19.04.1963
Sameinað þing: 51. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 104 í D-deild Alþingistíðinda. (2857)
228. mál, hafnarskilyrði í Kelduhverfi
Flm. (Gísli Guðmundsson):
Herra forseti. Hér er nú ekki tími til ræðuhalda. Ef það hefði verið, þá hefði ég flutt um þessa till. langt mál. En ég vildi freista þess að fá jákvæða afgreiðslu á málinu, ef verða mætti. Okkur flm. er það að sjálfsögðu mikið áhugamál að fá á málinu jákvæða afgreiðslu frá Alþingi. En við vitum það náttúrlega allir jafnvel, að jákvæð afgreiðsla á till. er að samþykkja hana. Ég vildi mega vænta þess, að á það yrði fallizt.