12.12.1962
Sameinað þing: 20. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 224 í D-deild Alþingistíðinda. (2964)
59. mál, vegabætur á Vestfjörðum
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Mér þótti kenna ákaflega mikillar gremju hjá hv. 4. þm. Vestf. í ræðu hans í sambandi við þessa þáltill. og ummælin bera nokkurn blæ af eldhúsumr. með árás á hæstv. ríkisstj. Það er nú skammt til umr. um fjárlög, og verður þá hægt að koma því að og á þar frekar heima en við umr. um þá till., sem hér er til umræðu. Ég skal ekki hrella hv. þm. með því að ræða við þessa umr. þau mál.
Það, sem ber hér á milli mín og hv. 4. þm. Vestf., er það, hvort nokkurt gagn sé að því að láta fara fram nýja rannsókn á vegakerfi Vestfjarða og áætlun kostnaðar við að bæta þar úr. Ég lít svo á, að það sé undirstaða undir allar verklegar framkvæmdir að vita nokkurn veginn, hvað þarf að gera og hvað það kostar, og að það sé frumatriðið til þess að fá verk framkvæmt, það gefi og allmikla og sterka ástæðu til þess að knýja á, til þess að fá verkið framkvæmt, ef vitað er, fyrir víst, hvað mikið fé til þess þarf og hve langan tíma það tekur. Og það er nú það, sem þessi till. fer fram á að verði undirbúið. Hv. 4. þm. Vestf. er á annarri skoðun um þetta atriði, og skal ég ekki deila um það.
En ég vildi hins vegar leiðrétta þann misskilning, sem kom fram í hans ræðu, að það sé nokkurt ósamræmi í grg. um, að annars vegar hafi farið fram miklar umbætur á vegamálum Vestfjarða og hins vegar sé allmikið eftir að vinna. Hv. þm. er það vel kunnugt, að 1942, þegar ég kom fyrst á þing, var ekki hægt að aka lengra en í Þorskafjarðarbotn og það eftir mjög lélegum vegi. Honum er vel kunnugt um, að þetta hefur breytzt þannig, að nú er hægt að aka um meginhluta þess byggðarlags, sem till. nær yfir. Það er m.a. hægt að aka á svo að segja hvern einasta, bæ í Barðastrandarsýslu, og ég tel, að það hafi verið allmiklar umbætur. En honum þykja þessar umbætur kannske smáar, af því að hann hefur engan þátt átt í því, að þær væru framkvæmdar, og ekki heldur hans flokkur. Það voru fyrst tekin hér stór átök í þessum málum, eftir að Sjálfstfl. fékk þm. fyrir Barðastrandarsýslu. En þau ár, sem þessi hv. þm. sat fyrir Barðastrandarsýslu sérstaklega, gerði hann sannarlega ekki mikið fyrir málið. Hér er því um ekkert ósamræmi að ræða.
Mér er vel kunnugt um, að það lá fyrir skýrsla frá 1958 um vegagerð á öllu landinu. Við erum að vísu þm. fyrir allt landið, en okkur ber fyrst og fremst að hugsa um okkar kjördæmi, hvað snertir innanhéraðsmál. Og mér er líka kunnugt um, að þessi skýrsla er ekki þannig, að það sé ekki hægt að ganga betur frá henni og gera hana að sterkara gagni í höndum okkar til þess að fá þetta framkvæmt. M.a. ef hann hefur lesið rétt upp úr þessari skýrslu, að ólagðir vegir væru 88.2 km í héraðinu, þá er það algerlega rangt. Það er miklu meira af ólögðum þjóðvegum en það, því að bara þjóðvegurinn frá Ísafirði og inn að Ögri mun vera upp undir eða yfir 100 km, og þá eru allir aðrir ólagðir þjóðvegir í héraðinu ótaldir. Ef skýrslan er ekki nákvæmari en þetta, er sannarlega engin vanþörf á því að gera nýjar athuganir og nýjar áætlanir um vegagerð á Vestfjörðum.
Annars þótti mér hv, þm. blanda allt of mikið saman Vesturlandi og Austurlandi í sambandi við þetta mát, því þó að, eins og ég sagði áðan, við séum báðir fyrir allt landið, þá vænta kjósendur í Vestfirðingafjórðungi þess, að það hérað sé ofar í huga hans en kjördæmi á Austurlandi, hvað snertir héraðsmálin.
