17.10.1962
Sameinað þing: 3. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 123 í D-deild Alþingistíðinda. (2874)
13. mál, síldarleit
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Hv. 1. þm. Austf, spurðist fyrir um það, hvort gerðar hefðu verið ráðstafanir til þess, að síldarteit yrði stunduð á þessu hausti. í tilefni af þessu skal ég skýra frá því, að sjútvmrn. hefur undirbúið síldarleit nú í haust. Rn. hefur þegar á hendinni skip til leitarinnar, 250 tonna skip, eitt af þeim, sem byggð voru í Austur-Þýzkalandi, og er það útbúið hinum fullkomnustu leitartækjum. Jakob Jakobsson, sem eflaust má telja færastan allra íslendinga til þess að veita slíkri starfsemi forstöðu, mun því miður ekki geta gert það á þessu hausti, þar eð brýna nauðsyn ber til þess, að hann starfi á sinni rannsóknarstofu við úrvinnslu þeirra stórmerku gagna, sem aflað var við síldarleitina í sumar. En samninga er hægt að gera þegar í stað við þann annan mann, sem telja má hæfastan íslendinga til þess að sinna stikum störfum, þ.e. Jón Einarsson skipstjóra. Af hálfu sjútvmrh. er því allt tilbúið undir það, að síldarleit geti hafizt þegar í stað. Ástæðan til þess, að hún er ekki þegar hafin, er að sjálfsögðu vinnudeila sú, sem yfir stendur um kjör á síldveiðiflotanum. En jafnskjótt og fram úr þeirri deilu rætist, og það er áreiðanlega ósk okkar allra, að það verði sem fyrst, þá er af hálfu sjútvmrn. ekkert því til fyrirstöðu, að síldarleitin geti hafizt þegar í stað.