08.04.1963
Efri deild: 69. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 773 í C-deild Alþingistíðinda. (2597)

167. mál, varðskip

Frsm. (Jón Árnason):

Herra forseti. Eins og fram kemur í nál. sjútvn. um mál þetta, mælir n. með samþykkt frv.

Um efni þessa frv. get ég að þessu sinni verið fáorður, en vísa til þess, sem ég sagði í framsöguræðu fyrir málinu við 1. umr. hér í þessari hv. d.

Sú breyting, sem hér er um að ræða, er í því fólgin, að þegar íslenzkt varðskip veitir íslenzku fiskiskipi aðstoð eða hjálp úr háska, skuli greiðsla fyrir það fara eftir reglum, sem dómsmrh. setur. Við ákvörðun gjaldsins skal miðað við útgerðarkostnað varðskipsins og tíma þann, er hjálpin tók. Teljist háski sá, sem skipið er í, stórkostlegur, svo sem eldsvoði eða strand, má þó krefjast björgunarlauna eftir reglum siglingalaganna. Það, sem hér um ræðir, er því aðeins að samræma þær greiðslur, sem varðskip ríkisins taka fyrir aðstoð, sem þau veita íslenzkum fiskibátum, þegar um minni háttar óhöpp eða bilanir er að ræða, svo að draga þarf bátinn að landi. Samkv. ákvæðum 2. mgr. 22. gr. l. nr. 61 frá 1947, um vátryggingarfélög fyrir fiskiskip, er ákveðið, að greiðsla fyrir hjálp, er skip, sem gerð eru út af ríkissjóði eða ríkisstofnunum, veita skipum, sem tryggð eru samkv. þeim lögum eða hjá Samábyrgð Íslands á fiskiskipum, skuli ekki fara eftir venjulegum björgunarreglum, heldur ákveðin af stjórn Samábyrgðarinnar, og skal greiðslan miðast við fjártjón og tilkostnað, sem hjálpin hefur bakað þeim, sem hana veitti. Eins og nú er háttað, eru öll eða flest fiskiskip undir 100 rúmlestum að stærð tryggð hjá Samábyrgðinni, en flest hin stærri fiskiskip, sem eru yfir 100 rúmlestir, munu hins vegar vera tryggð hjá öðrum tryggingafélögum. En þau njóta ekki hagsbóta af þessum reglum, og hefur það leitt til þess, að tryggingar þessar hafa orðið nokkru dýrari en ella. Auk þess sem ríkissjóður gerir út nokkur varðskip, sem búin eru ýmsum björgunartækjum, gerir hann einnig út nokkrar björgunarskútur eða björgunarskip, en þau skip hafa að verulegu leyti verið byggð fyrir almennt samskotafé. Þessi skip voru fyrst og fremst ætluð til öryggiseftirlits með fiskibátaflotanum, þó að þau hafi einnig verið notuð til varðgæzlu landhelginnar. Þegar á þetta er litið, virðist ekki óeðlilegt, að sama gildi um allan fiskiskipaflota landsmanna og hann verði ekki krafinn um björgunarlaun samkv. siglingalögunum, þegar um minni háttar bilanir er að ræða. Hitt er svo annað mál, að ef um stórkostlega hættu er að ræða, svo sem eldsvoða eða strand, virðist ekki rétt eða ástæða til að víkja frá reglum þeim, sem ákveðnar eru í siglingalögum um björgun skipa og bjarglaun.

Ég vil að lokum geta þess, að það var einróma álit nefndarmanna, að nauðsynlegt væri að endurskoða og hækka nokkuð þann taxta, sem varðskipin taka fyrir þá aðstoð, sem þau veita fiskibátaflotanum, þegar bátur er dreginn að landi. Þá mætti enn fremur benda á það, að með því að vátryggingarfélögin samþykktu sanngjarna þóknun til þeirra fiskibáta, sem veitu slíka aðstoð sem hér er rætt um, mætti telja það fullvist, að bætta skipan þessara mála mundi af því leiða. Það, sem hér er því um að ræða, er, að allur fiskibátaflotinn sitji við sama borð um aðstoð björgunarskútanna, sem byggðar eru að miklu leyti fyrir samskotafé, og þess vegna virðist ekki eðlilegt, að rekstur þeirra sé hafður þannig, að hann mismuni fiskimönnunum eða útgerðarmönnunum, heldur eigi eitt og það sama að gilda, hvort sem skipið er 99 eða 102 tonn. Hins vegar er það þá líka, að ef um það væri hugsað, þá mætti náttúrlega segja, að útgerðarmenn gætu notað þetta ákvæði l. með því að vátryggja öll skipin hjá Samábyrgðinni, hvort sem þau eru undir eða yfir 100 smálestir, og þannig væri óþarfi að vera að flytja þessar breytingar við löggjöfina. Það er nú svo, að það er frjálst að hafa hér vátryggingar á skipum í landinu, og það virðist eðlilegri aðstaða vátryggingarfélaganna, að þau keppi á þeim grundvelli, sem skapar þeim eðlilega samkeppni, og þess vegna er lagt til, að þessi breyting verði gerð á lögunum.