12.02.1963
Neðri deild: 40. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 485 í C-deild Alþingistíðinda. (2360)
76. mál, áætlunarráð ríkisins
Þórarinn Þórarinsson:
Herra forseti. Síðan ég talaði seinast í d. í sambandi við þetta mál, hafa ýmsir kvatt sér hljóðs og haft sitt hvað við það að athuga, sem ég sagði. Ég sé ekki ástæðu til að rekja það allt hér, en ætla mér þó að minnast á nokkur atriði, sem fram hafa komið í ræðum þessara hv. þm.
Ég sé, að hæstv. viðskmrh. er ekki staddur í deildinni, og mun þess vegna sleppa því a.m.k. að sinni að ræða það, sem hann sagði um kaup, kjör og vinnutíma. Og ég mun þá ekki heldur víkja að því. — Ég sé, að hæstv. viðskmrh. er kominn og ætla þá að víkja aftur að því, sem hann hafði að segja um launakjör verkamanna og vinnutíma.
Ég held, að það sé alveg óumdeilanlegt, þó að það sé kannske erfitt að koma með óyggjandi tölur um það, að vinnutími verkamanna og lægra launaðra launþega er miklu lengri nú en var fyrir 4–5 árum. Og ég get því til sönnunar m.a. leitt vitni, sem hæstv. viðskmrh. hlýtur að taka nokkurt tillit til, en það er hæstv. félmrh. Í grein, sem hann skrifaði nú um áramótin, þar sem hann var að ræða um ósigur Alþfl. í bæjarog sveitarstjórnarkosningunum á s.l. vori, var það ein aðalskýring hans á þeim ósigri, að vinnutími manna hefði lengzt svo mikið, að þeir hefðu miklu verri aðstöðu en áður til þess að gefa sig að félagsmálum, og það hefði átt sinn þátt í því, að Alþfl. hefði fengið jafnlélega útkomu og raun bar vitni um. Það má einnig í þessu sambandi vitna til ályktunar, sem samþ. var á s.l. hausti á þingi Alþýðusambands Vestfjarða, þar sem það var mjög átalið, að þrátt fyrir lengri vinnutíma væri afkoma manna ekki eins góð og hún hefði verið fyrir nokkrum missirum. En á þessu þingi áttu fyrst og fremst sæti flokksmenn Alþfl., og þess vegna verður því ekki haldið fram, að það hafi verið einhverjir vondir stjórnarandstæðingar, sem hafi staðið að þessari samþykkt. Ef maður lítur svo á það, sem verkamenn fá nú í laun miðað við 8 stunda vinnutíma annars vegar, og svo það, sem framfærsluvísitalan segir að þeir eigi að fá, þá sést ljóslega, að ef miðað er við 8 stunda vinnudag hefur afkoma manna versnað verulega síðan 1958.
1958, um haustið, ef miðað er við laun Dagsbrúnarverkamanna þá annars vegar og svo það, sem framfærsluvísitalan taldi að menn þyrftu að fá, þá var munurinn á þessu tvennu eitthvað í kringum 16 þús. kr. Ef maður gerir svipaðan samanburð núna, er munurinn eitthvað í kringum 22 þús. kr., þ.e.a.s. sem verkamaðurinn fær minna fyrir 8 stunda vinnutíma, ef miðað er við launin yfir árið, heldur en hann þarf að fá til að fá það, sem framfærsluvísitalan telur að 4 manna fjölskylda þurfi að fá, til þess að hún geti staðið undir þeim útgjöldum, sem talið er að séu óhjákvæmileg. Þannig hefur þessi munur á umræddum tíma aukizt um rúmar 6 þús. kr., sem hann er verkamanninum óhagstæðari en hann var 1958, ef miðað er við 8 stunda vinnutíma yfir allt árið. En það kemur hér einnig til viðbótar, að húsaleiga er reiknuð nokkurn veginn hin sama í framfærsluvísitölunni bæði 1958 og nú. En það vita þó allir, að það hefur orðið stórfelld hækkun á húsaleigunni á þessum tíma eða húsnæðiskostnaðinum. Og þar af leiðandi er það augljóst, að það er miklu verra núna að komast af sæmilega á launum, sem fást fyrir 8 stunda vinnutíma hjá verkamönnum, heldur en var fyrir 4–5 árum.
Fleiri atriði mætti nefna þessu til sönnunar, en ég sé ekki ástæðu til að rekja það frekar að sinni, vegna þess að það mun gefast tækifæri til þess siðar á þinginu að ræða þetta mál rækilegar.
Ég ætla þá að víkja að öðrum hv. þm., sem hér hafa talað, og kem þá fyrst að hv. 12. þm. Reykv., sem hélt hér að ýmsu leyti athyglisverða ræðu, og mörgu því, sem kom fram í hans ræðu, er vissulega ástæða til að gefa verulegan gaum. Að vísu var þar ekki um neitt nýtt að ræða. Það hafa ýmsir bent á þetta áður og hefur verið athugað bæði af samtökum verkalýðsins og atvinnurekenda, en þar var vissulega bent á ýmis atriði, sem ástæða er til að sinna frekar en gert hefur verið til þessa. Ég mun ekki ræða það frekar að sinni, því að það gefst aðstaða til þess síðar, en ég ætla að minnast örfáum orðum á það, sem hann sagði um samband Sjálfstfl. og kommúnista.
