03.04.1963
Sameinað þing: 44. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 181 í D-deild Alþingistíðinda. (2896)
14. mál, raforkumál
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Ég er sammála hv. 5. þm. Norðurl. v. (BP), að þjark og villandi tölur muni ekki flýta fyrir rafvæðingu landsins. Ég er alveg sammála honum um, að það beri að flýta því að gera þessa áætlun, og það kemur fram í nál. meiri hl., að þessari áætlun á að ljúka á næsta hausti. Og hv. minni hl. eða fim., sem standa að flutningi till., gera einnig kröfur til þess, að þessari áætlun verði lokið ekki síðar en á næsta hausti, og þá ber þar ekki mikið á milli.
Ég er sammála hv. 5. þm. Norðurl. v. um það, að þeir, sem eiga eftir að fá rafmagnið, eiga ekki að gjalda þess, að það er rekstrarhalli hjá rafmagnsveitunum. En ég tel hins vegar, að það sé alveg útilokað, að þeir, sem nota, héraðsrafmagnsveiturnar, geti einir borgað þennan halla, það verði að gera með öðrum hætti, og það held ég að ég hafi tekið nægilega skýrt fram í minni fyrri ræðu, hvernig það mætti verða. Það voru fjórar leiðir, sem ég nefndi að mætti nota, en þó ein vitanlega langæskilegust, það er sú, að ríkissjóður borgi þennan halla í einu formi eða öðru, og tel ég, að það mætti í aðalatriðum gerast án þess að þeir, sem hafa ekki fengið rafmagnið, gjaldi þess að miklu, vegna þess að þeir eru ef til vili ekki stærstu gjaldendur til ríkissjóðs. Eftir því sem fleiri fá rafmagnið, eftir því verður það mínna, sem kemur í þeirra hlut, sem hafa ekki fengið rafmagnið, og ég vil taka það fram, að það er vitanlega ekki meiningin, að nokkur verði rafmagnslaus. Þeir, sem ekki geta fengið rafmagn frá samveitum, og þeir verða vitanlega nokkuð margir, — það þýðir ekkert annað en að viðurkenna þá staðreynd, að það er svo langt á milli margra bæja í þessu landi, að það verða ekki lagðar línur á milli þeirra, — og þá verða þeir menn að nota. dísilvél, eins og hv. 5. þm. Norðurl. v. gerir nú, en þá finnst mér, að það megi koma til móts við þessa menn með því annaðhvort að styrkja þessi vélakaup eða þá að veita þeim enn hærri lán út á þessar vélar með betri kjörum en þeir enn hafa fengið. Og þá er ekki hægt að segja, að það sé ranglega eða illa að þeim mönnum búið.
Ég held, að hv. 5. þm. Norðurl. v. hafi sagt það óviljandi áðan, þegar hann var að tala um það, að nokkurri hlutdrægni hafi verið beitt í rafvæðingu landsins að undanförnu. Ég held, að það verði að segja það, og ég er nokkuð kunnugur þeim málum, að í öllum aðalatriðum, og undantekningar eru ábyggilega mjög fáar, þá hefur verið farið eftir raforkulögunum. Raforkulögin kveða svo á, að það skuli fyrst rafvæða þau héruð, sem eru bezt til þess fallin og þar sem vegatengd á milli bæja er stytzt. Þetta hefur verið gert og framkvæmt eins vel af hendi raforkumálastjórnarinnar og raforkuráðs á hverjum tíma og mögulegt hefur verið. Og meginreglan hefur verið að binda sig við það, að það sé ekki lengra á milli bæja að jafnaði en 1 km. Það er þetta, sem er skýrt ákvæði í raforkulögunum, og eftir því hefur verið farið. Og hlutdrægnin í framkvæmdinni hefur áreiðanlega verið mjög lítil, ef hún er þá nokkur, og er óhætt að fletta þar upp í framkvæmdum undanfarið, hverjir sem mestu hafa ráðið í þessu máli.
