06.04.1963
Sameinað þing: 46. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 27 í D-deild Alþingistíðinda. (2707)

239. mál, úthlutun listamannalauna 1963

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Í till. þessari er lagt til, að Alþingi kjósi 5 manna n, til að skipta fjárveitingu í fjárlögum fyrir 1963 til skálda, rithöfunda og listamanna. Er hér gert ráð fyrir sama hætti á úthlutun fjár til skálda, rithöfunda og listamanna og undanfarin ár. Á undanförnum þingum, þegar dregur að þinglokum, hefur verið kosin sérstök n, til að annast þessa úthlutun. Áður var um langt skeið ákvæði um nefndarkosninguna í sjálfum fjárlögunum. Það hefur ekki verið nokkur undanfarin ár og því jafnan verið samþ. sérstök þál. um kosningu n., sem þetta verkefni er falið.

Í þessu sambandi tel ég rétt að láta þess getið, að á undanförnum árum hafa oft verið uppi tillögur um breytta skipan á úthlutun listamannalaunanna. í þau tæp 7 ár, sem ég hef gegnt störfum menntmrh., hef ég gert nokkrar tilraunir til að fá samkomulag um setningu laga um úthlutun listamannalauna, þar sem annars vegar yrði ákveðin flokkaskipun launanna og hins vegar settar reglur um nefndarskipun til lengri tíma en nú á sér atað, en um langt skeið undanfarið hefur úthlutunarnefnd aðeins verið kosin til eins árs. Ég hef jafnan lagt á það áherzlu, að víðtækt samkomulag næðist um setningu slíkra laga innan samtaka listamannanna sjálfra, en ýmist hefur ekki orðið samkomulag á þeim vettvangi eða það hefur ekki náðst samkomulag innan Alþingis um setningu slíkra laga. Þess vegna eru þau ekki til enn, og þess vegna verður enn að hafa þann hátt á, að Alþingi kjósi sjálft slíka úthlutunarnefnd.

Haustið 1956 skipaði menntmrn. allstóra n., sem í áttu sæti fulltrúar frá helztu listgreinum, til að gera till. um fastari skipun á úthlutun listamannalauna. Innan þeirrar n. var alger samstaða um ákveðnar till., en hins vegar náðist ekki samkomulag um þær till. í stuðningsflokkum þáv. ríkisstj., og varð því ekkert af lagasetningu. Aðrar tilraunir hafa einnig verið gerðar af hálfu menntmrn. til að skapa þá samstöðu, sem teljast verður eðlileg forsenda þess, að lög séu sett um þessi efni, en það hefur ekki tekizt enn.

Ég tel rétt að láta koma fram hér, að nú á þeim vetri, sem er að líða, hafa farið fram viðræður milli menntmrn. og Bandalags íslenzkra listamanna um þetta mál, og hafa ákveðnar till. verið til umr. um lagasetningu um þetta efni. Þessum viðræðum er hins vegar ekki lokið enn, og þeim getur ekki orðið lokið, áður en þetta þing lýkur störfum. Þess vegna tel ég ekki um annað að gera en hafa enn þann hátt á, sem hefur verið hafður undanfarin ár. M.ö.o.: það er ekki orðið enn um að ræða fulla samstöðu milli listamannanna sjálfra innan Bandalags íslenzkra listamanna um það, hvaða skipunar þeir sjálfir óska á þessum málum. En meðan ekki liggur fyrir ákveðin ósk af hálfu listamannanna sjálfra, sem meginþorri þeirra stendur að baki, tel ég ekki tímabært, að Alþingi taki afstöðu til lagasetningar um málið.

Hins vegar er það skoðun mín, að með auknum fjárveitingum til listamannalauna aukist nauðsyn á því að koma fastari skipan á þessi mál, en fjárveitingar til listamannalauna hafa verið stórauknar á allra síðustu árum. Arið 1950 nam fjárveiting Alþingis til listamannalauna 519 þús. kr., 10 árum síðar, árið 1960, nam fjárveitingin til listamannalauna 1 millj. 260 þús. En á yfirstandandi ári er gert ráð fyrir, að fjárveitingin nemi 2134456 krónum. Upphæðin, sem Alþingi veitir listamönnum í ár, er m.ö.o. fjórföld sú upphæð, sem Alþingi veitti listamönnum árið 1950, og næstum tvöföld sú upphæð. sem Alþingi veitti listamönnum árið 1960. Fjárveitingin í ár hækkar um 580 þús. kr. miðað við það, sem var í fyrra.

Þegar er um svo mikið fé að ræða sem þessi tala um fjárveitingu til listamanna í ár ber vitni um, tel ég aukna nauðsyn vera á því, að fastari skipan sé komið á þessi mál en nú á sér stað, en vil þó endurtaka, að ég tel ekki tímabært að setja lög um þessi efni, fyrr en sú lagasetning getur orðið í samráði og með víðtæku samkomulagi við samtök listamannanna sjálfra. Þegar um slíka samstöðu listamannanna sjálfra er að ræða, tel ég, að Alþingi eigi að taka tillit til þeirra óska, sem fram koma frá samtökum listamannanna, en þangað til svo er, tel ég ekki um annað að ræða en halda áfram þeirri skipun, sem verið hefur undanfarið, og þess vegna er þessi till. fram borin um kosningu 5 manna n. á þessu ári til að skipta 2.1 millj. kr., sem Alþingi hefur þegar veitt til listamannalauna.

Undanfarið mun hliðstæðri till. og þessari ekki hafa verið vísað til n., hæstv. forseti, enda er efni till. svo einfalt, að það á í sjálfu sér að vera óþarfi, að nefnd fjalli um það. Ég geri því ekki um það till., að málinu sé vísað til n. Ef hinu háa Alþingi sýnist svo að afgreiða till. nú, mætti kjósa úthlutunarnefndina, áður en þing lýkur störfum fyrir páska, og gæti hún þá vitanlega starfað um páskana, þannig að úthlutun yrði lokið fljótlega eftir hátíðirnar.