04.04.1963
Neðri deild: 65. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 671 í C-deild Alþingistíðinda. (2499)
223. mál, hámark útlánsvaxta
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Hv. 7. þm. Reykv. (ÞÞ) hefur beint til mín þeirri fsp., hvenær búast megi við því, að vextir verði lækkaðir frá því, sem nú er.
Það var einn líður í þeirri nýju stefnu í efnuhagsmálum, sem núv. ríkisstj. tók upp í ársbyrjun 1960, að hækka vexti mjög verulega frá því, sem verið hafði. Tilgangur vaxtahækkunarinnar var fyrst og fremst sá að örva sem mest sparnað í landinu, en það hefði verið mjög alvarlegt um mörg undanfarin ár, hversu sparnaður þjóðarinnar var lítill. Um langt skeið undanfarið hafði ein alvarlegasta afleiðing verðbólgunnar, sem mótað hafði íslenzkt efnahagslíf, einmitt verið sú, að sparnaður þjóðarinnar var langt undir því, sem nauðsynlegt var, til þess að hægt væri að kosta framkvæmdir í landinu með eðlilegum hætti. Hinn lági sparnaður landsmanna var sem sagt ein af ástæðunum til þess, að í sívaxandi mæli var leitað erlends fjármagns til að greiða kostnað við framkvæmdir, sem nota hefði átt innlendan sparnað til að kosta, ef hann hefði verið fyrir hendi. Það kom í ljós, að hin mikla vaxtahækkun, sem gerð var á árinu 1960, hafði mjög hagstæð áhrif á sparifjármyndunina, þannig að hún hefur aldrei í sögu þjóðarinnar vaxið jafnört og hún hefur gert á því skeiði, sem runnið er síðan 1960.
Þegar í ljós kom, að stefna ríkisstj. að þessu leyti sem og ýmsu öðru virtist vera að heppnast, mæltist ríkisstj. til þess við Seðlabankann, að vextir yrðu lækkaðir nokkuð. Þeir voru lækkaðir um því sem næst 1% fyrir einu til tveimur árum, en síðan það var gert, hefur ríkisstj. talið þróunina í efnahagsmálum ekki vera þannig, að hún hafi talið frekari vaxtalækkun réttlætanlega. Á undanförnum tólf mánuðum hafa orðið svo miklar almennar kauphækkanir í landinu, að leitt hefur til almennrar hækkunar á verðlagi. Það hefur m.ö.o. gerzt, að verðgildi krónunnar hefur lækkað nokkuð og þá um leið verðgildi sparifjárins vegna almennra kauphækkana, sem orðið hafa umfram aukningu þjóðarframleiðslurnar. Meðan hætta hefur verið á því, að kaupgjald hækkaði meira en svaraði vexti þjóðarframleiðslunnar og það út af fyrir sig rýrði verðgildi sparifjárins, hefur ríkisstj. ekki talið vera rétta stefnu í efnahagsmálum, ekki rétta stefnu í vaxtamálum að lækka vexti, því að afleiðingin af því mundi eflaust verða sú, að tilhneiging til vaxandi sparnaðar mundi minnka. Reynslan hefur og sýnt undanfarið, að mikil eftirspurn hefur verið eftir fjármagni, eftir lánsfé, þrátt fyrir hina háu vexti. Meðan svo er, að mjög mikil eftirspurn er eftir lánsfé, meiri eftirspurn en í raun og veru unnt er að fullnægja án þess að beita einhvers konar skömmtun, virðist óneitanlega ekki vera tími til þess að beita sér fyrir almennri vaxtalækkun, auk þess sem afleiðingin mundi eflaust verða sú, að það drægi úr sparnaði, sem þó er mjög nauðsynlegt að haldi enn áfram að vaxa.
