08.04.1963
Efri deild: 69. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 774 í C-deild Alþingistíðinda. (2598)
167. mál, varðskip
Sigurvin Einarsson:
Herra forseti. Ég hef skrifað undir nál. með fyrirvara og tel rétt, að ég geri grein fyrir því, í hverju sá fyrirvari er fólginn.
Það kom til mín einn roskinn og reyndur skipstjóri úr félagssamtökum skipstjóra og yfirmanna af skipunum og ræddi við mig um þetta mál. Hann lýsti óánægju þeirra yfir þessu frv. og að þau félagssamtök mundu andmæla því og færa fram sín sjónarmið gegn frv. Jafnframt skýrði hann mér frá því, að forstjóri landhelgisgæzlunnar mundi verða sömu skoðunar á málinu. En eins og menn vita, verða þeir fyrir nokkurri tekjurýrnun, skipshafnir og yfirmenn á varðskipum, sem veita aðstoð biluðum skipum. Nú sendi n. þetta frv. til landhelgisgæzlunnar til umsagnar, og ég taldi æskilegt, að fyrir n. lægju álitsgerðir frá félagssamtökum skipstjóra og yfirmanna og svo frá landhelgisgæzlunni, og þess vegna vildi ég ekki binda mig svo við endanlega afgreiðslu á þessu máli, að ég sæi ekki þessa röksemdafærslu þeirra, þar sem þarna er óneitanlega annar aðili hvað hagsmuni snertir. En svo fór, að þessar álitsgerðir komu ekki, hvorki frá landhelgisgæzlunni, sem fékk frv. til umsagnar, né heldur frá félagssamtökum skipstjóra, og þar sem svo er, en um þetta spurði ég hv. formann n. síðast í dag, að engar slíkar álitsgerðir hafa komið, þá læt ég málið kyrrt liggja. Þar sem þeir, sem þarna eiga sérstaklega hagsmuna að gæta, hafa ekki sent n. eða Alþingi neina álitsgerð um málið, hef ég því ekkert við þetta að athuga og mun greiða þessu frv. atkvæði.