29.10.1962
Efri deild: 8. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 710 í C-deild Alþingistíðinda. (2527)
50. mál, afnám aðflutningsgjalda af vélum til landbúnaðar
Magnús Jónsson:
Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að ræða málið almennt meira, og var ekkert í ræðu hv. þm., sem gaf tilefni til þess sérstaklega. Hann las hér nokkrar tölur um framkvæmdir í landinu, sem ég vil á engan hátt vefengja og veit, að hann hefur farið rétt með. Ég hef ekki neinar slíkar tölur fyrir mér aðrar en þær, sem felast í þeim lánveitingum, sem mér er kunnugt um að hafa verið á undanförnum árum úr Búnaðarbankanum eða ræktunarsjóði og byggingarsjóði og benda ótvirætt í þá átt, að það sé a.m.k. ekki rétt að segja, að það sé um að ræða háskategan samdrátt í framkvæmdum, sem betur fer. Það er vafalaust samdráttur á ýmsum sviðum, eins og kom fram í hans tölum. Þar hefur komið fram aukning á öðrum sviðum. Þetta er svo frá ári til árs, að það er mjög breytilegt, hvernig framkvæmdir bænda eru, auk þess sem það að vísu þarf ekki að benda til samdráttar, þó að bændur fjárfesti ekki stöðuglega meira og meira frá ári til árs, því að það er annað atriði, sem vissulega væri vert að íhuga og er töluvert mikið alvörumál, og það er, að ýmislegt bendir til þess, að fjárfesting bænda margra hverra hafi verið of mikil, þ.e.a.s. hún hafi verið of mikil vegna þess, að búrekstur þeirra hafi ekki vaxið sem svarar fjárfestingunni. Og þetta er atriði, sem kom töluvert í ljós, þegar var t.d. farið að athuga upplýsingar, sem komu með lausaskuldalánaumsóknum bænda. Það voru margar merkilegar upplýsingar, sem þar komu fram, og eru þarna atriði, sem áreiðanlega er nauðsynlegt fyrir bændasamtökin að íhuga, og það er áreiðanlega mikil nauðsyn, að það verði komið á laggirnar fyrir bændastéttina einhvers konar upplýsingastarfsemi til þess að gera þeim ljósari grein fyrir því eða gera þá færari til þess að leggja grundvöll að sem hagstæðustum búrekstri.
Ég hef leyft mér að flytja um það þáltill., að einmitt þessi hlið málsins verði athuguð, þ.e.a.s. að koma upp einhvers konar hagfræðilegri leiðbeiningastarfsemi fyrir bændur. Ég mun að sjálfsögðu ekki fara nánar út í það hér, en gera grein fyrir því, þegar þar að kemur, en drep þó á þetta hér vegna þess, að ég er ekki í neinum vafa um það, að hér er um að ræða mikið nauðsynjamál, því að hin mikla fjárfesting í sveitunum hefur hjá mörgum bændum skapað þeim verulega áhættu, vegna þess að búrekstur þeirra hefur ekki vaxið að sama skapi. Og þetta veit ég að hv. 1. flm, þessa frv. muni einnig vera ljóst, því að hann er manna fróðastur í þessum efnum. Þess vegna er það ekki endilega víst, að það þurfi að vera það hagstæðasta, sem stefna beri að á næstu árum, að það verði haldið uppi sem mestri aukningu fjárfestingar almennt í landbúnaðinum, heldur held ég, að um leið þurfi að athuga þetta atriði. Það er auðvitað sjálfsagt, að það verður að auka sem mest framleiðslu eða framleiðni landbúnaðarins, eins og það er kallað. Og einkanlega það, að það verði reynt að hagnýta sem allra bezt þá fjárfestingu, sem þegar hefur orðið í landinu og ég er ekki alveg viss um að sé hagnýtt sem vera skyldi, sem er í rauninni engin von til, því að það er, að ég hygg, miklu flóknara mál að reka bú en margir hverjir gera sér grein fyrir. Þetta er töluvert flókið fyrirtæki, þegar þarna koma til margvíslegar og fjölþættar framkvæmdir, að gera sér þá grein fyrir því, hvernig búrekstrinum verði hagstæðast fyrir komið.
