05.02.1963
Neðri deild: 35. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 453 í C-deild Alþingistíðinda. (2353)

76. mál, áætlunarráð ríkisins

Flm. (Einar Olgeirsson) [frh.] :

Herra forseti. Hv. 7. þm. Reykv. kom að því í sinni löngu og miklu ádrepu, að það hefði verið heldur slæm stjórn, þessi svokallaða nýsköpunarstjórn, hún hefði tekið við mesta gróða, sem nokkurn tíma hefði verið hér á Íslandi, eytt honum og það væru bara nokkrir togarar, sem eftir hana lægju. Ég vil minna hann á það um leið, að þegar Framsókn komst til valda nokkru seinna, var það meira fé, sem Framsfl. og Sjálfstfl. höfðu til umráða í sinni helmingaskiptastjórn frá 1950–1956, heldur en það, sem nýsköpunarstjórnin hafði til umráða á sínum tíma, en það var ekki farið eins vel með það aftur á móti. Við skulum fyrst í sambandi við þessa fullyrðingu athuga, af hverju stafaði þessi gróði, sem þarna er verið að tala um? Ég veit, að það eru uppi þær hugmyndir hjá sumum, að þessi gróði hafi stafað af því, að Íslendingar hafi selt sínar vörur til útlandsins með svo miklum árangri og háu verði, að af því hafi stafað sá gróði eða það fé, sem til var í erlendum gjaldeyri á Íslandi frá stríðslokum. Þetta er algerlega rangt. Allan stríðstímann stóðst það nokkurn veginn á, hvað við fluttum út og hvað við fluttum inn. Frá 1940–1945 var innflutningurinn 1271 millj, og útflutningurinn var á sama tíma 1277 millj. Verðið fyrir þær afurðir, sem við fluttum út á stríðsárunum, var allt raunverulega ákveðið af Englendingum. Unilever t.d., sá viðkunni hringur, ákvað verðið á síldarlýsinu allan tímann og hélt því í 38 sterlingspundum, þegar raunverulegt verð var milli 60 og 100 sterlingspund. Það, sem olli því, að það voru yfirleitt til einhverjar innstæður á Íslandi í stríðslokin, voru kauphækkanir verkamanna og hitt, að það var hindrað, að íslenzka krónan væri felld, þannig að um leið og kaupgjaldið hækkaði, meira að segja um leið og vísitalan hækkaði, þá hækkaði að sama skapi það kaup, sem verkamenn fengu, og þar með sú fúlga hvað snerti alla setuliðsvinnu og annað slíkt, sem varð að greiða í dollurum og pundum til Íslendinga, og afleiðingarnar af því urðu þær, að raunverulegar kauphækkanir, þegar vísitalan er talin með, þýddu raunverulega þrefalt kaup síðari hluta stríðsáranna, miðað við það, sem var í upphafi. Það er þessari kauphækkunarbaráttu, sem Framsfl. stóð á móti og hann reyndi að hindra með gerðardómsaðgerðunum, að þakka fyrst og fremst, að Ísland átti það, sem það átti í stríðslokin.

Hvernig stóð á því, að Framsfl. skyldi standa svona harðvítuglega á móti því, að kaupgjald væri hækkað á þessum árum, þar sem hann hins vegar er ákaflega elskulega skilningsríkur gagnvart kauphækkunum núna, eins og mjög lofsvert og gott er? Hvernig stóð á því? Jú, Framsfl. virtist hafa gengið út frá því allan þennan tíma, að það, sem mundi gerast eftir stríð, væri, að allt félli, allt verðlag félli, allt lækkaði. Framsfl. hefur kannske aldrei stúderað mikið hagfræði eða annað slíkt, fyrr en hann hefur þá farið að ganga í þennan ameríska skóla, eftir að hagfræðingarnir fóru að verða hér nýmóðins og Bandaríkin fóru að skipta sér af okkar málum, en í stríðslokin stóð það þannig, að Framsfl. trúði því og það gerði raunar dagblaðið Vísir líka, að það, sem í vændum væri, strax og stríðinu lyki, væri gífurlegt verðfall á öllum íslenzkum afurðum.

4. nóv., í því blaði, þar sem formaður Framsfl. núv., Eysteinn Jónsson, skrifar um tilboð sitt til Sjálfstfl. um að mynda ríkisstj, til þess að lækka kaupið, þá segir í Tímanum, um leið og hann er að sýna fram á, hvílík vitleysa það sé að fara að nota gjaldeyrinn til þess að auka atvinnureksturinn, að þetta eigi að gerast núna í stríðslokin, þegar svo að segja dag hvern er von á lækkuðu útflutningsverði. Meira að segja orðalagið gaf til kynna, ekki bara, hverju þeir byggjust við, heldur hverju þeir vonuðust eftir. Það var ekki verið að tala um, að það væri hætta á lækkuðu útflutningsverði fyrir Íslendinga. Nei, það var von á lækkuðu útflutningsverði. M.ö.o.: öll Kóka-kóla-samfylkingin, eins og hún var venjulega kölluð þá, Framsóknar Vísisliðið, það reiknaði með því, að það væri allt að falla, allt verðlag að falla erlendis. Það reiknaði á sama hátt og togaraeigendurnir, þegar þeir voru spurðir, hvort þeir vildu vera með í því að kaupa togara. Þeir sögðu: Nei, nei, við bíðum 1½ ár, þetta fellur allt saman. — Það, sem við sögðum hins vegar, sem stóðum þá að nýbyggingarráði, var: Það kemur allt til með að hækka, um leið og stríðinu lýkur, og það er um að gera að kaupa strax það, sem maður getur náð í, og selja eins mikið og hægt er. — Og það reyndist rétt. Framsfl. reiknaði eins og fleiri hér heima allt hringlandi vitlaust út þá. Þess vegna vafalaust, svo að ég geri Framsfl. ekki neinar slæmar getsakir, — þess vegna fyrst og fremst stóð hann á móti því, að það væru gerðar ráðstafanir til þess að fara að kaupa inn stór og mikil atvinnutæki til landsins, og þvert ofan í ráð hans og hægri hlutans af Sjálfstfl., sem var þá í stjórnarandstöðu, voru framkvæmdar þær ráðstafanir, sem gerðar voru.

