19.04.1963
Sameinað þing: 51. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 49 í D-deild Alþingistíðinda. (2751)
107. mál, afurðalán vegna garðávaxta
Frsm. (Gísli Guðmundason):
Herra forseti. Þessi till., sem fyrir liggur á þskj. 144, er þess efnis að skora á ríkisstj. að hlutast til um, að veitt verði afurðalán út á garðávexti hliðstætt því, sem gert er vegna sauðfjárafurða, enda séu garðávextirnir komnir í örugga geymslu, þegar afurðalán er veitt. N. hefur athugað þessa till. og leggur til, að hún verði samþ. óbreytt.