07.02.1963
Neðri deild: 36. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 464 í C-deild Alþingistíðinda. (2355)

76. mál, áætlunarráð ríkisins

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Það er óhætt að slá því föstu, að þær miklu og löngu umr., sem hafa orðið um þetta mál strax við 1. umr., hafa ekki nema að litlu leyti orsakazt af efni lagafrv. sjálfs, heldur miklu fremur af þeim fskj., sem frv. fylgja, og ályktunum, sem dregnar hafa verið af efni þeirra. Hv. flm., 3. þm. Reykv., Einar Olgeirsson, hefur svo að venju notað tækifærið til að gera upp við kapítalismann í heiminum, Wallstreet-auðvaldið og vondu karlana í París og aðra slíka. Svo hafa dregizt inn í þessar umr. almennar stjórnmálaumr., umr. um verkalýðshreyfinguna og störf hennar, tímakaupstaxta, atvinnutekjur og svo umr. um vinnutímalengd eða vinnuþrælkun, eins og sumum hv. þm. er orðið tamt að kalla það.

Í umr. um vinnutímann kom það réttilega fram í ræðu hæstv. viðskmrh., að mikill skortur væri hér á landi á fullkomnum launaskýrslum með launa- og vinnutímaskiptingu og slíkt væri ekki til hér á landi. Þessi ummæli hæstv. ráðh. ásamt fullyrðingum stjórnarandstöðunnar um vinnuþrælkun hér á landi eru orsök þess, að ég stend hér upp, því að upplýsingar um þetta efni liggja einmitt fyrir frá árinu 1961. Þessar upplýsingar eru fengnar á vegum hinnar svokölluðu vinnutímanefndar, sem Alþingi kaus fyrir nokkrum mánuðum til að vinna að þál. um að gera 8 stunda vinnudaginn raunhæfan án skerðingar launa.

En áður en ég sný mér að þessari skýrslu eða þessari rannsókn n., vil ég víkja aðeins að nokkrum þeim ummælum, sem hafa komið fram við þessa umr. málsins, t.d. þeirri fullyrðingu hv. 7. þm. Reykv., að það gangi glæpi næst að miða ekki afkomu launþega við lægsta taxta Dagsbrúnar. Því svaraði hæstv. viðskmrh. mjög skilmerkilega í sinni fyrri ræðu um þetta mál, og hann benti mjög réttilega á, að það hafa orðið stórfelldar breytingar á þessum þætti launamálanna, t.d. með hinni öru fækkun verkamanna, sem vinna eftir þessum lægsta taxta, og fjölgun nýrra og hærri taxta, sem komið hafa til sögunnar vegna þeirrar viðurkenningar, sem hefur fengizt á því, að ábyrgð og reynsla og kunnátta og vinnuskilyrði ættu að vera staðreynd, sem tillit yrði að taka til, þegar samningar um kaup væru gerðir. Það má líka benda á stórkostlegar þjóðfélagsbreytingar, sem hafa orðið á síðustu árum. Það hafa orðið til nýjar stéttir, mjög fjölmennar, sem hafa gert sína eigin samninga, með taxta allfrábrugðna töxtum verkamanna hér í Reykjavík. Þessa staðreynd virðast sumir verkalýðsleiðtogar þjóðarinnar hafa átt mjög erfitt með að skilja eins og fleiri, því miður.

Það hefur einnig í þessum umr. og það af hæstv. ráðh. verið bent á nýyrðið launaskrið, en það hefur verið skilgreint sem sú hækkun tekna, sem ætti sér stað umfram það, sem breyting á kauptöxtum ætti að hafa í för með sér. Þessi hækkun getur orðið með ýmsu móti. Í fyrsta lagi eiga sér stað tekjuhækkanir vegna þess, að einstökum mönnum eða heilum starfshópum er greitt umfram samninga eða eftir hærri töxtum en ætlað er samkv. samningum. Í öðru lagi getur aukin eftirvinna valdið tekjuaukningu umfram hlutfallslega hækkun kaupgjaldstaxta, þótt þessi ástæða sé veigaminnst að margra mati. Og í þriðja lagi hafa ákvæðisvinnutekjur og tekjur af hlutaskiptum tilhneigingu til að hækka meira en almennt kaupgjald, vegna þess að launþegar njóta þar beint bættra afkasta, meiri vélvæðingar og aukinna tækniframfara. Það er enginn vafi á, að einmitt þetta síðasta atriði hefur á síðustu 12–15 mánuðum átt stóraukinn hlut í bættum atvinnutekjum launþega hér á landi, þótt ég telji hins vegar, að það sé ekki nema brot af því, sem það gæti orðið. Sú staðreynd er kunn frá sumum löndum, að þar er launaskriðið veigameiri þáttur í aukningu heildartekna heldur en beinar kaupgjaldshækkanir.