Ég tel, að það sé ekki ástæða til að segja meira við hv. 5. þm. Norðurl. v. En út af því, sem frsm. meiri hl. sagði hér áðan, þá vil ég nú segja það, að þegar vantar 1/3 frá héruðunum og 2/3 frá ríkinu, þá get ég ekki séð, að ríkissjóður skuldi rafmagnsveitunum og ekki heldur héruðin, vegna þess að skuldin er á báða bóga í réttu hlutfalli nokkurn veginn við það, sem þeim er gert að greiða. Og eitt er ég sannfærður um, að þó að geta ríkissjóðs sé mikil, þá er geta héraðanna tæplega fyrir hendi að greiða þessar 45 mill.. kr., sem hv. 1. þm. Vestf. nefndi hér áðan. Og hv. 1. þm. Vestf. spyr: Ef eitthvert hérað er tilbúið að leggja fram sinn skerf, ganga þau þá fyrir? —Nú er það svo, að ég verð að telja, að í framkvæmdinni hafi héruðin lagt fram sinn skerf, a.m.k. hefur verið til þess ætlazt af hendi raforkumálastjórnarinnar, og það hefur verið framkvæmt með sama hætti frá því fyrsta. Það hefur engin breyting á innheimtunni orðið á seinni árum. Þetta hefur verið framkvæmt á sama hátt frá því fyrsta og til þess ætlazt, að héruðin greiddu sinn hlut.. Ég hef ekki töflu fyrir framan mig til þess að sannprófa, hvort það hefur verið hundrað prósent í öllum tilfellum, en ég ætla, að það hafi verið að mestu leyti.
En í sambandi við þessa spurningu, sem hv. þm. lagði fyrir mig, verð ég að minna á ákvæði raforkulaganna, að þau héruð skuli fyrst rafvædd, sem hafi beztu aðstöðu um vegalengd á milli bæja. Ég geri ráð fyrir því, að þótt eitthvert hérað byði fram 1/3 af kostnaði við rafvæðingu, en vegalengd milli bæja væri kannske 2–3–4 km, þá gæti raforkumálastjóri ekki þegið pennan þriðja part úr héraðinu og lagt á móti 2/3, þá yrði nákvæm athugun að fara fram á því, áður en tekið væri á móti því fé hjá héraðinu. Það yrði að fara fram athugun hjá raforkumálastjóra og síðan í raforkuráði og síðan að gera sér grein fyrir því, hvernig fjárins væri unnt að afla að 2/3, og í öðru lagi yrði að vega og meta ákvæði raforkulaganna um það, hvað eigi að ganga á undan, þannig að þetta er ekki eins auðvelt og ætla mætti við fyrstu sýn.
Ég vil í sambandi við það, sem sagt hefur verið hér í sambandi við rekstrarhallann, undirstrika það, að rekstrarhallinn er alls ekkert aukaatriði, og ég tel, að hv. meiri hl. n. hafi réttilega vakið athygli á honum. Og eins og ég sagði í minni fyrri ræðu, þá tel ég, að rekstrarhallinn valdi nokkrum erfiðleikum, en alls ekki óyfirstíganlegum. Og ég tel, að rekstrarhallinn vegi ekki svo þungt á metunum, að við þurfum með því að horfast í augu við hann að vera vonlausir um það, að rafvæðingunni verði haldið áfram. Ég tel þess vegna, að það, sem hv. 1. þm. Norðurl. v. sagði hér í dag, að nál. hv. meiri hl. væri í rauninni að bjóða heim stöðvun, kyrrstöðu á framkvæmdum, vegna þess að meiri hl. gerði svo mikið úr rekstrarhallanum og fjárhagsörðugleikum rafmagnsveitnanna, — ég tel það einmitt tryggingu fyrir því, að haldið verði áfram í þessum málum, að það sé ekki endalaust látið reka á reiðanum, heldur horfist menn í augu við staðreyndirnar og geri sér grein fyrir, hvað þarf að gera til þess að skapa fjárhagslega trausta undirstöðu undir þessar framkvæmdir, eins og aðrar framkvæmdir, sem ráðizt er í. Og það er alveg rétt, sem hv. 5. þm. Norðurl. v. sagði hér áðan, að það er ástæðulaust að vera að bera hver öðrum á brýn áhugaleysi á, þessum málum, vegna þess að við viljum öll, að landið verði rafvætt, og við viljum, að þessi mál gangi sem bezt. Og það er einmitt þess vegna, þegar hv. framsóknarmenn flytja till. eins og hér er á þskj. 14 og láta í það skína, að núv. ríkisstj. hafi ekki látið þessi mál ganga með eðlilegum hætti, að tilefni er til þess, að svarað að í líkum tón.
