01.04.1963
Efri deild: 65. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 733 í C-deild Alþingistíðinda. (2557)
127. mál, sala Litlagerðis í Grýtubakkahreppi
Frsm. (Bjartmar Guðmundsson):
Herra forseti. Eftir l. frá 26. febr. 1948, nr. 4, er jarðeignadeild ríkisins heimilt að selja ábúendum kirkjujarðir og þjóðjarðir, ef kaupandi uppfyllir önnur skilyrði, sem nánar er tiltekið í l. Sé hins vegar um sölu til annarra en ábúanda að ræða, hefur verið litið svo á, að sérstaka lagaheimild þurfi til hverju sinni. Þetta hefur valdið því, að fjöldi frv. hefur verið fluttur hér á Alþingi um söluheimíld á ýmsum jörðum, einkanlega eyðijörðum. Í sjálfu sér eru þetta helzt til smá mál til þess að láta tvær deildir Alþingis fjalla um þau við sex umr. hverju sinni, og virðist vera þörf á sérstökum lögum um þetta efni, sem heimili jarðeignadeildinni að ganga frá slíkum málum eftir vissum reglum í samráði við sveitarstjórnir á hverjum stað. En ég ætla samt ekki að flytja frv. um það að þessu sinni, bendi aðeins á þetta.
Um frv. það, sem hér liggur fyrir, er það að segja, að jörðin Litlagerði í Grýtubakkahreppi í Suður-Þingeyjarsýslu hefur verið í eyði um nokkur ár og er mjög smá jörð. Umboðsmaður jarðeigna ríkisins telur ekkert við það að athuga, að hún sé seld, og vinningur fyrir jarðeignadeildina að losna við hana og fá eitthvert verð fyrir. Í öðru lagi hefur það mál verið borið undir landnámsstjóra, Pálma Einarsson, sem einnig leggur til, að jörðin verði seld þeim manni, sem óskar eftir að kaupa hana, með það fyrir augum, að hann muni gera á henni þær umbætur, að jörðin verði ábúðarhæf. Í þriðja lagi hefur landbn. leitað álits hreppsnefndarinnar á þessum stað, hreppsnefndar Grýtubakkahrepps, sem mælir með því, að jörðin verði seld, eins og frv. gerir ráð fyrir. Að athuguðu þessu máli og með þessi álit þriggja aðila í huga leggur landbn. til shlj., að frv. verði samþykkt.