Ég skal svo örstutt minna á, hvað það var, sem keypt var inn af hálfu nýsköpunarstjórnarinnar til Íslands á þessum árum eða lagður grundvöllur að. Það var raunverulega lagður grundvöllur að því nýtízku Íslandi, tæknigrundvöllur að Íslandi, eins og það er nú. Ég skal fyrst taka togarana. 1945 áttum við 28 togara, gamla ryðkláfa, eins og einn stjórnmálamaður, núv. hæstv. forsrh., kallaði það í gamla daga. Þeir voru til samans rúm 9000 brúttótonn að stærð. 1950 áttum við 48 togara, sem voru tæp 27 þús. brúttótonn að stærð, og hafði samt mörgum af gömlu togurunum ýmist verið lagt, seldir úr landi til Færeyja, jafnvel sumir höggnir upp. Við höfðum keypt 32 nýja togara, þrefaldað tonnatölu í okkar togaraflota. Og þar við bættist, að allur aðbúnaður og allt öryggi fyrir sjómennina var orðið margfalt betra en áður hafði verið. Þeir, sem þekktu, hvernig kojurnar voru í gamla daga, þegar allt var í einum geim að heita mátti framan til í togurunum, vita bezt, hvílík gerbylting það var á þeirra aðbúnaði, þegar komu tveggja manna klefar að mestu leyti í staðinn. Þannig var með togaraflotann. Bátar voru keyptir hátt á annað hundrað á þessum tíma. En hins vegar voru margir gamlir, úreltir og litlir bátar, 10 tonna bátar og slíkir, teknir úr notkun. Og öryggið óx við það, að þessir stóru bátar voru keyptir til landsins, enda var það eftirtektarvert, t.d. hérna í Faxaflóa, hve sjóslys voru færri á næstu árunum eftir að stærri bátarnir komu heldur en áður var. 1945 voru það 385 bátar, sem voru taldir hér með 14 þús. tonnum rúmum, en 1950 voru 462 bátar með 22 þús. tonnum, en þá var margt af gömlu bátunum búið að týna tölunni.

Þá var ekki síður stór breyting hvað snertir farþega- og flutningaskip. 1945 áttum við 13 farþega- og flutningaskip, sem voru 9600 brúttótonn. Á árunum 1946–1951 komu þau skip, sem pöntuð voru eða keypt fyrir nýbyggingarféð, þ. á m. meginið af öllum skipum Eimskipafélagsins, Goðafoss, Dettifoss, Lagarfoss, Gullfoss, Reykjafoss, og fyrstu skip, sem SÍS átti þá, eins og Hvassafell, það komu alls á þessum tíma 14 skip, sem voru rúm 30 þús. brúttótonn eða voru þreföld á við það, sem Ísland átti fyrir stríð. Þannig var gerbylt því ástandi, sem fyrir var í okkar flutninga- og farþegaskipaflota.

Álíka stórvirki voru unnin á sviði fiskiðnaðarins. Síldarverksmiðjurnar voru meira en tvöfaldaðar hvað afköst snerti. Hraðfrystihúsum var komið upp, m.a. fiskiðjuveri ríkisins. Það voru gerðar tilraunir til annarra hluta, sem að vísu mistókust eða voru eyðilagðar. Það voru keyptar vélar í lýsisherzluverksmiðju, en hún fékkst ekki byggð seinna meir. Og það voru keyptar og komið upp vélum í niðurlagningarverksmiðju norður í Ólafsfirði, en tókst ekki að koma því í gang. Fyrir utan þau stórvirki, sem gerð voru, voru gerðar tilraunir, sem benda hins vegar fram til þess, sem nú er verið að gera.