Hv. 1. þm. Norðurl. v. var skikkanlegur í sinni ræðu. Hann reyndi að vísu að læða því inn, að það væri ekki allt með eðlilegum hætti. Þetta hefði allt getað gengið miklu betur en raun ber vitni. Hann vildi láta í það skína, að ég hefði farið með villandi tölur hér í dag. En ég get upplýst hv. þm. um það, að ég las upp úr skýrslu raforkumálastjórnarinnar, og ég las rétt upp úr þeirri skýrslu. Og það gefst ábyggilega tækifæri til þess að sannprófa það, hvort þessar tölur, sem ég las upp úr skýrslu raforkumálastjórnarinnar, sem ég fékk í hendur í dag, eru réttar eða rangar. Ég ætla ekki að deila um slíkt efni, látum aðra um það, en það var aðalatriðið í ræðu hv. 1. þm. Norðurl. v. að láta í það skína, að ég hefði lesið upp rangar tölur. Ég þarf í rauninni ekki að segja meira við þennan hv. þm.
En hv. 3. þm. Norðurl. e. talaði hér í dag, og hann segir, að ég hafi talað af miklum þjósti og ósanngirni um þetta mál, ég hafi borið hv. þm. það á brýn, að hann færi með vísvitandi ósannindi og blekkingar. Að ég sagði, að það væri um vísvitandi blekkingar að ræða eða það hlyti að vera svo, er vegna þess, að ég hafði álitið. Á hv. 3. þm. Norðurl. e. væri minnugur og skáksamur og fylgdist vel með þingmálum og því, sem væri að gerast. Ég hef þess vegna ekki látið mér detta í hug, að þessi hv. þm, hefði ekki vitað af því, að rafvæðingaráætlunin var til 11 ára, en ekki 10, og þetta var ákveðið árið 1955. Ef hv. þm. finnst það betra að fá fáfræðistimpil á sig í þessum málum heldur en að hann hafi sagt vísvitandi ósatt, þá getur hann valið mín vegna, en annaðhvort er hv. þm. sekur um óafsakanlega fáfræði í máli, sem er rætt á hverju einasta þingi, eða hann hefur sagt vísvitandi ósatt og reynt að blekkja á vísvitandi hátt. Ég er hér með skýrslu frá raforkumálaskrifstofunni, þar sem þetta er greinilega tekið fram. Þetta er margbókað, og það er þess vegna alveg tilgangslaust fyrir hv. þm. að vera að reyna að koma því inn hjá almenningi, að framkvæmdaáætlunin sé orðin 11 ára áætlun nú, af því að framkvæmdir hafi eitthvað tafizt hjá núv. ríkisstj. Og það er óviðeigandi fyrir hv, þm., eftir að hafa auglýst annaðhvort fáfræði sína eða undirhyggju, að koma hér upp í ræðustólinn og tala í vandlætingartón við mig, þótt ég hafi leyft mér að vekja athygli á því, að framkoma hv. þm. í umr. hér fyrir viku var að þessu leyti óafsakanleg og ekki sæmileg. Og ég leyfi mér enn að endurtaka það, að þegar hv. þm. er að gera samanburð á því, hversu miklum fjárhæðum hefur verið varið til raforkuframkvæmda árlega, eftir að núv. ríkisstj. kom að völdum og meðan vinstri stjórnin sat að völdum, þá leyfi ég mér að staðhæfa það enn á ný, að hv. þm. fór með blekkingar til þess að geta birt í Tímanum hagstæðar tölur fyrir Framsfl. og auglýst fyrir öllum almenningi á þennan hátt, með þessum blekkingartölum, að vinstri stjórnin hafi jafnvel staðið sig betur í þessum framkvæmdum en núv. ríkisstj.
Mér dettur ekki í hug, að hv. þm. hafi viðhaft þessa aðferð í því skyni að blekkja hv. þm., því að það getur ekki verið mögulegt að gera það, þeir fylgjast of vel með til þess. En einhverja lesendur Tímans, sem ekki lesa annað en Tímann og fylgjast ekki með, það er hægt að blekkja þá, og í því skyni er leikurinn gerður. Og þegar hv. þm. ber tölurnar saman, þá gerir hann það viljandi að sleppa Reykjanesveitu, enda þótt það sé vitað, að Reykjanesveitan var ekki lögð eingöngu og allra sízt vegna varnarliðsins, heldur vegna þess að gamla línan flutti ekki lengur raforkuna til íbúanna á Suðurnesjum, þó að varnarliðið hefði ekki verið. Og í skýrslu raforkumálaskrifstofunnar segir, að óhjákvæmilegt hefði verið að byggja Reykjanesveitu, þótt varnarliðið hefði ekki verið, og það bæri þess vegna að draga frá aðeins kostnaðinn við straumbreytinn á Keflavíkurvelli, en hitt eigi að teljast til venjulegra raforkuframkvæmda.
