferð, ef þetta ætti að vera almenn regla um lausn vinnudeilna, að þá þyrfti sá aðilinn, sem kröfuna gerir um hækkun, aðeins að láta heyra í sér, hvað hann vildi fá, og síðan yrði honum greidd sú upphæð og mismunurinn svo jafnaður úr ríkissjóði. Og alveg sérstaklega finnst mér það vera fráleitt, að í þessari deilu yrði þessi háttur hafður á, því að hér eiga hlut að máli menn, sem vissulega hafa, þrátt fyrir gerðardóminn og þetta inngrip hins opinbera, haft mjög miklar tekjur á þessu tímabili og meiri en almennt gerist í landinu. Og ef mismunurinn á milli þess og þess, sem útgerðarmaðurinn vildi borga, yrði svo jafnaður af ríkissjóði eða kæmi sem sagt niður á almenningi í landinu, þá yrðu þeir, sem minna fengju, að borga fyrir þá, sem meira fengju, og það getur þó aldrei verið neitt réttlæti.

Þá kom hv. þm. inn á aðgerðir ríkisstj. 1961 og vildi segja, að þær hefðu verið misráðnar, eins og oft hefur komið fram hjá honum og hans flokki, og er þar ekki um neitt nýtt að ræða. En ég vil aðeins undirstrika það, sem áður hefur verið sagt, að þær launakröfur, sem uppi voru hafðar, og sú lausn, sem á þeim deilum fékkst, kallaði óumflýjanlega á þær aðgerðir, sem ríkisstj. gerði, því að að öðrum kosti hefði efnahagur landsins farið úr skorðum. 500–600 millj. kr. kauphækkun hefði áreiðanlega sagt til sín og alveg sérstaklega á þeim tíma, þegar gjaldeyrissjóðir voru sama og engir. Það er allt annað þó að standa á því nú án nokkurra aðgerða, þegar gjaldeyriseign þjóðarinnar hefur meir en fjórfaldazt frá því, sem hún var sumarið 1961, og hefði þá getað eyðzt upp á svipstundu með þeirri hækkun, sem gerð var, ef ekki hefði verið gripið til þessara ráðstafana sem gert var.

Hv. 3. þm. Norðurl. v. fór líka út í það að ræða nokkuð þann gengishagnað, sem ríkisstj. hefði haft við gengisbreytinguna 1961, og taldi rétt, að einhverjum hluta hans yrði varið til þess að jafna metin fyrir útgerðarmenn, ef sjómönnunum hefði verið greitt það, sem þeir fóru fram á. En ég vil um þetta segja, að þessu fé hefur verið ráðstafað og ekki gott að grípa til þess á nýjan leik, sem búið er að ráðstafa að verulegu leyti og eyða í annað, því að eins og við mig var einu sinni sagt: það er ekki hægt að nota sömu peningana tvisvar.

Hv. þm. kom líka inn á, að nú væri tekinn svo hár útflutningsskattur af útgerðarmönnum, að það væri ekki nema eðlilegt, að þeir yrðu styrktir eitthvað í þessum erfiðleikum sínum eða hefðu verið styrktir, ef þeim hefði verið gert að greiða eins og sjómennirnir fóru fram á. Út af útflutningsskattinum vil ég segja, að hann fer allur til útvegsmannanna sjálfra og raunar miklu meira til. Hann fer til greiðslu vátryggingargjalda fyrir þá, og hann fer til þeirra lánasjóða, hann fer til styrktar þeirra samtökum, hann fer í vísindastarfsemi í þágu atvinnuvegarins, og hann fer til aflatryggingasjóðs, sem ríkissjóður leggur í mjög mikið fé á móti, sem nú skiptir tugum millj., þannig að ekki heldur þar er af neinu að taka. Og endirinn hefði óumflýjanlega orðið sá, ef átt hefði að viðhafa þessa aðferð, sem hv. þm. vildi, að greiða útvegsmönnum hallann úr opinberum sjóðum, þá hefði orðið að taka það úr ríkissjóði eða af almenningi í landinu, en flestir eða allir höfðu á þessu tímabili minni tekjur en þeir, sem hér tóku tekjur sínar af síldveiðum.