Hv. þm. játaði, að málfundafélög sjálfstæðisverkamanna hefðu á sínum tíma haft allnáið samband við kommúnista í verkalýðshreyfingunni, þetta hefði verið á árunum fyrir styrjöldina. Og það er alveg rétt hjá honum, að það var mjög náin samvinna á milli þessara aðila á þeim tíma. En siðar komst þessi hv. þm. þannig að orði, að sjálfstæðismenn hefðu fljótt fundið lyktina af kommúnistum og þess vegna hætt þessari samvinnu. Það getur vel verið, að það gildi um hv. 12. þm. Reykv., að hann finni einhverja sérstaka lykt af kommúnistum og vilji þess vegna ekki vinna með þeim. En það gildir hins vegar ekki um þá forustumenn Sjálfstfl., sem meiru ráða en hann. Til sönnunar öllu því, sem áður hefur verið rifjað upp um samstarf þessara aðila, finnst mér rétt að bæta við einu enn, sem sýnir, að t.d. hæstv. núv. forsrh. og hæstv. núv. dómsmrh. hafa ekki verið búnir að finna þessa lykt af kommúnistum haustið 1958. Þá gerðist það, eins og oft hefur verið rifjað upp hér, að vinstri stjórnin baðst lausnar, og það, sem forseti Íslands gerði þá fyrst á eftir, var að snúa sér til formanns stærsta þingflokksins, hæstv. núv. forsrh., og óska eftir því, að hann leitaði fyrir sér um stjórnarmyndun. Og hæstv. núv. forsrh. tók það fúslega að sér að reyna að mynda nýja ríkisstj. Maður skyldi nú ætla, að ef hæstv. forsrh. og hæstv. dómsmrh., sem mestu réðu þá í Sjálfstfl., hefðu fundið þá slæmu lykt af kommúnistum, sem hv. 12. þm. Reykv. telur sig finna, þá hefðu þeir ekki farið að tala við kommúnistana um stjórnarmyndun. En það liggur fyrir skjalleg heimild um það, að eitt af því fyrsta, sem hæstv. forsrh. gerði, þegar honum var falið að mynda ríkisstjórn í des. 1958, var að snúa sér til þessara vondu kommúnista og athuga, hvort ekki væri möguleiki á því að mynda stjórn með þeim. Og í Morgunblaðinu 12. des. 1958 segir frá þessu á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:
„Athugun á möguleikum til stjórnarmyndunar var í gær haldið áfram af hálfu Sjálfstfl. Ólafur Thors og Bjarni Benediktsson áttu í því skyni kl. 10 fyrir hádegi viðræður við Einar Olgeirsson, Finnboga Rút Valdimarsson og Lúðvik Jósefsson og kl. 2 eftir hádegi við Hermann Jónasson og Eystein Jónsson. Stóð hvor fundur hér um bil 2 klukkustundir:
Það liggur sem sagt hér fyrir skjalfest í Morgunblaðinu, að í des. 1958 hafi Ólafur Thors og Bjarni Benediktsson gengið á fund þeirra Einars Olgeirssonar, Finnboga Rúts Valdimarssonar og Lúðviks Jósefssonar og rætt við þá um möguleika um stjórnarmyndun þessara flokka. Og það voru ekki neinar málamyndaviðræður, sem fóru þarna fram, heldur stóðu þessar viðræður rúmar 2 klukkustundir. Og ég hef það eftir allgóðum heimildum úr báðum þessum flokkum, að í raun og veru hafi það ekki verið nema eitt atriði, sem varð þess valdandi þá, að ekki tókst stjórnarsamstarf milli þessara flokka. Og þetta eirna atriði var það, að Sjálfstfl. taldi sér ekki fært, eins og líka kemur greinilega fram í skrifum Morgunblaðsins á þessum tíma, að mynda ríkisstj. haustið 1958, nema því aðeins að aftur yrði tekin kauphækkun, sem hann og kommúnistaflokkurinn höfðu átt þátt í að knýja fram sumarið 1958 eða nokkrum mánuðum áður. Enda var það líka eitt fyrsta verk Sjálfstfl., eftir að búið var að mynda stjórn Alþfl., að koma þessari kauplækkun fram. Kommúnistarnir voru ekki við því búnir eins og Sjálfstfl. að taka þannig strax aftur þá kauphækkun, sem þeir höfðu hjálpað til að knýja fram sumarið 1958, og þess vegna varð ekki af stjórnarmyndun þessara aðila í þetta skipti. En það, sem ég hef nú bent á, sýnir, að af hálfu Sjálfstfl. var fullkomlega leitað eftir því, hvort kommúnistar væru tiltækilegir í ríkisstjórn með honum í des. 1958.
Það, sem gerðist haustið 1958 í þessum efnum, getur áreiðanlega átt eftir að gerast enn. Ef þannig færi t.d., að Alþfl. reyndist ekki Sjálfstfl. nægilega sterk hækja eftir næstu kosningar, eins og vel getur farið, þá yrði það ekki nema í samræmi við reynsluna 1958, að þeir Ólafur Thors og Bjarni Benediktsson gengju enn einu sinni á fund Einars Olgeirssonar, Finnboga Rúts Valdimarssonar og Lúðvíks Jósefssonar, eins og þeir gerðu í des. 1958. — Ég mun láta þetta nægja til þess að svara því, sem hv. 12. þm. Reykv. talaði um það, að sjálfstæðismenn fyndu svo vonda lykt af kommúnistum, að þeir vildu ekki nein mök við þá hafa.
Ég ætla þá að koma að því, sem hv. 1. þm. Vestf. hafði að segja um þessi mál. því miður fór hv. þm. með æðimargar rangfærslur, sem ástæða væri til þess að rekja nánar og hrekja hjá honum, en til þess færi allt of mikill tími, og ég held, að þær hafi verið hv. þm. svo ljósar, að það sé óþarfi að vera að elta ólar við þær. En eitt kom þó mjög athyglisvert fram í ræðu hv. þm., og það var það, að hann viðurkenndi, að a.m.k. 6 eða 7 skipti hefði Sjálfstfl. haft meiri eða minni samvinnu við kommúnistaflokkinn, vildi að vísu aðallega kenna Framsfl. um, að þessi samvinna hefði þurft að eiga sér stað. En hv. þm. viðurkenndi það, að 1937–42 hefði átt sér stað meiri og minni samvinna milti Sjálfstfl. og kommúnista í verkalýðshreyfingunni, að þessir flokkar hefðu tekið höndum saman 1942 um „steiktu gæsirnar“ og myndað stjórn, sem tvöfaldaði dýrtíðina á 8 mánuðum, að þeir hefðu verið í stjórn 1944–46, að þeir hefðu staðið að kjördæmabyltingunni 1959, að Sjálfstfl, hefði hjálpað til þess, að Einar Olgeirsson, hv. 3. þm. Reykv., héldi sínu sæti í Norðurlandaráði o.s.frv. Allt þetta viðurkenndi hv. þm. að væri í raun og veru rétt, þ. e. að þessi samvinna á milti sjálfstæðismanna og kommúnista hefði átt sér stað. Og það var það, sem ég hafði haldið fram í minni ræðu, þannig að hv. þm. gerði í raun og veru ekki annað en staðfesta það, sem ég hafði um þetta sagt.
