10.04.1963
Sameinað þing: 47. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í D-deild Alþingistíðinda. (2724)

29. mál, rannsókn á orsökum sjóslysa

Frsm. (Geir Gunnarsson):

Herra forseti. Allshn. hefur haft til athugunar till. til þál. um opinbera rannsókn á sjóslysum, sem orðið hafa við atrendur íslands undanfarin 2–3 ár. Till. þessa fluttu þeir hv. 11. landsk. þm., Gunnar Jóhannsson, og hv. 8. þm. Sunnl., Karl Guðjónsson, í upphafi þings. Efni till. er, að sérstakri nefnd verði falið að rannsaka, eftir því sem frekast er unnt, orsakir hinna mörgu skipskaða, sem orðið hafa við strendur landsina undanfarin 2–3 ár, og settar verði, ef ástæða þykir til að rannsókn lokinni, nýjar reglur um sjóhæfni íslenzkra fiskiskipa, um allar breytingar á skipum til stækkunar og um staðsetningu veiðitækja um borð.

Allshn. sendi till. til umsagnar Slysavarnafélags Íslands, Alþýðusambands Íslands, Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, Landssambands ísl. útvegsmanna, Sjómannasambands Íslands og skipaskoðunarstjóra ríkisins. Umsagnir bárust frá Slysavarnafélaginu, Alþýðusambandinu, Farmanna- og fiskimannasambandinu, sem mæltu eindregið með því, að till. yrði samþ., og grg. um mál það, sem till. fjallar um, barst frá skipaskoðunarstjóra ríkisins. Í grg. sinni rekur skipaskoðunarstjóri bréfaskipti sín við Farmanna- og fiskimannasamband Íslands, Alþýðusamband Íslands, og L.Í.Ú. þar sem hann leitaði álits þessara aðila um í fyrsta lagi, að settar verði reglur um, að krafizt verði stöðugleikaútreikninga á öllum íslenzkum fiskiskipum og gögn þar um geymd í skipunum til afnota fyrir skipstjórnarmenn. Í öðru lagi, að settar verði reglur um hleðsluborð fiskiskipa, einnig er þau stunda fiskveiðar, þar með taldar síldveiðar, en nú gilda slíkar reglur varðandi fiskiskip einungis, þegar þau sigla með aflann til útlanda. Og í þriðja lagi, að kennsla fiskiskipstjóra verði aukin, svo að þeim komi að gagni útreikningar um stöðugleika skipa. Af bréfaskiptum þessum er tjóst, að skipaskoðunarstjóri telur meiri vandkvæði vera á að ætla nýjar og strangari reglur um þessi efni en þeir aðilar, sem hann leitar álits hjá, og á ég þar einkum við Farmanna- og fiskimannasambandið. Þá getur skipaskoðunarstjóri þess, að í samræmi við 7. ályktun alþjóðasamþykktar um öryggi mannslífa á hafinu, sem fjallar um stöðugleika farþegaskipa, flutningaskipa og fiskiskipa í óskemmdu ástandi, eins og það er orðað, hefur verið kosin vinnunefnd, skipaverkfræðingar nokkurra siglingaþjóða ásamt einum fulttrúa frá Matvæla- og landbúnaðarstofnuninni. N. þessi starfar nú á vegum siglingamálastofnunarinnar að því að safna gögnum um stöðugleika skipa ýmissa þjóða, og hafa skipaskoðun ríkisins þegar borizt gögn frá n. varðandi þessi efni. Búizt er við, að rannsókn þessi taki alllangan tíma, en gert er ráð fyrir, að árangurinn geti orðið atþjóðlegar reglur, er ákveði einnig stöðugleika fiskiskipa. Skipaskoðunarstjóri tekur sérstaklega fram, að opinber rannsókn sjóslysa fari þegar fram samkv. l. nr. 50 1959, um eftirlit með skipum, en í þeim lögum er fjallað um siglingadóm og rannsókn sjóslysa. En beina afstöðu til þáltill, tekur skipaskoðunarstjóri ekki.

