19.10.1962
Neðri deild: 5. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 315 í C-deild Alþingistíðinda. (2256)
11. mál, ríkisábyrgðir
Flm. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Út af ræðu hæstv. fjmrh. vildi ég segja nokkur orð.
Í fyrsta lagi vil ég segja, að það er fjarri mér að vilja stefna að því með þessu frv., að vanskil eigi sér stað. Þegar frv um ríkisábyrgðir var til meðferðar hér á hv. Alþingi, tók ég þátt í umr. um það mál og lýsti þá þeirri skoðun minni, að ég væri fylgismaður þess, að að þessum málum væri það vel búið, að vanskil ættu sér ekki stað vegna hirðuleysis. Og svo er fyrir að þakka, að það sveitarfélag, sem ég veiti forstöðu, hefur ekki þurft á því að halda, að ríkissjóður greiddi fyrir það af lánum þess, þó að með ríkisábyrgð væru. Hins vegar hef ég rekið mig á það, að þetta ákvæði laganna um ríkisábyrgðir hefur orðið sveitarfélögunum erfitt.
Eins og ég benti á hér í minni ræðu og fram kom í seinni hluta ræðu hæstv. fjmrh., þá er ekki eins auðvelt að ganga að sveitarfélagi og að einstaklingum, og þess vegna er einföld ábyrgð þeim ekki jafnhaldgóð og hlutafélögum eða einstaklingum. Það hefur komið fram í þeim lánsstofnunum, sem ég hef rætt við um þessi viðskipti. Þær hafa yfirleitt talið, að um einfalda ábyrgð fyrir sveitarfélög gæti vart verið að ræða, þar sem möguleikar til þess að ganga að þeim væru það litlir. Og fyrirtæki eins og vatnsveitur eru yfirleitt ekki fyrirtæki, sem skuldarinn gæti búizt við að yrði honum í hag að ganga að og láta leggja sér.
Af þeirri ástæðu, að þetta ákvæði ríkisábyrgðarlaganna kemur verr við sveitarfélögin en aðra aðila í landinu, er frv. flutt. Ekki sízt er ástæða til, að þessi breyting verði gerð, þegar á það er bent líka í leiðinni, að ríkissjóði er auðveldara að innheimta hjá sveitarfélögunum en hjá öðrum aðilum, þar sem ríkissjóði er heimilt að taka hvers konar greiðslu, sem til sveitarfélaganna á að fara, upp í þessar ábyrgðir, ef til greiðslu hefur komið. Það er því jafnrétt eftir ræðu hæstv. ráðh. sem áður, að þetta ákvæði ríkisábyrgðarlaganna gerir sveitarfélögunum erfitt fyrir, og í öðru lagi, að sveitarfélögin eru verr sett en aðrir aðilar í landinu, en ríkissjóður hefur hins vegar betri möguleika til þess að innheimta hjá þeim en nokkrum öðrum. Af þeirri ástæðu treysti ég því, að hæstv. ráðh. fallist á, að þessi breyting sé eðlileg, og hún er síður en svo gerð í þeim tilgangi, að það eigi að eiga sér stað nokkur óreiða, heldur hitt, að það, sem löggjafinn ætlaðist til að yrði sveitarfélögunum til aðstoðar, megi verða þeim að gagni eftir sem áður.