22.03.1963
Neðri deild: 58. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 644 í C-deild Alþingistíðinda. (2477)

210. mál, stækkun Mosfellshrepps í Kjósarsýslu

Matthías Á. Mathiesen:

Herra forseti. Ég vildi aðeins út af ræðu hæstv. utanrrh. leiðrétta það, sem hann sagði hér um hreppsnefnd Kjalarneshrepps, að hún væri eingöngu skipuð mönnum vestan Kleifa. Í síðustu hreppsnefndarkosningum var kosinn í hreppsnefnd Kjalarneshrepps maður austan Kleifa, og skv. sveitarstjórnarlögunum er hverjum borgara skylt að taka þátt í sveitarstjórn, en hann getur skorazt undan því, hafi hann áður setið þar síðasta kjörtímabil. Í þessu tilfelli var ekki um það að ræða. Enda þótt ég viti, að þessi hv. hreppsnefndarfulltrúi hafi sagt af sér, mundi ég skv. lögunum ekki álíta, að hann hefði rétt á því og sæti þar af leiðandi í hreppsnefnd enn þá. Þess vegna hefði flm. þessa frv. getað fengið, eftir því sem hann upplýsti hér áðan, bæði meðmæli og mótmæli með þessu frv. og sú forsenda fyrir því að hafa ekki sent það til hreppsnefndarinnar fallið burt.