14.02.1963
Efri deild: 44. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 693 í C-deild Alþingistíðinda. (2510)
27. mál, Tunnuverksmiðjur ríkisins
Frsm. (Jón Árnason):
Herra forseti. Sjútvn. hefur átt tvo fundi um mál þetta og auk þess leitað umsagnar síldarútvegsnefndar, svo sem fram kemur í áliti n. á þskj. 266.
Frv. það, sem hér um ræðir, um breyt. á l. um Tunnuverksmiðjur ríkisins, felur það í sér, að byggð skuli ein verksmiðja til viðbótar því. sem áður var heimild um í lögum. Er þar kveðið á um, að verksmiðjuna skuli byggja á Akranesi.
Um mörg undanfarin ár hafa verið starfræktar tvær tunnuverksmiðjur á Norðurlandi, önnur á Siglufirði og hin á Akureyri. Þá er í gildandi lögum um Tunnuverksmiðjur ríkisins heimild til þess að byggja þriðju verksmiðjuna og skal hún vera á Austur- eða Norðurlandi. Nú hafa nokkrir hv. alþm. flutt um það till. til þál., að verksmiðja þessi verði byggð nú þegar og hún staðsett á Austurlandi. Eigi verður annað sagt en sú ákvörðun, ef samþykkt verður, sé í alla staði eðlileg, þegar tillit er tekið til þess annars vegar, að báðar þær verksmiðjur, sem nú eru starfræktar, eru á Norðurlandi, og hins vegar með hliðsjón af hinni miklu síldveiði og síldarvinnslu, sem átt hefur sér stað í mjög vaxandi mæli á síðustu árum við Austurland.
Ég hef athugað rekstrar- og efnahagsreikninga Tunnuverksmiðja ríkisins fyrir 2 ár, en það eru nýjustu reikningar, sem fyrir hendi eru þar um. Það eru árin 1960 og 1961. Ég tel, að á þeim megi sjá, að afkoma verksmiðjanna sé mjög sæmileg. Þær hafa getað afskrifað eða lagt í varasjóð allverulega upphæð bæði þessi ár, eða rúmlega 700 þús. kr. hvort árið. Alls eru bókfærðar vélar og fasteignir verksmiðjanna í árslok 1961 4 millj. 163 þús. kr., en varasjóðseign nemur nú orðið 5 millj. og 88 þús. kr. Það er augljóst mál, að slíkan rekstur, þegar framleiðslan er ekki seld neytendum á óhagstæðara verði en þær tunnur, sem fluttar eru til landsins fullunnar erlendis frá, er þjóðinni hagstætt að auka. Framleiðslu saltsildar hér á Suðvesturlandi verður að telja nú orðið nokkuð árvissan atvinnuveg, enda hefur sala síldarinnar gengið allvel og farið vaxandi á síðustu árum.
Á 10 ára tímabili, frá 1950–1959, er meðalframleiðslan rúmlega 80 þús. tunnur árlega. Mest var framleiðslan haustið 1950, rúml. 131 þús. tunnur, en það ár var, sem kunnugt er, eitt mesta aflaleysisár fyrir Norðurlandi og sáralítið þá saltað. Á því tímabili, sem árlega vantaði mikið á, að við stæðum við gerða samninga eða fullnægðum sölumöguleikum á Norðurlandssáldinni, var það mjög veigamikið fyrir Íslendinga að geta boðið þá síld, sem framleidd var á þeim árum hér á Suðvesturlandi, og þannig haldið við ýmsum mikilsverðum mörkuðum, sem að öðrum kosti hefðu e.t.v. tapazt.
Allt bendir til þess, að framleiðsla Suðvesturlandssíldar muni ná hámarki á þeirri síldarvertið, sem nú er senn að ljúka. Við höfum þegar framleitt rúmlega 125 þús. tunnur, og sennilegt er, að nokkurt magn af súrsíldarflökum, sem góður markaður er fyrir, verði enn framleitt til viðbótar, þar sem nokkur skip halda veiðunum áfram.