Það, sem mér finnst því einna verst, þegar verið er að ræða launa- og verkalýðsmál almennt og það jafnvel að leggja út í aðgerðir, sem eru studdar af og byggðar á blekkingavef og jafnvel að nokkru leyti byggðar á röngum forsendum, með fyrirsjáanlegum afleiðingum, aukinni verðbólgu, — það, sem mér finnst verst, er sá skortur á þekkingu á þessum málum hjá ábyrgum aðilum, sem um það ættu að vita, aðilum beggja hliða, sem ættu að sjálfsögðu að fylgjast með þróun þessara mála. Það mátti t.d. heyra það á síðasta þingi Alþýðusambandsins frá áberandi verkalýðsleiðtogum, er þeir skýrðu frá því, að þeir hefðu því miður hvorki þekkingu né skilning á þeim nauðsynlega undanfara, sem þarf til og er viðurkenndur meðal iðnþróaðra landa eða þjóða, til þess að mögulegt sé að nýta hina einstöku framleiðsluþætti betur, auka framleiðnina og gefa þeim, sem að framleiðniaukningunni vinna, hlutdeild í vaxandi ágóðahlut.

En forustumenn verkalýðshreyfingarinnar eiga ekki einir sök á þessari vanrækslu og vanþekkingu, þótt ég persónulega telji þeirra hlut stórum verri, þótt gleðilegar undantekningar megi finna meðal þeirra. Samtök vinnuveitenda hafa sýnt sama skeytingarleysið, þótt einnig þar megi finna undantekningar. Ég tel einn gleðilegasta vottinn á þessu sviði um framfarir hinar umfangsmiklu tilraunir Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, sem hafnar voru á miðju s.l. ári, tilraunir, sem voru gerðar með ákvæðisvinnu, sem byggð var á vinnurannsóknum. Fyrstu upplýsingar um þessar tilraunir fékk ég einmitt á áður tilvitnuðu Alþýðusambandsþingi, en það hefur af einhverjum ástæðum verið furðu hljótt um niðurstöðu þeirra, annað en það, sem kom fram í blaði þessara samtaka nú fyrir skömmu.

Í upplýsingum þeim, sem nokkrum forustumönnum verkalýðshreyfingarinnar voru gefnar, kom það m.a. fram, að þeim, sem náðu svokölluðum normal-afköstum, sem fundin voru með vinnurannsóknum, var greitt 10% hærra kaup en venjulegt tímakaup er, en í þessum normal-afköstum þarf að ná fram lágmarksnýtingu og lágmarkshraða. Fyrir 1% aukningu í nýtingu fengu þeir, sem unnu að þessu, 10% kauphækkun og fyrir 20% hraðaaukningu fengu þeir einnig 10% kauphækkun. Peningalega hafði þetta í för með sér allt að 70% aukningu tekna. En að meðaltali mun þessi tekjuaukning hafa verið um 30%. Eitt af dagblöðunum hér í Reykjavík skýrði frá því fyrir skömmu, að í Vestmannaeyjum hefðu fundizt dæmi þess, að stúlkur, sem unnu að pökkun, hefðu aukið tekjur sínar um allt að 100%. Þegar þess er gætt, að 70–80% þess mikla fjölda, sem vinnur í frystihúsunum um allt land, getur á tiltölulega auðveldan hátt komizt undir þetta launagreiðslukerfi tæknilega séð og það er möguleiki á bónus-fyrirkomulagi fyrir hina, sem ekki vinna við flökun, snyrtingu, vigtun og pökkun, þá sést, hve geysiþýðingarmikið atriði er hér um að ræða í þessum málum. Og að sjálfsögðu er hægt að koma nýjum launagreiðslukerfum á í flestum atvinnugreinum. Þannig hefur mér verið sagt frá nokkrum iðnaðarfyrirtækjum, sem tekið hafa upp vinnurannsóknir og ný launagreiðslukerfi. Þar er sömu söguna að segja, það eru stórauknar tekjur launþeganna án lengingar vinnutímans.

