12.12.1962
Sameinað þing: 20. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 219 í D-deild Alþingistíðinda. (2963)
59. mál, vegabætur á Vestfjörðum
Sigurvin Einarsson:
Herra forseti. Með till. þeirri til þál., sem hér er til umr., er lagt til, að vegamálastjóra verði falið að gera áætlun um vegagerð á Vestfjörðum. Samkv. till. á takmarkið að vera það að ljúka á sem stytztum tíma aðalvegum í þessum landshluta, eins og það er orðað. Mér er það alger ráðgáta, í hverju hún á að vera fólgin, þessi áætlun, sem hér á að stofna til. Ég hef leitað eftir ráðningu á henni, bæði í ályktuninni sjálfri og grg., en ég hef ekki fundið hana. Þegar gera skal áætlun um einhverja framkvæmd, þá er venjan sú, að fyrst þarf að fara fram rannsókn á skilyrðum og aðstæðum og þess háttar til framkvæmdarinnar, og síðan er áætlunin byggð á þeirri rannsókn. En hvað er það, sem á að rannsaka og ekki hefur þegar verið rannsakað, til þess að ljúka megi aðalvegunum á Vestfjörðum? í grg, till. segir, með leyfi hæstv. forseta:
„Að slíkri framkvæmdaáætlun gæti orðið verulegt gagn. Með henni fengist yfirlit um ástandið, eins og það er, og hina brýnu þörf aukinna vegaframkvæmda og fjáröflun vegna þeirra.“
Hv. frsm. talaði um það einnig í sinni framsöguræðu, að rannsaka þyrfti, hvað eftir er að gera í vegagerð á Vestfjörðum hvað snertir aðalvegina og hvað það muni kosta. Mig furðar nú dálítið á því, hvað hv. flm. þessrar till. eru allt í einu orðnir ókunnugir vegunum á Vestfjörðum, eða réttara sagt vegleysunum á Vestfjörðum. En það eru allt þm. Vestfjarða, sem eru flm. að þessari till. Þeir segja, að það þurfi að rannsaka, hvernig ástandið er í vegamálunum þarna fyrir vestan og hvað muni kosta að ljúka aðalvegunum. En samkv. grg. till. eru þeir ekki alveg eins ókunnugir og þeir láta, í upphafi grg. með till. segja þeir, að miklar umbætur hafi orðið á vegamálum Vestfjarða á undanförnum árum. Og svo kemur lýsingin í grg. till. á því, hvernig ástandið í vegamálunum er þarna eftir miklu umbæturnar, með leyfi hæstv. forseta, segir svo:
„Heil byggðarlög eru enn þá veglaus og án akvegasambands. Aðalvegir um þennan landshluta eru svo lélegir og ófullkomnir, að óviðunandi verður að teljast. Í fyrstu snjóum lokast yfirleitt akvegasambandið um meginhluta Vestfjarða, og einstök byggðarlög eru einnig einangruð nær allan veturinn. Hefur þetta í för með sér margvíslegt óhagræði og erfiðleika fyrir atvinnu- og félagslíf fólksins.“
Já, svona er þá ástandið eftir miklu umbæturnar. Ljótir hafa þeir verið, Vestfjarðavegirnir, áður en þessar miklu umbætur hófust! En það eru ekki ókunnugir menn, sem lýsa ástandinu svona rækilega, enda eru þeir sífellt á ferðalagi um þennan landshluta, sem eðlilegt er. En samt segja þeir, að það þurfi að fá yfirlit um ástandið, hvernig það er.
Það hefur fyrr verið flutt þáltill. um áætlun um vegagerð. Það var á þinginu 1957–1958. 1. flm. að þeirri þáltill. var sá sami, sem er 1. flm. að þessari till., og 3. flm. að þeirri till. er 4. flm. að þessari till. Þessi till., sem þá var flutt, þ.e. fyrir 5 árum, hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að láta gera í samráði við vegamálastjóra samræmda framkvæmdaáætlun um vegagerð til þess að koma þeim landshlutum og héruðum sem fyrst í akvegasamband, sem enn þá eru ýmist vegiaus eða án sambands við meginvegakerfi landsins.“
Þessari till. var þá vísað til fjvn. Síðan var leitað álits vegamálastjóra um till., og þá kemur í ljós, að vegamálastjóri hefur á reiðum höndum fullnægjandi upplýsingar um ástandið í vegamálum í þessum landshlutum, sem í till. var rætt um, og auk þess hefur hann á reiðum höndum kostnaðaráætlun um að leggja þá vegi, sem þar vantar. Þessi till. var því ekki afgreidd í þessu formi, heldur flutti fjvn. þá sjáifstæða till. Og sú till. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að framkvæma í samráði við vegamálastjóra heildarathugun á ástandi vegakerfis landsins og gera á grundvelli þeirrar athugunar áætlun um nauðsynlegar umbætur á vegakerfinu með hliðsjón að þeirri þýðingu, sem viðunandi vegakerfi hefur fyrir byggð landsins í heild.“
Þessi till. var svo samþ. með shlj. atkv., og síðan fór fram þessi athugun á vegum vegamálastjóra. Skýrsla vegamálastjóra um þessa athugun var lögð fyrir samgmn. Alþ. 1959, en skýrslan nær til ársloka 1958, Þessi skýrsla er sannarlega fróðlegt plagg. Þar kemur það fram, að tveir landshlutar eru miklu verr settir í vegamálum en önnur byggðarlög landsins. Þetta eru Vestfirðir og Austurland. Um þetta skal ég nefna aðeins örfá dæmi.
