19.04.1963
Sameinað þing: 51. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 104 í D-deild Alþingistíðinda. (2856)
228. mál, hafnarskilyrði í Kelduhverfi
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Mér er alveg Ljóst, að ef þessari till. verður vísað til n., þá fær hún ekki afgreiðslu á þessu þingi. En ég vil benda á, að hér er um ákaflega víðtækt mál að ræða, af því að það stendur hér í till., með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta á næsta sumri (1963) rannsaka hafnarskilyrði í Kelduhverfi og leggja niðurstöður rannsóknarinnar fyrir Alþingi, áður en ákvörðun verður tekin um fyrstu vatnsvirkjun vegna stóriðju hér á landi.“
Hér sýnist eiga að byggja höfn, sem geti orðið í sambandi við stóriðju, sem þar kynni að rísa upp. En einmitt vegna þess, að ég vil ekki leggja til, að málið fái ekki einhverja afgreiðslu, þá mun ég leggja til hér, að málinu verði vísað til ríkisstj. Sjái ríkisstj., að hér sé mál, sem þarf endilega að láta rannsaka á þessu sumri og til þess þurfi ekki neinar sérstakar stórfjárhæðir, þá er vitanlegt, að hún muni sinna málinu, svo að viðkomandi hérað verði ánægt með þá afgreiðslu. Ég legg til, að málinu verði vísað til ríkisstj. (Forseti: Vill hv. þm. koma með skrifl. till.?) Ég ætla að koma með tillögu.