Hv. þm. vék svo að því nokkrum orðum, hvers vegna ég væri að benda á þetta. Ég get sagt hv. þm., hver sé meginástæðan til þess, að ég var að minnast á þetta. Ég er ekkert út af fyrir sig að álasa Sjálfstfl. fyrir það, þó að hann hafi samvinnu við kommúnista eða Alþfl. eða einhvern annan flokk. Það er einkamál hvers ein. staks flokks, með hverjum hann vinnur. Og hann ber að sjálfsögðu ábyrgð á því. En það, sem ég ásaka Sjálfstfl. fyrst og fremst fyrir, er, að hann er alltaf að reyna að fela þetta, hann er alltaf að reyna að leyna þessu, hann er alltaf að afneita kommúnistum, segist engin mök vilja við þá hafa o.s.frv. og reyna að klína kommúnistastimpli á aðra. Ég fullyrði, að þetta er einhver sá mesti hræsnisleikur, sem nokkru sinni hefur verið leikinn í íslenzkum stjórnmálum, vegna þess að reynsla undanfarinna 30 ára sýnir, að það hefur verið meira og minna samstarf á milli, og það sést enn í dag, að það er meira og minna náið leynisamband á milli þessara tveggja flokka. Þess vegna er ástæða til að benda á þetta og þá stórfelldu hræsni, sem hér kemur í ljós, þegar Sjálfstfl. er að reyna að afneita þessu og vera svo að bera það á aðra, að þeir vilji þetta, en Sjálfstfl. vilji það ekki, þó að það gagnstæða hafi margsinnis sýnt sig í verki og sýni sig enn í dag. Það er þessi stórkostlega hræsni Sjálfstfl., sem er alveg sérstök ástæða til þess að benda á, og þessi blekkingaleikur, sem hann hefur í frammi í þessum efnum.
Ég ætla þá að koma næst að hv. 3. þm. Reykv., en það var ýmislegt athyglisvert, sem kom fram í hans ræðu. Og það, sem ég tel einna athyglisverðast, var það, sem hv. 3. þm. Reykv. sagði um afstöðu Alþb. og Sósfl. til annarra flokka. Hann tók það alveg skýrt fram, að Sósfl. og Alþb. ynnu með öðrum flokkum eftir málefnum, væru tilbúin til þess að vinna með hvaða flokki og hvaða aðila sem væri, aðeins ef það næðist málefnaleg samstaða, eða m.ö.o., að Alþb, og Sósfl. væru ekki síður reiðubúin til þess að ganga í þjóðfylkingu með Sjálfstfl. en Framsfl. eða Alþfl. eða hvaða öðrum flokki. Þetta var sú yfirlýsing, sem hv. 3. þm. Reykv. gaf. Sem sagt, það stendur ekki á Sósfl., það stendur ekki á Alþb. að hefja samvinnu við Sjálfstfl., hvenær sem er, ef sá flokkur kynni að vilja samvinnu við þá.
Þá var einn kafli í ræðu hv. 3. þm. Reykv., sem var mjög eftirtektarverður, þó að hann væri á vissan hátt broslegur, og í raun og veru minnti hv. þm. jafnvel öllu meira á vissan trúarflokk, sem er að prédika hér stundum úti á Lækjartorgi, heldur en á ræðumann hér á þingi, því að hann klökknaði svo mikið, þegar hann fór að tala um þetta atriði. Og þetta atriði, sem hv. þm. var svo orðmargur um, var ást Sjálfstfl. á lýðræði og ást Sjálfstfl. á réttlæti. En hv. þm. taldi, að það stafaði eingöngu af ást Sjálfstfl. á lýðræði og réttlæti, að hann hefði stutt að því, að hann var kosinn í Norðurlandaráð og kosinn í Sogsstjórnina með þeirri skringilegu aðferð, sem þar átti sér stað. Það var skýring hv. þm. á þessu, að þetta stafaði allt saman af ást Sjálfstfl. á lýðræði og ást Sjálfstfl. á réttlæti. Ég get fullvissað hv. þm. um það, að hér er um allt aðra ást að ræða heldur en ást Sjálfstfl. á réttlæti og ást Sjálfstfl. á lýðræði. Sú ást, sem hér kemur til greina, er ást Sjálfstfl. á hv. 3. þm. Reykv., ást Sjálfstfl. á því klofningsstarfi, sem hann og hans flokkur hafa rekið í íslenzkri pólitík, ást Sjálfstfl. á þeirri aðstöðu, sem störf hv. 3. þm. Reykv. og hans félaga hafa skapað Sjálfstfl. frá fyrstu tíð. Það er alveg víst, að ef hér hefði ekki komið til sögunnar jafnöflugur kommúnistaflokkur og starfað hefur í landinu á undanförnum árum og óneitanlega er að þakka miklum áróðurshæfileikum og dugnaði 3. þm. Reykv., þá hefði þróun íslenzkra stjórnmála orðið á allt annan veg en hún hefur verið á undanförnum árum, þá hefði þróun íslenzkra stjórnmála orðið sú, að íhaldsandstæðingar hefðu verið miklu minna klofnir, íhaldsandstæðingar hefðu getað staðið miklu betur saman, og það hefði lamað áhrif og ítök íhaldsins í landinu. Sjálfstfl. hefur ekki fyrst og fremst haft áhrif hér á undanförnum árum vegna þess, hve hann hefur verið stór og sterkur flokkur, heldur fyrst og fremst vegna þess, hve andstæðingar hans hafa verið sundraðir, og í því á hv. 3. þm. Reykv. því miður sinn mikla þátt. Og það er þess vegna, sem Sjálfstfl. hefur þessa ást á honum, því að það er ekki aðeins það, að Sjálfstfl. geti þakkað hv. 3. þm. Reykv. og hans félögum, að þeir hafi sundrað íhaldsandstæðingum í landinu, heldur hefur Sjálfstfl. oft og tíðum getað haft náið samstarf við þessa aðila, þegar hann hefur verið að koma sínum málum fram. Og Sjálfstfl. vill, eins og hefur verið bent á hér í þessum umr. og nefnd ákveðin dæmi um, eiga þessa leið opna, hann vill eiga þá leið opna að geta átt samstarf við hv. 3. þm. Reykv. og hans félaga, ef til hans þarf að sækja, ef t.d. Alþfl. kynni að bresta. Og þess vegna er það, sem Sjálfstfl. sýnir hv. 3. þm. Reykv. og hans félögum slíka ást og umhyggju eins og kemur fram á kosningunni á hv. þm. í Norðurlandaráð og Sogsvirkjunarstjórn, í heiðurslaununum til Brynjólfs Bjarnasonar og þar fram eftir götunum.