Við skulum segja hv. þm. til afsökunar, að hann hafi gleymt að nefna kostnað við Sogsvirkjunina á þessu tímabili, að hann hafi gleymt að nefna jarðhitarannsóknirnar, og efast ég þó um það eftir ummæli hans hér áðan, því að hann segir orðrétt, ég skrifaði það upp: „Jarðhitarannsóknir eru ekki umtalsverðar í sambandi við þetta.“ Ég hef ekki heyrt nokkurn hv. þm, viðhafa þessi orð um jarðhitarannsóknir fyrr, það sé ekki umtalsvert, þó að ríkisstj. verji miklum fjárhæðum til jarðhitarannsókna. Ég hef miklu fremur heyrt hv. þm. halda því fram, að jarðhitinn væri þjóðinni mikils virði og það bæri að stuðla að því að hagnýta hann sem mest og bezt. Og jarðhitarannsóknir hafa farið fram í því skyni að virkja jarðhitann til raforku, og er það vissulega framlag til raforkumála. En til jarðhitarannsókna hefur verið varið á undanförnum 3 árum 26 millj. kr., en ekki nema örfáum millj., á meðan vinstri stjórnin sat. Ég benti á, að til virkjunarrannsókna nú síðustu árin hefur verið varið mjög miklum fjárhæðum, á árinu 1962 25 millj. kr., en á árum vinstri stjórnarinnar 4 millj. kr. á ári, að mig minnir. Ef hv. þm. hefði viljað bera saman réttar tölur, framlag núv. ríkisstj. til virkjunarmála og rafvæðingar og framlag vinstri stjórnarinnar, þá hefði hann tekið þessa liði með í reikninginn og þá hefði útkoman snúizt við og orðið núv. ríkisstj. í vil.
Gerir hv. þm. kröfu til þess að fá á sig það orð, að hann hafi í ógáti komið með þessar tölur og af fljótfærni, undirbúningslítið? Vill hann, að ég afsaki hann með því? Ég get alveg viðurkennt það, að ef hv. þm. finnst það betra en að því sé haldið fram, að hann hafi vísvitandi viljað blekkja, þá skal ég gera það. En blekking er það samt, annaðhvort óviljandi eða viljandi. Tölurnar, sem birtar eru í Tímanum, eru rangar, og þess vegna er það blekking við almenning, sem les blaðið, ef það verður ekki leiðrétt. En ef hv. þm. játar, að hann hafi ekki rannsakað málið nægilega vel og kynnt sér það, áður en hann skrifaði þetta, þá skal ég ekki halda því fram, að það hafi verið vísvitandi rangt.
Ég skal viðurkenna, að það er dálítið hart að segja, að menn fari vísvitandi rangt með, en ég skýrði frá því, hvers vegna ég hélt því fram. Ég hafði það álit á þessum þm., að hann hlyti að vita betur. En það má kannske segja, að menn hafi ekki tíma til þess að lesa allt og fylgjast með öllu og hv. þm., ef hann fær athugasemdatíma hér, sem ég mundi mælast til, gæti þá fært fram afsakanir fyrir því, að hann kom ekki með réttar tölur, þegar hann hélt sína ræðu.
Hv. þm. leggur mikið upp úr því, að í bréfi raforkumálastjóra er talað um framhalds-10 ára–áætlun, leggur mikið upp úr því og vildi gefa það í skyn, að raforkumálastjóri nefndi 10 ár vegna þess, að hann hefði fengið fyrirmæli um að gera framhalds-10-ára-áætlun. Ég sagði í fyrri ræðu minni hér í dag, að svo hefði ekki verið. Raforkumálastjóri fékk fyrirmæti um að gera framhaldsáætlun, og það er rétt, sem hv. 1. þm. Vestf. sagði hér áðan og ég tók reyndar fram í dag, að það er ekki raforkumálastjóri, sem ræður því eða ákvarðar, hver hraði veróur á framkvæmdunum. Það er ríkisstj., það er raforkuráð, það er Alþingi og það er það fjármagn, sem til þess verður varið. Og í viðtölum mínum við raforkumálastjóra hefur alltaf verið við það miðað, að rafvæðingunni yrði lokið ekki seinna en 1970. Og ég hygg, að hv. 3. þm. Norðurl. e., ef hann leitar vel, þá geti hann fundið nokkrar ræður eftir mig, þar sem þessi skoðun mín er staðfest. Og þess vegna er það einnig tilraun til blekkingar af hálfu þessa þm., þegar hann er að reyna að halda því fram, að núv. ríkisstj. ætlist nú til, að það taki 10 ár að gera næsta lokaáfangann í þessu máli.
