31.01.1963
Efri deild: 35. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 720 í C-deild Alþingistíðinda. (2544)

115. mál, söluskattur

Flm. (Björn Jónsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja hér á þskj. 166 frv. til l. um breyt. á l. um söluskatt. Með þessu frv. er lagt til að fella niður söluskatt á nokkrum brýnum nauðsynjavörum. Það er lagt til, að hinn almenni 3% söluskattur verði felldur niður af öllum innlendum landbúnaðarvörum og einnig af hvers konar fiskmeti og mjölvörum. Enn fremur, að hann verði numinn af kolum, olíu, hitaveituvatni, rafmagni til heimilisnotkunar og fargjöldum með strætisvögnum og sérleyfisbifreiðum. Í annan stað er svo lagt til, að söluskattur af innflutningi verði felldur niður af nokkrum vöruflokkum, eins og heimilistækjum, ávöxtum, skófatnaði og sjóklæðum. Á þeim vörum, sem hinn almenni söluskattur yrði felldur niður af, yrði að sjálfsögðu um að ræða 3% verðlækkun eða sem næst því, en á þeim vörum, sem söluskattur af innfluttum vörum yrði felldur niður af, yrði um allt að 15% verðlækkun að ræða.

Allt frá því að núverandi lög um söluskatt voru sett í marz 1960 og þ. á m. ákvæðin til bráðabirgða um viðbótarsöluskatt af innflutningi, eins og hann hefur verið nefndur, hafa menn verið að vona, að sú mikla skattheimta, sem þá var lögfest, mundi ekki eiga sér mjög langan aldur, að fljótlega liði að því, að álagi þessara sérstöku verðhækkunarskatta yrði létt að einhverju leyti af, og stjórnarflokkarnir og hæstv. ríkisstj. ýttu strax þegar lögin voru sett undir þessar vonir, og hefur sú saga verið rakin hér í umr. fyrir ekki löngu.

Viðbótarsöluskatturinn af innflutningi, sem í mörgum tilfellum a.m.k. nemur 6–8% af söluverði erlends varnings, var ákveðinn til bráðabirgða. Sérstakar ástæður voru taldar fyrir hendi á árinu 1960, aðallega þær, að hinir nýju skattar væru aðeins innheimtir hluta ársins og yrðu af þeirri ástæðu lægri en ella hefði orðið. En það fór svo, að árið 1960 var samt ekki liðið, þegar ákveðið var að framlengja skattinn einnig á árinu 1961, þrátt fyrir það að þessi meginforsenda fyrir skattinum væri þá úr sögunni.

Á liðlega hálfnuðu ári 1961, eða í ágústbyrjun, var gengið lækkað öðru sinni í tíð hæstv. núv. ríkisstj., og af þeim ástæðum hækkaði verðlag allra innfluttra vara mjög mikið. Öll aðflutningsgjöldin, þ. á m. bráðabirgðasöluskatturinn, hækkuðu sjálfkrafa í sama hlutfalli og gjaldeyririnn.

Á öðru viðreisnarárinu hækkaði svo þessi skattur mjög mikið enn af tveimur ástæðum, í fyrsta lagi vegna innheimtu allt árið í stað 9 mánaða áður og í öðru lagi vegna gengislækkana síðari hluta ársins. Það hefði e.t.v. mátt ætla, að þessi sjálfkrafa hækkun vegna gengisfellinganna m.a. hefði gert það fært að milda skattheimtuna eitthvað, m.a. með tilliti til þess, að á árinu 1962 hlaut skatturinn að stórhækka, þar sem gengisfellinganna naut þá við allt árið, en aðeins hluta á árinu áður, þ.e.a.s. síðari gengisfellingarinnar. En hér fór á sömu lund og áður, að um enga lækkun var að ræða.

Síðasti kapítulinn í þessari sögu um skattinn, sem lagður var á af sérstökum ástæðum til bráðabirgða í ársbyrjun 1960, hefur svo gerzt hér á hv. Alþingi nú að undanförnu, en tilraunir okkar stjórnarandstæðinga til þess að fá þennan skatt felldan niður hafa reynzt árangurslausar eins og áður.

