07.11.1962
Sameinað þing: 9. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 134 í D-deild Alþingistíðinda. (2883)
14. mál, raforkumál
Flm. (Skúli Guðmundsson):
Herra forseti. Hæstv. ráðh. sagði í upphafi sinnar ræðu, að það hefði verið lagt fyrir raforkumálastjóra að undirbúa þær áætlanir um áframhald rafvæðingarinnar, sem eru efni þeirrar tillögu, sem hér liggur fyrir. Þetta var raunar kunnugt áður. Þetta mál var til umr. hér í Alþ. 2. marz 1960. Þá tá einnig frammi till. frá okkur frams6knarmönnum um þetta efni. Þá gaf hæstv. ráðh. þær upplýsingar, að raforkumálaskrifstofan væri að vinna að því að gera áætlun yfir þá bæi, sem fá ekki rafmagn samkvæmt 10 ára áætluninni 1953–63. Ráðh. sagði þá, að raforkumálaskrifstofan hefði um nokkurt skeið unnið að þessu, en óformlega þó, en nú fyrir áramótin hefði hann lagt áherzlu á það við raforkumálastjóra, að hann hraðaði þessari áætlun, eftir því sem unnt væri.
Þannig mælti hæstv. ráðh. 2. marz 1960. Samkv. því hefur hann fyrir árslok 1959 lagt áherzlu á það við raforkumálastjóra, að þessari áætlun yrði hraðað, eftir því sem mögulegt væri.
Við fluttum till. um þetta mál á síðasta þingi einnig, og fóru fram umr. um þá till. í Sþ. 11. apríl s.l. Ég benti þá á það, að því miður hefði ekki verið unnið að þessum viðbótaráætlunum með þeim hraða, sem æskilegt hefði verið. Eftir þeim upplýsingum, sem ég hafði fengið, hafði aðeins einn starfsmaður á. raforkumálaskrifstofunni haft það sem aukastarf að athuga vegalengdir milli bæja á þeim svæðum, sem ekki hafa komizt inn á 10 ára áætlunina, og þá var það þannig, að enn átti hann eftir að athuga þetta í nokkrum héruðum landsins. Ég hélt því fram þá og vil endurtaka, að það hefði verið hægt að vinna að þessu með meiri hraða en gert hefur verið. Nú þýðir vitanlega ekki að sakast um orðinn hlut, en þrátt fyrir þetta, þótt ekki hafi verið meiri áherzla á það lögð, þá er væntanlega nú langt komið að gera yfirlit yfir byggðina á þessum svæðum, sem eru utan við 10 ára áætlunina, og með því að leggja nokkru meiri vinnu í það, þá ætti að vera hægt innan skamms að ljúka þessu yfirliti. Og þegar búið er að teikna upp þau svæði, sem fá ekki rafmagn samkv. 10 ára áætluninni, þarf þegar í stað að gera áætlun um kostnað við samveitur um þau svæði, að svo miklu leyti sem fært þykir að fullnægja þeirra raforkuþörf með rafmagni frá samveitum, og taka ákvörðun um það, hvernig málið verði leyst. Þetta er það, sem við höfum farið fram á í okkar till. að gert verði nú, þannig að áætluninni verði lokið fyrir næstu áramót.
Hæstv. ráðh. segir, að ætla megi, að í lok ársins 1964 hafi um 182 þús. Íslendingar fengið rafmagn frá samveitum eða vatnsaflsstöðvum eða stærri dísilstöðvum, en þá, muni um 8 þús. af landsmönnum verða rafmagnslausir Ég veit ekki, hvernig þetta er talið, hvort þarna eru taldar stærri dísilstöðvar. En ég vil benda á það, eins og ég raunar gerði nú fyrir viku, þegar umr. þessi hófst, að það er svo um mjög mörg heimili, að þau hafa komið upp dísilstöðvum eða mótorstöðvum í bili, á meðan beðið er eftir betri úrlausn í þessum efnum. Mörg af þessum heimilum eru einmitt á þeim svæðum, sem ætla má að samveita verði lögð um, og hafa aðeins gripið til þess ráðs að koma upp mótorstöðvum til þess að hafa þá einhverja bráðabirgðaúrlausn, þótt mjög ófullkomin sé. Ég hefði talið, að það væri þess vegna æskilegast að gera þessar skýrslur þannig, að það væru taldir sér þeir, sem hala fengið rafmagn frá samveitum eða einkastöðvum, sem ganga fyrir vatnsafli. Og í ræðu minni á miðvikudaginn var gerði ég grein fyrir því, hvernig ástatt hefði verið að þessu leyti um síðustu áramót, eftir þeim upplýsingum, sem fengizt hafa frá raforkumálaskrifstofunni. Þá var það þannig, að 2429 sveitaheimili höfðu fengið raforku frá samveitum, en um það bil 500 frá sérstökum vatnsaflsstöðvum. Nú bætast þarna við þau heimili, sem fá rafmagn á þessu ári frá samveitum. Það er af þessu ljóst, að það er mikið verkefni hér óunnið til þess að koma rafmagninu á öll sveitaheimili, og fyrst og fremst þarf að fullnægja raforkuþörfinni með rafmagni frá samveitum, að svo miklu leyti sem mögulegt er.