Hv. þm. verður að fyrirgefa það, þó að það sé séð í gegnum þá ræðumennsku, sem hann viðhefur hér, og þó að því sé haldið fram, að þetta sé gert sem tilraun til þess að blekkja og fá fólk til þess að hafa aðra skoðun á stefnu núv. ríkisstj. í þessum málum en raunverulega er.
Í sambandi við 10 ára áætlunina og það, að þetta væri 11 ára áætlun orðin vegna seinagangs á framkvæmdum nú, þá nefndi hv. 3. þm. Norðurl. e. eitthvert skjal, sem hann gæti dregið fram, frá árinu 1957, sem sannaði það, að vinstri stjórnin hafi ætlað að gera þetta að 10 ára áætlun í framkvæmd. Hv. þm. sagðist ekki hafa minnzt á þetta skjal í sinni fyrri ræðu, vegna þess að þá hafi hann ekki vitað um, hvernig ég ætlaði að tala í þessu máli. Mér finnst þetta dálítið einkennileg staðhæfing hjá þessum hv. þm. Ef þetta skjal er svona mikilvægt sönnunargagn fyrir dugnaði í framkvæmdum vinstri stjórnarinnar í þessum málum, þá held ég, að það hefði verið látið sjá dagsins tjós, og mér dettur ekki í hug, að hv. 3. þm. Norðurl. e. loki þetta skjal niðri í skúffu eða hafi gert af hlífð við núv. ríkisstj. Ég get upplýst, að þetta skjal er ekki til hjá raforkumálaskrifstofunni. Og raforkumálastjóri fékk ekki fyrirmæli frá vinstri stjórninni um það að breyta 11 ára áætluninni, sem var orðin til 1957, í 10 ára áætlun. Einnig þetta er tilraun til blekkinga af hendi þessa hv. þm. Og mér finnst nú, að þegar blekkingavefurinn er orðinn þetta stór og þéttriðinn utan um hv. 3. þm. Norðurl. e., þá muni tæpast vera ástæða fyrir hann að nota sinn athugasemdatíma til þess að afsaka sig vegna þess, sem hann hefur borið fram, vegna þess að það mun ekki endast athugasemdatími til þess. Til þess þyrfti hann miklu lengri tíma.
Ég sé, að fundartími er búinn, og ég get stytt mál mitt. Ég þarf í rauninni ekki meira að segja við hv. 3. þm. Norðurl. e. Ég held, að það standi ákaflega lítið eftir af hans fullyrðingum. Og ég hygg, að hv. þm., sem hafa fylgzt með umr., séu mér sammála um það, að fullyrðingar hv. þm. um, að ég hafi staðhæft eitthvað, sem ekki styðst við staðreyndir, standist ekki. Og ég hygg tíka, að þeir, sem hafa fylgzt með þessum umr., telji eðlilegt, að þegar hv. 3. þm. Norðurl. e. er sannur að því að fara með blekkingar, óviljandi eða vitjandi, þá, sé eðlilegt, að því sé andmælt. Og ég hélt nú satt að segja, að ég hefði ekki gert það svo sérstaklega kröftuglega í dag, en hv. þm. taldi, að svo hefði verið. En ástæða var vissulega til að mótmæla því, sem fram kom, og átelja það, að tilraun er gerð til að halda því fram, að till. á þskj. 14 sé bráðnauðsynleg til þess, að rafvæðingu í landinu verði haldið áfram, og hagsmunir fólksins í þessu máli séu undir því komnir, að það verði gert. En ég tel, að nál. meiri hl., sem leggur það til, að málinu sé vísað til ríkisstj., sé bezta afgreiðsla á málinu.