16.04.1963
Efri deild: 73. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 759 í C-deild Alþingistíðinda. (2580)

154. mál, dragnótaveiði í fiskveiðilandhelgi

Frsm. minni hl. (Sigurvin Einarsson):

Herra forseti. Sjútvn. náði ekki samstöðu um afgreiðslu þessa máls. Meiri hl. n. leggur til, eins og hv. þm. hafa heyrt, að frv. verði samþykkt, en við, sem skipum minni hl. n., hv. 3. þm. Vestf. og ég, leggjum til, að málið verði afgreitt með rökst. dagskrá.

Eins og hv. þm. er kunnugt, er efni þessa frv. það að taka út úr gildandi lögum heimild ríkisstj. til að leyfa dragnótaveiðar í Faxaflóa. Í grg. er þetta rökstutt með því, sem segir þar, með leyfi hæstv. forseta:

„Nú er svo komið í Faxaflóa, að þar er að verða fisklaust á flestum tímum árs í stað þeirrar miklu fiskisældar, sem áður átti sér stað, meðan algert bann var lagt á hina skefjalausu rányrkju. Hættan af dragnótaveiðum í jafnþýðingarmikilli uppeldisstöð og Faxaflói er felst ekki fyrst og fremst í veiði nytjafiska, heldur hinu gegndarlausa ungviðisdrápi, sem þessum veiðum fylgir.“

Eins og fram hefur komið, hefur þetta mál verið sent bæði Fiskifélagi Íslands og atvinnudeild háskólans, fiskideildinni, til umsagnar. Og þessar stofnanir eru ekki alveg sammála meiri hl. n. í þessu máli. Álitsgerðin frá Jóni Jónssyni fiskifræðingi er mjög ýtarleg, og bendir hann á ýmislegt, sem sýnir það, að ekkert hafi enn þá komið fram um það, að hætta sé á ferðum hvað snertir fiskveiðar í Faxaflóa þrátt fyrir dragnótina. Það er að vísu sagt frá því, sem hv. meiri hl. n. bendir á, að 800 fiskar hafi veiðzt í togferð 1959, en 146 á sömu slóðum þremur árum seinna, 1962, og þetta er alveg rétt hjá hv. frsm. meiri hl. n. En það eru líka í þessari skýrslu aðrar tölur um þessa hluti. Þær eru t.d. á þá leið, að 1954 veiddust 1350 fiskar á sömu slóðum og veiddust 350 1958, og ekki var nein dragnót komin til hvorugt þetta ár. Þetta sýnir, að það má ekki skella allri sökinni á dragnótaveiðarnar, þó að misjafnlega veiðist í þessum rannsóknarferðum, enda bendir fiskifræðingurinn á, að það kemur margt annað til og þá fyrst og fremst fiskigengdirnar, sem eru geysilega misjafnar eftir því, hversu sterkir árgangar koma á miðin, eins og þessar tölur sýna frá 1954 og 1958, því að engri dragnót verður kennt um niðurstöðurnar seinna árið.

Hv. frsm. meiri hl. nefndi það, sem segir í grg. Jóns Jónssonar fiskifræðings, að vafalaust séu minnkandi aflabrögð að einhverju leyti vegna dragnótaveiða. En hann segir, að það bendi ekkert til þess og engin vitneskja sé fyrir um það, að þetta skapi neina hættu.

Annars er það í stuttu máli sagt um þessar dragnótaveiðar, að ágreiningurinn er ákaflega mikill á báða bóga. Menn skiptast í tvær fylkingar um þetta mál, og menn eru ákaflega sannfærðir í báðum þessum hópum um réttmæti sinna skoðana. Hvernig eigum við þá, leikmenn í þessum efnum, að fara að? Ég sé ekki, að það sé hægt að finna að því, þó að við viljum byggja á álitsgerðum fiskifræðinganna. Lögin, sem sett voru um þessi efni 1960, byggjast á því, að þessar veiðar séu því aðeins leyfðar, að fiskifræðingarnir mæli með því, að leyfin séu veitt. Í 5. gr. I. segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Fiskideild atvinnudeildar háskólans skal fylgjast stöðugt með veiðum þeim, er um ræðir í lögum þessum, og gera rn. þegar viðvart, ef d. telur hættu á, að veiðarnar gangi of nærri stofni nytjafiska eða spilli á einhvern hátt framtíð íslenzkra fiskveiða. Að fengnum samhljóða till. fiskideildar atvinnudeildar háskólans og Fiskifélags Íslands er rn. skylt að takmarka veiðiskipafjölda á ákveðnum, tilteknum veiðisvæðum. Einnig skal rn. samkv. till. sömu aðila banna dragnótaveiðar á tilteknum svæðum eða í allri fiskveiðilandhelginni hluta af hinu leyfða veiðitímabili eða alveg fyrir eitt ár í senn, ef líklegt þykir, að fiskistofnar séu í hættu fyrir ofveiði“

Ríkisstj. hefur ekkert vald til þess að veita leyfin, nema þessir sérfræðingar mæli með því. Lögin eru því algerlega byggð á vísindalegu eftirliti hvað þetta snertir.

Í umsögnum beggja þessara stofnana, Fiskifélags Íslands og atvinnudeildar háskólans, kemur það fram, að þessar stofnanir telja ekki ástæðu til að banna dragnótaveiðar í Faxaflóa að svo komnu máli. Öll stjórn Fiskifélags Íslands er þessarar skoðunar, að undanteknum einum manni, Pétri Ottesen. En frá atvinnudeild háskólans, fiskideildinni, kemur það álit, sem ég gat hér um, en er alllangt.