Samsvarandi breytingar áttu sér stað í þeim almenna iðnaði. Vélsmiðjurnar hér í Reykjavík, vélsmiðjur eins og Héðinn, tóku algerum stakkaskiptum. Hér var komið upp og keyptar vélar til fataverksmiðju og ýmislegt annað slíkt. En við skulum svo alveg sérstaklega athuga, hvað það þýddi fyrir lífskjör verkalýðsins, að nýsköpunarstjórnin komst á. M.ö.o.: ef afturhaldsstjórn Framsóknar og Sjálfstfl. hefði verið mynduð 1944, eins og Framsfl. fór fram á við Sjálfstfl. 3. okt. 1944, þá hefði komið kauplækkun undireins, en þó að öllum líkindum verkföll fyrst. Meðan þau verkföll hefðu staðið, hefði þjóðin eytt þeim inneignum, sem hún átti erlendis. Síðan, ef það hefði tekizt fyrir auðvaldinu með aðstoð Framsóknar og Sjálfstfl. að svelta verkamenn til undanláts, þá hefði kauplækkun komið. Hvað gerðist svo í staðinn? Það, sem gerðist í staðinn, var, að það var fest sú kaupgeta tímakaupsins, sem náðist á tímabilinu 1942–1944. Það var fest áfram, þannig að 1944–1947 stendur sú kaupgeta. Kaupgeta tímakaupsins sjálfs var um 50% hærri en 1938. Ég byggi þar á skýrslum, sem ég vonast eftir að hv. 7. þm. Reykv. rengi ekki, þeim skýrslum, sem aðalefnahagssérfræðingur bæði vinstri stjórnarinnar og viðreisnarstjórnarinnar hefur gert, Jónas Haralz, ásamt Ólafi Björnssyni 1948, og ég held, að það hafi verið að tilhlutun Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og Alþýðusambands Íslands. M.ö.o.: kaupgeta tímakaupsins var eitthvað frá 47% upp í 56% hærri en hún var 1938. Og síðan hefur kaupgeta tímakaupsins aldrei orðið hærri eftir stríð, ekki einu sinni í okkar ágætu vinstri stjórn, því að þegar hún einu sinni ætlaði að verða hærri, þá sprengdi Framsókn stjórnina, í des. 1958. Það mátti Framsókn ekki sjá, að eftir 11 ár yrði kaupgeta tímakaups verkafólks hærri en hún var á þessum voðalegu nýsköpunarárum. Það, sem enn fremur gerði muninn á lífskjörum íslenzks verkalýðs þá, var, að heimilisfaðirinn hafði örugga atvinnu öll þessi ár, árið um kring. Kaupgeta tímakaupsins 1938 segir ekki nema hálfa sögu, því að þorri heimilisfeðra hafði ekki vinnu nema þriðja hluta ársins, þannig að Dagsbrúnarkaup, sem hefði gefið með fullri vinnu 4500 kr. árskaup á kreppuárunum, á þeim árum, það gaf oft og tíðum ekki nema 1500 kr. árstekjur, eins og skýrslurnar í Rauðku bezt sýna frá 1934. M.ö.o.: heimilisfaðirinn hafði vinnu allan ársins hring fyrir kaupgjald, sem var 50% hærra á tímann hvað verðgildi snertir heldur en var fyrir stríð. Og í þriðja lagi var atvinna fyrir alla þá meðlimi fjölskyldunnar, sem vildu vinna eða gátu unnið utan heimilisins, og þetta þýddi raunverulega þreföldun afkomunnar fyrir þorra verkamanna til móts við það, sem var á atvinnuleysisárunum. Þetta var það, sem verkalýðnum tókst að knýja fram með sinni baráttu og með sínu stjórnarsamstarfi á þessum árum. Og fyrst þetta ástand var fest í sessi með þeim ráðstöfunum og stjórnarþátttöku, sem verkalýðurinn þá framkvæmdi, þá hefur það síðan orðið viðmiðunin hjá öllum þorra verkamanna á Íslandi, að þetta kaupgjald vilja þeir hafa, og meira að segja Framsfl. í öllum sínum útreikningum, þar sem hann er oft svo mjög sammála og vinnur svo ágætlega með okkur nú, þá miðar hann líka við einmitt kaupgjaldið 1945, kaupgetu tímakaupsins þá, sama sem 100. En af hverju er nú hv. 7. þm. Reykv., sem annars er velviljaður verkalýðshreyfingunni, svona fáfróður um þetta tímabil? Ekki held ég, að það sé vegna þess, að hann hafi ekki viljað kynna sér þetta. Ég er ákaflega hræddur um, að hann hafi haft hálfslæman kennara í þessu tímabili, svo að hann hafi ekki fengið rétta hugmynd af því, hvað þá gerðist. Sannleikurinn er sá, að forustumenn Framsóknar hafa, kannske sumpart af skiljanlegri andúð á þessu tímabili, aldrei skilið það eða viljað viðurkenna það. Það var nefnilega undireins og þetta tímabil hófst, ég held, að það hafi verið í eldhúsumr. 1945, sem núv. formaður Framsóknar, Eysteinn Jónsson, hafði þau orð um nýsköpunartogarana, að nú sæti ríkisstj. uppi með allt þetta gums, sem hún hefði keypt, og vissi ekki, hvað hún ætti við það að gera. En nýsköpunartogararnir voru í hans augum gums. Hann fann það ekki út fyrr en árið eftir, þegar kosningar komu. Þá var hægt að nota nýsköpunartogarana. Það var hægt að nota þá til þess að gefa loforð um, að nú skyldu t.d. Austfirðingar fá svo og svo marga togara og annað slíkt. Þá öðluðust nýsköpunartogararnir allt í einu gildi fyrir Eystein Jónsson og Framsókn, en fram að því voru þeir gums, meðan þeir voru bara framleiðslutæki fyrir íslenzkan sjávarútveg. En þá var líka Framsókn vel með okkur í því, þegar við vorum að reyna að tryggja bæjunum allt upp í 85% af andvirði togaranna sem lán og það til 20 ára með 2½% vöxtum. Þá stóð ekki á Framsókn að starfa með okkur, og það þótti mér mjög vænt um, því að við áttum nefnilega öðru að heilsa um þann hluta Framsóknar, sem réð þá, landsbankavaldið. Það var einn voldugasti maður Framsóknar, sem líka var einn voldugasti maðurinn í vinstri stjórninni, Vilhjálmur Þór, sem þá var bankastjóri í Landsbankanum og landsbankavaldið stóð allan tímann á móti því, að vextirnir væru settir svo niður. En hér í Alþingi aftur á móti átti ég ágæta bandamenn í því að berjast við landsbankavaldið um að pína vextina niður.