Í skýrslunni eru vegirnir flokkaðir í 3 flokka. Það eru lagðir vegir eða fullgerðir vegir, það eru ruddir vegir, sem kalla má bráðabirgðavegi, og það eru óbílfærir vegir, m.ö.o. vegir, sem eru bara til á pappírnum, er ekki farið að leggja. Þessir óbílfæru þjóðvegir voru þá um 730 km langir í öllu landinu, en af þessum 730 km voru 479 km eða um 2/3 hlutarnir í tveimur landshlutunum, Vestfjörðum og Austurlandi. Aðeins 1/3 hlutinn af þessum vegum var í hinum fimm kjördæmunum til samans utan Reykjavíkur. Og af þeim 730 km, sem ég nefndi og voru þá ólagðir þjóðvegir í öllu landinu, voru 5 sýslur — aðeins 5 sýslur — með 433,3 km ólagða þjóðvegi eða um 3/5 hlutana, en hinar 17 sýslurnar voru með 2/5 hluta. Þessar 5 sýslur, sem þannig voru settar, eru Barðastrandarsýsla með 63.2 km, Norður-Ísafjarðarsýsla með 151.2 km, Strandasýsla með 89.5 km, Norður-Múlasýsla með 63.5 km og Suður-Múlasýsla með 65,9 km. Eins og menn sjá af þessu, eru allar þessar sýslur á Vestfjörðum og Austurlandi.
Í þessari skýrslu vegamálastjórans má líka sjá, hversu mikill hluti þjóðveganna í hverju kjördæmi eru fullgerðir vegir. Í Reykjaneskjördæmi voru þá 82.9% af þjóðvegunum fullgerðir vegir, í Vesturlandskjördæmi 67.4%, í Vestfjarðakjördæmi 46.6%, í Norðurlandskjördæmi vestra 74.6%, í Norðurlandskjördæmi eystra 70.4%, í Austurlandskjördæmi 37.2% og í Suðurlandskjördæmi 75.8%.
Þá er skýrt frá því í skýrslunni, að óbyggðar smábrýr, þ.e. 4–9 m langar brýr, voru þá 234 atts í landinu, en af þeim voru 143, eða um 3/5 hlutarnir, á Vestfjörðum og Austurlandi, aðeins 2/5 hlutarnir í hinum 5 kjördæmunum utan Reykjavíkur. Stærri brýr, 10 m og lengri, voru þá 97 óbyggðar í landinu. Af þeim voru 62 á Vestfjörðum og Austurlandi, en 35 annars staðar. Sveitabæir, sem ekkert vegasamband höfðu, voru þá 112 í landinu. Af þeim voru 61 á Vestfjörðum og Austurlandi, en 51 annars staðar á landinu.
Ég ætla, að þessi dæmi sýni það ótvírætt, að Vestfirðir og Austurland búa við bágbornara samgöngukerfi en nokkrir aðrir landshlutar. Þessi skýrsla vegamálastjórans er nú orðin 4 ára gömul, og hafa nokkrar breytingar á vegakerfinu að sjálfsögðu orðið síðan. En eftir fjárveitingunum að dæma til nýbyggingar þjóðvega undanfarin 4 ár eru engar líkur til þess, að hlutfallið milli landshlutanna hafi breytzt að nokkru ráði síðan 1958.
Á undanförnum 4 þingum hafa þm. stjórnarflokkanna fellt hverja einustu till., sem við stjórnarandstæðingar höfum flutt til hækkunar á fjárveitingum til samgöngumála Vestfjarða. Þó er heildarfjárveiting til nýbyggingar vega í landinu á undanförnum árum aðeins hækkuð um nokkurn hluta af því, sem fjárlögin hafa hækkað í heild á sama tíma.