Af því, sem að framan getur, er ljóst, að enn þá liggja ekki fyrir neinar niðurstöður fiskifræðilegs eðlis, er bendi til þess, að um ofveiði sé að ræða á þorski, ýsu og skarkola af völdum dragnótaveiða í Faxaflóa. Þannig eru meiri hl. stjórnar Fiskifélagsins og fiskifræðingur atvinnudeildar háskólans sammála um það, að enn þá hafi ekkert komið fram, sem gefi ástæðu til þess að banna þessar veiðar.

Nú ætla ég ekki að fullyrða neitt um það, hvor aðilinn hefur réttara fyrir sér í þessu máli. Það liggur fyrir, að hugboð manna skiptast í tvö horn um áhrif af dragnótaveiðum. Og við, sem skipum minni hl. n., erum þeirrar skoðunar, að þar sem svona greinir mikið á milli, þá beri Alþingi fyrst og fremst að taka til greina álit fiskifræðinganna. Við beygjum okkur fyrir þessari staðreynd, enda eru lögin um heimild til að veita veiðileyfin á þessu byggð, að fiskifræðingarnir segi álit sitt. Við viljum fara eftir áliti þeirra, en ekki eftir hugboðum manna, hver sem þau eru.

Nú er ekki því að neita, að það er alveg rétt hjá hv. frsm. meiri hl., að margir sjómenn eru þessarar skoðunar, sem hann heldur fram, að dragnótaveiðarnar séu hættulegar. En það er bara fjöldi annarra fiskimanna, sem er á gagnstæðri skoðun. Hvernig á þá að skera úr? Við sjáum ekki aðra leið en að fara eftir þeirri vísindalegu þekkingu, sem er á að skipa í þessum málum.

Þá vil ég benda hv. frsm. meiri hl. n. á það, að vilji sjómenn og útgerðarmenn yfirleitt fá friðaðan Faxaflóa, þá þarf enga lagabreytingu til þess, alls enga. Í 1. gr. l. segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Ef sveitarstjórnir, samtök útvegsmanna, sjómanna eða verkamanna leiða rök að því, að hagkvæmara sé að stunda aðrar veiðar en dragnótaveiðar á tilteknum hlutum veiðisvæðis, og bera fram óskir um, að þeir hlutar svæðanna verði friðaðir sérstaklega fyrir dragnótaveiði, þá skal ráðh. í samráði við Fiskifélag Íslands verða við þeirri ósk.“

Það þarf ekkert til Alþingis að koma til að lesa þetta mál. Ef þessir aðilar eru sömu skoðunar og hv. meiri hl. sjútvn., þá geta þeir fengið friðaðan Faxaflóa, hvað sem verður um þetta frv. En sannleikurinn er sá, að slík álitsgerð fæst ekki, af því að menn greinir svo mjög á um þetta, líka innan sjómannastéttarinnar, meðal útgerðarmanna og alls staðar. Hv. frsm. nefndi hér áðan álitsgerð, sem borizt hefði frá Farmanna- og fiskimannasambandinu, og hún er alveg ótvíræð skoðun þeirra manna, sem að þeirri álitsgerð standa. En af hverju kemur hann ekki með neina álitsgerð frá Landssambandi ísl. útvegsmanna? Maður skyldi nú halda, að þau stéttarsamtök ættu þó fyrst og fremst að segja álit sitt um þetta. En það liggur ekki stafur fyrir frá þeirri stofnun. Af hverju ekki? Af því að þeir eru á öndverðum meiði hver við annan um það, hvað eigi að gera í þessu máli.

Þá hefur hv. 2. þm. Vestf. flutt brtt. við þetta frv. eftir ósk manna vestur á Patreksfirði. Mér er kunnugt um afstöðu þeirra til málsins. Þar skiptast menn eins og annars staðar í tvo hópa, aðrir með dragnótinni, hinir eru á móti. Og hann flytur sína till. í samræmi við óskir þessara manna, sem eru á móti dragnótinni þar. Það er til annar hópur á Patreksfirði, sem er á þveröfugri skoðun. Ég býst við, að það geti orðið mörgum þm. erfitt að skera úr svona ágreiningi. Við tökum því þá leiðina, sem skipum minni hl. n., að fara hér eftir álitsgerð fiskifræðinganna, og í samræmi við þeirra álit er það, sem við flytjum hina rökst. dagskrá á þskj. 458, sem hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Með því að ekki liggja fyrir neinar niðurstöður fiskifræðilegs eðlis, er bendi til ofveiði í Faxaflóa, þykir deildinni ekki ástæða til að svo komnu máli að samþykkja frv. þetta og tekur fyrir næsta mál á dagskrá.“

Við segjum: „að svo komnu máli“. Það þýðir það, að hvenær sem liggja fyrir álitsgerðir um, að hætta kunni að stafa af þessum veiðum, þá mundum við samþykkja slíka ráðstöfun sem farið er fram á í þessu frv. Og með þessari dagskrá, sem við flytjum, teljum við okkur vera í fyllsta samræmi við gildandi lög og álit þessara tveggja stofnana, sem hér hafa komið fram, Fiskifélags Íslands og fiskideildar atvinnudeildar háskólans.