Ég skal ekki fara að orðlengja frekar um það atriði. En vegna þess að hv. flm. beindi til mín ákveðinni fsp., sem snertir óneitanlega það mál, sem hér liggur fyrir, tel ég rétt að svara henni að því marki, sem ég get svarað henni á þessu stigi málsins, en það er varðandi hugsanleg lán úr stofnlánadeild landbúnaðarins til bænda vegna dráttarvéla.
Þegar stofnlánadeild landbúnaðarins var komið á með löggjöf á síðasta þingi, var tekið fram, að með þeim trausta grundvelli, sem þar væri gert ráð fyrir, að yrði lagður, ætti að skapa skilyrði til þess að auka útlán til framkvæmda bænda, bæði þeirra, sem nú hefur verið lánað til, og einnig taka upp nýjar lánveitingar. Að þessu hefur síðan verið unnið. Hv. þm. er vafalaust kunnugt um það, að tekjur þær, sem þessi stofnlánadeild á að fá, ekkert af þeim kemur inn á þessu ári, það er ekki fyrr en á næsta ári. sem þessar tekjur fara að skila sér. Það breytir hins vegar ekki því, að það hefur verið töluvert að því unnið að leggja grundvöll að aukinni starfsemi, athuga möguleikana á því að hækka mjög lán, sem þegar eru veitt til bæði íbúðarhúsabygginga og annarra framkvæmda. Þeirri athugun er enn ekki lokið, en henni verður lokið að sjálfsögðu, áður en kemur til að úthluta lánum á þessu ári.
Varðandi dráttarvélarnar hefur ekki verið tekin formleg ákvörðun enn. En það hefur þó verið gert ráð fyrir því og mönnum beinlínis sagt, að það mundu verða veitt lán út á dráttarvélar. Því er ekki að leyna, að á þessu máli eru ýmsar tæknilegar hliðar, sem ég skal ekki fara hér út i. Það eru ýmsir vankantar lagalega og á ýmsan annan hátt, sem valda því, að þessum lánum er erfitt að koma fyrir svo sem þarf. En hvað sem því líður, þá er óhætt að staðhæfa hér, að það verða lánuð lán til kaupa á dráttarvélum, sem gera má ráð fyrir að komi til fullra framkvæmda á næsta ári. Það hefur verið gert ráð fyrir, að það geti farið svo, að eitthvað af slíkum lánum verði veitt í ár, og það hafa verið lánuð nokkur lán úr Búnaðarbankanum á þessu sumri með það í huga, að þeim yrði aftur breytt í lán úr stofnlánadeild landbúnaðarins út á dráttarvélar, þegar þar að kæmi. Hversu hár þessi hluti yrði, skal ég ekki segja á þessu stigi, því að um það hefur ekki verið tekin formleg ákvörðun. En ég vil aðeins geta þess í þessu sambandi, að á þessu ári hafa verið veittar verulegar fjárhæðir í lán út á stórvirkar jarðræktarvélar ræktunarsambandanna, sem hafa ekki verið almennt veitt áður. Og þau lán hafa numið 30% af andvirði þessara véla og verið lánuð til 6 ára með að sjálfsögðu þeim vaxtakjörum, sem stofnlánadeildin veitir, þeim almennu vaxtakjörum hennar, eins og þau eru í dag. Mér þykir ekki ósennilegt, að lán út á dráttarvélar yrðu að lokum eitthvað svipað þessu.
Ég vona, að á þessu stigi séu hv. fyrirspyrjanda eða flm. þetta nægilegar upplýsingar, því að nánar get ég ekki skýrt málið, fyrr en formlegar ákvarðanir hafa verið um það teknar. Það er líka annað atriði, sem hefur mjög verið sótt á um að yrði reynt að lána til, og það er út á tæki í sambandi við súgþurrkun. Það hefur nú verið ákveðið að reyna að ráðast fyrst á hitt vandamálið, dráttarvélarnar, sem er miklu tilfinnanlegra, og það eru ýmsir allmiklu meiri erfiðleikar á að lána út á súgþurrkunarmótora, en það verður einnig tekið til athugunar, strax og fært þykir að gera það.
Ég sé svo ekki, herra forseti, að í ræðu hv. frsm. hafi verið fleiri atriði, sem gefi sérstaklega tilefni til að lengja mál mitt frekar.