Eins og áður getur, mælir Slysavarnafélag Íslands með samþykki till. og telur líklegt, að niðurstöður slíkra rannsókna geti auðveldað stjórnvöldum að meta, hvort nauðsynlegt sé og líklegt til árangurs að setja nýjar reglur um sjóhæfni fiskiskipa og annað það, er að öryggi skipa og sjófarenda lýtur. Enn fremur sé líklegt, að af niðurstöðum slíkrar rannsóknar mætti ýmislegt læra, sem orðið gæti til þess að forða slysum í framtíðinni. Telur Slysavarnafélagið enn fremur eðlilegt, að ríkisstj. gefi út árlega skýrslu um sjóslys og orsakir þeirra, en sá háttur mun vera viðhafður meðal sumra nágrannaþjóða okkar, t.d. Dana.

Farmanna- og fiskimannasamband Íslands tetur fulla þörf á þeirri nefndarskipun og rannsókn, sem þáltill. gerir ráð fyrir, en vill að n. annist einnig slíkar rannsóknir í framtíðinni og 5 ár aftur í tímann. Og miðstjórn Alþýðusambands Íslands samþykkti einróma á fundi að mæla með samþykkt þáltill.

Þáttill. þessi var hin fyrsta, sem vísað var til allshn., og hefur hún því verið alllengi til afgreiðslu hjá n. Ég hefði kosið, að till. hefði verið afgreidd fyrr, en hér kom ýmislegt til, en þó ekki það, að ekki væri fullt samkomutag um að afgreiða till. á jákvæðan hátt. Vilji var fyrir hendi hjá öllum nm. til þess að afgreiða till. á þann veg, að telja mætti, að samþykkt hennar kæmi að sem beztu gagni. Niðurstaðan af athugun n. á till. varð sú, að hún leggur einróma til á þskj. 557, að till. verði samþykkt með eftirfarandi breytingum:

Í stað þess, að fulltrúar þeirra aðila, sem tilteknir eru í upphaflegu till., verði tilnefndir í n., er í brtt. gert ráð fyrir, að ríkisstj. verði falið að láta þá rannsókn, sem um ræðir, fara fram í samráði við þau samtök, sem tilgreind eru í upphaflegu till., og þar til viðbótar í samráði við sjómannaskólana og tryggingafélögin, sem annast skipatryggingar. Gert er ráð fyrir, að ríkisstj. skipi í n. sérfróða menn, þ. á m. skipaverkfræðing, eða þá að n. njóti aðstoðar hans. Þá felst í till. allshn. sú breyting, að í stað þess, að í upphaflegu till. er gert ráð fyrir, að n. rannsaki orsakir skipskaða við strendur landsins undanfarin 2–3 ár, er í brtt. miðað við, að rannsóknin nái til allra skipstapa, sem íslendingar hafa orðið fyrir á því tímabili, hvort sem þeir hafa orðið við Íslandsstrendur eða annars staðar. Þá leggur n. til, að fyrirsögn till. verði breytt í samræmi við breyt. á tillgr.