Ég er hræddur um sem sé, að hv. 7. þm. Reykv. þurfi að læra þarna betur og hann verði að gera sér ljóst, að það er ekki alveg að treysta á, hvað þessir gömlu karlar í Framsókn segja um þennan tíma, sem var svo löngu liðinn, áður en hann tók sæti á þingi. Ef þessi stjórnarsamvinna Sósfl. þá við Sjálfstfl. hefur verið svona voðalega slæm og bölvuð fyrir verkalýðinn, hvað tók þá við, þegar sá ágæti Framsfl. kom í staðinn og settist í stjórn með hinum flokkunum, Sjálfstfl. og Alþfl. Þá gat Framsókn farið að sýna, hvað hún raunverulega vildi gera. Kannske hefur hún ekki fengið að njóta sín almennilega, á meðan hún var í stjórninni með Alþfl. 1947–1949. Hún segir, að Alþfl. hangi svo mikið aftan í íhaldinu. Kannske naut blessuð Framsókn sín ekki almennilega, fyrr en hún var komin ein í stjórnina með Sjálfstfl., helmingaskiptastjórnina 1950–1956. Og hvernig gekk það þá? Hvernig var það þá með togarana? Allan þann tíma var enginn togari keyptur til landsins til að auka togaraflotann. En það voru fluttir inn 5 þús. bílar. Allan þann tíma stóð bátafloti landsmanna í stað. Og hvernig fór með kaupgjaldið? Sá góði samstarfsflokkur okkar nú í stjórnarandstöðu, sem vinnur svona vel með okkur að því að hækka kaupgjaldið í landinu, þó að ríkisstj. eyðileggi það fyrir okkur jafnóðum, hvernig stóð hann sig í því að hækka kaupgjaldið þá? Kaupgeta lægsta Dagsbrúnartaxtans, sem við erum báðir sammála um að nota sem mælikvarða á þetta, fór úr 100, sem hún var frá 1945 og 1946 og 1947, niður í 84,7 árið 1951 og 84,9 1952, m.ö.o. hún lækkaði næstum því eins mikið og hún hefur lækkað nú í viðreisnarstjórninni, þannig að þegar Framsókn var í stjórn með Sjálfstfl., þá gerðist hún álíka stórhögg í kauplækkunum og viðreisnarstjórnin gerðist núna, og erum við þó sammála um, hve bölvuð hún hafi verið. Mótmælti Framsókn þessu mjög skörulega í ríkisstj.? Barðist hún þá fyrir kauphækkunum? Nei, hún lækkaði gengið. Og hún kom meira að segja á atvinnuleysi. Það hefði viðreisnarstjórnin nú að vísu gert líka, ef síldin hefði ekki komið í veg fyrir það. En m.ö.o., atvinnuleysi svarf að á árunum 1951–1952 hér í Reykjavík og það sárt.

Svo minntist hv. 7. þm. Reykv. í sinni ádrepuræðu á íbúðamálin á þessum tíma, sérstaklega á nýsköpunartímanum og alveg sérstaklega á braggaíbúðirnar, hvað ægilegt það hefði verið, hvernig þessi stjórn, þegar Sósfl. var að vinna með Sjálfstfl. og taka svona fram hjá, að því er mér skildist á honum, — hve voðalegt það var, að þeir skyldu hafa látið fólkið búa í bröggum í Reykjavík. Á nýsköpunartímanum, vorið 1946, var samþ. bezta löggjöf, sem samþ. hefur verið nokkurn tíma á Alþingi um íbúðabyggingar, og gerðar þær stærstu og róttækustu ráðstafanir, sem gerðar hafa verið, bæði hvað snertir að tryggja lága vexti og löng lán. Það eru beztu ráðstafanir, sem nokkurn tíma hafa verið gerðar. Í þeim lagabálki voru alveg sérstakar ákvarðanir til þess að útrýma braggaíbúðunum, útrýma heilsuspillandi íbúðum, og voru teknar upp þá í fyrsta skipti og strax gerðar ráðstafanir til þess að fara að framkvæma það. Og hv. 7. þm. Reykv. man enn þá eftir Skúlagötuhúsunum svonefndu. Það voru einmitt þau hús, sem þá voru byggð af hálfu bæjarstjórnar Reykjavíkur samkv. þeirri löggjöf. Og það var á þessum árum unnið vel að því að auka og fjölga íbúðunum í Reykjavík. Það var reiknað út, að það þyrftu að verða byggðar þá um 600 íbúðir á ári í Reykjavík til þess að hafa við hvað snerti þær nýju fjölskyldur, bæði sem fluttust í bæinn og bættust við, og til að útrýma heilsuspillandi íbúðum. 1945 var fullgerð í Reykjavík 541 íbúð, 1946 634 íbúðir. Og þessi tala, 634 íbúðir, er hæsta tala, sem fullgerð er í Reykjavík af íbúðum, þangað til vinstri stjórnin kemur. Með samstjórn Framsóknar og Sjálfstfl. - og Alþfl. framan af — er þetta met aldrei slegið næstu 10 ár, — næstu 10 ár, sem Framsókn situr í stjórn með þessum tveim ágætu umbótaflokkum og lýðræðisflokkum. Það er ekki fyrr en ótætis kommarnir, sem Framsókn er alltaf að þvo af sér núna, eru komnir í stjórn með henni aftur, í vinstri stjórn, að það er drifið upp yfir þetta mark og kemst þá, 1956, upp í 705, og ef ég man rétt, komst það upp yfir 900 hjá okkur 1958. Hins vegar eftir að Framsókn fer í stjórnina með Sjálfstfl. og Alþfl., þá fer íbúðatalan 1947 niður í 468 hér í Reykjavík, 1948 fer hún niður í 491, 1949 fer hún niður í 566, og þannig heldur hún áfram að lækka. M.ö.o.: það var vel unnið að því á þessum árum að reyna að fá upp íbúðir fyrir það fólk, sem bjó í bröggunum, og losa það undan því að þurfa að búa þar. Það voru gerðir stórir hlutir í þá átt og byrjað á því. En hvað gerðist í þessum íbúðamálum, þegar Framsfl. fór í ríkisstj., fyrst með Alþfl. og Sjálfstfl. og síðan með Sjálfstfl. einum? Hvað gerðist? Við skulum rekja það og sjá. Framsfl. fékk þá tækifæri til að gera það, sem hv. 7. þm. Reykv. talaði um af svo mikilli vandlætingu, að sjá til þess, að það yrðu ekki lengur til braggaíbúðir á Íslandi, sjá til þess að framkvæma þau lög, sem við höfðum sett í nýsköpunarstjórninni. Hann fékk aðstöðu til þess að vinna að því, að það væru ekki, eins og er enn þá, börn, sem fyrirverða sig fyrir það í skólanum, þegar þau eru spurð að því, hvar þau eigi heima, af því að þau eiga heima í bröggum, og vilja helzt ekki nefna það, eða það væru ekki enn þá börn, sem spyrja leikfélaga sína að því, hvort það sé ekki gaman að búa í húsi.