Það eru alls 40 söltunarstöðvar, sem starfræktar hafa verið hér sunnanlands í haust og vetur. En tæplega hluti alls magnsins hefur verið framleiddur á Akranesi. Það var nokkuð með hliðsjón af því, hvað söltunarstöðvarnar á Akranesi hafa jafnan verið með stóran hluta af heildarframleiðslunni, að lagt var til, að tunnuverksmiðja, sem byggð yrði hér sunnanlands, skyldi staðsett þar. En ég tel einnig, að fleiri rök hnigi þar til. Það má telja fullvíst, að með bættum hafnarskilyrðum á Snæfellsnesi, sem nú mun fyrirhugað að framkvæmd verði á næstu árum, verði síldarsöltun á Snæfellsnesi stóraukin frá því, sem nú er, enda liggja verstöðvarnar þar sérstaklega vel við síldveiðinni á þeim tíma, sem síldin hefur reynzt bezt til söltunar.
Eins og fram kemur í nál. sjútvn., er það einnig álit n., að Akranes sé heppilegur staður fyrir staðsetningu verksmiðjunnar hér sunnanlands. Hins vegar telja nm., að ekki sé ástæða til þess að binda slíkt ákvæði í lögum fyrir fram, og leggja því til, að frv. verði samþ. með þeirri breytingu, er fram kemur í nál. á þskj. 266.
Þá telur n., að nauðsyn beri til að hækka lán tökuheimild ríkisstj. í þessu skyni, samkv. þeim upplýsingum, sem sjútvn. bárust frá síldarútvegsnefnd um mál þetta. Varðandi stofnkostnaðinn segir svo í bréfi síldarútvegsnefndar, með leyfi hæstv. forseta — bréfið er dagsett 28. nóv. 1962:
„Með tilvísun til bréfs yðar, dags. 25. nóv. s.l., hefur síldarútvegsnefnd falið Einari H. Ásgrímssyni verkfræðingi Tunnuverksmiðja ríkisins að gera áætlun um stofnkostnað tunnuverksmiðju, sem framleitt gæti 50–60 þús. tunnur á ári miðað við núverandi verðlag. Niðurstöður hans eru þessar:
Stofnkostnaður tunnuverksmiðju, er framleitt gæti 60 þús. síldartunnur á 20 vikum með 40 mönnum: Verksmiðjuvélar 2 millj. 150 þús. kr. Verksmiðjuhús 1 millj. 800 þús. kr. Gert er ráð fyrir, að verksmiðjuhúsið yrði 600 fermetrar, steypt með stálþaki, einangrað og frá gengið með hitun og raflögn. Geymsluhús: 1) Einangrað stálgrindahús fyrir 25 þús. tunnur, þar innifalin efnisgeymsla fyrir 450 standarda af tunnutimbri,
1 millj. 850 þús. kr. 2) Einangrað stálgrindahús fyrir 40 þús. tunnur, þar innifalin efnisgeymsla fyrir 450 standarda af tunnutimbri, 3 millj. 100 þús. kr.“
Í nál. sjútvn. er lagt til, að miðað sé við minni geymsluna, sem tekur 25 þús. tómtunnur ásamt 450 standördum af tunnutimbri, þegar miðað er við þann stofnkostnað, sem þar er gengið út frá.
Það er einróma skoðun sjútvn. hér í hv. d., að stefna beri að því, að allar tunnur, sem síldarútvegurinn og aðrar framleiðslugreinar lands. manna þarfnast, verði smíðaðar innanlands. Með hliðsjón af því verði lögð á það áherzla, að báðar þær tunnuverksmiðjur, sem um getur í frv., verði byggðar svo fljótt sem verða má.
Þá vil ég sérstaklega benda á, að það er brýn nauðsyn, að í verksmiðjunni á Akureyri verði bættur húsakostur að verulegu leyti frá því, sem nú er. Sérstaklega mun þar vera skortur á húsnæði fyrir geymslu á tunnuefni og framleiddum tómtunnum, sem verksmiðjurnar verða alltaf að liggja með nokkurn tíma framleiðslutímabilsins, en án góðrar geymslu liggur framleiðslan alltaf undir skemmdum að vetrinum.
Herra forseti. Ég vil því leyfa mér að vænta þess, að hv. þdm. geti fallizt á afgreiðslu sjútvn. á máli þessu, svo sem fram kemur á þskj. 266, og málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 3. umr.