Eitt atriði í þessu sambandi vil ég draga fram að lokum, sem ekki hefur verið minnzt á í umr. um kjör launþega og atvinnutekjur, en það er liður, sem hefur orðið til og stóraukizt á síðustu árum. Það eru hinar margvíslegu fríðindagreiðslur. Ég tel það auðvitað hreint ábyrgðarleysi hjá þeim, sem halda því fram, að eina viðmiðunin, sem eigi að gera, þegar kröfur eru gerðar um aukna framleiðslu, það sé viðmiðunin við lægsta taxta Dagsbrúnarmanna, þegar hinir sömu, bæði þeir og aðrir launþegar, fá ýmiss konar fríðindi, sem leggjast að sjálfsögðu á vinnukostnaðinn. Það verður að horfast í augu við þessa staðreynd og viðurkenna þá skoðun vinnuveitandans, að þarna sé um einn hluta launa að ræða. Hjá því verður ekki komizt. Það er auðvitað mikilsvert atriði, þegar um það er rætt, hvort laun og fríðindi geti komið hvort í annars stað, og það má deila um, hvort svo sé. En hinu verður ekki móti mælt, að fríðindi eru hluti vinnukostnaðar og þau verða að teljast til tekna vinnuþegans og eru atvinnurekandanum kostnaður. Þó að það sé oft og tíðum erfitt að gera sér fyllilega grein fyrir fríðindunum, þá mynda þau talsverðan og vaxandi hluta framleiðslukostnaðarins. Það vita allir, að fríðindi geta ráðið miklu um viðhorf verkamannsins eða launþegans til ákveðinna starfa. Það er oft, sem þeir velja starf með lægri launum, þar sem hagkvæmni fríðinda er metin fram yfir annað sambærilegt hærra launað. Og það er oft, sem launamismunur er jafnaður með fríðindum. Og þá er um að ræða í flestum tilfellum fríðindi, sem eru jafngild launum. Ég held, að það sé óhætt að slá því föstu, að það sé erfiðara að afnema fríðindi, sem einu sinni eru komin á, heldur en lækka laun. Þannig mundi ég álita, að vinnuveitendur vildu heldur hækka laun en auka fríðindi, auk þess sem ég mundi segja, að þeir mundu álíta a.m.k., að fríðindi mundu gefa frekar fordæmi til aukinna kaupkrafna heldur en launin sjálf.

Það getur verið í sumum tilfellum, að fríðindi séu launþeganum miklu meira virði en atvinnurekandanum, t.d. í tilfelli þess, að launþegi öðlist tryggingu, sem hann mundi ekki geta náð sem einstaklingur, t.d. sjúkratryggingu. Ef litið er á kostnað vegna vinnu eins starfsmanns hjá vinnuveitanda, þá mætti greina hann í tvennt, þ.e. í bein laun og fríðindi. Fríðindin mætti svo aftur greina í tvo flokka: það, sem hefur verið kallað reglubundin fríðindi, og óviss eða óregluleg fríðindi. Sem dæmi um reglubundin fríðindi má nefna sumarfrí, helgidagafrí o.s.frv., en óviss eða óregluleg fríðindi má nefna sjúkra- og slysagreiðslur. Og það má líka skipta fríðindakostnaðinum í tvo flokka: fríðindi, sem er krafizt samkv. lögum, og fríðindi, sem eru ákveðin eftir samningum.

Hér er orðið um svo stóran þátt vinnukostnaðarins að ræða, að honum verður að gefa meiri gaum en gert hefur verið fram að þessu. Það hefur verið gerð hér á landi rannsókn á samningum nokkurra stéttarfélaga til þess að finna samningsbundinn fríðindakostnað miðað við greiðslu og raunverulega vinnustund. Þar reyndust iðnaðarmenn drýgstir með allt að 32%, Dagsbrúnarmenn með rúmlega 21%, Iðjuverkamenn með tæp 19% og verzlunarmenn með rúm 18%. í lok þeirrar skýrslu, sem ég hef hér vitnað í, um launa- og fríðindakostnað, segir m.a.:

„Óunnar greiðslustundir eða orlof og frídagar eru áberandi stór liður í fríðindakostnaði þeirra landa, sem á skránni eru (en ég vil taka það fram, að þá hefur verið vitnað til nokkurra Vestur-Evrópulanda). Þar ber Ísland hátt, en allmiklu ofar er þó Ítalía með sína fjölmörgu helgidaga“.

