08.11.1962
Efri deild: 14. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 291 í C-deild Alþingistíðinda. (2219)

75. mál, lausn á síldveiðideilunni sumarið 1962

Sjútvmrh. (Emil Jónason):

Herra forseti. Það eru aðeins fá atriði út af ræðum tveggja síðustu ræðumanna, sem mig langaði til þess að minnast á.

Hv. 5. þm. Norðurl. e. sagði, að mótmælin, sem komið hefðu gegn bæði lagasetningunni um gerðardóminn og gerðardómsniðurstöðunni, væru ekki eingöngu frá hans flokki eða frá þeim mönnum, sem hann fylla, heldur hefði þetta verið alls staðar að, eiginlega frá mönnum úr öllum flokkum. Þetta var ég ekki að vefengja í minni ræðu. Ég vissi vel, að menn voru ekki sammála um þetta og að menn hafa mótmælt því á ýmsum stöðum. En því dró ég fram þessi mótmælaskeyti, sem mér höfðu borizt, að hv. þm. hafði óskað eftir að sjá þau, og ég sýndi fram á það í minni ræðu, að þau, sem flest voru algerlega óstaðfest. ekki með einni einustu undirskrift, væru lítils virði. Það var við það, sem ég átti, en ekki hitt, að það hefðu ekki verið ýmsir, sem hefðu verið ósammála um setningu laganna og gerðardómsniðurstöðuna.

Bæði hv. síðasti ræðumaður og einnig hv. 5. þm. Norðurl. e. vildu gera mikið úr því, að Alþfl. hefði markað línu í þessu efni, og vildu leggja inn í mín ummæli miklu meira en ég raunverulega sagði. Alþfl. hefur ekki formlega tekið neina afstöðu um gerðardóm almennt. Það hefur hann ekki gert, en hann hefur tekið afstöðu í þessu máli, og hann hefur ekki sömu afstöðu til gerðardómsleiðar og hann hafði áður. Þetta sagði ég, að bæði hefði hann ekki sömu skoðun á gerðardómsleið nú og hann hafði, og eins hitt, að í þessari deilu tók hann alveg skýlausa afstöðu með gerðardómnum. En að það þýði almenna stefnuyfirlýsingu um það að leysa yfirleitt mál með gerðardómi, það sagði ég ekki, og það er ekki heldur tilfellið. Hitt er það, að Alþfl. er ekki svo dogmatískur flokkur, að hann bindi sig við það að halda eilíflega sömu stefnu eða sömu afstöðu til mála eins og hann hefur einhvern tíma haft. Það eru aðrir, sem frekar fara þá leiðina að halda sér við það, sem einu sinni var ákveðið, hversu vitlaust sem það reynist vera í framkvæmdinni nú.

Hitt er svo annað mál, að þessi vandamál, lausn vinnudeilna, eru afskaplega vandmeðfarin og erfitt að fá á þeim lausn. Hitt sjá allir, sem yfirleitt vilja sjá, að deila, sem stendur eins lengi og ýmsar vinnudeilur hafa staðið hjá okkur nú, ég nefni t.d. togaraverkfallið, sem stóð í eina fjóra eða fimm mánuði, — veldur þjóðinni óbærilegum skaða fyrir utan þann skaða, sem hún veldur deiluaðilum, og það verður að finna einhverja leið til þess að reyna að komast fram hjá því, að þessum skaða verði valdið.