Spurningu hv. þm. get ég því ekki svarað öðruvísi en þannig, að ríkisstj. muni beita sér fyrir lækkun vaxta þegar í stað, er hún telur efnahagsástandið vera orðið svo tryggt, að gera megi ráð fyrir stöðugu verðlagi um nokkurn tíma fram undan. Þegar slíkt efnahagsjafnvægi hefur skapazt og ekki þarf að óttast almennar kauphækkanir, sem séu umfram aukningu þjóðarframleiðslunnar, þannig að verðgildi krónunnar geti haldizt stöðugt, - þegar slíkt efnahagsjafnvægi hefur skapazt og það er orðið tryggt, mun ríkisstj. þegar í stað beita sér fyrir lækkun vaxta, enda ætti þá ekki að þurfa að óttast, að lækkun vaxta mundi leiða til minnkandi sparnaðar.
Þetta vona ég, að megi teljast fullnægjandi svar við fsp. hv. þm. En fyrst ég á annað borð hef orðið að taka til máls til að svara þessari fsp., vil ég leyfa mér að fara nokkrum almennum orðum um þetta frv.
Fyrst og fremst vil ég andmæla þeirri staðhæfingu, sem er í fyrstu setningu grg. og hv, þm. endurtók í ræðu sinni, að útlánsvextir séu miklu hærri hér á landi en í öðrum nálægum löndum. Þetta er raunar staðhæfing, sem hefur verið endurtekin svo oft hér á hinu háa Alþingi og í blöðum, að full ástæða er til að upplýsa hið sanna í þessu máli til að reyna að stuðla að því, að menn hætti að fara með rangar staðhæfingar um þetta efni. En áður en ég gef upplýsingar um vaxtakjör í nálægum löndum, þykir mér rétt að taka það fram, að þegar borin eru saman vaxtakjör á Íslandi og í öðrum löndum, er nauðsynlegt að hafa í huga, hversu mikill munur er á vaxtakerfinu almennt hér og þar, og þá sérstaklega það, að vextir eru miklu mishærri erlendis en tíðkast hér á landi. Þeir vextir erlendis, sem oftast er getið um í blaða- og útvarpsfréttum, eru forvextir seðlabanka hlutaðeigandi lands, en þessir vextir gefa hins vegar enga rétta mynd af því, hversu háa vexti lántakendur þurfa almennt að greiða í bönkum í þessum löndum. Forvextir seðlabankanna eru vextir, sem eingöngu gilda í viðskiptum milli seðlabankanna og annarra banka, og þeir eru mun lægri en almennir viðskiptavextir í löndunum. Hliðstæðir forvöxtum seðlabanka erlendis eru í raun og veru þeir vextir, sem seðlabankinn hér á landi tekur af endurkaupanlegum víxlum, en þeir eru nú 6–61/2%, eða um 3% lægri en almennir viðskiptavextir hér á landi, en þeir eru sem kunnugt er 9–91/2 % fyrir víxla og 10% fyrir lán $ hlaupareikningi, en vextir af afurðalánum eru 7-71/2%. Innlánsvextir af almennum sparisjóðsbókum eru hins vegar 7%, en af eins ár bókum 9%.
En hvernig eru nú viðskiptavextir í Danmörku? Algengustu viðskiptavextir í Danmörku eru 81/2 %, en vextir hér eru, eins og ég sagði, 9–10%. M.ö.o.: vextir hér eru um 1% hærri en þeir eru í Danmörku, og ég ber það undir hv. dm., hvort ástæða sé til að hafa það orðalag um þennan vaxtamun, að útlánsvextir séu hér miklu hærri en gerist í nálægum löndum. Það land af Norðurlöndum, sem við höfum nánust skipti við, er Danmörk, og þar eru vextir 1% lægri en þeir gerast hér.
Í Þýzkalandi eru almennir vextir af reikningslánum 71/2%, en af yfirdráttarlánum, sem eru mjög algeng, 9%. Almennir vextir í Þýzkalandi eru m.ö.o. frá 71/2–9%. Þeir eru m.ö.o. 12% lægri en þeir eru hér. Það, sem villir menn í þessu sambandi, er, að forvextir seðlabankans í Þýzkalandi eru aðeins 4%, það er svo mikill munur á forvöxtum þýzkra seðlabanka og almennum viðskiptavöxtum í Þýzkalandi. Forvextir danska þjóðbankans eru 61/2%, þótt almennir viðskiptavextir séu þar 81/2%.