Svo segir áfram, með leyfi forseta:

„Með minna móti gætir hér lögboðins fríðindakostnaðar, svo sem til almannatrygginga. Ástæður þess eru, að forsjárkerfi hins opinbera er mjög víðtækt hér á landi og tryggingarnar að mestu kostaðar af hinum almennu skatttekjum. En víða erlendis eru tekjur almannatrygginga að mestu innheimtar þannig, að atvinnurekendur greiða mestan hluta iðgjaldanna með launasköttum, og er því meginhluti fríðindakostnaðar víðast hvar lögboðnar greiðslur til almannatrygginga. Með l. um almannatryggingar frá 1946 var tryggingaskyldan hérlendis látin ná til allra, er störfuðu í annarra þjónustu, og var slysatrygging þá felld inn í hið almenna bótakerfi, er þá var tekið upp. Hvað snertir fjáröflun til trygginganna, voru gerðar nokkrar breytingar, sem gengu yfirleitt í þá átt að láta iðgjöld hinna tryggðu standa undir bótunum í stærri stíl en áður var. Þar mun að ýmsu leyti um að ræða þróun, sem er öfug við það, sem víðast hefur orðið síðustu áratugi í þessum efnum. Framlag atvinnurekenda til almannatrygginga reiknast í þessari athugun, eins og að framan er getið, lífeyristryggingagjöld, slysatryggingagjöld og gjöld til atvinnuleysistryggingasjóðs, þar sem það á við.

Þar sem athuganir hafa verið gerðar á fríðindakostnaði, hefur hann sýnt tilhneigingu til þess að fara vaxandi, enda hefur áherzla verið lögð á að afla raunhæfra kjarabóta hjá þeim þjóðum, sem lengst eru komnar á efnahagssviðinu. Yfirleitt hefur þar verið leitazt við að gera kjarasamninga til langs tíma, svo að tóm gæfist til heilbrigðrar samvinnu launþega og vinnuveitenda um þau úrræði, sem helzt gætu leitt til bættra kjara. Í því tilfelli mætti benda á nauðsyn aukins ákvæðisvinnufyrirkomulags, svo og aukinnar hagræðingar við hvers konar störf. Heppilegt væri að taka sem víðast upp vikulaunagreiðslur, þar sem nú er unnin tímavinna, einnig að stofna sem víðast innan hinna einstöku fyrirtækja samstarfsnefndir launþega og vinnuveitenda. Og ekki væri hvað sízt þörf á, að fulltrúar atvinnurekenda og launþega ynnu saman við rannsókn á því, hvert gjaldþol atvinnuveganna og hinna ýmsu greina þeirra væri, til þess að byggja á ráðstafanir til bættra kjara og afkasta.“

Þetta voru lokaorð þeirrar skýrslu um launa- og fríðindakostnað, sem ég vitnaði hér í.

Áður en ég sný mér svo að þeim takmörkuðu upplýsingum um vinnutímann, sem vinnutímanefnd hefur í fórum sínum, langar mig til að drepa á nokkur atriði úr ræðu hv. 7. þm. Reykv. (ÞÞ).

Ég býst við, að allir hv. þm. minnist þeirra ofsafengnu árása, sem núv. hæstv. ríkisstj. varð fyrir af hendi stjórnarandstöðunnar, er lögin um viðreisnina voru sett á sínum tíma. Þá átti, samkv. þeirra túlkun, alls kyns óáran að ganga yfir þjóðina, „móðuharðindi af manna völdum“ var það kallað, einn af hv. alþm. hélt því fram, að öll yfirvinna væri skorin niður, að ég tali nú ekki um innihald þeirrar stefnu í efnahagsmálum, sem upp var tekin, að hún var auðvitað þveröfug við það, sem Framsfl. vildi fara. Og þegar nýr forseti var kjörinn í Bandaríkjunum, var það sigur Framsfl., vegna þess að á stefnuskrá hans manna var að finna úrræði, sem féllu alveg að þeim skoðunum, sem Framsfl. hafði á þessum málum, þótt hins væri að vísu ekki getið, að þeir voru að berjast við þveröfug vandamál við okkur. Hér var um ofþenslu að ræða, en þeir voru aftur á móti að berjast við atvinnuleysi og kyrrstöðu, að ég nú ekki tali um baráttu framsóknarmanna gegn upplýsingum í sambandi við Efnahagsbandalagið. Sú gamansaga hefur gengið um Reykjavík nú að undanförnu, að forustumenn Framsfl. hafi haft bein áhrif á Frakklandsforseta, og þá verður að öllum líkindum komið upp úr dúrnum innan skamms, að hann sé framsóknarmaður.