Ég held, að það blandist engum hugur um, að þáttill. sú, sem hér er til umr., er ekki flutt að ófyrirsynju. Þjóð, sem hefur sótt sjó af jafnmiklu kappi og við jafnerfitt veðurfar og íslendingar, hefur ekki komizt hjá því að færa fórnir í þeirri baráttu, sem sjómennirnir hafa háð, til þess að þjóðin geti á hverjum tíma komizt af. Vegna þess að allir hafa gert sér grein fyrir því, að hér norður á hjara heims er á opnu úthafi háð óvæg lífsbarátta við grimm náttúruöfl, þar sem veðrátta er líklega umhleypingasamari og ótryggari frá degi til dags en á nokkrum öðrum slóðum á byggðu bóli, — barátta, sem þjóðin getur ekki látið niður falla og verður að heyja, — þá hefur verið á það litið sem óhjákvæmilegt og óumflýjanlegt, að á þeim vígvelli hlytu jafnan einhverjir að falla, enda hefur sú reyndin orðið á öðrum tímum og menn orðið að sætta sig við það og beygja sig undir það. Það, sem hins vegar hefur gerzt hin allra síðustu ár og menn hafa ekki getað sætt sig við og er m.a. orsök þess, að sú þáltill. er flutt, sem hér er til umr., er, að einmitt þegar meir hefur verið gert en nokkru sinni fyrr til að tryggja, að slysin verði sem allra fæst á sjónum, og í stað lítilla báta hafa verið byggðir nýir og stórir, þá verða skipskaðar og manntjón, án þess að unnt sé að sjá, að náttúruhamförum eða öðrum skýranlegum óhöppum verði um kennt. Það hefur komið fyrir oftar en einu sinni, að ný og nýleg skip annars vegar hafa farizt af skyndilegum leka eða í stað þess, að þau réttu sig við eftir að hafa hallazt undan öldu, hafa þau haldið áfram veltunni, lagzt á hliðina, oltið um og sokkið á örskömmum tíma. Slíkir endurteknir atburðir þurfa sérstakra rannsókna við, og þótt sjódómur fjalli um slík mál sem önnur sjóslys, þarf hér meira til. Sjódómur fjallar um hvert einstakt slys og sker einkum úr um, hvort skipstjórnarmenn eða aðrir af áhöfn skipsins hafi gert skyldu sína, en leitar ekki eftir því, hvort finnast kunni sameiginlegar orsakir margra slysa eða hvort byggingarlagi skipa er um að kenna, að slys hefur orðið, né heldur kannar sjódómur, á hvern veg mætti auka svo kröfur um byggingu og búnað skipa, að tryggara, væri en áður, að slík slys kæmu ekki fyrir. Þess vegna er eðlilegt, að till. sú, sem hér er til umr., sé borin fram og efnislega samþykkt, hvað sem líður störfum sjódóms.

Margendurtekin og óskýranleg slys á sjónum undanfarið krefjast skýringa. Mannslífin eru dýrmætari en svo, að það sé horft afskiptalaust á, að skip, sem eru nýbyggð og eru talin traust, farast á óskiljanlegan hátt í bærilegasta veðri. Menn sætta sig ekki við svo einfalda skýringu, sem opinberlega hefur komið fram hjá þeim aðilum, sem um öryggismál sjómanna eiga að fjalla, að öll skip geti farizt.