Um Bretland er það að segja, að þar eru vextir af viðskiptavíxlum 6%. Munurinn á vöxtum í Bretlandi og á Íslandi er þannig 3–4%. En ég vænti þess, að engum detti í hug að telja, að eðlilegt sé að bera saman vaxtakjör í Bretlandi, sem er fjármagnsríkasta land veraldar, og það, hverjir vextir séu eðlilegir á Íslandi, sem er eitt fjármagnsfátækasta land í Evrópu.
Um Noreg er það að segja, að í Noregi er vöxtum haldið óvenjulega lágum með alveg sérstökum ráðstöfunum og því raunverulega ekki eðlilegt að bera saman vaxtakjör hér á Íslandi og í Noregi vegna þess, að þar eru gerðar sérstakar ráðstafanir til þess að halda vöxtum þar lágum.
Ef höfð er hliðsjón af því, að Íslendingar hafa undanfarna áratugi átt við að etja mikla verðbólgu, sem komið hefur mjög harkalega niður á sparifjármynduninni, hlýtur að teljast eðlilegt, að meðan verið er endanlega að vinna bug á verðbólgunni, séu vextir hér á Íslandi hafðir í hærra lagi til að tryggja sparifjármyndunina og hamla gegn verðbólgutilhneigingunni. En þrátt fyrir þetta, þrátt fyrir það þótt Íslendingar séu nú þessi árin að berjast við að kveða verðbólguna endanlega í kútinn og efla sparifjármyndunina, eru þó vextir hér á landi ekki nema 1% hærri en þeir eru í Danmörku og ekki nema 1–2% hærri en þeir eru í Þýzkalandi, en í hvorugu þessara landa hefur undanfarin ár eða áratugi verið um verðbólguþróun að ræða í neitt svipuðum mæli og hér á sér stað.
Með þessu hygg ég öll tvímæli vera tekin af um það, að það eru ýkjur, að ég ekki segi beinar rangfærslur, að endurtaka æ ofan í æ, að vextir hér á landi séu miklu hærri en gerist í nálægum löndum. Staðreyndir málsins eru aðrar.
Fyrst ég á annað borð hef tekið til máls um frv., langar mig til að fara nokkrum orðum um það, vekja athygli á því, hvað í raun og veru felst í frv. Ef þetta frv. yrði samþ., mundu vextir á Íslandi, ekki aðeins útlánsvextir, eins og hv. frsm. gerði sér tíðrætt um, heldur einnig innlánsvextir lækka um 2%. Hvað þýðir þetta, ef vextir almennt, bæði útlánsvextir og innlánsvextir, sem auðvitað hljóta að fylgja í kjölfarið vegna þess, hve lítill munur er á innláns- og útlánsvöxtum, — hvað hefur það í för með sér, ef bæði innláns- og útlánsvextir eru lækkaðir um 2%? Innstæður á sparisjóðsreikningum og hlaupareikningum í bankakerfi landsins munu nú nema um 5 þús. millj. kr. Af því leiðir, að 2% lækkun vaxta af þessu innstæðufé nemur 100 millj. kr. Hverjir eiga þetta innstæðufé á sparisjóðs- og hlaupareikningum? Það má ýkjulaust staðhæfa, að öll þjóðin eigi það, hvert einasta mannsbarn í landinu er meðeigandi að þessu innstæðufé á sparisjóðs- og hlaupareikningum. Ég hef fengið þær upplýsingar, að reikningsnúmer í bönkum og sparisjóðum séu mun fleiri en tala allra landsmanna. Stafar þetta auðvitað af því, að til eru þeir, sem eiga fleiri en eina sparisjóðsbók, fleiri en einn reikning, en þeir eru áreiðanlega sárafáir til, sem eiga ekki sparisjóðsbók, þó að það sé e.t.v. ekki mikið í þeim öllum. Ég tel því, að óhætt sé að fullyrða, að svo að segja allir landsmenn séu meðeigendur að þeim 5000 millj. sjóði, sem inneign í sparisjóði og á hlaupareikningum nemur. Þó að þessi inneign skiptist að sjálfsögðu nokkuð misjafnt, er þó mikill