Nýja vígorðið, sem framsóknarmenn hafa tekið upp í baráttu sinni gegn hæstv. ríkisstj., er vinnuþrælkun. Í því sambandi langar mig til að minna þennan hv. þm. á svokallaða 19 manna nefnd, sem höfð var sem skóbót fyrir stjórn Alþýðusambandsins og þáv. hæstv. ríkisstj., vinstri stjórnina. En ef þessi hv. þm. gefur sér tíma til að kynna sér, hvað rétt er í fullyrðingu minni, þá veit ég, að hann getur fengið þær upplýsingar hjá sessunaut sínum, hv. 4. landsk. þm., forseta Alþýðusambandsins, en ítrekaðar kröfur komu um það frá þessari 19 manna nefnd til stjórnar Alþýðusambandsins þáv. og þáv. hæstv. ríkisstj. á þann veg, að 10–12 stunda vinnudagur nægði ekki til lífsviðurværis og það væri krafa verkalýðshreyfingarinnar þá, eins og talið er nú, að svo yrði. Það má því slá því föstu, að hv. 7. þm. Reykv. hafi ekki síður stuðlað að þessari svokölluðu vinnuþrælkun þá heldur en hann telur aðra gera það nú.

Þessi sami hv. þm. vék löngu máli að starfi svokallaðra málfundafélaga sjálfstæðismanna. Hann minntist að vísu ekkert á það, að Framsfl. hefur tekið upp þann ágæta sið og stendur að baki félags, sem starfar innan stærsta verkalýðsfélags landsins, Dagsbrúnar í Reykjavík. Og þar að auki hefur Framsfl. sérstaka nefnd, sem sér um allt samstarf við kommúnista í þessari hreyfingu. Ég vil minna hv. 7. þm. Reykv. á það, að þegar hann er að minnast á þetta svokallaða samstarf okkar launþega úr Sjálfstfl. við kommúnista á árunum frá 1939–1942, þá var auðvitað um allt annað að ræða en nú. Og þar að auki stóðu framsóknarmenn að þessu samstarfi svokölluðu alveg eins. Þá var Alþýðusambandið þannig upp byggt, að alþýðusambandsþing var jafnframt þing Alþfl. Hins vegar átti Framsfl. og forustumenn framsóknarmanna drjúgan þátt í því hér á Alþingi, að ný vinnulöggjöf var sett, og þ. á m. var til þess ætlazt, að stéttarfélögin og þ. á m. þeirra þing yrðu opin öllum án tillits til stjórnmálaskoðana. Á þetta vildi Alþfl. ekki fallast á sínum tíma eða allt fram til 1942. En einmitt gegn þessu stóð barátta okkar sjálfstæðismanna og framsóknarmanna þá og að vísu kommúnista líka. En við vorum fljótir að finna þefinn af þeim lýð, en það hafa framsóknarmenn hins vegar ekki enn þá fundið og eru enn þá í samstarfi við þá. Það þarf ekki að fara lengra aftur í tímann en til gærkvöldsins, þegar sá atburður gerðist hér á aðalfundi fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna, að þeir gengu þar af fundi sáttir og í bróðerni, framsóknarmenn og kommúnistar, vegna þess að þeir voru að mótmæla því, að sjálfsögð réttindi verzlunarmanna og skrifstofufólks væru veitt þar, sem voru tekin af þeim á síðasta alþýðusambandsþingi.

Þessi sami hv. þm. vék einnig í þessari ræðu sinni nokkuð að afstöðu okkar sjálfstæðismanna til tilmæla þáv. hæstv. forsrh., þegar hann gekk sína Kanossagöngu á þing Alþýðusambandsins 1958. Ég hef að vísu gert það áður, en ég tel það ekki eftir mér að gera það enn að lesa upp þá yfirlýsingu, sem ég gaf á þessu þingi fyrir hönd okkar sjálfstæðismanna, sem þar vorum, en hún hljóðar á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„Í tilefni af bréfi hæstv. forsrh. vil ég leyfa mér að taka fram eftirfarandi:

Ég er kosinn á þetta þing til þess að ræða og gera ályktanir um, hvernig bæta megi kjör alþýðunnar, og vinna að öðrum hagsmunamálum hennar. Fram komið erindi forsrh. felur í sér stórfellda kjaraskerðingu, sem mun bitna mjög tilfinnanlega á öllum launþegum útgjaldaþyngsta mánuð ársins. Ég tel, að ég og aðrir fulltrúar þessa þings hafi alls ekki umboð til þess að rifta gildandi kjarasamningum okkar eigin og annarra verkalýðsfélaga, sem utan Alþýðusambandsins standa, á þennan hátt. Ég vil því vísa málaleitan forsrh. algerlega á bug. Án þess að taka afstöðu til annarra liða till., vil ég skora á alla fulltrúa að styðja fram komna till. um, að kaupgreiðslur fari fram samkv. gildandi lögum og samningum stéttarfélaga, fram borna af Eðvarð Sigurðssyni, Jóni Sigurðssyni o.fl., sem studd er af meiri hl. atvinnu- og verkalýðsmálanefndar.“

Þetta var afstaða mín og annarra sjálfstæðismanna á þessu fræga alþýðusambandsþingi, sem hv. 7. þm. Reykv. er svo tamt að vitna til og þá á allt annan veg en staðreyndirnar segja.