Bráðabirgðasöluskatturinn, sem upphófst sem ráðstöfun til þess að ná um 100 millj. í ríkissjóðinn á árinu 1960, hefur dafnað svo í höndum núv. hæstv. ríkisstj., að honum er nú ætlað að færa ríkissjóði 260 millj. Við hliðina á þessum skatti hafa svo hinir söluskattarnir, almenni söluskatturinn og gamli söluskatturinn á innflutningi, vaxið og dafnað hlutfallslega. Það er auðvitað staðreynd, sem allir horfast í augu við, að söluskattarnir eru nú orðnir stærsti tekjustofn ríkissjóðs og einn af stóru þáttunum í þeim verðlagshækkunum, sem dunið hafa yfir landsmenn síðustu árin og enn er fjarri því að sjái fyrir endann á, a.m.k. ef engar gagnráðstafanir eru gerðar af hæstv. ríkisstj. Vísitala af vörum og þjónustu stendur núna í 141 eða 142 stigum miðað við 100 í marz 1959, en kaup verkamanna hefur á tímabilinu hækkað aðeins um nálægt 10%, og er þá miðað við desember 1958 eða janúar 1959, og án þess að langt sé farið út í þá sálma, þá held ég, að allir séu sammála um, að þó að allar hinar svonefndu sárabætur séu fullreiknaðar, sé mjög fjarri því, að láglaunamenn standi jafnréttir, og hitt miklu nær sanni, að hlutfallið milli verðlags og launa hafi nær aldrei verið óhagstæðara síðustu 17–18 árin. Og þetta hefur gerzt þrátt fyrir alveg einstaka árgæzku til lands og sjávar og mjög aukna framleiðslu í kjölfar hennar og þrátt fyrir batnandi verzlunarkjör út á við. Það er fyrst og fremst þetta ásband, sem hefur á síðustu 2 árum neytt launastéttirnar til þess að heyja hverja launadeiluna af annarri við atvinnurekendur og raunar við ríkisvaldið, sem hefur staðið fyrir því að skapa þetta ástand og tekið sér varðstöðu til þess að halda því óbreyttu. Samningum verkalýðsfélaganna á s.l. ári, sem a.m.k. að því er áhrærir verkamenn voru gerðir nánast eftir þeirri forskrift, sem ríkisstj. sjálf hafði gert, var svarað með verðhækkunum, sem nú hafa étið upp launahækkanirnar, og hygg ég þó, að öll kurl séu þar ekki enn til grafar komin. Þegar kjarasamningar voru gerðir í maí s.l., var vísitala framfærslukostnaðar 116 stig, en þá var samið um 9% kauphækkun hjá verkamönnum. Eftir upplýsingum, sem ég hef frá Hagstofu Íslands, er ætlað, að framfærsluvísitalan nú um þessi mánaðamót verði 127 stig og hefur þá hækkað um 11 stig, eða 9,5%, frá því að kjarasamningar voru gerðir í maímánuði í fyrra, þ.e.a.s. hækkunin á framfærsluvísitölunni er heldur meiri en sú hækkun, sem hinir lægst launuðu fengu á s.l. vori. En þar með er raunverulega ekki öll sagan sögð, því að samkv. upplýsingum hagstofunnar er tveggja stiga hækkun, m.a. vegna þyngri skatta, nú liggjandi á borðinu, og eru þá allir fyrirvarar á hafðir um það, að sú hækkun kunni að verða meiri, og ekki gert ráð fyrir neinum áhrifum af þeim kauphækkunum, sem eru nú að koma til framkvæmda.

Það má gera ráð fyrir því, að þó að sæmilega vel sé á haldið, þá valdi 5% hækkunin, sem nú er að ganga í gildi, a.m.k. 1 stigs hækkun á framfærsluvísitölunni, því að aldrei er það svo, jafnvel þó að ekki sé sérstaklega ýtt undir það, að kauphækkun gangi ekki að einhverju leyti í sig sjálfa. Og þó að aðeins sé reiknað með þeirri hækkun, sem eðlilega verður á búvöruverði, þá verður þar örugglega um í stigs hækkun að ræða vegna 5% hækkunar hjá verkafólki. Og ég hygg, að það sé alveg auðsætt, að ef sömu stefnu er fylgt í verðlagsmálum og fylgt hefur verið til þessa og hvers konar rekstri leyft að hækka svo að segja sjálfkrafa og yfirfæra kauphækkanir í verðlagið, þá muni svo fara, áður en langur tími líður og e.t.v. fyrr en nokkurn grunar, að þessi lítilfjörlega hækkun, sem nú hefur komið til og er að koma til framkvæmda, fari sömu leiðina og hinar fyrri. Það sannast því, sem raunar má vera hverjum manni augljóst, þó að launahækkanir séu nú nægilega smávægilegar, að það eitt út af fyrir sig tryggir ekki varanleik þeirra sem raunhæfra kjarabóta. Það, sem hér þarf að koma til, er auðvitað viðspyrna gegn verðhækkunum og það, að atvinnurekendum sé raunverulega gert að greiða sjálfum þær launahækkanir, sem þeir semja um.