fjöldi sparisjóðsbóka, sem nemur álitlegri upphæð og er í eign almennings í landinu. Af þessum eigendum sparisjóðsbóka og hlaupareikninga vill hv. flm. taka 100 millj. kr. á ári. Hann vill svipta þessa aðila tekjum, sem þeir hafa haft og mundu hafa að óbreyttu ástandi, sem nema 100 millj. kr. á ári. Og hverjir eiga að fá þessar 100 millj.? Hverjir hafa yfirráð og hverjir nota þetta sparifé, þessar innstæður á sparifjárreikningunum og hlaupareikningunum? Það eru atvinnurekendur og aðrir skuldarar. Allir vita, að atvinnurekendur og skuldarar í landinu eru miklu, miklu færri en eigendur sparifjárins. M.ö.o.: það, sem hv. þm. vill gera, er að taka 100 millj. kr. af sparifjáreigendum og gefa það atvinnurekendum og skuldurum, og nú spyr ég: Er þetta hugsjón Framsfl. um tekjujöfnuð? Er þetta vinstri hugsjón Framsfl.? Er þetta eitt dæmi, sem hann vill fram færa um sína vinstri stefnu til að sanna það, að hann sé vinstri flokkur, að taka 100 millj. kr. á ári af sparifjáreigendum og rétta atvinnurekendum og skuldurum? Það má spyrja og verður að spyrja: Hverjir eru betur að því komnir á einu ári, á næsta ári, skulum við segja, að fá þessar 100 millj. í sinn vasa, sparifjáreigendurnir annars vegar eða atvinnurekendurnir og skuldararnir hins vegar? Það er spurning, — ég sé, að hv. þm. hefur kvatt sér hljóðs, — það er spurning, sem ég krefst að hann svari alveg skýrt og útúrdúralaust: Hvort telur hann, að þessar 100 millj., sem hann nú vill flytja frá sparifjáreigendum og yfir til atvinnurekenda og skuldara, séu betur komnar í vasa atvinnurekendanna og skuldaranna eða í vasa sparifjáreigendanna? Ég segi: Eins og ástandið í landinu er nú og hefur verið s.l. tólf mánuði, þá tel ég engan vafa leika á því, að þessar 100 millj. eru betur komnar, þær eiga frekar heima í vasa sparifjáreigenda, í vasa almennings, heldur en í vasa atvinnurekendanna og skuldaranna, og rökin fyrir þessu eru ósköp einföld. Það, sem hefur verið að gerast undanfarna tólf mánuði, er því miður það, að verðlag hefur farið hækkandi. Frumorsök þess hefur verið sú, að kaupgjald hefur hækkað meira en aukningu þjóðarframleiðslunnar nemur. Þegar slíkt á sér stað, er ómögulegt að komast hjá því, að verðlag hækki. Það hefur verið stefna ríkisstj., að ekki yrðu almennar kauphækkanir umfram aukningu þjóðarframleiðslunnar, og það hefur verið skoðun ríkisstj., og hún er ómótmælanlega rétt, að ef þessari stefnu hefði verið fylgt, ef hækkun kaupgjalds hefði verið haldið innan þess ramma, sem aukningu þjóðarframleiðslunnar nemur, hefði verðlag ekki þurft að hækka á Íslandi á s.l. tólf mánuðum. En því miður varð stefna ríkisstj. ekki ofan á. Sú stefna, sem ofan á varð, var stefna, sem þessi hv. þm. m.a. studdi og var einn af frumkvöðlunum að, að kaupgjaldið mætti hækka um það, sem það hækkaði, þó að það væri augljóslega umfram hækkun þjóðarframleiðslunnar, og þess vegna varð afleiðing af kauphækkununum hækkun verðlags, en afleiðing af verðlagshækkuninni hefur orðið rýrnandi gildi sparifjárins. Sparifjáreigendur hafa tapað á verðlagshækkuninni, og það er einmitt einn höfuðókostur slíkrar óeðlilegrar verðlagshækkunar, að sparifjáreigendur tapa. En hverjir græddu það, sem sparifjáreigendur