Ég gat ekki látið hjá líða að fara nokkrum orðum um þessa ræðu þessa hv. þm., þótt ég, eins og ég tók fram í upphafi, hefði ætlað að koma hér aðallega til þess að skýra frá þeim takmörkuðu rannsóknum, sem gerðar hafa verið á vinnutíma verkafólks. Ég vil taka fram, að það hefur verið ætlazt til þess, að þessar rannsóknir næðu ekki aðeins yfir Reykjavík, heldur einnig yfir alla stærri kaupstaði landsins. En það er með þetta eins og öll slík störf, að þetta gengur mjög seint, og við höfum ekki enn þá fengið nema takmörkuð skil á þeim upplýsingum, sem við höfum beðið um utan af landi. Hins vegar liggur fyrir, eins og ég tók fram áðan, fyrir árið 1961 mjög ýtarleg skýrsla um vinnutímann hér í Reykjavík, vinnutíma ófaglærðs verkafólks, en við það bundum við okkar starf á fyrsta stigi, þótt við hins vegar höfum bætt við einni stétt síðan, sem hefur verið talin búa við mjög langan vinnutíma og um leið lág laun, en það eru undirmenn á verzlunarskipum. Það voru teknir fjórir aðilar hér í Reykjavík inn í þessa rannsókn og þá í fyrsta lagi verkamenn, Dagsbrúnarverkamenn, í öðru lagi verkakonur frá verkakvennafélaginu Framsókn og svo iðnverkamenn og iðnverkakonur frá Iðju. Í þessari grg., sem er frekar uppkast en það megi kalla hana fullfrágengna með þessari rannsókn, segir m.a., að það hafi aldrei verið gerð almenn athugun á vinnutíma verkafólks hér á landi, sem væri byggð á frumgögnum um þau efni, né heldur skiptingu hans í dagvinnu, eftirvinnu og næturvinnu. Að vísu má gera sér lauslega hugmynd um lengd vinnutímans út frá upplýsingum um tekjur innan einstakra starfsgreina. En þær upplýsingar, sem fyrir liggja í þeim efnum, eru of takmarkaðar til þess, að hægt sé að draga af þeim almennar ályktanir um lengd vinnutímans og skiptingu hans í dagvinnu, eftirvinnu og næturvinnu. Og einmitt í þessu sambandi vil ég skjóta því inn í, sem ég gat um í upphafi, að þær tiltölulega háu og óvæntu upphæðir, sem hæstv. viðskmrh. gaf upp að hefðu verið atvinnutekjur ófaglærðs verkafólks og faglærðs á s.l. ári, hafa gefið sumum aðilum í þessu þjóðfélagi tilefni til að reikna vinnutímann út frá því, að það skili í fyrsta lagi fullum dagvinnutíma, sem er á lægsta taxta, fyrir við skulum segja 300 daga ársins, en eins og þessi skýrsla ber með sér, þá er það algerlega rangt — út í loftið. Í þessari grg. segir áfram:

Þar sem tilgangur þessarar athugunar er að leita ráða til að tryggja átta stunda vinnudag án þess að rýra tekjurnar, þ.e.a.s. að stytta vinnutímann, þá var óhjákvæmilegt að safna frumgögnum um tekjur ákveðinna starfsgreina og hvernig þeirra hafi verið aflað, þ.e.a.s. vinnutímann og skiptingu hans í dagvinnu, eftirvinnu og næturvinnu. Slík rannsókn verður þó varla gerð með vísindalegri nákvæmni, nema lögð sé í hana meiri vinna, tími og fyrirhöfn en eðlilegt má telja frá hagkvæmum sjónarmiðum. Það ráð var því tekið að leitast við að leysa verkefnið með tilliti til þess, hvernig mætti fá allgóðar upplýsingar um þetta efni, sem skiptu höfuðmáli. Og vinnutilhögunin var í stórum dráttum á þann veg, að fyrst var fengið almennt yfirlit yfir vinnutíma helztu starfsgreina s.l. ár samkv. upplýsingum um tryggingarskyldar vinnuvikur. Og í öðru lagi fór fram athugun á launatekjum innan viðkomandi starfsgreina, svokölluð úrtaksathugun samkv. launauppgjöri fyrirtækja og skattframtali einstaklinga. Og í þriðja lagi fór fram athugun á vinnutíma nokkurra einstaklinga í hverri starfsgrein samkv. launagreiðsluseðlum fyrirtækjanna.

