13.03.1963
Sameinað þing: 38. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 15 í D-deild Alþingistíðinda. (2668)

39. mál, endurskoðun skiptalaganna

Frsm. (Jónas G. Rafnar):

Herra forseti. Eins og fram kemur í áliti allshn. á þskj. 305, leitaði n. umsagnar lagadeildar háskólans um till. Mælir lagadeildin eindregið með því, að till, verði samþ., en leggur til, að endurskoðunin verði einnig látin ná til l. um gjaldþrotaskipti, þar sem sú löggjöf sé nú mjög í brotum og að ýmsu gölluð og úrelt. Allshn. fellst á þessa skoðun lagadeildar og leggur því til, að till. verði samþ. með þeirri breytingu, að endurskoðunin á l. um skipti á dánarbúum og félagsbúum verði einnig látin ná. til 1. nr. 25 frá 14. júní 1925, um gjaldþrotaskipti.