07.11.1962
Sameinað þing: 9. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 2 í D-deild Alþingistíðinda. (2619)
28. mál, hagfræðilegar leiðbeiningar fyrir bændur
Flm. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Ég hygg, að allir þeir, sem rækilega kynna sér búrekstur, komist að raun um, að það er næsta varasamt, að annar atvinnurekstur sé fjölþættari og margbrotnari í eðli sínu, þótt margur annar atvinnurekstur sé auðvitað miklu stærri í sniðum. Það eru svo ótalmörg atriði, sem þarf að íhuga í sambandi við búrekstur og gera sér grein fyrir, og svo margvíslegar aðstæður, sem þurfa að vera til staðar, til þess að búreksturinn geti blessazt svo sem nauðsynlegt er. Þetta veldur því, að það er mikil nauðsyn að halda uppi margvíslegri leiðbeiningastarfsemi af opinberri hálfu fyrir bændur landsins, enda hefur slíkt verið gert á mörgum sviðum. Ég skal ekki rekja starfsemi þeirra stofnana að neinu ráði, það þekkja allir hv. þm. Það er haldið uppi fjölþættri leiðbeiningar- og rannsóknarstarfsemi, bæði á vegum heildarsamtaka landbúnaðarins og einnig stofnana, sem eingöngu eru reknar af ríkissjóði, og er þó engum efa bundið, að þrátt fyrir starfsemi allra þessara stofnana er enn þá mjög margt ógert í þessum efnum, bæði í sambandi við rannsóknir á jarðvegi og ræktun, sem kannske er það mikilvægasta og brýnasta, sem úrlausnar bíður, til þess að tryggja betur öryggi búrekstrarins, og jafnframt einnig margt, sem þarf að rannsaka betur í sambandi við búféð sjálft. En þessar rannsóknir allar, sem hér hefur verið haldið uppi, eru að segja má tæknilegs eðlis. Þessum rannsóknum er að sjálfsögðu nauðsynlegt að halda áfram, þeim sem þegar eru í gangi, og einnig hefja rannsóknir á nýjum sviðum.
Það, sem till. sú, sem ég hef leyft mér að flytja hér á þskj. 28, um hagfræðilegar leiðbeiningar fyrir bændur, fyrst og fremst beinist að, er, að tekið verði til íhugunar og síðar til framkvæmdar, ef rétt þykir, að hefja nýja leiðbeiningastarfsemi fyrir landbúnaðinn, sem til þessa hefur lítið eða ekkert verið sinnt. En það er að leiðbeina bændum um ýmsa hagræna þætti búrekstrarins, hvernig heppilegt sé, að búin séu samsett, hvernig hagkvæmast sé, að stærð þeirra sé háttað, hvort hagkvæmt er að hafa samsett bú eða aðeins ákveðna eina tegund búrekstrar. Hér koma ótalmörg atriði til greina, bæði lega jarðanna og margvíslegar aðstæður aðrar, sem verður að athuga hverju sinni eftir því, hvaða jörð og hvaða bóndi á hlut að máli.
Í þessu sambandi þarf að sjálfsögðu að framkvæma margvíslegar athuganir og gagnasöfnun og skýrslugerð til þess að leggja grundvöll að slíkri starfsemi. Það eru til ýmsar upplýsingar um þetta efni, og m.a. komu fram margar mjög fróðlegar upplýsingar í sambandi við afkomu bænda, þegar var verið að rannsaka fjárhag bænda í sambandi við breytingu á lausaskuldum þeirra í föst lán, sem unnið hefur verið að á þessu og síðasta ári. Og einmitt sú athugun leiðir glöggt í ljós eða er manni hvetjandi til þess að leggja til, að áfram verði haldið á þeirri braut að afla gagna á þessu sviði og reyna að leggja þannig grundvöll að því, að bændur, bæði þeir, sem nú þegar reka bú, og þá ekki síður þeir, sem eru að hefja búskap, geti átt aðgang að einhverjum aðila, sem getur verið þeim til ráðuneytis og leiðbeiningar um hina ýmsu þætti búrekstrarins, miðað við aðstæður, sem landbúnaðurinn á við að búa á hverjum tíma.