Hv. 3. þm. Reykv. vék talsvert að afstöðu Framsfl. til kaupgjaldsmála á undanförnum áratugum. Og hann minntist á það m.a., að það mætti nefna dæmi þess, að Framsfl. hefði staðið á móti ýmsum kauphækkunum. Þetta er alveg rétt. Ég skal viðurkenna það, að Framsfl. hefur stundum staðið á móti kauphækkunum, og það er af þeirri einföldu ástæðu, að skoðun Framsfl. er sú, að kauphækkanir komi ekki að fullum notum, nema því aðeins að atvinnuvegirnir geti fullkomlega undir þeim risið og þær leiði ekki nýja verðbólguskriðu af sér. Þetta hefur verið afstaða Framsfl. í stjórn, og þetta hefur ekki verið afstaða Framsfl., þegar hann hefur verið í stjórnarandstöðu, og ég tel alveg sérstaka ástæðu til þess að ræða þetta, vegna þess að afstaða Framsfl. á undanförnum missirum hefur sannað þessa afstöðu flokksins betur en nokkru sinni fyrr, að Framsfl. telur launþega því aðeins hafa gagn af kauphækkunum, að það sé fullkomlega hægt að sýna fram á það, að atvinnuvegirnir geti undir þeim risið og það verði ekki tekið allt aftur með nýrri dýrtíð.
Eftir að hæstv. núv. ríkisstj, var búin að koma viðreisninni á, sem skerti kjör launþega stórkostlega, og þegar verkalýðshreyfingin hóf sina baráttu til þess að létta þessum álögum af sér, þá átti Framsfl. sinn þátt í því, að fyrsta spor launþegasamtakanna til þess að fá kjarabætur, var ekki það að heimta kauphækkanir, heldur að snúa sér til ríkisstj. og óska eftir því, að hún veitti kjarabætur eftir öðrum leiðum en kauphækkunum. Og fyrir atbeina Framsfl. m.a. gengu launþegasamtökin, Alþýðusamband Íslands, eftir þessu um margra mánaða skeið, að ríkisstj. færi aðrar leiðir til þess að mæta kjaraskerðingu viðreisnarinnar heldur en þá, að launþegasamtökin þyrftu að fara út í nýja kauphækkunarbaráttu. Og það var fyrst eftir að ríkisstj. og hennar flokkar höfðu algerlega neitað um alla kauphækkun og kjarabætur í þessu formi, sem launþegasamtökin háðu sina baráttu vorið 1961 með stuðningi Framsfl. Og eftir að þá var allt komið í óefni, búið að standa stærsta verkfall, sem hér hefur verið, í margar vikur og horfur voru á, að síldarvertíðin mundi alveg fara út um þúfur, þá áttu framsóknarmenn á Norðurlandi, sem voru í samvinnufélögunum þar, þátt í því að leysa þessa deilu með kauphækkunum, sem voru svo sanngjarnar, að það var fullkomlega hægt að sýna fram á það, að atvinnuvegirnir gátu vel undir þeim risið. Ég held, að það sé erfitt að benda á nokkrar kauphækkanir, sem hafa átt sér stað á Íslandi, sem hægt er að sanna betur en þessar kauphækkanir, að atvinnuvegirnir gátu vel undir þeim risið. Stefna Framsfl. á þessum tíma var því nákvæmlega sú sama, þótt hann væri í stjórnarandstöðu, eins og þegar hann er í stjórn, þ.e. að styðja ekki hærri kauphækkanir en það, að fullkomlega sé hægt að sýna fram á, að atvinnuvegirnir geti vel undir þeim risið. Og það er áreiðanlega ekki hægt að benda á aðrar kauphækkanir, sem átt hafa sér stað á Íslandi, sem atvinnuvegirnir áttu öllu betra með að rísa undir, heldur en þær kauphækkanir, sem áttu sér stað sumarið 1961. Þess vegna má líka fullyrða, að það er eitt mesta óhappaverk og ég segi eitt mesta óþurftarverk, sem hefur verið unnið í íslenzkum stjórnmálum, þegar þessum sanngjörnu kauphækkunum var mætt með gengislækkuninni, sem ríkisstj. framkvæmdi sumarið 1961. Þær kauphækkanir áttu fullkomlega rétt á sér frá því sjónarmiði, að atvinnuvegirnir gátu vel undir þeim risið, og þurftu þess vegna ekki að hafa neina dýrtíðarhækkun í för með sér, sem yrði þess valdandi, að kauphækkanirnar reyndust launþegunum ekki nein kjarabót. Nákvæmlega það sama átti sér stað á s.l. sumri, þegar samvinnufélögin norðanlands sömdu enn við verkalýðsfélögin þar um nokkra kauphækkun, sem mjög var átalin í stjórnarblöðunum. Þá var samið um kauphækkun, sem sannanlegt var að atvinnuvegirnir gætu vel undir risið, eins og líka er komið á daginn. Að vísu voru þessir samningar þá kallaðir svikasamningar og öðrum slíkum nöfnum í stjórnarblöðunum, en reynslan sjálf er búin að sýna það, að þessir kaupsamningar og þessar kauphækkanir, sem samið var um á s.l. vori, áttu fullkomlega rétt á sér, því að atvinnuvegirnir gátu vel undir þeim hækkunum risið.