Framsfl. fékk þá tækifæri til þess að vinna með Alþfl. og Sjálfstfl. að því að halda áfram því góða, sem við höfum reynt að gera í íbúðamálunum, og bæta það. Og hvernig tókst það? Í fyrsta lagi: sú löggjöf, sem sett var 1946, var eyðilögð á næstu árum á eftir. Vextirnir voru hækkaðir, og lánaskilyrðin versnuðu. Þá hefur kannske verið hlíft sérstaklega því, sem snerti braggaíbúðirnar, vegna umhyggju Framsfl. fyrir braggabúunum? Nei, henni var alveg kippt úr umferð, þegar Framsfl, var kominn inn í ríkisstj. í staðinn fyrir Sósfl. Skúlagötuhúsin, sem byggð voru þá, voru stöðvuð. Og eftir að Alþfl. fór út og Framsfl. sat með Sjálfstfl. einum í ríkisstj. frá 1950–56, hvernig gekk það þá? Þá gerðist það, sem aldrei hefur gerzt fyrr og enn sem komið er síðar á Íslandi, að Íslendingum var bannað að byggja íbúðarhús. Íslendingum var bannað að byggja íbúðarhús nema með leyfi sérstakrar nefndar í Reykjavík, og það sýndi sig, að sú nefnd breytti alveg sérstaklega skv. amerískum fyrirmælum og var alveg undir handarjaðri þeirra efnahagsráðunauta, sem Bandaríkin þá höfðu sent hingað upp og var efnahagssérfræðingur Framsfl.- og Sjálfstfl.- stjórnarinnar frá 1950. M.ö.o.: umhyggja Framsfl. fyrir dreifbýlinu og byggingunum þar út frá út um allt land sýndi sig þá í því, að mennirnir norðan frá Raufarhöfn og alls staðar að af landinu urðu að sækja til einnar nefndar í Reykjavík til þess að fá leyfi til þess að byggja. Og á einum einasta stað í landinu var gerð uppreisn á móti þessu og byggt í banni laganna, og menn þorðu ekki, þó að þeir kærðu einu sinni bæjarstjórann fyrir slíkt, að framfylgja lögunum, en það var í Vestmannaeyjum, sem lögin voru brotin í þessu efni.

Og hver var þá afleiðingin? Hvernig gekk með íbúðabyggingarnar, þegar Framsfl. var kominn í ríkisstj. með Sjálfstfl. og Sósfl. var hvergi nærri, þegar Framsfl. fékk að láta sinn umbótavilja skína í verkinu, Framsfl. alhreinn af Moskvu og öllu illu, þegar hann fékk að láta alla sína blessun leiða af sér sem umbótaflokki, — hvernig gekk það þá með íbúðarhúsabyggingarnar, sem hv. 7. þm. Reykv. bar svona fyrir brjósti? Jú, í Rvík komust þær árið 1951, þ.e.a.s. rétt eftir að þeir tóku saman, Framsfl. og Sjálfstfl., þá komust íbúðabyggingarnar niður í 282 og úti á landi í 161 úr 331, sem hafði verið hæst. M.ö.o.: það minnkaði um meir en helming.

Ég held, að Framsfl. ætti ekki að tala alveg svona kotroskinn eins og hv. 7. þm. Reykv. gerði hér í sinni ræðu. Hann má ekki halda, þó að hann hafi staðið sig vel með okkur í stjórnarandstöðunni, að fólkið á Íslandi sé búið að gleyma öllu, sem gerzt hefur undanfarna áratugi, þess vegna. Það fólk, sem nú er búið að búa 20 ár í bröggum í Reykjavík, veit áreiðanlega og hugsar sitt um það, hverjir stuðluðu að því á sínum tíma að eyðileggja það, að bröggunum yrði útrýmt með því stóra átaki, sem þá var verið að gera.