Það er öllum kunnugt, að bændur hafa á, undanförnum árum lagt í geysimiklar framkvæmdir. Og það er vafasamt og raunar sennilega útilokað, að nokkur önnur atvinnustétt í þjóðfélaginu hafi hlutfallslega, miðað við getu sína, lagt jafnmikið af mörkum til uppbyggingar síns atvinnurekstrar og bændur. En þó að hér hafi margt og merkilegt verið unnið, hefur þetta einnig hættur í för með sér. Og ein meginhættan í þessu sambandi er sú, að ekki hafi þess ætíð verið gætt sem skyldi, að haga framkvæmdum þannig, að það væri öruggt, að viðkomandi bóndi gæti staðið undir þeim kostnaði, sem af framkvæmdunum leiddi. þ.e.a.s. að búrekstur hans og arðgæði búrekstrarins ykjust að sama skapi og framkvæmdirnar. Og það er nokkur ástæða til að óttast, að ýmsir bændur séu orðnir svo skuldum hlaðnir vegna framkvæmda sinna, að það þurfi að taka til allrækilegrar íhugunar, hvernig hægt sé að koma þeirra málum þannig fyrir, að þeir geti örugglega bjargazt út úr þeim þrengingum, sem þeir hafa lent í af þessum sökum, því að það liggur auðvitað í augum uppi, að það er ekki einfalt mál að leggja út í fjárfestingarframkvæmdir, hvorki í búrekstri né á öðrum sviðum, og það verður að sjálfsögðu að gera sér grein fyrir því, að það sé þá möguleiki, að búreksturinn geti staðið undir þessum framkvæmdum. Það er áreiðanlega ekki fremur hægt að saka bændur en aðrar þjóðfélagsstéttir um að hafa kannske siglt nokkuð háan byr í þessu efni. Því miður verður að játa, að fjöldi þjóðfélagsborgara hefur á undanförnum árum og áratugum lagt út í framkvæmdir, sem raunverulega hefur verið sáralítill fjárhagslegur grundvöllur undir. Og við skulum játa það, enda vitum við það öll, að í fjöldamörgum tilfellum hefur verið út í framkvæmdir ráðizt eingöngu í trausti þess, að vaxandi verðbólga og verðrýrnun peninga mundi standa undir framkvæmdum. Þetta er sú staðreynd, sem við blasir. Og það er auðvitað ekki eingöngu hjá bændum, heldur hjá ótalmörgum þjóðfélagsborgurum, sem er ótvírætt að rísa að sjálfsögðu margvísleg vandamál, ef stöðvun yrði á slíkri verðbólguþróun, sem verið hefur hér um langt árabil og hefur leitt til þess, að menn hafa getað risið undir framkvæmdum, sem þeir, þegar þeir út í þær réðust, höfðu í rauninni enga möguleika til að standa straum af, ef verðgildi peninga hefði á næstu árum verið óbreytt.
Hjá bændum landsins hefur orðið mjög mikil breyting á undanförnum árum og áratugum í öllum þeirra búrekstri. Véltæknin hefur í sívaxandi mæli haldið þar innreið sína eins og í öðrum atvinnugreinum. En einnig véltækninni fylgja vandamál. Það er mikið athugunarefni hverju sinni, hvort bóndinn á að kaupa sér tiltekna vél eða ekki, og það verður að sjálfsögðu að gera sér grein fyrir því, hvaða áhrif hún hefur á hans afkomumöguleika og hvort e.t.v. er ráðizt í meiri vélakaup en búrekstur hans leyfir, eins og hann þá er, hvort ekki þarf þá um leið að gera ráðstafanir til þess að gera einhverjar breytingar á búrekstrinum.
Með þessum hugleiðingum mínum læt ég mér ekki detta í hug, að ég geti bent bændum á, betur en þeir þekkja sjálfir, hvernig þeir skuli bjarga sínum málum í sambandi við sinn búrekstur, enda hef ég ekki hugsað mér með þessum orðum að gerast neinn dómari yfir þeim að þessu leyti. Hitt er meginatriði málsins, að það verði rækilega athugað og í samráði við helztu samtök og stofnanir landbúnaðarins, hvort hér sé ekki verkefni, sem óumflýjanlegt sé að verði sinnt nú á næstu árum. Ég á ekki við með því, eins og líka er bent á í niðurlagi grg., að farið verði að setja upp nýja stofnun eða nýtt bákn á því sviði til þess að vinna að þessum verkefnum, heldur að athugað verði með samráði allra aðila„ sem að þessum landbúnaðarmátum vinna, hvort ekki sé hægt á þeirra vegum einhverra eða fleiri saman að koma upp slíkri starfsemi, þannig að það verði vissir aðilar, sem safni þeim upplýsingum, sem um þetta þarf, og síðan geti bændur átt aðgang að slíkum leiðbeiningum og fengið þar ráð í sambandi við þær hugleiðingar, sem þeir hafa uppi um tilhögun síns búrekstrar, hvernig þeir geti fengið bú sín til að skila sem mestum arði miðað við tilkostnað.
Þetta er sú hugsun, sem að baki þessari till. minni liggur. Ég sé ekki ástæðu til þess að orðlengja frekar um málið. Till. er í eðli sínu mjög einföld og ætti ekki á þessu stigi að þurfa fjölþættra athugana við eða bollalegginga. Og ég vildi leyfa mér, herra forseti, að leggja til, að umr. um hana yrði að lokum frestað og till. vísað til hv. allshn. til nánari athugunar.