22.03.1963
Neðri deild: 58. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 642 í C-deild Alþingistíðinda. (2476)

210. mál, stækkun Mosfellshrepps í Kjósarsýslu

Utanrrh. (Guðmundur Í. Guðmundsson):

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð í tilefni af þeim tveim ræðum, sem nú hafa verið fluttar í sambandi við þetta frv.

Hv. síðasti ræðumaður komst að þeirri niðurstöðu, að þetta frv. og flutningur þess væri eitt það furðulegasta, sem hann hefði séð þau 4 ár, sem hann hefur verið á þingi, og hann reyndi að finna þessum orðum sínum stað. Rökin voru í fyrsta lagi þau, að í sveitarstjórnarlögunum væri sagt, að áður en málefnum, sem snertu sveitarfélögin, væri til lykta ráðið, skyldu þau borin undir viðkomandi hreppsnefnd. Ég þóttist hafa tekið það greinilega fram í minni framsöguræðu, að ég óskaði eftir því, að n. sú, sem fengi frv. til athugunar, sendi það beint til viðkomandi sveitarstjórna, tveggja, og sýslunefndar að auki. Ég hef þess vegna fullkomlega hagað mér í mínum málflutningi skv. þessari grundvallarreglu.

Þá vildi hv. síðasti ræðumaður einnig færa það fullyrðingu sinni til stuðnings, að hér væri verið að ákveða hreppamörk með lögum, enda þótt í sveitarstjórnarlögunum væri gert ráð fyrir því, að íbúar sveitarfélaganna skyldu þar ráða, hvernig með væri farið, og taldi ræðumaður, að það væri einsdæmi í þingsögunni, að frv. sem þetta væri fram borið. Hér er á ferðinni alger misskilningur hjá þessum hv. þm. Það hefur komið fyrir oft og iðulega hér á hv. Alþingi, að hreppamörkum hafi verið breytt með lögum frá þinginu, og það meira að segja þvert ofan í vilja sveitarstjórna, og Mosfellshreppur, sem hér á hlut að máli, er eitt af gleggstu dæmunum, sem við höfum um það. Það hefur hvað eftir annað verið skorið utan úr Mosfellssveit og lagt undir Reykjavík meira og minna landssvæði gegn eindregnum mótmælum Mosfellshrepps. Seltjarnarneshreppi hefur verið breytt hvað eftir annað með löggjöf. Og þannig gæti ég nefnt fleiri dæmi einmitt úr Gullbringu- og Kjósarsýslu um, að þetta hafi verið gert. Því fer þess vegna víðs fjarri, að hér sé nokkurt einsdæmi á ferðinni.

Hann fann að því, hv. síðasti ræðumaður, og einnig sá hv. þm., sem talaði á undan honum, hv. 3. þm. Reykn., að þetta mál skyldi ekki hafa verið borið undir hreppsnefnd Kjalarneshrepps, áður en ég flutti það inn í þingið. En fyrir því liggja alveg fullgildar ástæður. Það er eindregin ósk um það bil íbúa Kjalarneshrepps, að þeir verði sameinaðir Mosfellshreppi, en hinir , sem eftir eru, hafa ekki viljað undir þetta taka, og það er fyrir fram vitað, að hreppsnefndin, sem er eingöngu skipuð vestanmönnum, muni ekki taka undir þennan málflutning, að þessi sameining eigi sér stað.

Ég benti á það mjög greinilega í minni ræðu, að þeir, sem búa í austurhluta Kjalarneshrepps, hafa ekki átt og eiga ekki félagslega samleið með þeim, sem búa í vesturhluta hreppsins. Austurhlutinn sækir alla sína félagsstarfsemi til íbúa Mosfellshrepps, og það er eingöngu á þessum grundvelli, sem málinu var upphaflega hreyft í Kjalarneshreppi, og það er ekki nýtt af nálinni, þó að það komi fyrst fram á þingi nú. En það, sem endanlega hefur hert á því, að málið yrði flutt, er áreiðanlega sá ágreiningur, sem kom upp um félagsheimilið. Það má segja, að hreppsnefndin í hverju sveitarfélagi eigi að sjálfsögðu að hafa mest um þessa hluti að segja. En fram hjá hinu verður ekki séð, að þegar svo verulegur hluti eins sveitarfélags eins og hér er á ferðinni óskar þess eindregið að sameinast öðru sveitarfélagi og þegar færð eru fyrir því jafngild og ótviræð rök eins og austurhluti Mosfellshrepps færir fyrir sínu máli, þá er ekki hægt að skella skollaeyrum við slíkum óskum. Það er hægt að þumbast við um tíma, en það verður ekki hægt til frambúðar. Þessi ósk og krafa íbúa austurhluta Kjalarneshrepps hlýtur að ná fram að ganga fyrr eða síðar. Hitt má vel vera, að það verði erfitt fyrir vesturpartinn á Kjalarnesi að halda sínu sveitarfélagi áfram. Það hefur verið erfitt hingað til, og það verður að sjálfsögðu erfiðara eftir þetta. En þá er bara þess að minnast, að vesturhlutinn hefur sótt verulegan hluta af sinni félagsmálastarfsemi upp í Kjósarhrepp og er í nánu samstarfi við hann, og þá vaknar spurning: Er ekki eðlilegt að sameina vesturhluta Kjalarneshrepps og Kjósarhrepp?

Hv. 3. þm. Reykn. sagði, að það væri ekki hægt að hlaupa alveg eftir landfræðilegri tilhögun um skipun sveitamarka, og hann nefndi sem dæmi Garðahrepp, hann lægi í nokkrum aðskildum hlutum umhverfis Hafnarfjarðarkaupstað, og ef það ætti hér algerlega að fara eftir landfræðilegri tilhögun og samskiptum íbúa hreppshluta við nágrannasveitarfélög, þá væri nokkuð margt, sem þyrfti að laga í sveitaskipan á Íslandi. Ég get sagt þessum hv. þm. það sem mína afdráttarlausu skoðun, að ef einhver hluti íbúa Garðahrepps óskaði þess eindregið og óskipt, að sá hluti þess sveitarfélags yrði sameinaður annaðhvort Hafnarfirði, Kópavogskaupstað eða öðrum aðliggjandi hreppum, þá fyndist mér það sjálfsögð skylda Alþingis að taka það mál til athugunar, og þannig hagar til á ýmsum stöðum í Garðahreppi, að ég teldi, að ef íbúar úr þeim hluta Garðahrepps, sem um væri að ræða, óskuðu eftir því eindregið og óskipt, þá ætti að taka tillit til þeirra óska, nákvæmlega á sama hátt og ég álit, að það sé ekki hægt fyrir Alþingi að komast hjá því að taka tillit til óska þess þriðja hluta Kjalarneshrepps, sem hér óskar svo eindregið sameiningar við Mosfellshrepp. Og það má ekki láta þá gjalda, þess, þó að þeir séu í minni hl. í sínu sveitarfélagi. Það væri að misnota vald meiri hl. sveitarfélagsins.