töpuðu? Það gerðu atvinnurekendur og skuldarar. Hver sú króna, sem hin óeðlilega og óþarfa verðlagshækkun svipti sparifjáreigendur, fór í vasa atvinnurekenda og skuldara. Þetta er það, sem hefur verið að gerast undanfarna tólf mánuði. Atvinnurekendur og skuldarar hafa verið að græða á kostnað sparifjáreigenda, ekki að vilja ríkisstj. eða ríkisvaldsins, heldur gegn vilja ríkisstj., en fyrir tilstuðlan þessa hv. þm. og hans flokks, fyrir tilstuðlan þeirra. Eftir að þetta hefur gerzt, eftir að Framsfl. og Alþb. hafa beitt sér fyrir stefnu í verðlagsmálum, sem haft hefur í för með sér vissa hækkun kaupgjalds og verðlags, sem svo á hinn bóginn hefur valdið sparifjáreigendum tjóni, en atvinnurekendum og skuldurum gróða, ofan í þetta flytur þessi þm. — ég segi: leyfir þessi hv. þm. sér að flytja frv., sem vill taka enn þá meira af sparifjáreigendum og gefa atvinnurekendum og skuldurum enn þá meira. Um þetta má hafa þau orð, að hér fer skörin sannarlega að færast upp í bekkinn, hér er sannarlega höggvið tvívegis í sama knérunn.
Flokkur hv. þm. hefði átt að láta við það sitja að styðja þá ólánsstefnu, sem leiddi til óþarfrar verðhækkunar á s.l. ári. Hann á ekki að bæta gráu ofan á svart með því að leggja til að taka enn þá meira af sparifjáreigendum og hygla atvinnurekendum og skuldurum enn þá meira. Stefna flokks hans var nógu óþörf, hún var til nógu mikillar óþurftar í sjálfri sér eins og hún var, þó að þar sé ekki bætt nýju ranglæti ofan á.
Ein höfuðástæða þess, að ríkisstj. treystir sér ekki til að leggja til vaxtalækkun núna, er einmitt það ranglæti, sem undanfarið hefur orðið gagnvart sparifjáreigendum, einmitt vegna óeðlilegrar stefnu, rangrar stefnu í kaupgjalds- og verðlagsmálum.
Það má auðvitað spyrja, hvort atvinnurekendur og skuldarar þurfi ekki á þessum 100 millj. að halda. Eru þeir ekki svo illa haldnir, stynja þeir ekki svo þungt undir hinum háu vöxtum, að þeir eigi skilið að fá þessar 100 millj. frá sparifjáreigendunum? Þessi spurning á vissulega rétt á sér, og ég skal reyna að svara henni með örfáum orðum. Ég svara henni algerlega og hiklaust neitandi. Fyrri rök mín fyrir þeirri neitun eru þau, að á undanförnum tólf mánuðum hafa atvinnurekendur og skuldarar verið að græða á kostnað sparifjáreigendanna, þeir hafa verið að því, og ég endurtek og undirstrika: ekki samkvæmt vilja ríkisstj., heldur gegn vilja ríkisstj. Hitt, sem þó tekur af öll tvímæli um það, hvort ástæða sé til að gefa atvinnurekendum og skuldurum 100 millj. frá sparifjáreigendum, er, að nú í dag er gífurleg eftirspurn eftir fjármagni við þeim vöxtum, sem nú gilda, svo mikil, að það er torvelt að fullnægja henni. Skyldi það benda til þess, að ástæða sé til að lækka vextina, að brýn þörf sé á að lækka vextina? Atvinnurekstur á Íslandi hefur aldrei í sögu landsins verið blómlegri en hann er í dag. Geta íslenzkra atvinnuvega til að greiða mannsæmandi kaup hefur aldrei í sögu landsins verið meiri en hún er í dag, og geta íslenzkra otvinnuvega til að skila eigendum arði af eigin fé og til að greiða eigendum lánsfjár vexti af lánsfé hefur aldrei verið meiri en í dag. Undir þessum kringumstæðum hlýtur að teljast óþarfi að beita sér fyrir mikilli vaxtalækkun.