Hæstv. ráðh. gaf hér yfirlit yfir þær athuganir, sem gerðar hafa verið viðkomandi byggingu rafstöðva víðs vegar um landið, en hvað sem því tíður, — það er vitanlega nauðsynlegt að gera áætlanir um það og taka ákvarðanir um þau efni, — en hvað sem því líður, þá tel ég, að nú ætti að vera hægt á mjög skömmum tíma, eins og við leggjum til í till. að gert sé, að ganga frá nýrri áætlun um framkvæmdir héraðsrafmagnsveitna ríkisins, þ.e.a.s. áætlun og ákvörðun um dreifilínurnar um sveitir, þar sem menn hafa ekki fengið rafmagn.
Hæstv. ráðh. segir, að það liggi ekki enn fyrir, hve langt sé milli bæja á þeim svæðum, sem hafa ekki enn fengið rafmagn. Ég vildi nú vænta þess, að það væri lítið verk óunnið við þá athugun til þess að fá yfirlit yfir það. eftir þeim upplýsingum, sem ég hef fengið, og mætti ljúka því verki mjög fljótlega. Hæstv. ráðh. segir, að bændur geti reiknað með því að fá rafmagn. Það er út af fyrir sig gott. En þeir þurfa að vita og það án allrar óþarfrar tafar, á, hvern hátt er ætlað að bæta úr þeirri þörf. Það hefur afar mikið að segja. Það er mjög þýðingarmikið fyrir menn að fá að vita, hvort þeir mega vænta þess að fá rafmagn frá samveitum eða þeir verði í framtíðinnt að bjargast á annan óhentugri og ófullkomnari hátt. Þetta þurfa þeir að vita, og það er ástæðulaust að draga það lengur en þörf er á að taka ákvörðun um þau efni.
Hæstv. ráðh. segist hafa falið raforkumálastjóra eða raforkumálaskrifstofunni að gera þessar áætlanir. Það var vitanlega sjálfsagt að fela raforkumálastjóra eða skrifstofu hans að vinna þá undirbúningsvinnu, sem þurfti til að gera áætlanirnar um framhald rafvæðingarinnar. En ég hefði talið eðlilegt að fela raforkumálastjóra og raforkuráði að gera hina nýju áætlun. Þannig var þetta framkvæmt, þegar 10 ára áætlunin var gerð. Þá voru sett lög hér á Alþ. um viðauka við raforkulögin, og samkv. þeim var það falið raforkumálastjóra og raforkuráði að gera áætlunina, og ég hefði talið, að þannig ætti að vinna að þessu máli nú, þegar undirbúningsathugunum væri lokið, að þá væri það falið raforkumálastjóra og raforkuráði að gera hina nýju áætlun og till. um rafvæðinguna. Ég vildi leggja áherzlu á þetta. Ég tel þetta eðlilega málsmeðferð. Flestir þeir, sem sæti eiga í raforkuráði, hafa átt þar sæti lengi og sumi allt frá því, að það var stofnað, og hafa öðrum fremur kunnugleika á þessum efnum.
Ég vil svo að síðustu aðeins leggja áherzlu á það, að nú verði unnið að því með þeim hraða, sem mögulegt er, að ljúka þessum athugunum á fjarlægðum milli býla á þeim svæðum, sem hafa ekki fengið rafmagnið, áætlunum um samveitur og tillögum um framkvæmdir á þessu þýðingarmikla máli.