07.11.1962
Sameinað þing: 9. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 187 í D-deild Alþingistíðinda. (2901)

41. mál, eiturlyfjanautn

Flm. (Alfreð Gíslason læknir):

Herra forseti. Í þessari till. felst, að athugað verði, hve mikil brögð eru hér á landi að ofneyzlu nautnatyfja, annarra en áfengis og tóbaks. Það felst einnig í þessari till., að athugað verði, hvaða lyf er helzt um að ræða og hvaðan og hvernig þau berast á markaðinn. Síðan verði á grundvelli þessarar athugunar gerðar ráðstafanir til að stemma stigu fyrir eiturlyfjaneyzlu og til þess að lækna eiturlyfjaneytendur.

Það er líklega óþarft að fara mörgum orðum um þessa till. nú. Ég lagði hana fram fyrir nokkrum vikum, og síðan hefur eiturlyfjaneyzla verið allmikið rædd og það af nokkru kappi, einkum í sumum dagblöðunum, í útvarpi var nýlega fluttur fróðlegur pistill, og fyrir einni viku bar hana á góma hér í sameinuðu Alþingi. Þá las hæstv. dómsmrh. skýrslur nokkurra embættismanna um nautnalyfjanotkun, og er það að mínum dómi það markverðasta, sem enn hefur fram komið í þessu máli. Þessar skýrslur, sem hæstv. dómsmrh. las, eru teknar saman af skyndingi að vísu að ráðherraboði. Það, sem þær sanna áþreifanlegast, er, að enginn þekkir að neinu ráði til þessa vandamáls, enginn veit um útbreiðstu eiturlyfjaneyzlunnar hér á landi né hvernig og með hverjum hætti hún þrífst. Sérstaklega virðist mega ráða það af skýrslunum, að lögreglan sé mjög fáfróð um þessa hluti.

Að vísu hefur hún fundið pilluglös hjá mönnum, sem hún hefur orðið að taka í sína vörzlu af ýmsum ástæðum, en það er nálega allt og sumt, sem lögreglan virðist vita. Rannsókn af hennar hálfu hefur engin farið fram að eigin frumkvæði, það aðeins bókað, sem af tilviljun kunni að berast þessum aðilum í hendur.

Þessar skýrslur, sem að ýmsu leyti eru fróðlegar, gefa vissulega vísbendingar, því skal ég ekki neita, en þær sanna lítið annað en þörfina fyrir ýtarlega, samræmda athugun þessa máls frá rótum. Það væri mikill misskilningur að ætla, að á þessum skýrslum væri unnt að grundvalla nokkrar ráðstafanir af viti. Það væri óviturlegt, að yfirvöld færu í þessu máli að beita boði og banni út frá þessum skýrslum, það væri að beita slíku boði og banni út í bláinn. Og það má ekki rasa um ráð fram eða hefja framkvæmdir aðeins vegna þess, að þetta mál hefur vakið almennt umtal í landinu. Hér á pólitískur taugaðstyrkur engan rétt á sér. Hér verður að fara að öllu með gát. Málið er viðkvæmt og vandmeðfarið.

Fyrst þarf að kynna sér ástandið og að því loknu leitast eftir mætti við að hjálpa. Vandamálið er fyrst og fremst fólgið í því, að það er nauðstatt fólk, sem hér er um að ræða, fólk, sem þarfnast hjálpar.

Ég hef hugleitt, hvar í þjóðfélaginu er að finna það fólk, sem nautnalyfin notar aðallega. Það mætti segja mér, að það væri að finna innan tiltölulega þröngra marka og aðallega í þrem tilteknum hópum. Í fyrsta lagi eru drykkjumennirnir, þessir ómetanlegu styrktar- og stuðningsmenn ríkissjóðs. Þeir sækjast eftir lyfjum, deyfandi eða örvandi eftir atvikum, til þess að auka áhrif áfengisins eða til að eyða eftirköstum þess. Í öðru lagi kemur til greina allstór hópur fólks, sem þjáist andlega eða líkamlega og þó oftast andlega vegna veiklunar eða vegna erfiðleika lífsins og aðsteðjandi ógæfu. Loks í þriðja lagi eru svo ungmennin, unglingarnir, sem lenda í óhollum félagsskap og virðast stundum beintínis tældir til að neyta nautnalyfja og þá allajafna í sambandi við drykkjusvall.

