26.03.1963
Efri deild: 62. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 306 í C-deild Alþingistíðinda. (2242)

218. mál, ferðamál

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. 9. þm. Reykv. fyrir góðar undirtektir við frv. Út af fyrir sig er ekki nema eðlilegt, að hann að lítið athuguðu máli telji um ósamræmi að ræða í þessum tveimur frv. En ég hygg, að hann sjái það, þegar hann athugar málið betur, að þetta getur staðizt, að samþykkja bæði þessi frv. óbreytt, og þetta rekst ekki á. Að Ferðaskrifstofunni er ætlað að hafa eftirlit, eins og greinir í frv., það hlýtur að vera til bóta. En ég ætla ekki að lesa upp 17. gr. aftur, það var gert áðan, en í niðurlagi 17. gr. er sagt:

„Finni Ferðaskrifstofan ástæðu til umvöndunar, skal hún gera viðkomandi aðilum og ferðamálaráði viðvart um það eða, ef ástæða þykir til, gisti- og veitingahúsaeftirliti.“

Það er gert ráð fyrir, að það verði til, skv. lögum um gistihúsahald og veitingasölu. En það væri vitanlega óeðlilegt, að Ferðaskrifstofa ríkisins, sem starfar á vegum ríkisins, hefði ekki í rauninni eftirlit, eins og kveður á í 17. gr., um þrifnað og annað þess konar, því að það er vitað, að fulltrúar Ferðaskrifstofu ríkisins ferðast mikið um landið og koma víða við, og það er aðeins til þess að létta undir með gisti- og veitingastaðaeftirliti, að fulltrúar frá Ferðaskrifstofu ríkisins hafa skv. 17. gr. möguleika eða rétt til að fylgjast með þessum málum.

Í 19. gr. laga um veitinga- og gistihúsahald er gert ráð fyrir að ráða sérfróðan mann til að hafa á hendi eftirlit með starfsemi gisti- og veitingastaða, og starfar eftirlitsmaðurinn undir stjórn landlæknis. Nú er það vitað, að þessi eini maður, sérfróði maður, sem er ráðinn til þessa starfa, kemst ekki yfir það að ferðast til allra veitinga- og gististaða í landinu, a.m.k. ekki á einu sumri eða einu ári. Með því að lögfesta ákvæði 17. gr. í því frv., sem hér um ræðir, um ferðamál, og ákvæði 19. gr. frv. um veitinga- og gistihúsahald, um gisti- og veitingastaðaeftirlit, er hér komið upp tveimur aðilum, sem ætlazt er til að vinni saman. Ég mæli sízt gegn því, að hv. samgmn., sem fær frv. til meðferðar, athugi þetta nánar frá sjónarmiði löggjafans, hvort þetta stangast á, en mér sýnist það alls ekki, og því síður, sem ég athuga það betur. Ég vil geta þess, að formaður þeirra nefnda, sem sömdu þessi frv. bæði, er einn og sami maðurinn, ráðuneytisstjórinn í samgmrn., og þetta hefur borizt í tal á milli okkar, og ákvæðin, sem hér um ræðir, eru að yfirlögðu ráði sett þarna inn, en ekki af vangá eða fljótfærni. Ég vildi aðeins vekja athygli á þessu, en það er vitanlega nefndarinnar og hv. deildar að skera svo úr um það, hvort ástæða þykir til að breyta þessu.