Ég held, að það megi fullyrða, að einmitt nú á undanförnum missirum hefur skilningur launþegasamtakanna, m.a. fyrir atbeina Framsfl., mjög vaxið á því að það þýði ekki að berjast fyrir öðrum kauphækkunum eða knýja fram aðrar kauphækkanir en þær, sem sannanlegt sé að atvinnuvegirnir geti undir risið. Og af hálfu launþegasamtakanna hefur þeirri stefnu aldrei verið betur fylgt en einmitt nú seinustu missirin, síðan Framsfl. fór að hafa áhrif á það, hvernig þeirri baráttu væri háttað. Og það er mér mikil ánægja að geta viðurkennt, að flokkur hv. 3. þm. Reykv. og þeir, sem eru fulltrúar fyrir hann í verkalýðssamtökunum, hafa haft mjög vaxandi skilning á þessu, og þeir hafa ekki á undanförnum missirum knúið fram kauphækkanir eða átt þátt í því að knýja fram kauphækkanir, sem hægt var að benda á, að atvinnuvegirnir gætu ekki staðið við. Ég álít þess vegna hvað þetta snertir, að þá hafi fylgismenn hv. 3. þm. Reykv. haft gagn af því samstarfi, sem hefur verið við framsóknarmenn í verkalýðshreyfingunni, og þeir hafi hagað sínum kröfum miklu skynsamlegar þar en þeir hafa áður gert. Og ég vil vænta, að það verði áframhald á þessu, því að það hefur aldrei, frá því að verkalýðshreyfingin hóf sína baráttu hér á landi, eða a.m.k. á síðari áratugum verið hægt að benda á hófsamari kröfur og hófsamari baráttu hjá henni í launamálum heldur en einmitt nú seinustu missirin, og það er sú ábyrgðartilfinning, sem þarf að haldast hjá verkalýðshreyfingunni framvegis. En hitt er svo jafnsjálfsagt mál og það er að berjast ekki fyrir hærri kröfum en atvinnuvegirnir geta risið undir, að tryggja það með öllu móti, að launþegarnir fái það af þjóðartekjunum, sem þeim réttilega ber, og þeir séu ekki snuðaðir eins og reynt hefur verið af núv. hæstv. ríkisstj., og það er mikið verkefni fram undan, sem felst í því að tryggja réttlátari skiptingu þjóðarteknanna en nú á sér stað, þannig að það safnist ekki eins stór hluti þjóðarteknanna í örfáa eða tiltölulega fáa vasa eins og nú á sér stað og tekjuskiptingin verði réttlátari og launþegarnir fái fullkomlega sína hlutdeild í auknum þjóðartekjum. Ég skal viðurkenna það, að að mínum dómi er því ekki fullnægt í dag, að launþegarnir og sérstaklega verkamenn fái þá hlutdeild í þjóðartekjunum, sem þeim ber, og það þarf að vinna að því, að slík leiðrétting eigi sér stað, og slíka leiðréttingu á að vera hægt að knýja fram, án þess að það leiði til þess, að atvinnuvegirnir verði að biðjast einhverrar sérstakrar aðstoðar, að þeir geti ekki undir þessum hækkunum risið. Það er áreiðanlegt, að eins og ástandið er í dag, getur einhver lagfæring átt sér stað til bóta á kjörum launþega frá því, sem nú er. En það er að sjálfsögðu mál, sem þarf að athuga gaumgæfilega og undirbúa vel, áður en barátta í þeim efnum er hafin, og ætti að vera hægt að leysa það mál með góðum skilningi valdhafanna, nema þeir sýni óeðlilega þrjózku, og þá verður að mæta henni á réttan hátt. En eins mikið og þjóðartekjurnar hafa aukizt á síðasta ári og eins og horfur eru á því að þær aukist á þessu ári, þá er eðlilegt, að hlutdeild hins vinnandi manns verði eitthvað aukin í þjóðartekjunum frá því, sem nú er. En að sjálfsögðu verður að gæta þess, að það verði ekki gert á þann hátt, að það verði ekki farið fram úr því, sem réttmætt er og atvinnuvegirnir geta þolað, því að slíkar hækkanir að sjálfsögðu hefna sín og verða þar af leiðandi ekki að neinu gagni.
En það er vitanlega mesti misskilningur, sem virtist koma fram hjá hv. 3. þm. Reykv., að það væru ekki til neinar aðrar kjarabætur en þær að hækka kaupið. Það eru til fjöldamargar aðrar leiðir og betri til kjarabóta en kauphækkanir, þó að þær séu sjálfsagðar, að því marki, að atvinnuvegirnir fái undir þeim risið. Ég nefni það t.d., að það væri stórfelld kjarabót fyrir launþega hér í Reykjavík, ef það væru gerðar ráðstafanir til þess að lækka hinn óhæfilega kostnað, sem nú á sér stað í sambandi við húsbyggingar og þau lánskjör, sem húsbyggjendur verða að sæta. Ég álít alveg hiklaust, að lækkun vaxta og aukning lána til íbúðabygginga væri einhver sú bezta kjarabót, sem launþegar hér í Reykjavík gætu fengið og þarf að leggja megináherzlu á að nái fram að ganga. Og þannig mætti nefna mörg atriði önnur, þó að þetta sé kannske það stærsta og veigamesta, því að nú er þannig ástatt í þessum efnum, að íbúar bæjanna verða að greiða miklu hærri hluta launa sinna í húsnæðiskostnað en yfirleitt á sér stað í nokkru öðru landi. Þess vegna er það eitthvert hið stærsta og þýðingarmesta mál, að unnið sé að því að rétta hlut þeirra að þessu leyti.
Hv. 3. þm. Reykv. rakti hér nokkuð þá sögu, hvernig það bar að, að vinstri stjórnin féll. Ég tel rétt að rifja það nokkru nánar upp, því að það var ekki alls kostar rétt, sem hv. 3. þm. Reykv. hafði að segja um þessi efni.
Þetta gerðist í stuttu máli á þann hátt, að vorið 1958 voru settar sérstakar efnahagsráðstafanir, sem höfðu nokkrar verðhækkanir í för með sér. En til að mæta þessum verðhækkunum var strax látin koma til framkvæmda 5% kauphækkun, svo að þar var um aðra aðferð að ræða en þegar viðreisnarráðstafanirnar komu á sínum tíma og engin kauphækkun átti sér stað. Auk þess var það áskilið, að þegar frá liði, þá skyldi koma full dýrtíðaruppbót á laun, eins og verið hafði. Þetta tvennt höfðu þessar efnahagsráðstafanir umfram viðreisnarráðstafanirnar á sínum tíma, að það kom strax 5% kauphækkun og siðar full dýrtíðaruppbót. Af kunnugum mönnum var talið, að atvinnuvegirnir gætu risið undir þessu tvennu, kauphækkuninni og dýrtíðaruppbótinni, þegar hún kæmi til framkvæmda, en hins vegar mundu þeir ekki geta risið undir meiri kauphækkunum að sinni. En það var þá, sem samstarfið hófst á milli núv. hæstv. dómsmrh. og hv. 3. þm. Reykv. um að knýja fram nýja kauphækkunaröldu sumarið 1958. Og til þess að knýja hana fram voru nokkur félög fagmanna í Reykjavík látin boða verkfall og heimta hærra kaup. Það er alveg rétt, sem hv. 3. þm. Reykv. sagði, að Dagsbrún tók ekki þátt í þessum leik. Dagsbrún kom ekki fyrr en miklu síðar, og að sjálfsögðu, eins og hann benti á, studdu framsóknarmenn það, að Dagsbrún fengi kauphækkun haustið 1958, vegna þess að það var ekki nema sjálfsagt, að Dagsbrúnarmenn fengju kauphækkun, eftir að fagfélögin, sem hærri laun höfðu, voru búin að fá hana. En það var sú kauphækkun, sem hv. 3. þm. Reykv. og hæstv. dómsmrh. áttu þátt í að knýja fram sumarið 1958. Þeim tókst þá með verkföllum nokkurra fagfélaga í Reykjavík að ryðja brautina fyrir almennum kauphækkunum og meiri en þeim, sem efnahagsráðstafanir ríkisstj. þoldu. Og þessar kauphækkanir, sem hv. 3. þm. Reykv. og hæstv. dómsmrh. knúðu fram í sameiningu sumarið 1958, urðu þess valdandi, að það varð nýtt strand í efnahagsmátunum haustið 1958. Framsóknarmenn bentu þá á sérstakar leiðir til þess að leysa þennan vanda, sem þessar sameiginlegu kauphækkanir þeirra félaganna höfðu skapað, hv. 3. þm. Reykv, og hæstv. dómsmrh., en þeim var eindregið hafnað af hv. 3. þm. Reykv. og hans flokki í samvinnu við Sjálfstfl. á Alþýðusambandsþingi þá um haustið. Þá var það, sem þessir aðilar tóku enn á ný höndum saman. Niðurstaðan af þessu varð sú, að vinstri stjórnin var ekki starfhæf lengur og varð þess vegna að segja af sér. En ef þessar kauphækkanir hefðu ekki átt sér stað sumarið 1958, sem hv. 3. þm. Reykv. vann að ásamt núv. hæstv. dómsmrh., þá mundi vinstri stjórnin hafa getað setið enn í dag og þá mundi ástandið í launamálunum og kjör launþeganna vera önnur en þau eru nú. Þá hefði verið komið í veg fyrir það, að önnur eins verðbólga hefði átt sér stað í landinu og orðið hefur á þessum missirum, og eins séð um það, að launþegarnir fengju réttlátari hlutdeild í tekjuskiptingunni og auknum þjóðartekjum en átt hefur sér stað á undanförnum árum. Það er þess vegna hv. 3. þm. Reykv., sem ber mikla ábyrgð á þeirri þróun, sem hefur átt sér stað í landinu á undanförnum árum, ber ábyrgð á þeirri öfugþróun, að aðstaða launþeganna hefur mjög versnað á þessum tíma. Það er vegna þess, að hann lét lokkast til samstarfs við hæstv. dómsmrh. sumarið 1958 og standa þá að verkföllum, sem urðu vinstri stjórninni að falli.