En hvernig stóð á því, að þessi hreinlífa og hugsjónaskæra maddama Framsókn, þessi fyrirmynd umbótaviljans í landinu, svona alhrein af kommúnisma, Moskvu og öllu illu, skyldi ekki aðeins una svona ástandi, svona síversnandi launakjörum almennings og síversnandi aðstæðum við íbúðarhúsabyggingar heldur líka stuðla að þessu og stjórna þessu eða vilja helzt fá að vera ein með íhaldinu í því að stjórna þessu? Hvernig stóð á því? Jú, það stóð þannig á því, að Framsfl, sat þá í helmingaskiptum, helmingaskiptum um arðránið, helmingaskiptum um gróðann, helmingaskiptum um alla spillinguna og svínaríið, sem þá var framkvæmt, helmingaskiptum um hernámsgróðann, — sérstök hernámsgróðafélög Framsfl. voru stofnuð til þess, að hann færi ekki á mis við, þegar þeir héldu, að Sjálfstfl. væri að ausa til sín gróðanum af hernáminu, — helmingaskiptum um olíusvindlið. Man hv. 7. þm. Reykv. enn þá eftir fyrir kosningarnar 1953, þegar það lá við, að stjórnarblöðin færu í hár saman út af frögtunum á olíunni frá Bandaríkjunum þá, þegar ýmislegt ljótt sýndist vera í pokahorninu hjá þessum olíufélögum, og þegar allt datt í dúnalogn nokkrum dögum fyrir kosningarnar og bæði blöðin hættu í einu, því að það sýndi sig, að í félögunum beggja vegna var eitthvað gruggugt, og þeir kunnu ekki við að halda áfram. Og Framsókn undi sér þarna ágætlega vel. Hún sat alls í 9 ár í stjórn með Sjálfstfl., frá 1947–1956. Og hún slóst við okkur af öllu afli í verkfallinu 1955, þegar við vorum að reyna að binda enda á þennan ósóma, kauplækkanirnar og vandræðaástandið hjá alþýðunni. Ég veit, að sú helmingaskiptastjórn gaf mörgum mönnum í Framsókn góðar tekjur þá, og ég veit, að hægri armurinn í Framsókn saknar alltaf þessara ágætu helmingaskiptadaga. Það er nú einhver munur en að vera í stjórnarandstöðu og verða að vinna með ótætis kommúnistunum. Við erum vanir að vera í stjórnarandstöðu, svo að við kippum okkur ekki upp við það, og okkur þykir alltaf ákaflega gott að fá góða félaga í henni, miklu skemmtilegra að vera tveir um þetta heldur en einn.

En fyrst maður er nú að filósófera um þessa hluti, hvernig stendur þá á því, að það skuli ganga svona illa, þegar Framsókn er í stjórn með Sjálfstfl., en svona vel, þegar við erum í stjórn með honum? Það er nefnilega þetta, sem hv. 7. þm. Reykv. verður að reyna að gera sér ljóst, að þegar Framsfl. og Sjálfstfl. eru saman í ríkisstj., þá örva þeir afturhaldseðlið hvor í öðrum. Þá taka gróðamennirnir í báðum flokkum höndum saman og nota ríkisvaldið alveg vægðarlaust, koma vísitölu kaupmáttar tímakaupsins niður í 83 úr 100, eins og helmingaskiptastjórnin gerði 1951, eins og viðreisnarstjórnin gerði 1962. Þá finna þeir hvor annan, auðmennirnir og braskararnir í báðum flokkum. Helmingaskipti eru um braskið, svo að ekki lendi hjá almenningi eitthvað af því, sem þjóðinni kynni eð áskotnast þá. En ef við erum í ríkisstj. með Sjálfstfl. eða með Framsfl., þá löðum við fram allt það bezta, sem til er í þessum flokkum, og reynum að virkja það til góðs fyrir alþýðuna og þjóðina. Og þess vegna var nýsköpunarstjórnin svona ágæt stjórn. Og þess vegna gerði vinstri stjórnin svona margt gott.

Af hverju er ég að tala um þetta núna og nota þessa ræðu hv. 7. m. Reykv. sem ástæðu til að rifja þetta upp? Ég geri það vegna þess, að þetta er ákaflega gott til minnis núna undir kosningarnar. Það er greinilegt, að Framsfl. reynir svo kirfilega að þvo af sér kommúnismann, að það er auðséð, að það eru orðnar allsterkar þrár til þess að komast nú aftur í samstarf við einhverja, sem ekki verða grunaðir um kommúnisma, þó að ég viti satt að segja ekki, hverjir það eiga að vera á Íslandi, en í öllu falli að lenda ekki aftur í vinstri stjórn, þar sem mönnum örugglega yrði borið það á brýn, að þeir væru að reka erindi Moskvu. Maddama Framsókn á það til að tala fallega, þegar hún er í stjórnarandstöðu, eins og hv. 7. þm. Reykv. áðan um íbúðamálið. En um leið og Framsfl. er kominn í stjórn með Sjálfstfl., er þetta allt saman gleymt og breytt þveröfugt. Og það er það, sem fólkið í landinu þarf að muna, líka til að varast það, sem ella kynni að gerast eftir næstu kosningar.

