18.12.1962
Efri deild: 32. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 311 í B-deild Alþingistíðinda. (271)

121. mál, ráðstafanir vegna ákvörðunar um nýtt gengi

Sjútvmrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Þegar l. nr. 28 1962, um ráðstafanir vegna ákvörðunar Seðlabanka Íslands um nýtt gengi íslenzkrar krónu, voru sett, var gert ráð fyrir því, að útflutningsgjaldinu, sem lagt var á útfluttar sjávarafurðir, skyldi að meginhluta skipt á milli 3 aðila, þ.e.a.s. milli fiskveiðasjóðs, stofnlánadeildar sjávarútvegsins og til greiðslu vátryggingariðgjalda fyrir fiskiskip. Þó var sú undanþága gerð, að árin 1961 og 1962 var gert ráð fyrir því, að stofnlánadeildarhlutinn rynni til greiðslu iðgjalda af vátryggingu fiskiskipa. Þá var ráð fyrir því gert, að nýrri skipan yrði komið á um tryggingar skipanna og sú nýja skipan gæti komið til framkvæmda fyrir árslok 1962.

Nú voru að vísu þessi frv., sem gert er ráð fyrir að semja um tryggingariðgjöld fiskiskipa, tilbúin frá sjútvmrn. fyrir þennan tíma. En það hefur ekki tekizt að ná um þau enn samkomulagi við L.Í.Ú., og hafa frv. því legið hjá forráðamönnum þess síðan seinni hluta þess árs. Ég ætla, að þeir hafi fengið þau til umsagnar í septembermánuði, en þeir gera ekki ráð fyrir því, að þeir geti afgreitt þau frá sér fyrr en á næsta ári, þó væntanlega nokkuð snemma. En það er ekki talið eðlilegt né rétt að fara út í þessa löggjöf, nema samkomulag náist við landssambandið. Það hefur þess vegna borizt ósk frá því um það, að sami háttur verði látinn gilda fyrir árið 1963 og fyrir 1961 og 1962, að stofnlánadeildarhluti útflutningsgjaldsins verði næsta ár, 1963, einnig látinn renna til iðgjaldagreiðslnanna.

Í frv. felst ekkert annað en það, að þau ákvæði, sem giltu fyrir 1961 og 1962, verði einnig látin gilda fyrir 1963.

Mér þykir leitt, að þetta frv. er svona seint fram komið, þannig að lítill tími er til afgreiðslu, þar til þingi verður frestað. En ég vildi leggja á það áherzlu, ef mögulegt væri, að það yrði hægt að koma því fram, áður en þingfrestun á sér stað. í hv. Nd. var frv. til umr. nú fyrir stuttu og var þar samþ. nefndarlaust við 3 umr. og afgreitt til þessarar hv. deildar. Ég vildi því leyfa mér að fara þess á leit, að frv. mætti fara til 2. umr. nú og það mætti ganga áfram nefndarlaust. Það er svo augljóst, að það á ekki að þurfa nefndarmeðhöndlun, og er ekki að efni til annað en þetta, sem ég hef lýst. Og ég vænti, að hv. þdm. geti hér á það fallizt eins og í hv. Nd.