26.11.1962
Sameinað þing: 21. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 511 í C-deild Alþingistíðinda. (2374)
81. mál, áfengisvarnasjóður
Flm. (Þórarinn Þórarinsson):
Hæstv forseti. Efni þessa frv. er að setja á stofn sérstakan sjóð, áfengisvarnasjóð, er styrki áfengisvarnir, fræðslu um skaðsemi áfengis og bindindisstarfsemi, einkum meðal ungs fólks. Sjóðurinn má styrkja önnur æskulýðssamtök, bindindisfélög, ef þau annast starfsemi, sem vinnur gegn áfengisnautn, og hindra fullkomlega alla áfengisneyzlu á samkomum sínum.
Gert er ráð fyrir, að tekjur þær, sem áfengisvarnasjóður fær, séu árlegt framlag frá Áfengisog tóbaksverzlun ríkisins og sé þetta framlag í því formi, að verzlunin greiði til sjóðsins 3% af hagnaði hennar af áfengissölu næsta ár á undan. Lagt er svo til, að það verði áfengisvarnaráð ríkisins, sem stjórni sjóðnum.
Það er kunnara en nauðsynlegt sé að rekja hér, að áfengisneyzla hefur farið mjög vaxandi í landinu á undanförnum árum og þó einkum meðal ungs fólks. Vafalaust eru margar ástæður, sem valda þessu, en sú veigaminnsta er ekki sú, að það hefur verið dregið talsvert — það má segja verulega — úr hömlum gegn áfengisnautn, m.a. á þann hátt, að áfengisveitingar í veitingahúsum eru nú orðnar miklu meiri en þær áður voru. Það leiðir svo af sjálfu sér, að þegar hömlur eru þannig minnkaðar, án þess að nokkrar sérstakar mótráðstefanir, eins og aukin bindindisfræðsla og bindindisstarf, hafi komið á móti, þá hafi áfengisneyzlan aukizt, enda er það nú komið á daginn. Áfengisneyzlan í landinu er orðin svo mikil og einkum meðal unga fólksins, að það er alveg óhjákvæmilegt, að einhverjar sérstakar ráðstafanir verði gerðar til að hamla þar á móti. Ég hygg, að sú leið, sem er heppilegust í þeim efnum og muni reynast bezt, sé að auka bindindisstarfsemina og bindindisfræðsluna og þó alveg sérstaklega meðal yngra fólksins í landinu.
Þegar núgildandi áfengislög voru sett árið 1954, þá má segja, að þar hafi borið sérstaklega á tveimur nýmælum. Í fyrsta lagi var gert ráð fyrir því að draga nokkuð úr vissum hömlum, sérstaklega á vínveitingum á veitingastöðum, en jafnframt var líka gert ráð fyrir því að auka verulega bindindisstarfsemina. Einn kafli í áfengislögunum fjallar alveg sérstaklega um þetta efni. En það, sem gerðist hins vegar í sambandi við setningu áfengislaganna, var, að það var ekki séð fyrir nægu fjármagni til þessarar starfsemi. Nefnd sú, sem undirbjó lögin, en þar áttu sæti bæði fulltrúar frá veitingamönnum og bindindismönnum, gerði ráð fyrir því, að í 1. væri alveg sérstakt ákvæði um að tryggja þá fjáröflun, 3% af hreinum ágóða áfengisverzlunarinnar væru látin renna til bindindisstarfseminnar. Þannig var frá frv. gengið, eins og það var undirbúið af þeirri nefnd, sem hafði verið falið að semja það. Og þannig var það líka lagt fyrir þingið af þáv. dómsmrh., sem er einnig dómsmrh. nú. En það gerðist svo, þegar Alþingi fékk málið til meðferðar, að þetta ákvæði um að tryggja nægilegt fjármagn til þessarar starfsemi var fellt niður. Niðurstaðan hefur orðið sú, að það hefur verið vanrækt af hálfu Alþingis og þeirra ríkisstj., sem síðan hafa setið, að tryggja nægilegt fjármagn í þessum efnum. Það er af þessum ástæðum, sem hér er raunverulega ekki annað lagt til en að taka upp þær till., sem voru í frv. til áfengislaga, þegar það var lagt fram á þinginu 1954, þ.e.a.s. að 3% af hagnaði áfengisverzlunarinnar verði látin renna í sérstakan áfengisvarnasjóð og fé hans ráðstafað eins og segir í frv.
Ef þetta næði fram að ganga, má reikna með því, miðað við þá sölu, sem nú er á áfengi í landinu og hefur verið á undanförnum árum, að tekjur sjóðsins yrðu eitthvað í kringum 4.5 millj. En þess er að gæta, að lagt er til, að sjóðurinn kosti starf áfengisvarnaráðunautar og þá bindindisfræðslu, sem nú er haldið uppi, en til hennar er varið á núgildandi fjárlögum um 1.2 millj. kr., svo að raunveruleg aukning, ef frv. næði fram að ganga, á fjármagni til bindindisstarfseminnar væri um 3.3 millj. kr. En það mun áreiðanlega ekki veita af því, að þessi upphæð fáist, því að hér er ekki aðeins gert ráð fyrir því, að þetta fé fari til þess að auka bindindisstarfsemi og bindindisfræðslu, heldur einnig fari það til styrktar starfsemi æskulýðsfélaga, sem halda áfengisneyzlu utan sinna takmarka og vinna á þann hátt, að starfsemi þeirra er líkleg til þess að draga úr áfengisneyzlunni. Undir það gæti komið t.d. starfsemi æskulýðsráðs Reykjavíkur og jafnvel einhverra kristilegra æskulýðsfélaga og e.t.v. ungmennafélaga og íþróttafélaga, sem hefðu þó það takmark að halda áfengisneyzlu algerlega utan vébanda sinna, þannig að áfengi yrði ekki veitt á skemmtunum eða samkomum þeirra. En víst er það, að starfsemi margra þessara félaga, ekki sízt t.d. æskulýðsráðs Reykjavíkur og ýmissa kristilegra samtaka ungra manna, hamlar verulega á móti áfengisnautn og þess vegna ekki óeðlilegt, að slíkur félagsskapur væri eitthvað styrktur í sambandi við þessi mál.
Ég hygg, að sú reynsla, sem menn hafa haft fyrir augum, síðan áfengislögin 1954 voru sett, sé þannig, að nú ættu þm. að geta orðið sammála um það, — þótt ekki fengist samkomulag um það 1954, — að nauðsynlegt sé að tryggja aukið fjármagn til bindindisstarfseminnar. Í því trausti er þetta frv. flutt.
Ég skal svo ekki orðlengja frekar um þetta mát að sinni, en leyfi mér að leggja til, að því verði vísað til allshn. að þessari umr. lokinni. Ég hygg, að allshn. hafi á sínum tíma haft áfengislögin til meðferðar og þess vegna sé ekki óeðlilegt, að þetta mál gangi þangað.