Þá var því haldið fram af báðum þessum ræðumönnum, að afstaða Alþfl. í málinu væri mjög óráðin, vegna þess að bæði í blaði flokksins og ályktunum hefðu komið fram mótmæli vegna þess, sem hér hefur verið gert. Ég skal í því sambandi aðeins segja það, að það, sem Alþýðublaðið hefur um málið sagt, hefur verið að mótmæla niðurstöðu gerðardómsins, en ekki þeirri aðferð að beita gerðardómi yfirleitt. Það var gerðardómsniðurstaðan, sem að var fundið, en ekki setning gerðardómslaganna sjálfra. Enda kom það líka ljóst fram í dómnum eða dómsúrskurðinum, eins og ég sagði hér áðan. Þar gerðu Alþfl.-mennirnir báðir, sem þar áttu sæti, ágreining um niðurstöðu dómsins, þótt hins vegar hafi ekki verið af þeirra hálfu eða a.m.k. annars þeirra verið gerður ágreiningur um það, að gerðardóminn skyldi setja.

Ég held, að þetta séu þau aðalatriði, sem ég þurfti að gera aths. við. Hv. 5. þm. Norðurl. e. lýsti eftir því í sinni ræðu, að ég hefði átt að gera grein fyrir þeim mótmælum, sem til mín hefðu komið frá starfandi sjómönnum í þessu efni. Ég hef ekkert á móti því að leggja þau fram. En ég vil aðeins segja, að þau mótmæli voru flest á afar einkennilegan hátt send. Það var það m.a., sem gaf mér tilefni til þess að segja, að hafin hefði verið hatrömm áróðursherferð á móti gerðardómslögunum. Það er greinilegt, að þessum umsögnum er safnað af einhverjum aðila, einhverjum einum aðila, sem gengur á milli skipanna, og svo koma til mín plögg eins og þetta, sem ég skal lesa upp, með leyfi hæstv. forseta:

Skipshafnirnar á undirrituðum síldveiðiskipum, sem staddar eru á Seyðisfirði 4. ágúst 1962, bera fram mótmæli gegn úrskurði gerðardóms á síldveiðunum. Svo kemur: skipshöfnin á Ingiber Ólafssyni, skipshöfnin á Muninn, skipshöfnin á Sigurfara, skipshöfnin á þessum bát og hinum og til sjútvmrn. í Reykjavík og engin undirskrift.

Langflest mótmælin eru svona, ekki staðfest með einni einustu undirskrift. Á þessu blaði eru mótmæli skipshafnanna á um 20 bátum. Og á sumum öðrum blöðunum, — hér er t.d. eitt frá Neskaupstað, þar sem skipshafnirnar á 24 bátum senda mótmæli, án þess að eitt einasta nafn fylgi, sem staðfesti, að hér sé rétt greint frá. Ég veit ekki, hvernig þetta hefur verið gert, hef ekkert fylgzt með því og ekkert reynt að rannsaka það. En mér sýnist, að það sé ákaflega líkt því, að einhver maður, sem hefur haft framtak í sér til þess að ganga á milli bátanna, hafi gert það og hafi gert það á þennan hátt, án þess að láta nokkurn einasta mann á skipinu staðfesta þetta með undirskrift sinni. Ég skal játa það að vísu, að það höfðu komið nokkur mótmæli, þar sem eru tilgreind nöfn, en þau eru fá. En yfirleitt eru mótmælin, sem mér hafa borizt, öll á þá einu leið tilbúin, að sýnilegt er, að þau eru búin til í sömu verksmiðjunni. Hitt skal ég ekkert vefengja, að þeir hafi við viðkomandi aðila talað, en það er óstaðfest með öllu, og kemur þess vegna ekki til mála að nota það sem neina heimild.

Ég skal svo ekki fara frekari orðum um málið. Ég tel mig hafa svarað öllum þeim meginatriðum, sem fram komu í ræðum beggja þessara hv. þingmanna.