Þá kom hv. 7. þm. Reykv. inn á það, þegar hann var að svara hæstv. viðskmrh., að tap Alþfl. væri því að kenna, að hann hefði gengið til fylgis við íhaldið, sagði hann orðrétt, 7. þm. Reykv. Það rétta í þessu er, að ógæfa Alþfl. er eldri en bara þessi stjórnarsamvinna við Sjálfstfl. núna. Ógæfa Alþfl. stafar af því, að hann gerðist allsnemma ósjálfstæður gagnvart borgaraflokkunum báðum, gagnvart Sjálfstfl. og Framsfl., og raunar þó fyrr gagnvart Framsfl. Og Alþfl. hefur orðið á sínum ferli svo háður þessum flokkum á víxl, að hann hefur ekki borið gæfu til þess að reka sjálfstæða verkalýðspólitík. Þetta er undirrótin undir hans ógæfu. Alþfl. hefur á þessum síðustu 30 árum hvað eftir annað misst sína beztu menn einmitt vegna þess, að þeir vildu ekki una þessu. Þeir vildu ekki una því, að flokkurinn væri eins og hjáleiga hjá öðrum stærri flokki, borgaralegum flokki, Framsfl. eða Sjálfstfl., og þeir risu upp á móti því. Það var ein af ástæðunum til þess, þegar við stofnuðum Kommúnistaflokkinn 1930, að við risum upp á móti því að láta þá menn, sem þá stjórnuðu Framsfl., og fyrst og fremst Jónas Jónsson ráða yfir Alþfl. Og í eina skiptið, sem Alþfl. eftir 1930 hefur risið þannig upp og reynt að vera sjálfstæður, var 1934, í kosningunum þá. Og þegar Framsfl. í þeirri vinstri stjórnar samvinnu síðan beygir hann, þá fer fram önnur uppreisn í Alþfl. Þegar hv. 7. þm. Reykv. er alltaf að taka sér nafn Héðins Valdimarssonar í munn, þá má hann muna það, að Héðinn Valdimarsson var einmitt foringinn fyrir þeim vinstra armi Alþfl., sem í þeirri stjórnartíð, 1934–1938, reis upp á móti Framsfl. Og þegar Héðinn síðan fór úr Alþfl. og myndaði Sósfl., þá skrifaði hann uppgjör við Framsfl., skuldaskil, kallaði hann það, fyrst og fremst við Jónas frá Hriflu, sem þá var svo að segja einræðisherra Framsóknar. þannig að hv. 7. þm. Reykv. þarf að gera sér það ljóst, að þessir kraftar risu upp vegna þess, að þeir vildu hafa Alþfl. sjálfstæðan gagnvart þessum borgaraflokkum. Og sama var 1954, þegar Hannibal Valdimarsson rís upp, þegar báðir borgaraflokkarnir eru saman í stjórninni. Það er sjálfstæðisbarátta verkalýðsins í Alþfl. á móti yfirráðum fyrst Framsóknar og seinna meir Sjálfstfl. og um tíma þeirra beggja, þegar þrír flokkar áttu að vera svo að segja allir eitt, sem veldur því, að Alþfl. klofnar hvað eftir annað á þessum árum og beztu menn hans rísa upp og þola ekki þetta. Alþfl. hefur tapað í kosningum á Íslandi jafnt hvort sem hann hefur beygt sig fyrir Framsfl. eða Sjálfstfl. Hann hefur tapað vegna þess, að hans fólk sættir sig ekki við það. Hv. 7. þm. Reykv. man vafalaust enn þá Hræðslubandalagið, það er ekki svo langt liðið síðan, þegar átti bókstaflega að innlima Alþfl. í Framsfl. og þessir flokkar buðu fram eins og einn flokkur og ætluðu að svindla á kjördæmaskipulaginu með því.

Eini möguleikinn fyrir Alþfl. til þess að vinna bug á þessari ógæfu sinni var og er að reka sjálfstæða pólitík, þora sjálfstætt að berjast fyrir hagsmunum verkalýðsins. Að vísu, ef Alþfl. hefði gert það á undanförnum 30 árum, þá hefði hann ósjálfrátt skipað sér við okkar hlið, Sósfl. og Alþb. Og ég veit, að það eru ýmsir af hans forustumönnum svo haldnir ótta við slíkt, að þeir vilja heldur hlaupa fyrir björg og eyðileggja flokkinn en láta slíkt verða. En beztu menn hans hafa á þessum 30 árum risið upp og tekið saman höndum við okkur einmitt um að reka sjálfstæða verkalýðspólitík, en samt það djarfa pólitík, að við þorðum jafnt að vinna með Framsfl. og með Sjálfstfl., ef okkur leizt svo á, að það væri hægt að fá fram góð og þjóðnauðsynleg mál með slíku.