Sennilega hefur hv. 3. þm. Reykv. gert sér einhverjar vonir um það, að þegar vinstri stjórnin félli, gæti skapazt samstaða milli hans og hæstv. dómsmrh. í nýrri ríkisstj., enda komst þetta svo langt, eins og ég hef áður rakið, að það var rætt um stjórnarsamstarf þessara flokka í desember 1958. En þá bara strandaði það á þessu, að hv. 3. þm. Reykv, var ekki viðbúinn að taka til baka kauphækkanirnar, sem hann hafði knúið fram með aðstoð hæstv. dómsmrh. þá um sumarið. Hann taldi sér það ekki fært, og þess vegna náði samvinna þeirra í þetta skiptið ekki lengra en það, að þeir komu sér saman um kjördæmabyltinguna, en treystu sér ekki til þess að fara í stjórn saman, vegna þess atS Sjálfstfl. vildi ekki mynda stjórn með öðrum hætti en þeim, að þessar kauphækkanir, sem hann hafði knúið fram um sumarið, yrðu teknar aftur. En það taldi hv. 3. þm. Reykv. sér ekki fært. Annars benda allar líkur til þess, að stjórnarsamstarf hefði tekizt á milti þeirra, eins og rætt var um þá á löngum fundum.
En það er alveg óumdeilanlegt, að það var þessi samvinna hv. 3. þm. Reykv. og hæstv. dómsmrh. sumarið 1958, sem átti meginþátt í því, að vinstri stjórnin féll, og á meginþátt í því, að frá þeim tíma hefur þróunin í efnahagsmátunum og launamálunum verið eins og raun ber vitni um. Undan þessari ábyrgð getur hv. 3. þm. Reykv. ekki komizt.
Þá var hv. 3. þm. Reykv. að þylja hér sinn gamla dýrðaróð um nýsköpunarstjórnina. Ég er nú satt að segja alveg hissa á því, að jafngreindur og athugull maður og hv. 3. þm. Reykv. er skuli ekki hætta þessum söng, að hann skuli ekki vera löngu búinn að sjá það, hve rangur hann er og hefur lítið að styðjast við staðreyndir. Eins og ég vék að í minni fyrri ræðu, á engin stjórn aumari feril að baki sér heldur en nýsköpunarstjórnin, jafnvel ekki viðreisnarstjórnin. Nýsköpunarstjórnin tók við meiri auði en nokkur ríkisstj. hefur gert fyrr og siðar. Og hún fór svo frá eftir tvö ár. Hvernig var hún þá búin að fara með þessa auðlegð, sem hún tók við, og það mikla góðæri, sem var þessi tvö ár, sem hún var við völd? Hún var búin að fara með það þannig, að það var búið að eyða allri þeirri inneign, sem landið átti erlendis, öllum stríðsgróðanum, og það var búið að ganga þannig frá gjaldeyrisafkomunni, að það nægði ekki einu sinni að taka upp innflutningshöft, heldur varð að taka upp skömmtun, sem aldrei áður hefur átt sér stað á Íslandi, ekki einu sinni á stríðstímum, a.m.k. ekki eins ströng og þessi skömmtun var, vegna þess að gjaldeyrisleysið var orðið svo mikið. En nú kunna menn að spyrja: Fór þá ekki stríðsgróðinn til einhverra nytsamlegra hluta? Ef við lítum til sveitanna, áttu sér aldrei stað minni ræktunarframkvæmdir og minni byggingarframkvæmdir í sveitum en á þessum tíma, þegar stríðsárin eru undanskilin. Voru kannske byggð hér stór raforkuver, eins og átti sér siðar stað, þegar framsóknarmenn voru komnir í stjórn? Nei, það voru ekki byggð nein stór vatnsorkuver á þessum tíma. Var byggð kannske einhver stór verksmiðja á borð við sementsverksmiðjuna og áburðarverksmiðjuna? Nei, það voru ekki reistar neinar slíkar verksmiðjur á þessum tíma. Og það átti sér stað tiltölulega lítil uppbygging í fiskiðnaði landsins. Hitt er rétt, að fyrir eitthvað 1/5 hluta stríðsgróðans eða þeirrar inneignar, sem ríkisstj. tók við, þegar hún kom til valda, voru keyptir nokkrir togarar og kaupskip. Það var allt og sumt. 1/5 hluti stríðsgróðans eða þar um bil fór til þessara framkvæmda. Hinir hlutar stríðsgróðans fóru allir í súginn. Og hvert fór það? Það fór fyrst og fremst í vasa gróðastéttarinnar, sem þá réð lögum og lofum í landinu, og dreifðist út um hvippinn og hvappinn. Í blaði hv. 3. þm. Reykv. hefur oft mátt lesa það, að ekki lítill hluti þessa gróða hafi hafnað í bönkum erlendis, að stríðsgróðamennirnir hafi komið honum undan og falið hann þar. Þeir byggðu líka, það er alveg rétt, það átti sér stað nokkuð mikið af villubyggingum hér í bænum á þessum tíma. En það voru ekki verkamennirnir og millistéttirnar, sem byggðu á þeim tíma, það voru þeir menn, sem höfðu fengið mest af stríðsgróðanum. Og þess vegna gerðist. sá ömurlegi hlutur á þessum árum, þegar ekki voru byggðir verkamannabústaðir og ekki voru byggðir samvinnubústaðir, að stór hluti af verkalýð Reykjavíkur varð að flytjast inn í braggana, sem herinn hafði yfirgefið og taldi ekki lengur mannabústaði. Það voru verkamannabústaðirnir, sem voru reistir í tíð nýsköpunarstjórnarinnar, það voru hinir yfirgefnu hermannabraggar. Og það má segja, að það hafi verið kórónan á hennar stjórnarstefnu og stjórnarathöfnum að reisa stórar villur yfir gróðamennina, en láta verkamennina flytjast inn í hina yfirgefnu hermannabragga. Það er raunalegt að þurfa að rifja þessa sögu upp, en það verður ekki komizt hjá því, að hinn mesti