Við valdatöku sína lýsti núv. hæstv. ríkisstjórn yfir því, að það væri stefna hennar, að það sé og eigi að vera verkefni samtaka launþega og atvinnurekenda að semja um kaup og kjör. „Þegar afkoma atvinnuveganna leyfir hækkun kaupgjalds, telur ríkisstj. hana eðlilega og sjálfsagða, en hún mun beita sér gegn því, að kaup verði hækkað og kostnaðinum við þá hækkun síðan velt yfir á herðar almennings í landinu með hækkun vöruverðs eða á annan hátt.“ Þannig segir orðrétt í þeirri frægu bók, Viðreisn.

Á árinu 1961 óx útflutningsframleiðslan um nálega 400 millj. kr., og fullvíst má telja, að á s.l. ári verði um allt að helmingi meiri aukningu að ræða, og það þrátt fyrir það að ýmis stórvirk framleiðslutæki hafi legið ónotuð mikinn hluta af því ári og þrátt fyrir vinnustöðvanir, sem hafa orðið, fyrst og fremst af völdum þeirrar kjaraskerðingarstefnu, sem fylgt hefur verið. En það hefur farið svo, að þrátt fyrir vaxandi þjóðarframleiðslu, sem nemur mörgum milljónahundruðum á ári, hefur launakjörunum raunverulega verið haldið niðri, og öllum tilraunum láglaunafólks til þess að rétta hlut sinn hefur verið svarað með verðhækkunaraðgerðum, sem jafnharðan hafa eyðilagt gerða samninga, annaðhvort með því að fella gengið eða hækka söluskatta eða með því að leyfa hömlulausar verðhækkanir. Eins og ég sagði áðan, hafa allar tilraunir okkar stjórnarandstæðinga til þess að hamla gegn þessu og m.a. til þess að fá felldan niður hinn svokallaða bráðabirgðasöluskatt, eins og gefnar voru vonir um 1960, reynzt árangurslausar, og það sama er að segja um allar ábendingar og áskoranir af hálfu verkalýðssamtakanna, sem þau hafa staðið alveg einhuga að, til þess að mæta kröfum þeirra um raunhæfar kjarabætur með því að gera ráðstafanir til lækkunar á vöruverði.

Nú á yfirstandandi þingi hefur enn komið í ljós, að hæstv. ríkisstj. er staðráðin í því að framlengja bráðabirgðasöluskattinn í heild sinni eða a.m.k. jafngildi hans í tollum. En þrátt fyrir það að þetta liggi fyrir, hef ég viljað freista þess með flutningi þessa frv. að fara millileið og milda ofur lítið skattheimtuna af nokkrum brýnum nauðsynjavörum, sem ætla má að einna hagstæðast væri fyrir láglaunafólk að lækkuðu í verði. Með þessu frv. er svo vægilega í sakirnar farið, að tekjumissir ríkissjóðs, sem af frv. leiddi, mundi aðeins nema 50–60 millj. kr. á árinu eða ekki stórum hærri upphæð en þeirri, sem ofheimt var af almenningi á s.l. ári og rann til ríkissjóðs, og ekki meira en svara mundi til um það bil fjórðungs af bráðabirgðasöluskattinum. Það er auðvitað auðsætt, að hér er ekki um að ræða neina stórfellda aðgerð í verðlækkunarátt. En samt sem áður hygg ég, að samþykkt slíks frv. mundi verða skoðuð sem nokkur vottur þess, að Alþingi vildi nú hefja nokkurt viðnám gegn þeirri verðhækkunarskriðu, sem mætt hefur á almenningi síðustu 2–3 árin. Hér verður varla um það deilt, að um auðveldlega framkvæmanlega aðgerð til nokkurrar verðlækkunar er að ræða, og þó að hún nái auðvitað skammt til að vega á móti orðnum hækkunum á verðlagi, þá verður ekki dregið í vafa, þegar litið er til fyrri yfirlýsinga verkalýðssamtakanna, að hún mundi verða metin fyllilega að verðleikum í þeim kjarasamningum verkafólks, sem nú standa yfir og vitað er að munu fara fram á næstu mánuðum, og mundi gera þá auðveldari. Og þegar öllu er á botninn hvolft, þá held ég líka, að það væri hyggilegt fyrir alla aðila og ekki sízt fyrir hæstv. ríkisstj. að láta t.d. nýorðna launahækkun til leiðréttingar fyrir hina allra lægst launuðu ekki brenna upp í verðhækkunum á næstu mánuðum, en það mundi hún áreiðanlega gera, eins og ég lýsti hér áðan, ef ekki kemur til eitthvert viðnám, hvort sem það yrði í líku formi og hér er lagt til eða með einhverjum öðrum hætti.

Herra forseti. Ég vil svo leyfa mér að leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. fjhn.