Á hinu aftur á móti hefur aldrei verið meiri nauðsyn en í dag að halda áfram að efla sparifjármyndun landsmanna. Á því ári, sem nú er nýbyrjað, hyggst ríkisstj. beita sér fyrir miklum framkvæmdum, meiri framkvæmdum en nokkurt undanfarandi ára, og munu fyrirætlanir ríkisstj. í þeim efnum bráðlega koma í ljós. Þegar framkvæmdaáætlun fyrir árin 1963–1966 verður lögð fyrir hið háa Alþingi innan fárra daga, mun koma í ljós, að miklar framkvæmdir eru fyrirhugaðar í landinu þegar á þessu ári, sem nú er nýbyrjað. En frumskilyrði þess, að unnt sé að hrinda slíkri fjárfestingu í framkvæmd með heilbrigðum hætti, er, að spariféð haldi áfram að vaxa. Þetta frv., ef samþ. yrði, ynni gegn því, að spariféð héldi áfram að vaxa. Það mundi leiða til minnkandi sparifjármyndunar og þar af leiðandi verða til þess að torvelda þær auknu framkvæmdir, sem flm. þess og hans flokkur þykist þó í orði kveðnu vilja frekar en margt eða jafnvel flest annað. En í þessum efnum eins og mörgum fleiri stangast á fyrirætlanir þessa hv. þm. og þessa flokks á hinum ýmsu sviðum. Hann og hans flokksmenn halda hér miklar ræður um nauðsyn aukinna framkvæmda, aukinnar fjárfestingar, en að hinu leytinu bera þeir fram frv., sem mundu vinna gegn því, að hægt yrði að koma fram hinni auknu fjárfestingu, af því að undirstaða hennar hlýtur að vera aukinn sparnaður, en afleiðing þessa frv. og annarra ráðstafana, sem þeir stinga upp á, mundi verða minnkaður sparnaður.
Ég hika því ekki við að staðhæfa, að það væri mjög alvarlegt víxlspor, ef frv. eins og þetta yrði samþykkt eða þær ráðstafanir, sem gert er ráð fyrir í því, yrðu framkvæmdar. Það yrði mjög mikið víxlspor. Að endingu skal ég undirstrika, í hverju ég fyrst og fremst tel þetta víxlspor vera fólgið.
Hér yrði um að ræða víxlspor að tvennu leyti. Annars vegar væri það röng stefna í efnahagsmálum, eins og á stendur nú í íslenzku atvinnulífi og fjárhagsmálum. Það væri röng stefna, eins og á stendur nú í íslenzkum atvinnu- og fjárhagsmálum, að lækka vexti, vegna þess að vaxtalækkun mundi minnka sparifjármyndunina og þar af leiðandi torvelda ríkisvaldinu og einstaklingum þær framkvæmdir, sem fyrirhugaðar eru og eru bráðnauðsynlegar. Ég segi því: Í fyrsta lagi felst í þessu frv. röng stefna í efnahagsmálum, skaðleg stefna, því að hún yrði vaxandi fjárfestingu til óþurftar og trafala. En í öðru lagi væri þetta stórt víxlspor vegna þess, að í þessu mundi felast gífurlegt félagslegt ranglæti. Í frv. felst gífurlegt félagslegt ranglæti, því að ég get ekki annað en kallað það gífurlegt félagslegt ranglæti að svipta sparifjáreigendur 100 millj. kr. á einu ári og rétta þær 100 millj. kr. aðilum, sem sízt þurfa þess með og sízt eiga rétt á því, atvinnurekendum og skuldurum.