gróði, sem íslenzku þjóðinni mun nokkru sinni hafa hlotnazt, skuli hafa eyðzt þannig, að hans sæi sama og engin merki eftir á, — ekki í aukinni ræktun, ekki orkuverum, ekki í verksmiðjum og ekki í verkamannabústöðum eða íbúðarbyggingum í sveitum. Og það var vegna þess, að mestur hluti hans rann til gróðastéttarinnar. Og það var ein af ástæðunum til þess, að Sjálfstfl. kaus það á þessum tíma að vinna heldur með Sósfl. en Framsfl., að Sósfl. var miklu leiðitamari við hann en Framsfl. í þessum efnum, að stríðsgróðanum skyldi ráðstafað þannig, að auðstéttirnar fengju mestan hluta hans. Og þess vegna var það, sem burgeisarnir í Sjálfstfl. tóku Sósfl. fram yfir Framsfl. til samstarfs á þessum árum. Þeir sáu fram á það, eins og líka reyndist rétt, að það væri miklu betra fyrir þá að koma sínum hlutum vel fyrir í samstarfi við Sósfl. heldur en í samstarfi við Framsfl. Það er alveg rétt, sem hv. 3. þm, Reykv. sagði, að Sjálfstfl. gat nokkurn veginn valið um það haustið 1944, stjórnmálaaðstaðan var þannig, að hann gat nokkurn veginn valið um það, hvort hann vildi heldur vinna með Framsfl. eða Sósfl. Það var alveg rétt. Framsfl, hafði látið það koma fram, að hann væri fús til stjórnarsamvinnu við Sjálfstfl. á þessum tíma, ef hann fengi fram þau mál, sem hann teldi nauðsynleg. En Sjálfstfl. taldi þá, að sér mundi betur henta að vinna með Sósfl., og myndaði með honum nýsköpunarstjórnina með þeim afleiðingum, sem ég hef nú lýst. Og það var einfaldlega vegna þess, að undir þeirri stjórn höfðu auðmennirnir í Sjálfstfl. betri tækifæri til þess að koma stríðsgróðanum undan en hefði verið, ef Framsfl. hefði átt þátt í stjórninni.
Hv. 3. þm. Reykv. minntist á það í þessu sambandi, að Framsfl. hefði verið svo afturhaldssamur á þessum tíma, að hann hefði greitt atkv. á móti almannatryggingum, sem þá höfðu verið settar. Mér finnst rétt að víkja nokkru nánar að þessu atriði. Almannatryggingarnar voru upphaflega settar með alþýðutryggingalögunum, sem Alþingi afgreiddi 1935, þegar stjórn Framsfl. og Alþfl. sat að völdum, og rekja rætur sínar til þeirrar löggjafar. Sjálfstfl. barðist þá gegn þeirri löggjöf og greiddi atkv. á móti henni. Nýsköpunarstjórnin átti þátt í því að gera nokkrar endurbætur á l. frá 1935, en því til viðbótar gerði hún þá breyt. á 1., að sjúkrasamlögin skyldu felld niður og í staðinn tekin upp sérstök ríkisheilsugæzlu. Þessar till. voru mjög óljósar, eins og menn geta séð, eða mjög vafasamt, hvernig mundi ganga að framkvæma þær, eins og menn geta séð með því að lesa lögin frá þessum tíma, bersýnilegu litt hugsaðar og ekki heldur séð fram á, hve mikinn kostnað þær kynnu að hafa í för með sér. Og þessi breyting hafði verið ákveðin án þess að bera þetta nokkuð undir sjúkrasamlögin eða bæjarfélögin í landinu, án þess að ræða þetta við læknasamtökin og þar fram eftir götunum. Framsóknarmenn töldu vafasamt, að þessi stórfellda breyting væri framkvæmanleg á þessum tíma. Þess vegna tóku þeir þá afstöðu að sitja hjá, þegar l. voru afgreidd frá Alþingi. Hver var svo framkvæmdin í þessum efnum? Jú, nýsköpunarflokkarnir hældu sér mjög af því í kosningunum 1946, að þeir væru búnir að setja lög um heilsugæzlu og það mundi hafa alveg stórkostlega byltingu í för með sér. Þetta var eitt af þeirra stóru kosningamálum. En svo liðu kosningarnar — og hvað gerðist þá? Það var fyrsta verkið þá að ákveða það, að kafli almannatrygginganna um heilsugæzluna skyldi ekki framkvæmdur og sjúkrasamlögin skyldu haldast áfram. Og þannig hélzt þetta ár eftir ár, að þessi lög voru ekki látin koma til framkvæmda. Svo árið 1955 fór fram athugun á almannatryggingalögunum, og þá var það eindregin afstaða læknasamtakanna og meginþorra bæjar- og sveitarfélaga í landinu, að það væri ekki heppilegt að láta þessa breytingu koma til framkvæmda, það væri betra að byggja á sjúkrasamlögunum áfram, eins og gert hafði verið. Þess vegna var það í sambandi við endurskoðun þessara laga, að þessi mikla skrautfjöður úr lögunum 1946 um ríkisheilsugæzluna var látin falla niður og sjúkrasamlagakerfið látið haldast áfram. Og það komu sáralítil mótmæli þá fram gegn þessari breytingu, auðsjáanlega ekki nema til málamynda. Það gerðist svo síðar, að Sósfl. komst í stjórn án þess að gera kröfu til þess, að þessi heilsugæzlukafli væri tekinn upp. Tveir af þeim flokkum, sem stóðu með honum á þingi 1946, Sjálfstfl, og Alþfl., eru búnir að stjórna landinu núna í 5 ár án þess að minnast nokkru sinni á að láta þessa breytingu komast á. Og þetta stafar einfaldlega af því, að þessir flokkar höfðu ekki neinn raunverulegan áhuga á þessu máli á þingi 1946. Þeir voru bara að búa til skrautfjöður fyrir kosningarnar 1946, og þegar var búið að nota þetta mál í kosningunum og koma átti til framkvæmda, var áhugi þeirra fokinn út í veður og vind.