Ég vil svo minna hæstv. viðskmrh. á það, þegar hann sagði það hér nokkrum sinnum í sinni ræðu, að það vantaði hagskýrslur og það vantaði skýrslur um þetta og þetta, að það er nú einmitt það, sem sagt hefur verið við hann og fleiri ráðherra í hans stöðu ár eftir ár hér á Alþingi, að það væri allhart, þegar við værum að ræða þessi mál, að það væri ómögulegt að fá fram almennilegar skýrslur, við skulum segja t.d. um gróðamyndun í íslenzku þjóðlífi, um eignaskiptingu í íslenzku þjóðlífi, um tekjuskiptingu í íslenzku þjóðlífi eða annað slíkt, og ég skoraði á hann síðast að láta gera slíkar skýrslur og koma með þær. Ég veit, að það er tiltölulega auðvelt, og ég minni hann á það enn þá, þegar hann er meira að segja farinn að finna til þess sjálfur. Sannleikurinn er, að það er svo mikið af þessum skýrslum, sem fluttar eru fram, fyrst og fremst áróðursskýrslur frá hálfu ríkisstj. Ég ætla hins vegar ekki að fara hér að ræða þær tölur, sem hann var með. Ég þykist vita, að það verði gert annaðhvort í sambandi við þessar umr. eða aðrar af mönnum, sem þekkja þarna betur til en ég, bæði forseta A.S.Í. og formanni Dagsbrúnar.

Ég vil hins vegar að síðustu minna á, að sú þróun, sem orðið hefur bara þetta síðasta hálfa ár, undirstrikar enn frekar réttmætið í því, sem ég legg til í 7. gr. þessa frv., þar sem rætt er um gerð fyrstu 10 ára áætlunarinnar, að á fyrri hluta þess tímabils, næstu 5 árum, skuli einbeitt sér að því að koma á sem mestri fullvinnslu sjávarafurða og landbúnaðarafurða og annarra hráefna og afurða íslenzkra með það fyrir augum, að þjóðin megi verða iðnaðarþjóð, er flytur framleiðslu sína fullunna úr landi. Ég vil minna á það, að lengst af höfum við undanfarin ár, Íslendingar, aflað 500–600 þús. tonna af fiski úr sjó. Nú síðasta árið er það í fyrsta skiptið; sem við förum upp í 800 þús. tonn. Það er 33% aukning á okkar framleiðslu, það er gífurleg aukning, sem náttúrlega skapar gífurlega möguleika líka fyrir að hækka launin hjá almenningi, ef rétt er á haldið. Af þessum 800 þús. tonnum rúmum eru yfir 400 þús. tonn síld, vara, sem gæti verið enn þá dýrari en þorskurinn, ef rétt er farið með. En af þessum 400 þús. smál. af síld, sem við veiðum á síðasta ári, er ekki saltað nema um 400 þús. tunnur, milli 40 og 50 þús. tonn, rúmur 10. hlutinn. Hinu er hent í bræðslu.

Þetta er ástand, sem er algerlega óviðunandi. Sú tæknibylting, sem orðið hefur í fiskveiðum og síldveiðunum sérstaklega, kallar á iðnbyltingu í landi í matvælaframleiðslunni. Og það er sú nauðsynlegasta bylting, sem við þurfum að framkvæma í okkar atvinnulífi. Iðnbylting í matvælaframleiðslu Íslendinga er raunverulega allra þýðingarmesta málið í okkar atvinnulífi og nýsköpun þess, sem nú liggur fyrir að vinna að, ekki aðeins að við gætum stóraukið, a.m.k. tvöfaldað það, sem við söltum af síld, flökum eða hraðfrystum og flytjum þannig út hálfunnið, heldur líka hitt, að við tökum okkur til og komum hér upp niðurlagningar- og niðursuðuverksmiðju, bæði á síld og fiski, og gerum ráðstafanir í okkar verzlunarmálum til þess að geta flutt síldina þannig unna, fullunna, út í stórum stíl. Það er óþolandi, að við skulum allan þann tíma, sem við höfum fengizt við síldveiði og síldarútflutning, hafa látið Svíana svo að segja sjá um að vinna úr allri síldinni, allri kryddsíldinni, sem við framleiðum, og þetta bezta hráefni heimsins skuli svo að segja að engu leyti unnið hér á Íslandi. Og sýnir samt sú litla tilraun, sem gerð var einmitt núna nýlega, meðfram fyrir framtak Alþingis, norður á Siglufirði, framleiðslan þar með þeim ágætu gæðum, sem hún hefur upp á að bjóða, sýnir, að við getum gert þetta verk. Og þarna er um að ræða vöru, sem heimurinn, sem skortir mat, þarf meira á að halda og er honum bæði ljúffengari og kaloríuríkari en t.d. allar kjöttegundir, að svínakjöti einu undanskildu, þannig að það, sem um er að ræða, er það, að við sitjum hér uppi með gífurlegan auð í þessum afla, sem við fáum, og við högum okkur eins og villimenn í því, hvernig við förum með hann. Og þetta getur ekki gengið, og þarna verður ekki gerð sú stórbreyting á, framkvæmd sú iðnbylting, sem allt kallar á, nema því aðeins að ríkið láti til sín taka með hana.

Ég held þess vegna, að svo brýnt sem það hefur verið allan þann tíma, sem við höfum barizt fyrir því, bæði Sósfl. og Alþb., að þetta frv. um áætlunarráð næði fram að ganga, þá held ég, að það hafi aldrei verið brýnna en einmitt nú, þegar þær auðlindir, sem við ausum af, gefa okkur meiri gnægtir en nokkru sinni fyrr, og það, sem raunverulega vantar, er aðeins hitt, að við förum með þetta eins og menn, að við gerumst nýtízku iðnaðarþjóð í því að fullvinna þessa vöru og flytja hana sem allra, allra mest fullunna úr landi. Og ég held, að sú till., sem felst í þessu frv. um áætlunarráð, um að stiga þau skref, feli um leið í sér brýnustu viðfangsefnin í íslenzku atvinnulífi á yfirstandandi skeiði.