04.04.1963
Neðri deild: 65. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 669 í C-deild Alþingistíðinda. (2498)

223. mál, hámark útlánsvaxta

Flm. (Þórarinn Þórarinsson):

Herra forseti. Eins og rakið er í grg. þessa frv., eru útlánsvextir miklu hærri hér á landi en í öðrum nálægum löndum. Þetta veldur þeim atvinnuvegum, sem þurfa að hafa verulegt lánsfé með höndum, eins og t.d. sjávarútveginum, landbúnaðinum og iðnaðinum, þungum búsifjum, auk þess sem það eykur að sjálfsögðu dýrtíð og verðbólgu í landinu. Og þá er það að nefna, að hinir háu vextir eru sérstaklega þungbærir fyrir efnalítið fólk, sem hefur ráðizt í ýmsar framkvæmdir, eins og t.d. að eignast eigið húsnæði, og sennilega er ekki hægt að finna höft, sem lama meira framtak hinna efnaminni einstaklinga, sem vilja þó brjótast eitthvað áfram, en hafa háa vexti og koma þannig í veg fyrir, að þeir treysti sér til þess að ráðast í framkvæmdir, sem þeir mundu ella hafa hafizt handa um. Af þessum ástæðum teljum við flm. eðlilegt, að hér á landi verði horfið til nokkuð svipaðrar stefnu í þessum efnum og á sér stað í öðrum löndum um það, að útlánsvextirnir séu ekki svo háir, að þeir leggi óeðlilegar byrðar á atvinnuvegina, lami framtak hinna mörgu efnaminni einstaklinga og eigi auk þess þátt í því að auka dýrtíð og verðbólgu í landinu.

Ég vil minna á það í þessu sambandi, að af hálfu ýmissa samtaka framleiðenda hafa komið kröfur um það að undanförnu, að vextirnir yrðu lækkaðir. Eins og t.d. rakið er í grg., hafa bæði Landssamband ísl. útvegsmanna og Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna nýlega samþ. áskoranir til viðkomandi aðila um það, að vextirnir verði lækkaðir. Sams konar ályktanir liggja fyrir frá samtökum bændastéttarinnar og frá ýmsum öðrum aðilum, sem þurfa á lánsfé að halda.

Mér finnst rétt að minna á það í þessu sambandi, hve mikla þýðingu vextirnir hafa fyrir hina efnaminni einstaklinga. Við skulum t.d. taka Dagsbrúnarmann eða mann með eitthvað svipuð launakjör, sem stendur í því að koma sér upp sínu eigin húsnæði. Það er lágt reiknað, að ný íbúð kosti nú um 450 þús. kr., og þótt við gerum ráð fyrir því, að þessi einstaklingur, sem litlar líkur eru til, geti lagt fram af eigin rammleik um 150 þús. kr., þá þarf hann samt að taka að láni um 300 þús. kr. Ef vextirnir væru lækkaðir um 2%, eins og gert er ráð fyrir í þessu frv., mundi það lækka vaxtabyrði þessa manns um 6 þús. kr. á ári. Árslaun Dagsbrúnarverkamanns nú eru um 60 þús., svo að þessi vaxtalækkun ein mundi jafngilda um 10% kauphækkun hjá þessum manni. Þetta dæmi sýnir, hve mikla þýðingu það hefur fyrir hina efnaminni borgara, að vöxtunum sé í hóf stillt.

Mér finnst rétt að láta það koma fram, að þó að útlánsvextir væru lækkaðir eins og hér er gert ráð fyrir, þá þarf það engan veginn að þýða það, að innlánsvextir verði lækkaðir jafnmikið, þó að þeir þyrftu sennilega að lækka eitthvað. Ef við lítum í reikninga t.d. aðalbankanna á s.l. ári, eins og Landsbankans, Útvegsbankans og Búnaðarbankans, þá sjáum við, að þessir bankar hafa hagnazt allmikið á árinu sem leið, og þess vegna kæmi það til athugunar, hvort þeim væri ekki fært eða lánastofnunum væri ekki fært að lækka innlánsvextina eitthvað minna en svarar til þeirrar lækkunar, sem yrði á útlánsvöxtum samkvæmt þessu frv.

Ég skal ekki fara fleiri orðum um þetta frv. að sinni, enda tel ég, að þetta mál sé svo ljóst og skýrt, að það sé óþarft að hafa um það langar ræður, en treysti á, að það fái góðar undirtektir hjá þingheimi. En áður en ég lýk máli mínu, vildi ég beina fsp. til hæstv. viðskmrh.

Á þingfundi í marzmánuði 1962 urðu hér nokkrar umr. um Seðlabankann og gengisskráninguna eða raunverulega um það mál, sem ég var að ræða hér um áðan, þ.e.a.s. þau brbl., sem þá voru sett og breyttu gengisskráningarvaldinu, og meðal þeirra, sem tóku þátt í þessum umr., var hæstv. viðskmrh. Hæstv. viðskmrh. lét þá í það skina, að þess yrði ekki langt að biða, að vextirnir yrðu eitthvað lækkaðir. Honum fórust orð á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„Sem betur fer stefnir nú á svo mörgum sviðum í rétta átt, að sá tími er vonandi ekki langt undan, að hægt sé að færa vextina aftur niður í það, sem þeir voru, áður en til viðreisnarráðstafana núv. ríkisstj. var gripið.“

Hér gefur sem sagt hæstv. viðskmrh. alveg ákveðið fyrirheit um það, að lækkun vaxtanna niður í það, sem þeir voru fyrir viðreisn, sé skammt undan. Og enn fremur fórust hæstv. viðskmrh. orð á þessa leið:

„Með þessu er ég auðvitað ekki að gera lítið úr þýðingu vaxtanna fyrir atvinnuvegina og skal engan veginn draga úr því, að æskilegt sé, að strax og ástandið í peningamálum þjóðarinnar leyfir, þá séu vextir lækkaðir og hinni þungu vaxtabyrði, sem nú hvílir á atvinnuvegunum, sérstaklega útflutningsatvinnuvegunum, að nokkru af þeim létt.“

Síðan hæstv. viðskmrh. lét þessi orð falla á Alþingi eða gaf það fyrirheit, sem í þessum ummælum felst, er nú liðið rúmlega ár, án þess að nokkuð bóli á þeirri vaxtalækkun, sem þá var látið skína í. Nú vildi ég beina þeirri fsp. til hæstv. viðskmrh., hvað það er, sem valdi því, að þessi boðaða vaxtalækkun hefur dregizt svona, og hvort ekki megi vænta þess mjög fljótlega, að ríkisstj. verði við því fyrirheiti, sem fólst í ummælum hæstv. viðskmrh., og þá jafnframt gangi til móts við þá stefnu, sem er mörkuð í þessu frv.

Ég leyfi mér svo að leggja til, að að umr. lokinni verði þessu máli vísað til fjhn.