Ég hef persónulega kynnzt einstaklingum úr öllum þessum hópum og ætla sízt að gerast dómari yfir því fólki eða setja upp einhvern vandlætingarsvip eins og þann, sem mér fannst bregða fyrir hér í þessum sal fyrir einni viku, þegar spurt var, svarað og þakkað í sambandi við þetta mál. Ég er persónulega sannfærður um, að á bak við þessa óhugnanlegu lyfjamisnotkun, sem talin er vera og margan hneykslar nú, standi enn óhugnanlegri ógæfa, — ógæfa, sem er víðtækt þjóðfélagslegt mein, og því meini hefur sennilega verið allt of lítill gaumur gefinn til þessa. Ég er þeirrar skoðunar, að misnotkun örvandi og róandi lyfja sé runnin af sömu rót, nákvæmlega sömu rót og drykkjuskapur, og að sameiginlega rót sé að finna í vissum meinsemdum í þjófélaginu. Ég ætla ekki að ræða það vandamál nánar nú og tel mig enda ekki færan um það. En málið hefur áreiðanlega haft fjöldamargar hliðar.

Ég vil aðeins leyfa mér í örfáum orðum að tæpa á einu atriði, sem ég hygg að kunni að skipta hér miklu máli. Ég veit ekki, hvort hv. alþm. hafa veitt því eftirtekt, hversu illa er farið með hina uppvaxandi æsku þessa lands. Líklega er enginn aldursflokkur eins þjakaður og æskan hlutfallslega miðað við þrekið. Á sumrum er æskufólk og unglingar látin vinna erfið störf myrkranna á milli og stundum jafnvel hættuleg störf. Á veturna tekur lítið betra við. Þá stritar æskan frá morgni til kvölds við haldlausan skólalærdóm, og enginn merkir það jafnvel og hún sjálf, hversu ólífrænt og fjarri öllum skynsamlegum tilgangi þetta endalausa lexíustagl er. Allir þarfnast stunda til leikja, en æskan þó mest. En einmitt hún fær nú og á þessu landi fæstar stundirnar til leikja og fæst tækifærin til að þroska sína lyndiseinkunn. Henni gefst aldrei tækifæri til að læra þá list að njóta heilbrigðs lífs. Hún fær strit og aftur strit, en ekki tóm né tækifæri til þess að njóta langra og góðra tómstunda á hollan og heilbrigðan hátt.

Hér er um að ræða alvarlegan skort á uppeldi, og að honum býr áreiðanlega margur maðurinn ævilangt. Lífið verður allt of mörgum eitt samfellt brauðstrit og tómstundirnar, svo fáar sem þær eru, til þess eins að slappa af og gleyma. Dægrastyttingin verður að vera áreynslulaus vegna vinnuþreytunnar. Hún verður að vera áreynslulaus, bæði í andlegum og líkamlegum skilningi. Þreyttur, staðnaður hugur getur notið mynda og kvikmynda og tilbreytingarlausra tóna, en sé hann sjúkur orðinn af óyndi og lífsþreytu, þá er helzt sótzt eftir algleyminu í formi áfengis og annarra eiturlyfja.

Ég aðeins tæpi á þessu, og ég vil spyrja hv. alþm., hvort þeir séu ekki á því eins og ég, að hér sé um að ræða eina hliðina á því vandamáli, sem till. fjallar um, og kannske ekki þá veigaminnstu. En ég ræði þetta nú ekki frekar.

Ég skal ekki heldur ræða það aðkast, sem læknar hafa orðið fyrir í hvatvíslegum ályktunum einhverrar af lögregluskýrslunum og í lífsregnum blaðanna. Ég vænti þess, að sú hlið málsins verði síðar rædd opinberlega af meiri þekkingu. Hér skal ég aðeins minna á, að meðal hinna umræddu nautnalyfja eru dýrmæt lyf, sem erfitt er og verður að neita sjúklingum um þrátt fyrir misnotkunaráhættuna. Læknar geta ekki ráðið niðurlögum þeirra þjóðfélagslegu meina allra, sem slá hina veikari á meðal okkar til jarðar, en eftir mætti ber þeim þó að lina þjáningar, og til þess hafa þeir m.a. lyf.

Ég vænti þess, að þetta vandamál verði ekki látið detta upp fyrir, um leið og æsifregnum blaðanna linnir. Ég vona, að það verði tekið réttum tökum, föstum og rólegum tökum, og því hvet ég til þess, að þessi till. fái að nánar athuguðu máli jákvæða afgreiðslu hér á þinginu.

Herra forseti. Ég legg til. að þessari umr. verði frestað og að till. verði vísað til hv. allshn.