Sjálfsagt er það rétt, að öll skip geta sokkið. En menn sætta sig ekki við, að vélbátar af þeirri stærð, sem hér er um að ræða, geti sokkið í ekki verri veðrum en verið hafa, þegar a.m.k. sum slysanna áttu sér stað. Það er nauðsynlegt, að rannsakað sé, hvort sá útbúnaður veiðarfæra um borð í skipunum, sem tekinn hefur verið upp hin síðustu ár með tilkomu kraftblakkarinnar og stöðugt stærri síldarnóta, hefur spillt sjóhæfni skipanna svo, að öryggi þeirra sé stefnt í hættu. Það er nauðsynlegt að leiða í ljós, hvort nokkurt þeirra nýlegu skipa, sem við höfum haft ástæðu til að vona að drægi úr slysahættu á sjónum, vegna þess að þau væru stærri og vandaðri en hin eldri, geti verið þannig byggt eða þannig farið að búnaði veiðarfæra, að þau auki hættuna fremur en þau dragi úr henni. Það hefur t.d. ekki gerzt án þess að menn hafi veitt því athygli, að mörg skip byggð eftir sömu teikningunni hendir það að hvolfa í bærilegu sjóveðri án skiljanlegra ástæðna. Þannig hafa þau týnzt eitt af öðru, líklega 4–5, án þess að þau, sem enn flutu ofansjávar, væru tekin til rannsóknar. Það hefur ekki heldur farið fram hjá almenningi, hvað gert er erlendis, ef slíkir atburðir eiga sér stað, t.d. varðandi flugvélar, að áberandi verði, að slys hendi flugvélar af sömu gerð. Hvað er þá yfirleitt gert? Allar flugvélar sömu tegundar eru teknar úr notkun, þar til rannsókn hefur farið fram og bætt hefur verið úr því, sem talið er þurfa. Það mun vera staðreynd, að af 8–7 skipum af einni og sömu gerð eru aðeins 2 ofan sjávar. Hin hafa farizt, sum a.m.k. á óskiljanlegan hátt í veðrum, sem þeir, sem til sjómennsku þekkja, vita, að ekki eiga að geta grandað svo stórum skipum, ef allt er með felldu. Ég tel, að það væri fullkomin ástæða og sjálfsögð skylda að taka þau skip, sem eftir eru af þessari gerð, til gagngerðrar rannsóknar og prófunar, svo að leitt verði í ljós, hvort mannslíf eru sett í of mikla hættu með því að stunda sjósókn á þeim. Nú er það svo, að þegar mörg skip eru byggð eftir sömu teikningu, ætti að vera hægara að koma við þeim rannsóknum og mælingum, sem gætu tryggt, að skipin reyndust örugg sjóskip. Án efa er miklu fé á glæ kastað með því háttalagi, sem hér hefur tíðkazt, að helzt þurfi hvert skip að vera teiknað eftir sérteikningu sem aðeins einu sinni er notuð. Bílar yrðu dýrir með því móti, og skip verða það líka, og hætt við, að slík óhagkvæmni gangi út yfir það, að nægjanlegu fé og fyrirhöfn sé varið til að þrautreyna, hversu skipunum megi treysta við mismunandi aðstæður. Það ætti einnig að vera sjálfsagt mál, að þegar skip hafa við ýmsar aðstæður og mismunandi veður, sjólag og hleðslu sannað sjóhæfni sína, þá væri sælzt til þess að byggja hin nýju skipin eftir þeim sömu teikningum í stað þess að taka sífellt nýja áhættu með enn nýjum teikningum. Sá kostnaður, sem svo mjög vex í augum ýmissa aðila í sambandi við strangari kröfur um útreikninga og prófanir á sjóhæfni skipa, hlyti að verða viðráðanlegri, ef skipulag yrði á skipasmíðinni að því leyti, að þær prófanir, sem krafizt yrði, væru í framtíðinni látnar ná til margra nýbygginga í einu, hvað sem líður þeim skipastóli, sem fyrir er. Ég tel hins vegar, að þótt aukinn kostnað kunni að leiða af kröfum um aukið öryggi sjófarenda, þá megi ekkert til spara að tryggja, að úr þeim hættum, sem sjómönnum er jafnan stefnt í við störf sín á hafinu, sé dregið svo sem í mannlegu valdi stendur.

Till. um rannsókn sjóslysa s.l. 2–3 ár er ekki borin fram til þess að beina sök vegna þeirra að einum eða neinum, heldur til þess, að að þeim megi draga lærdóma, sem gætu orðið til að koma í veg fyrir eða draga úr líkum á því, að eitthvert þeirra endurtaki sig í sömu mynd. Rannsókninni er einkum ætlað að beinast að skipunum sjálfum, búnaði þeirra, og hún er gerð vegna þeirra manna, sem eiga líf sitt ekki sízt undir því, að þær fjalir, sem þeir fljóta á á mannskæðu úthafinu, séu sem traustastar. Ég fagna því, að till. sú, sem hér er til umr., skuli hafa fengið svo jákvæða afgreiðslu hjá allshn., og vænti þess, að hún fái nú á lokastiginu einróma afgreiðslu í sameinuðu þingi, á þann hátt, sem lagt er nú á þskj. 557.