17.10.1962
Sameinað þing: 3. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 109 í D-deild Alþingistíðinda. (2865)

12. mál, innlend kornframleiðsla

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Það er rétt, að það mun vera í þriðja sinn, sem þáltill. á þann veg, sem hér um ræðir, er flutt, þ.e. að skora á ríkisstj. að greiða niður íslenzkt korn til samræmis við það, sem útlent korn er greitt niður. Það er einnig rétt, sem hv. 1. flm. till. sagði áðan, að hér er ekki um stóra fjárhæð að ræða. Spurningin er þá: Er það stórmál, hvort þetta er gert, sem till. fer fram á, eða ekki? Það er spurning, sem við getum svarað hver út af fyrir sig. En við erum ekki í vafa um eitt atriði, og það er það, að kornrækt á Íslandi mun verða stórmál, og við erum ekki í nokkrum vafa um það, að kornrækt á Íslandi á mikla framtíð fyrir sér. Hitt er svo leiðinlegt, að maður, sem þrisvar sinnum hefur flutt till. um niðurgreiðslu á korni, skuli tala af jafnmiklum misskilningi og hv. 1. þm. till. gerði hér áðan, þegar hann segir: Nú, þegar kornræktin er komin af tilraunastigi, má vænta þess, að kornræktin geti orðið almenn hér í landinu.

Það er leiðinlegur misskilningur hjá hv. flm., ef hann heldur, að kornræktin sé ekki lengur á tilraunastigi hér á landi. Kornræktin er vissulega á tilraunastigi, og hv. flm. hefði átt að tala við vísindamenn okkar á þessu sviði, sem starfa nú á vegum ríkisstj. og atvinnudeildar háskólans að umfangsmiklum tilraunum í kornrækt. Hv. flm. þarf að vita það, að ríkisstj. hefur beitt sér fyrir því, að hafnar verði víðtækar tilraunir í kornrækt á Íslandi, sem eru forsenda þess, að kornræktin geti orðið almenn. Og það er það, sem er stórmál, að þessum tilraunum megi ljúka sem fyrst, og það er þá, sem við getum vænzt þess, að bændur geti tekið að sér að rækta korn í landinu án þess að verða fyrir skaða af því. En bændur íslenzkir hafa ekki efni á því að standa í slíkri tilraunastarfsemi. Þess vegna er það ríkið og atvinnudeild háskólans, sem eiga að sjá um þær tilraunir.

Ég hef rætt við vísindamenn okkar um þessi mál, og þeim ber saman um, að það beri nauðsyn til að rækta kornafbrigði fyrir íslenzka staðhætti og íslenzka veðráttu, sem hægt sé að mæla sérstaklega með við bændur, áður en þeir fara að hefja kornrækt. Það er vitað, að atvinnudeildin hefur nú 40 afbrigði í tilraunum, kornafbrigði, og það er vitað, að vísindamenn okkar á þessu sviði hugsa sér að rækta sérstök afbrigði, sem henta okkar loftslagi og okkar veðurfari. Og þeir telja, að þetta sé mögulegt og það muni ekki taka mörg ár. Það er einmitt þess vegna, sem við getum verið vongóðir um það, að kornræktin á Íslandi eigi framtið fyrir sér. Við getum meira að segja vænzt þess, að íslendingar rækti sjálfir allt sitt fóðurkorn í framtíðinni, þegar íslenzkir bændur vita, hvaða korntegund það er, sem má teljast árviss.

Það er virðingarvert, hversu íslenzkir bændur eru framtakssamir og áhugasamir, og þeir hafa þó nokkuð margir hafið kornrækt án þess að vera nokkurn veginn vissir um, að hún geti borgað sig. Þess vegna er það, að ýmsir bændur hafa orðið fyrir tjóni, af því að þeir hafa ekki sáð því korni, sem bezt hentaði. Ég segi þess vegna, það er stórmál, að tilraunum í þessa átt verði haldið áfram, þangað til segja má, að þeim verði lokið. Og ég segi: Fjármununum er, eins og á stendur í dag, miklu betur varið í þessa tilraunastarfsemi heldur en til niðurgreiðslu, enda þótt ég sé ekki á neinn hátt sérstaklega að mæla á móti því. En ég get tekið undir orð 1. fim. till. um, að það er ekki neitt aðalatriði, ekkert stórmál, þessi hálfa millj., sem hann reiknaði með að þetta mundi kosta, og það er ekki það, sem kornræktin veltur á í dag, hvort þessir aðilar, sem nú rækta korn, fá þessa hálfu millj. eða ekki. Framtíð kornræktarinnar er undir því komin, að það verði unnið skipulega og rökfast að tilraunastarfseminni, og ég er í miklum vafa um, að það sé eðlilegt, að hið opinbera sé að hvetja bændur til þess að rækta korn, meðan á tilraunastarfseminni stendur. Ég tel, að á meðan telja má kornræktina áhættusaman atvinnuveg, vegna þess að tilraunirnar eru ekki nógu langt á veg komnar, þá sé eðlilegt, að bændur, sem vilja ráðast í kornrækt, geri það án þess að fá hvatningu frá því opinbera. En vissulega á íslenzk kornrækt, þegar hún er komin á það stig, að hún getur talizt atvinnuvegur í landinu, sem hún verður innan fárra ára, þá er það vitanlega sjálfsagt og nauðsynlegt, að íslenzk kornrækt njóti fyllsta stuðnings og útlendu korni verði ekki ívilnað á kostnað innlenda kornsins.