Framsfl. tekur ekki þátt í slíkum leikaraskap eins og þessum. Hann tekur ekki þátt í þeirri sýndarmennsku, að það séu sett einhver skrautleg lög fyrir kosningar, búin til einhver glansmynd fyrir kosningar, hampað framan í kjósendur og svo strax á eftir, þegar kosningar eru um garð gengnar, þá sé þessari glansmynd fleygt í ruslakörfuna. Það er þetta, sem raunverulega hefur átt sér stað í sambandi við meginatriði almannatryggingalaganna frá 1946. Framsfl. átti hins vegar þátt í því, að árið 1956, eða 10 árum seinna, þegar þessi lög voru endurskoðuð, þá var gerð á þeim veruleg breyting, m.a. sú breyting, að mæðrastyrkurinn var stórkostlega aukinn, þannig að Brynjólfur Bjarnason lét þá þau ummæli falla í Ed., að í raun og veru væri ekki hægt að tala um, að það hefði verið mæðrastyrkur fyrr en eftir að þessi lög komu til sögunnar. Það var sú endurbót, sem Framsfl. átti þátt í að gerð var á 1., en Steingrímur Steinþórsson var þá félmrh. Og það er á þennan hátt, sem Framsfl. hefur staðið að alþýðutryggingunum frá fyrstu tíð, að hann hefur staðið að því, að það yrðu gerðar á þeim endurbætur, sem væru framkvæmdar, en ekki einhverjar glæsilegar breytingar, sem aðeins væri hampað fyrir kosningar og svo væri ekki gert neitt meira með á eftir.
Ég held, að það séu nú ekki mörg fleiri atriði hjá hv. 3. þm. Reykv., sem ég tel ástæðu til þess að gera hér að umtalsefni. En það, sem ég vildi víkja að nokkrum orðum að síðustu, var sá tilgangur, sem lá á bak við, þegar þeir áttu seinast með sér samstarf, hæstv. dómsmrh. og hv. 3. þm. Reykv., þegar þeir skiptu þannig með sér forsetaembættum hér á Alþingi, að annar var forseti sameinaðs þings, en hinn var forseti Nd. Þeir voru þá að koma fram kjördæmabyltingunni svonefndu sumarið 1959. Og það var alveg ljóst mál, hver var megintilgangur hæstv. dómsmrh. með þessari breytingu. Hans trú var ekki sízt sú, að ef þetta fyrirkomulag kæmist upp, þá yrði það til þess að auka enn á glundroða meðal vinstri aflanna í landinu, sprengimenn eins og hv. 3. þm. Reykv. og aðrir slíkir ættu þá enn auðveldara með að koma sínum árum fyrir borð, þegar hlutfallskosningar væru almennt upp teknar. En það hefur bara gerzt síðan, að þróunin hefur ekki orðið á þessa leið. Kjósendurnir hafa ekki brugðizt við og vinstri menn hafa ekki brugðizt við eins og hæstv. dómsmrh. reiknaði með að mundi verða afleiðingin af þessu samstarfi hans og hv. 3. þm. Reykv. Frjálslynt fólk í landinu hefur gert sér þess betur grein seinustu ár en nokkru sinni fyrr, að það verður ekki sótt fram til sigurs gegn afturhaldinu í landinu og íhaldsöflunum með því að skipta sér í marga smáflokka, heldur þarf fyrst og fremst að efla einn sterkan flokk frjálslyndra manna gegn afturhaldinu og íhaldinu í landinu. Og þetta hefur það gert í ríkara mæli á undanförnum árum en nokkru sinni fyrr með því að fylkja sér um Framsfl. Þetta gerðist í haustkosningunum 1959, þegar andstæðingarnir voru að gera sér vonir um, að Framsfl. mundi koma inn í þingið með stórkostlega skerta þingmannatölu. Framsfl. hélt sinni þingmannatölu og jók kosningafylgi sitt þrátt fyrir þessa breytingu. Og þetta kom enn betur í ljós í bæjar- og sveitarstjórnarkosningunum á síðasta ári, þegar Framsfl. náði því marki að verða annar stærsti flokkurinn í kaupstöðum og kauptúnum landsins. Þetta sýnir það, að þær vonir, sem vissir menn byggðu á kjördæmabyltingunni, að hún yrði til þess að auka sundrung íhaldsandstæðinga og frjálslyndra manna í landinu, ætla ekki að rætast. Kjósendurnir ætla ekki að láta ginna sig til þess að falla í þá snöru, sem þarna var verið að leggja. Þeir hafa svarað þessari breytingu með því að fylkja sér betur um Framsfl. en nokkru sinni fyrr. Þeir hafa gert sér það ljóst, að til þess að sigrast á íhaldinu verður að vera til einn sterkur, öflugur flokkur íhaldsandstæðinga í landinu, en þetta lið má ekki skipta sér í marga smáflokka, og þess vegna held ég, að niðurstaðan af þessari samvinnu þeirra hv. 3. þm. Reykv. og hæstv. dómsmrh. ætli að verða önnur en a.m.k. hæstv. dómsmrh. hafði gert sér vonir um, að hún verði til þess að fylkja íhaldsandstæðingum saman í einn flokk, en ekki til að dreifa liði þeirra, eins og ætlunin var, a.m.k. af hálfu Sjálfstfl. Og ég hygg, að það eigi eftir að koma enn þá betur fram í næstu kosningum, að vinstri mennirnir í landinu og frjálslyndu mennirnir í landinu, frjálslynda fólkið í landinu muni svara þessari breytingu á kjördæmaskipuninni einmitt með þessum hætti, og það getur líka orðið á fleiri vegu en þennan, sem samvinna hæstv. dómsmrh. og hv. 3. þm. Reykv. ber ekki þann árangur, sem þessir aðilar hafa stundum ætlazt til.