Hv. 5. þm. Norðurl. e. vildi telja, að mér hefði brugðizt bogalistin, þegar ég fór að reikna út, hvað hlutur hásetanna hefði rýrnað. Þessi 13–15%, sem hann nefndi, eru náttúrlega engin absolút tala. Ég veit ekki til þess, að þessi tala hafi verið reiknuð út alveg nákvæmlega, en ég tók það skýrt fram, að þessi 13–15% væru miðuð við gerðardómslausnina og gerðardómsupphæðina og reiknuð út frá henni, og ég hygg, að það skeiki ekki miklu, því að hún nær ekki þessari tölu, 13–15%, ef reiknað er af hinni upprunalegu samningsupphæð, eins og hann vildi vera láta. En hann gleymdi alveg að minnast á það, sem hv. 3. þm. Norðurl. v. fór þó um nokkrum orðum, að ég nefndi líka, hver nettó-upphæðin hefði verið, þegar skattarnir væru frádregnir. Þessir menn komast sjálfsagt allir í það að borga skv. hæsta þrepi skattstigans, eða 30% bæði í útsvar og skatt, og reikni maður með þessum tölum, sem ég gerði, þá verður eftir af meðalhlutnum um 3300 kr. lækkun frá því, sem þeir hefðu haft, ef samningurinn hefði verið óbreyttur í gildi. Þetta er nú heildarniðurstaðan.

Hv. 5. þm. Norðurl. e. vildi gera lítið úr því, sem gerðardómurinn hefði hækkað fríðindi veitt sjómönnum, og sagði, að um það hefði verið búið að semja áður. Það er alveg rétt, að það var búið að ná samkomulagi um flest af þessu áður, ef samningar hefðu tekizt um skiptakjörin, en það var algerlega ósamið um þetta að þeim óbreyttum. Og þótt það hafi verið staðið upp frá samningaborðinu, þegar útgerðarmenn voru búnir að fást til eða tilleiðanlegir til að taka upp líf- og örorkutryggingu, að taka upp ábyrgðartryggingu allt að ½ milljón fyrir einstakt tjón, 1% í sjúkrasjóð undirmanna, þá var þó eftir að ræða um matsveinakaupið og matsveinskauptrygginguna, sem gerðardómurinn tók til greina og hækkaði upp í 1¼ hlut og gekk frá þessum atriðum öllum og kauptryggingarhækkuninni líka, þó að útvegsmennirnir hefðu ekki verið búnir að ganga inn á hana, nema því aðeins að samkomulag tækist um annað, svo að það er vissulega gerðardómsins verk, en ekki samninganefndanna, sem með þessi mál fóru, að hásetarnir fengu þau hlunnindi, sem í gerðardómnum felast. Það er alveg rétt hjá hv. þm., að það var búið að tala um þetta áður og það var búið að ljá máls á því að gera það, ef samningar tækjust um annað, en það var algerlega ósamið um það, ef þeir samningar tækjust ekki. Hv. þm. sagði, að það væri blekking hjá mér að þakka þetta gerðardómnum. Það er furðulegt orðbragð, því að það er gerðardómnum að þakka, hans ákvörðun, að þetta var tekið upp, og þetta er einmitt mikið til hagsbóta fyrir þá, sem lægst kjörin hafa, eins og þá, sem lenda á kauptryggingu, sem að vísu eru nú ekki nema fjögur skip, eins og ég sagði, sem betur fer, en ekki 40, eins og sagt var.

Hv. þm. vildi halda því fram, að hann hefði lesið það úr mínum orðum, að mér væri núverandi deila sjómanna og útgerðarmanna fagnaðarefni. Þetta er alger tilbúningur af hans hálfu. Ég hef aldrei viðhaft þessi orð. Ég lét í ljós áhyggjur út af deilunni og einmitt áhyggjur út af því, hvað hún hefði dregizt lengi. Ég sagði líka, sem hann vildi reyna að snúa út úr, að ég vonaði, að það tækist að leysa hana með samningum. Í því lá ekkert um það, hvað gert mundi verða, ef engir samningar tækjust, eða hve lengi yrði eftir því beðið, — ekki nokkurt orð. En það, að deilan hefur staðið eins lengi og hún hefur gert, sýnir, að hún var ekki eins auðleyst og hv. þm. vildi halda í sumar. Hv. þm. sagði í sinni fyrstu ræðu, að ef við hefðum beðið einn eða tvo daga með að setja þessi gerðardómslög, hefðum við getað horft á eftir síðasta bátnum fara á veiðar. Ég leyfði mér að efast um þessa fullyrðingu hans og skoraði á hann að færa rök fyrir henni, því að ég hefði reynt að kynna mér þetta atriði og fengið það svar, að sá, sem mér var bent á að mundi hafa gert þetta, hefði ekki gert það.