Fyrsti hluti þessarar athugunar var einfaldastur í framkvæmd, því að upplýsingar um þau atriði, sem þar var um spurt, voru aðgengilegar og í aðgengilegu formi, en samkv. l. um slysatryggingar og atvinnuleysistryggingar safnar skattstofan upplýsingum um vinnuvikur tryggingaskyldra aðila og skiptir þeim niður á áhættuflokka og stéttarfélög. Og úr frumgögnum skattstofunnar má vinna almennt yfirlit yfir vinnutímann hjá tryggingaskyldum fyrirtækjum. En það verður að hafa í huga í þessu sambandi, að þarna er um útreiknaðan vinnutíma að ræða, byggðan á launagreiðslum fyrirtækjanna. Skipting vinnutímans í dagvinnu, eftirvinnu og næturvinnu kemur því ekki fram í þessum gögnum. Slíkt heildaryfirlit eins og fæst með þessari rannsókn gefur vísbendingu um hlutfallslega þýðingu einstakra starfsgreina með tilliti til vinnutímans og gefur um leið nokkra hugmynd um það, hvernig fyrirtæki landsins eru byggð upp innan þjóðfélagsins. Þetta var um fyrsta hluta rannsóknarinnar.

Annar hluti hennar var líka tiltölulega auðveldur viðfangs, en hann var mjög tímafrekur, Hann var það, sem byggt var á stóru úrtaki, til þess að fá sem réttasta mynd af launauppbyggingu einstakra atvinnugreina, launagreiðslu fyrirtækja og tekjum launþega. Þar var stuðzt við tvær aðferðir, sem við nefndum fyrirtækjaaðferð og einstaklingsaðferð. Og fyrirtækjaaðferðin var fólgin í því að byggja upp úrtak úr launauppgjöri einstakra fyrirtækja, en einstaklingsaðferðin felst í því að taka úrtak af ákveðinni stærð fyrir hverja starfsgrein, og þá er miðað við stéttarfélögin sem starfsgrein, þar sem að þeim standa sömu samningsaðilar. En auðvitað liggja þessar upplýsingar hvergi fyrir hjá hagstofunni. En hins vegar er í þessari rannsókn ekki gerð tilraun til þess að meta tekjur né vinnutíma eftir tegund vinnu, t.d. samanborið við vinnutaxta stéttarfélaganna, enda vinna verkamenn, eins og ég kom að í upphafi máls míns, oft á mörgum mismunandi töxtum yfir árið.

En þriðji hluti rannsóknarinnar og það, sem máli skiptir í þessu sambandi, sá hluti, sem snýr að sjálfum vinnutímanum, sú rannsókn var framkvæmd þannig, að það var óskað eftir upplýsingum um vinnutíma þeirra starfsmanna, sem komu fram í fyrsta úrtakinu, og með hliðsjón af því góða samræmi, sem hafði fengizt í undangengnum rannsóknum, þá varð það að teljast nægjanlega nákvæmt, að þetta úrtak gæfi rétta mynd af vinnutímanum. Í þessum tilfellum hafa verið teknar skýrslur um vinnutíma nokkurra starfsmanna með mismunandi launatekjur, og skýrslurnar, eins og þær liggja fyrir hjá vinnutímanefnd, bera með sér, hversu víðtækt þetta úrtak er. Og ég held, að enginn beri brigður á, að það sé í flestum tilfellum nægjanlega stórt til þess að gefa hugmynd um vinnutímann almennt. Það voru, eins og ég sagði áðan, gerðar rannsóknir einnig á launatekjum verkafólks fyrir árið 1961, og þá var byggt á skattaframtölunum. Þar reyndist meðaltal tekna verkamanna vera 77 þús., iðnverkamanna 70,8 þús. Þetta var samkv. fyrstu aðferðinni. Það var líka, kannske frekar til gamans gert, en það kemur inn á það mál, sem hefur blandazt inn í umr. um það frv., sem hér er til umr., að það var gerður samanburður á launatekjum og heildartekjum samkv. skattframtölum einstaklinga. Og þá er tekið tillit til annarra skattskyldra tekna, bæði húsaleigutekna, eigin og útleigðs húsnæðis, skattskyldra vaxtatekna, opinberra styrkja og trygginga, og laun konu, barna og annað. Það kom í ljós, að hjá verkamönnum var þetta 86,5 þús. meðaltalið, en hjá iðnverkamönnum 85,7 þús., og við samanburð á niðurstöðunum í þessari rannsókn og þeim, sem á undan voru farnar, sást, að heildartekjur launþega voru frá 5–18% meiri en launatekjurnar. En það er rétt að taka það fram, að nokkur hluti af þessum tekjum kemur auðvitað ekki fram sem ráðstöfunarfé hjá launþegunum. t.d. húsaleigutekjurnar. Það kom líka fram í þessari rannsókn, að framfærslubyrði verkamanna og iðnverkamanna er miklu minni en vísitölufjölskyldunnar eða að jafnaði reyndust þeir aðeins hafa eitt barn á framfæri, sem stafar af aldursskiptingu þessara stétta.