Þá höfum við þrír framsóknarmenn í Ed., hv. 2. þm. Vestf., hv. 5. þm. Austf. og ég, flutt frv. um heimild fyrir ríkisstj. til að taka lán til vegabóta á Vestfjörðum og Austurtandi. Þetta frv. hefur verið flutt á 4 þingum, eftir að skýrsla vegamálastjóra var gerð, og síðast fluttum við þe2ta frv. á yfirstandandi þingi. Á tveimur fyrstu þingunum, sem við fluttum þetta frv., var það svæft í nefnd að tilhlutun stjórnarflokkanna. Þá var helzt haft á orði, að það mætti ekki fara að leggja vegi á Íslandi fyrir lánsfé. Á þriðja þinginu, þ.e. í fyrra, varð þessari viðbáru ekki komið við, því að þá var hæstv. ríkisstj. farin að leggja vegi fyrir lánsfé, en þá vísuðu stjórnarflokkarnir frv. til ríkisstj. á þeirri forsendu, að stjórnskipuð nefnd væri að endurskoða vegalög og ekki kæmi til mála að samþykkja þetta frv., meðan á því stæði. Á fjórða þinginu, þ.e. á yfirstandandi þingi, hefur þetta frv. okkar fengið fullnaðarafgreiðslu. Því var aftur vísað til ríkisstj. með atkv. stjórnarsinna í hv. Ed. Nú var ekki hægt að bera því við, að verið væri að endurskoða vegalög, því að þeirri endurskoðun var lokið, áður en þetta þing hófst. En þá varð að finna einhverja ástæðu til þess að vísa frv. til ríkisstj. Samkv. framsöguræðu hv. 10. landsk. þm., sem mætti fyrir frávísunartill. stjórnarsinna í hv. Ed., lýsti hann því yfir, að hæstv. ríkisstj. mundi flytja á þessu þingi frv. til nýrra vegalaga og með því frv. fengist í einu lagi afgreiðsla á öllum þeim till. um vegamál, sem nú lægju fyrir. En eins og kunnugt er, eru þessar till. aðallega þær að fá lánsfé til vegabóta á Austfjörðum og Vesturlandi, að fá lánsfé til Siglufjarðarvegar ytri, svokallaðs Strákavegar, till. um nýja þjóðvegi og till. um meira fjármagn í vegi. Hverjar efndir verða á því, að þetta frv. verði flutt á þessu þingi, það get ég að sjálfsögðu ekkert sagt um. En sé það ætlunin að leysa erfiðleika Vestfirðinga í vegamálum með því frv., hvernig stendur þá á því, að stjórnarsinnar flytja þessa till., sem hér er til umr., till. um áætlun, hvernig eigi að fara að því að leysa þessa erfiðleika Vestfirðinga? Sé lausnin skammt undan með væntanlegu frv, hæstv. ríkisstj., þá virðist þessi áætlunartill. vera út í hött.
Með því frv. um vegabætur á Vestfjörðum og Austurtandi, sem við fluttum frv. um í hv. Ed., var ætlazt til, að þessir landshlutar nytu svipaðrar fyrirgreiðslu og Reykjanes gerir nú með lánsfé. En sú varð ekki raunin á í hv. Ed., og þótt hv. 9. landsk. þm., formaður samgmn. Ed., segði í ræðu, að vegafé ætti fyrst og fremst að ganga til þeirra héraða, þar sem fólkið er flest, þá finnst mér, en það megi ekki minna vera en hv. þm. Nd. verði gefinn kostur á því að gera annaðhvort, að afneita þeirri stefnu í vegamálum eða staðfesta hana. Og til þess gefst tækifæri við afgreiðslu þessarar þáltill.
Það virðst vera nokkurt feimnismál, lántakan til Keflavíkurvegar. Engrar heimildar er leitað til þeirrar lántöku, og er þó ekki vitað um neina andstöðu hér á hv. Alþingi gegn því máli. Eina skýringin er sú, að það hafi ekki þótt gott til afspurnar vestur á fjörðum eða austur á landi að samþykkja lántöku til Keftavíkurvegar, en fella hliðstæðar lántökur til vega fyrir vestan og austan. Og ekki má gleyma Siglufjarðarveginum, um hann er sama sagan. En þetta stoðar ekkert. Fólkið í þessum landshlutum fylgist með því, hvað stjórnarflokkarnir hafa gert og eru að gera í þessum málum. Fólkið þar skilur ekki þessa tegund réttlætis, að neita einum um sams konar lánsfé sem öðrum er veitt og jafnvel halda heilum byggðarlögum vegalausum fyrir bragðið.
