19.11.1962
Efri deild: 18. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 718 í C-deild Alþingistíðinda. (2540)

80. mál, fræðslustofnun launþega

Flm. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Frv. það, sem er hér til umr. um fræðslustofnun launþega, hefur áður verið flutt hér í hv. þingdeild. Þá hafði þar áður einnig verið flutt till. til þál. um sama efni af hálfu okkar Alþfl. manna í Sþ. Eftir flutning fyrrnefndrar þáltill. fluttu hv. Alþb.- menn einnig frv. um félagsmálaskóla verkalýðssamtakanna, sem fór mjög í sömu átt og frv. okkar, sem nú er endurflutt nánast óbreytt.

Þegar bæði þessi frv. lágu fyrir, kom til nokkurra viðræðna milli okkar flutningsmanna, hvort ekki væri unnt að ná samkomulagi um eitt frv., sem næði þeim tilgangi, sem var meginuppistaðan í báðum frv. Það er, að af hálfu hins opinbera væri stuðlað að félagslegri fræðslu um störf og starfshætti verkalýðssamtakanna. Þessar lauslegu viðræður dagaði uppi, þegar vinstri stjórnin svonefnda fór frá völdum, og varð árangur af þeim því enginn. Hér er hins vegar að dómi Alþfl. um svo veigamikið nauðsynjamál að ræða, að ekki má undir höfuð leggjast að hrinda í framkvæmd. Af þeim ástæðum er þetta frv. endurflutt nú í byrjun þings í trausti þess, að málið hljóti endanlega afgreiðslu.

Erlendis eru stofnanir eins og sú, sem frv. þetta gerir ráð fyrir að stofnsett verði, taldar grundvallarnauðsyn að heilbrigðu félagsmálastarfi, sem aftur kemur í árekstraminni samskiptum launþega og vinnuveitenda til stórlegra hagsbóta fyrir báða aðila, en þó umfram allt fyrir þjóðarheildina. Fjöldi Íslendinga úr röðum verkalýðssamtakanna hefur átt þess kost á undanförnum árum að kynna sér starfsemi annarra þjóða í þessum málum, og öllum hefur þeim borið saman um nauðsyn þess, að slík fræðsla verði upp tekin hér á landi. Nauðsyn þessarar fræðslu er að sjálfsögðu fyrst og fremst fólgin í bættu starfi innan sjálfra verkalýðssamtakanna, en þeim umbótum á alþjóð að geta notið góðs af.

Höfuðmismun á frv. okkar og frv. Alþb: manna tel ég vera þann, að Alþb: menn gera ráð fyrir einni skólastofnun, sem starfaði í 6 mánuði að vetrinum, eins og segir í 1. gr. þess, þó að undantekningar séu þar frá. Frv. okkar gerir að vísu ráð fyrir einni stofnun, sem hafi yfirumsjón með fræðslu þessari, en hins vegar er gert ráð fyrir, að aðalverkefni fræðslustofnunarinnar verði stutt námskeið, sem verði haldin sem víðast á landinu, eins konar farandfræðsla, til þess að unnt verði að gefa sem flestum aðstöðu til að njóta þessarar fræðslu.

Að okkar dómi er þess vart að vænta, að trúnaðarmenn verkalýðsfélaganna eða þeir, sem kynnu að vilja gefa kost á sér til slíkra starfa, fari að leggja á sig kostnaðarsöm ferðalög eða uppihaldskostnað til þess að öðlast fræðslu til ólaunaðra aukastarfa, svo sem meginhluti þessa starfs í verkalýðsfélögunum er í dag. Meginuppistaðan í því frv., sem hér er flutt, er sú, að þessari nauðsynlegu fræðslu verði komið til hlutaðeigandi aðila og þeim gert sem auðveldast að öðlast hana. Víðast hvar erlendis er sú fræðsla, sem hér er gert ráð fyrir að veitt verði, að meginhluta kostuð af alþýðusamtökunum sjálfum með styrkjum frá því opinbera, og í fleiri tilfellum, að samtökin kosta algerlega sjálf fræðsluna.

Svo sem í grg. segir, er engin von til þess, að alþýðusamtökin íslenzku gætu fjárhagsins vegna borið uppi slíka fræðslu. Það mun því óhætt að fullyrða, að komi ekki til fjárhagsleg aðstoð hins opinbera, muni enn um langa framtið verða bið á því, að slíkri fræðslu verði komið á umfram það, sem nú á sér stað, að frumkvæði framtakssamra einstaklinga. En skylt er að geta þess, að nú um nokkurt skeið hefur Hannes Jónsson félagsfræðingur gengizt fyrir fræðslunámskeiðum um mörg framangreind mál, og á Hannes þakkir skyldar fyrir sitt óeigingjarna starf, sem þegar hefur orðið mörgum að góðu liði, þótt staðbundið sé við Reykjavík. Að sjálfsögðu væri æskilegt, að alþýðusamtökin hér á landi gætu ein og óstudd annazt þessa þjóðnauðsynlegu fræðslu, en þegar ljóst er, að þau hafa ekki fjárhagslegt bolmagn til þess, þá stöndum við frammi fyrir þeirri staðreynd, að frekari útbreiðsla þessarar fræðslu á sér ekki stað, nema til komi fjárhagslegur stuðningur hins opinbera, og þess vegna verður að veita hann. Aukinn félagsþroski ásamt almennri fræðslu um hina síbreytilegu þjóðfélagshætti er áreiðanlega haldbezta og farsælasta leiðin til bættrar sambúðar á vinnumarkaðnum og útrýmingar hins forna fjanda þar, tortryggninnar.

Herra forseti. Ég læt þessi orð nægja með frv. nú, en vísa að öðru leyti til umr. um þessi mál á fyrri þingum og grg. þeirrar, er frv. fylgir. Að lokinni þessari umr. óska ég eftir, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.