Í þeim umr., sem hafa orðið um vinnutímann að undanförnu, bæði hér á hv. Alþingi og utan þess, hefur ekki verið gerður neinn skilsmunur á þessum vinnutíma. Hins vegar var í vinnutímanefnd strax í byrjun gerður skilsmunur þar á, sem nauðsynlegt er, ef verið er að leita að ráðum til þess að stytta þennan vinnutíma. Þannig gerðum við okkur grein fyrir því, að í fyrsta lagi mætti tala um ráðstafaðan tíma vegna vinnunnar eða vinnutímafórn, og í flestum tilfellum mun það vera það hugtak, er verkamaðurinn dregur fram, í öðru lagi um greiddan vinnutíma, í þriðja lagi um samningsbundinn vinnutíma eða vinnutímann við vinnuna og svo í fjórða lagi um framkvæmdatíma eða raunverulegan vinnutíma, sem mundi þá frekar verða notaður í þessu sambandi af vinnuveitandanum. Niðurstöður, svo að ég fari fljótt yfir sögu, heildarniðurstöður þessara rannsókna fyrir 1961 leiddu í ljós, að verkamaður er með 78 þús. kr. meðalárslaun, og ég ætla að taka það fram, að þetta eru meðaltalstölur, með 45,9 unnar vinnuvikur á árinu, og ég ætla einnig að benda á það, að 1961 áttu verkamenn í löngu verkfalli, en miðað við 46 vinnuvikur tæpar, þá unnu þeir samtals 2653 tíma. Þar af voru aðeins 2070 dagvinnutímar, eftirvinnutímar 266 og næturvinnutímar 317. Tímar, sem þeir unnu því á viku, reyndust 57, og ég ætla að taka það fram, að þetta eru meðaltalstölur. En við vorum búnir að skipta þessu í nokkra flokka, byggingarvinnu, hafnarverkamenn, þá, sem unnu við fiskvinnslu o.s.frv., samtals 7 flokka, en þetta er sem sagt meðaltalið, 2653 vinnustundir, að meðaltali á viku 57,8 tímar á 46 vinnuvikum, meðaltal árslauna 78,3 þús.

Þetta taldi ég að væri rétt að kæmi hér fram, og í framhaldi af því, sem ég sagði í byrjun míns máls, þá kemur í ljós, eins og sést í þessum skýrslum, að aðeins er skilað 2070 dagvinnutímum. Hins vegar er mér sagt, að frá hendi Dagsbrúnar sé reiknað með um það bil 300 dögum á ári, sem unnið er, og ef um er að ræða 8 tíma á hverjum degi, þá mundu það vera 2400 tímar, þannig að á dagvinnutímann, sem eftir því ætti að skila á 300 dögum, vantar 330 dagvinnutíma. Þetta skilst, hvað þarna hefur átt sér stað, í ljósi þess, sem ég sagði í upphafi þessarar ræðu minnar. Og þegar horft er á þá staðreynd, að fyrir árið 1961 er meðaltalsvinnutíminn hjá verkamönnum 57 tímar á viku, þá mundi það hafa í för með sér, ef við ættum að draga aðeins ályktanir af þessu ári, sem ég tel þó vera algerlega óraunhæft, því að það er enginn vafi á því, að á þessu hefur orðið breyting frá árinu 1961–1962, — en ef við ættum að horfa aðeins á þetta eina ár og aðeins á verkamenn hér í Reykjavík, þá ættu okkar viðfangsefni að vera að stytta vinnutíma þessara manna úr 57 tímum á viku niður í 48 án þess að skerða laun þeirra.

Ég sé ekki ástæðu til þess að fara frekar út í það starf, sem þessari nefnd hefur verið falið, enda hvorki tími né tækifæri til að þessu sinni. En ég taldi, eins og ég hef margsinnis tekið fram, rétt út af þeim miklu umr., sem hafa orðið um vinnutímann og svokallaða vinnuþrælkun, að þessar upplýsingar lægju fyrir, sérstaklega þegar bæði einn af okkar ráðh. og svo einstakir þm. hafa staðið í þeirri meiningu, að slíkar rannsóknir hafi aldrei verið framkvæmdar hér á landi.