Mér sýnist, að þessi þáltill. um áætlun um Vestfjarðavegi sé bæði allt of lítil og allt of gagnsæ til að breiða hana yfir þetta mál. Vestfirðingar þurfa enga áætlun, þeir þurfa fjármagn. Þeir þurfa enga þáltill., þeir þurfa vegi. Flm. þessarar till. segja, að það þurfi að gera áætlun um, hvað þeir aðalvegir á Vestfjörðum muni kosta, sem þarf að leggja. Þessu mundi vegamálastjóri geta svarað með mjög stuttum fyrirvara, alveg eins og hann svaraði hv. fjvn. fyrir 4 árum. Hann mundi að sjálfsögðu reikna með þeim kostnaði, sem varð í vegagerð s.l. sumar, en aftur á móti er gersamlega þýðingarlaust að gera neina áætlun fram í tímann um kostnað við vegi í svo ört vaxandi dýrtíð sem nú er. Slík áætlun væri orðin úrelt, þegar snjóa leysir í vor.
Í þessari till. er rætt um aðalvegi á Vestfjörðum. Hvað eru aðalvegir, og hvað eru aukavegir? Er búið að flokka vegina, og ef svo er, hverjir hafa flokkað þá? Í þessari till. er talað um, að ljúka þurfi sóalvegunum þarna fyrir vestan. Það er ekki minnzt á að ljúka neinum öðrum vegum. Á að skilja þetta svo, að ríkið eigi að kosta aðalvegina, en hinir vegirnir komi ríkinu ekkert við? Og hverjir eiga þá að kosta þá? Ég vænti þess, að hv. frsm, þessa máls geti upplýst þingheim eitthvað um þetta.
Ég hef leyft mér ásamt hv. 5. þm. Austf, og hv. 2. þm. Vestf. að flytja brtt. við þessa till. til þál. Sú brtt. er á þskj. 100. Hún hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Tillgr. hljóði svo: Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að láta Vestfirði og Austurland njóta jafnréttis um lánsfé til vegagerðar við þann landshluta, þar sem að tilhlutan ríkisstj. er nú þegar unnið að vegagerð fyrir lánsfé.
Fyrirsögn till. orðist svo: Till. til þál. um lánsfé til vegagerðar.“
Að sjálfsögðu er þetta gerbreyting á till. Í stað þess að till. sé um áætlunargerð, sem enga þýðingu hefur, þegar ekkert vantar til vegagerðar á Vestfjörðum nema fjármagnið, þá viljum við freista þess, að Alþingi feli ríkisstj. að láta þá landshluta, sem verst eru settir með samgöngur, njóta jafnréttis um lánsfé til vegagerðar við þann landshluta, sem farið er að leggja um veg núna fyrir lánsfé. Ég held, að það verði erfitt að andmæla þessari brtt. með nokkrum rökum. Hitt er mér ljóst, að stjórnarflokkarnir geta með meirihlutavaldi sínu hér á hv. Alþingi að sjálfsögðu fellt þessa brtt., eins og þeir hafa fellt till. okkar um samgöngumál Vestfjarða á undanförnum árum.
En stundum er málstaðurinn svo sterkur, að meirihlutavaldið stenzt hann ekki til lengdar. Og slíkt atvik kom fyrir á s.l. sumri í samgöngumálum Vestfjarða. Á 4 undanförnum þingum, eftir að sjóflugvélar höfðu fallið úr sögunni, sem önnuðust samgöngur við Vestfirði, höfum við flutt till. um það, hv. 2. þm. Vestf. og ég, að veita nokkurt fé til að byggja flugvöll á Patreksfirði, en þar er mesta þéttbýlið á Vestfjörðum utan Ísafjarðar. Enginn flugvöllur er þar neins staðar í nágrenni, og flugsamgöngur féllu að sjálfsögðu algerlega niður þar vestra, þegar sjóflugvélarnar féllu úr sögunni. öll þessi 4 ár hefur stjórnarliðið hér á hv. Alþingi fellt þessar till. okkar, og líka við afgreiðslu núgildandi fjárlaga. En hvað skeður svo? Hæstv. ríkisstj, lætur byggja flugvöllinn í sumar. Að vísu er hann ekki fullgerður, en þó svo, að Douglas Dakotavél gat lent þar. Það þótti ekki ráðlegt að bíða með verkið lengur. Svo mikil var þörfin fyrir flugvöllinn þar vestra. Ég er jafnþakklátur hæstv. ríkisstj. fyrir þennan flugvöll eins og ég er óánægður með stjórnarflokkana fyrir að hafa fellt till. okkar um fjárveitingu í hann í 4 ár í röð. Hitt er aftur á móti önnur saga, sem ég ætla ekki að ræða hér, að hæstv. ríkisstj. framkvæmir verk, sem hún hefur enga fjárveitingu til og meiri hl. Alþingis hefur meira að segja lýst sig andvígan.
En sagan um flugvöllinn getur endurtekið sig. Það er ekki víst, að öllu lengur verði unnt áð standa gegn því, að Vestfirðingar, Austfirðingar og Siglfirðingar njóti sama réttar um lánsfé til vegabóta og nú þegar er farið að veita öðrum.