Hv. þm. vildi líka reyna að gera tortryggileg ummæli mín, þegar fiskverðslögin voru hér til umr. Ég vildi þá forsvara fiskverðslögin, eftir því sem hann sagði, á þann hátt að segja, að skiptakjörin yrðu þó ákveðin með samningum, þó að verðið yrði ákveðið með verðlagsdómi. Það er ekki nema rétt, að ég mun hafa viðhaft þessi orð og gengið út frá því þá, og ég geng út frá því enn, að yfirleitt verði sú aðferð viðhöfð að leysa málin með samningum og það sé ekki nema neyðarúrræði að gera það á annan veg. En að þetta var gert í sumar, var vegna þess, að það var ekki hægt að dómi ríkisstj. að horfa upp á það, að Norðurlandssíldin, sem yfirleitt stendur stutt við og einmitt sérstaklega á heimasvæði hv. þm., færi öll fram hjá, án þess að gripið væri í taumana, og það, að útlendingar hirtu veiðina, sem við áttum að geta notið.

Þetta þýðir enga almenna stefnu í gerðardómsmálum, aðeins það, hvernig tekið var á þessu sérstaka tilfelli.

Hv. 3. þm. Norðurl. v. sagði eitt, sem vissulega hljómar ekki ósennilega. Hann sagði, að veiðin í sumar hefði ekki verið gerðardómnum að þakka. Það hefur engum dottið í hug, að veiðin væri gerðardómnum að þakka, nema á þann hátt, að hann kom því til leiðar, að yfirleitt var farið á veiðarnar. En hitt ber öllum saman um, að veiðiaukningin er m.a. og kannske að langsamlega mestu leyti því að þakka, að fengin hafa verið á skipin hin nýju og dýru tæki. Ég gat þess, að það væri fleira en fisksjáin og kraftblökkin, sem fengið hefði verið. Ef skipin áttu að fiska bæði fyrir Norðurlandi og fyrir sunnan, bæði á grunnu vatni og djúpu, þá urðu þau að hafa þrjár síldarnætur, og það er langdýrasti hlutinn af tækjunum, sem kostar nú hvorki meira né minna en 2–2½ millj. allt saman. Og svo kemur það, sem ekki má vanmeta heldur, að þessir samningar, sem í gildi voru, þeir voru, þegar þeir voru gerðir, miðaðir við miklu minni skip en þau, sem stunda veiðarnar. Þeir voru miðaðir við tækjalaus skip, þetta kannske 40–50–60 tonn. Nú er megnið af flotanum orðið miklu stærra og þess vegna ekki óeðlilegt, að til einhverra breytinga kæmi.

Ég held, að þetta séu aðalatriðin, sem ég þarf að minna á eða ræða, af því, sem þessir hv. þm. sögðu. Hv. 3. þm. Norðurl. v. vildi gera nokkuð úr því, að hér hefði ekki verið um hækkunarkröfu að ræða, heldur hefði deilan staðið um það, hvort ætti að lækka skiptakjörin frá því, sem áður var. Náttúrlega er þetta orðaleikur, því að deilan var um bil, sem var á milli þess, sem sjómennirnir vildu fá, og þess, sem útgerðarmennirnir vildu greiða, og það bil varð að jafna. Ég taldi, að það væri erfitt að gera það af opinberu fé, vegna þess að þá væri það tekið af þeim, sem minni laun hefðu í landinu, handa hinum, sem hærri laun bæru úr býtum, og taldi það ekki eðlilegt. En þessi mismunur eða bilið á milli krafna útvegsmanna og sjómanna er alveg það sama, hvort sem um er að ræða kröfu um hækkun á launum frá sjómönnum eða lækkun af hálfu útvegsmanna. Ég gat þess einnig, að kannske fyrir það, að tækin komu til, hækkaði meðalhluturinn frá því í fyrra úr 48 þús. upp í 60 þús. kr. í sumar, þrátt fyrir þá breytingu, sem á skiptakjörunum varð.