Ég hef oft lesið það í Tímanum að undanförnu, að það er talið, að útlenda kornið njóti óeðlilegs stuðnings. Það er greitt niður, fragtirnar eru lágar, og tollarnir eru lágir. Svo verður þetta útienda korn, þegar það kemur til notkunar hér, óeðlilega ódýrt, þannig að íslenzka kornið þolir ekki samanburð. Nú er það svo, að á meðan við ræktum ekki í landinu nema kannske 1% eða 2% af því fóðurkorni, sem notað er, þá er varla hægt að ræða um samkeppni á þessu sviði. En þannig er það nú í dag. Og ég held, að þeir, sem tala um, að útlenda fóðurkornið njóti óeðlilegra hlunninda, tali ekki fyrir hönd bænda. Ég hef engan bónda hitt, sem óskar eftir því, að fragtirnar verði hækkaðar á fóðurkorni. Ég hef engan hitt, sem óskar eftir því, að niðurgreiðslurnar verði felldar niður. Og ég hef engan bónda heyrt tala um, að það væri æskilegt að hækka aðflutningsgjöld á fóðurkorni. Ég held, að bændur vilji fá fóðurbætinn á sem lægstu verði, enda þótt þeir geti reiknað með, að afurðaverðið hækki síðar meir, vegna þess að fóðurkornið hefur hækkað.

Ég held, að þessi till., sem er á vissan hátt komin fram vegna þess, að talið er, að útlenda fóðurkornið njóti sérstakra og of mikilla hlunninda, — ég held, að hún sé ekki á þessu stigi réttmæt, og þeir, sem sérstaklega hafa áhuga á því, að innlenda kornið verði greitt niður, gætu orðað till, á annan veg og sagt: Það er eðlilegt og réttmætt að greiða íslenzka fóðurkornið niður, til þess að þeir, sem ráðast í kornrækt á Íslandi, fái til þess fjárhagslega aðstoð. — Og það er mál út af fyrir sig, sem er vei þess virði að ræða sérataklega, hvort þá, sem eru að rækta korn, meðan á tilraununum stendur og meðan þetta er mjög áhættusamur atvinnuvegur, á að styrkja á meðan. Ég tel, að það sé enginn vafi á því, að ef kornræktartilraununum væri lokið og það væri ekki lengur mjög áhættusamt fyrir bændur að rækta korn, þá ætti að skapa innlendri kornframleiðslu fullkomna samkeppnisaðstöðu við útlendu kornvöruna, og að því hlýtur vitanlega að koma. Og ég vil benda á, að kornræktarbændur fengu á s.l. ári jarðræktarstyrk út á kornræktina, sem vitanlega var réttmætt. Þegar till. var flutt í fyrra, var ekki reiknað með því, en jarðræktarstyrkurinn var hærri en niðurgreiðslan hefði numið.

Ég er út af fyrir sig alls ekki að mæla á móti því, að niðurgreiðsla verði tekin upp á innlendu korni. En ég hef með þessum orðum viljað vekja athygli á því, að kornræktin er enn á tilraunastigi. Og það er ekki alveg víst, að rétt sé að ýta undir bændur að hefja kornrækt, á meðan á tilraunum stendur. Það gæti spillt fyrir því, að bændur stunduðu kornrækt, þegar það er orðið tímabært, ef þeir hafa orðið fyrir miklu tjóni, meðan á tilraununum stendur. Það gæti orðið til þess að tefja fyrir því, að kornræktin yrði almenn, þegar hún er orðin tímabær.

En það, sem ég legg megináherzlu á, er, að það verði varið miklum fjármunum í kornræktartilraunir, eins og nú er gert, og þeim verði lokið sem fyrst. Að áliti vísindamanna okkar er talið, að það muni ekki verða mörg ár, þangað til íslenzkir bændur hafi sérstök afbrigði, sem henta íslenzku loftslagi og mega teljast nokkuð árviss og örugg. Og þá er tímabært fyrir bændur að hefja kornrækt almennt á Íslandi.