Hv. þm. spurði, hvað væru aðalvegir og hvað væru aukavegir á Vestfjarðakjálka. Ég hélt, að hann væri svo kunnugur þeim málum, að hann vissi, að vegakerfið um allt landið er flokkað í þjóðvegi, sýsluvegi og hreppavegi. Hann spurði einnig um það, hverjir ættu að borga þá vegi, sem ekki væru aðalvegir. Hann veit einnig um það, að nokkur hluti af sýsluvegunum er borgaður af sýsluvegasjóði og nokkur hluti er lagður fram af ríkissjóði. Þetta, er hv, þm. vel kunnugt um. Hvernig þessu verður hagað, eftir að búið er að breyta vegalöggjöfinni, skal ég ekkert segja um. Þar fær hann sjálfsagt tækifæri til þess að gera till. um, þegar þau mál koma hér til umr., sem ég vona að verði á þessu þingi. En till. leggur aðaláherzlu á, að það verði fyrst og fremst byggðir upp aðalvegirnir, það eru aðalþjóðvegir í gegnum héraðið. M.a. er hv. þm. vel kunnugt um, að það er höfuðskilyrði í sambandi við aukinn landbúnað í sveitum landsins, ekki síður á Vestfjörðum en annars staðar, að byggja upp þá vegi, sem sæmilega eru þó bílfærir að sumrinu til, en engan veginn færir að vetrinum til, að byggja þá upp, svo að þeir séu einnig vetrarfærir, til þess að flytja mjólk í hinar fyrirhuguðu mjólkurstöðvar, sem er verið að byggja upp í héraðinu. Það er reiknað með þeim vegum, sem eru aðalvegir, vegna þess að þeir eru höfuðskilyrði fyrir atvinnumál héraðsins. Hins vegar eru aðrir vegakaflar, þjóðvegir og hreppavegir, sem eru ekki eins aðkallandi.
Hvað snertir þá till., sem hér er fram borin á þskj. 100, þá er hún byggð á þessum höfuðágreiningi milli okkar, að hv. 4. þm. Vestf. og þá einnig hans hv. meðflm. leggja aðalkappið á það að fá annaðhvort lán eða fjárveitingu og þá helzt lán til veganna og vinna það verk þá án undangenginnar áætlunar og rannsókna, hvernig það skuli gert. Það er mjög miklu munur á því, hvort þessir vegir verða 8 m breiðir, 10 m breiðir eða 6 m breiðir, og það er eitt af því, sem ég álit að þurfi að athuga og ákveða, áður en hafizt er handa, hve breiðir og kostnaðarsamir þessir vegir skulu vera. Og ef við hefðum átt að byrja á því 1942 að leggja fullkomna vegi, eins og gert hefur verið víða í landinu, þá væri ekki hægt að aka mikið um Vestfirði í dag. Það var einmitt tekin sú stefna, sem ég álít að hafi verið rétt og allir viðurkenna nú að sé rétt, að reyna að búa til fyrst það, sem við kölluðum skriðvegi, komast yfir verstu kafla með nokkuð örugga vegi, nota annars landstagið, þar sem hægt er, án þess að byggja vegina upp, og það er þetta, sem hefur hjálpað til, að Vesturland hefur komizt í vegasamband, svo sem sýnir sig vegagerð á Þingmannaheiði, þar sem alla þá 25 km er raunverulega lítið sem ekkert byggt upp af vegunum, heldur aðeins notazt við skriðvegi. Hins vegar þarf að breyta þessu öllu, sérstaklega þar sem eru vegir til mjólkurflutninga á vetrum, og breyta því með því að byggja þessa vegi upp. Um þetta þarf að gera sérstakar áætlanir. Þegar það liggur fyrir, þá þarf að sjálfsögðu að afla þess fjár, sem þarf til þess að koma þessu í hæfilegt ástand. Þeir leggja hins vegar til, að það sé ekkert gert af þessu. Ef till. þeirra er samþ., þá fellur sá hluti niður, sem ætlazt er til að snerti áætlanir, heldur verði aðeins Vestfirðir og Austurland látin njóta jafnréttis um lánsfé til vegagerða við þann landshluta, þar sem að tilhlutan ríkisstj. er nú þegar unnið að vegagerð fyrir lánsfé:. Nú er þetta orðað þannig, að það verður ákaflega erfitt að segja til um, hvernig þetta ætti að framkvæma, því að í dag er unnið fyrir lánsfé um allt land, ekki einungis við Keflavíkurveg, heldur um allt land og m.a. mjög mikið á Austfjörðum. Um allt land hefur ásóknin verið svo í vegaframkvæmdir, að svo að segja hvert eitt einasta hérað hefur tekið lán til þess að koma vegunum að einhverju leyti áfram, svo að viðmiðuninni, sem gerð er í þessari till., er ekki svo auðvelt að átta sig á, hvernig á að framkvæma þetta mái. Ég vil m.a. benda á, að það hefur verið unnið fyrir 500 eða 600 þús. kr. í Ögurvegi fyrir lánsfé, og er svo víðar á landinu. Ég hygg, að hv. þm. hafi, þegar hann ritaði þessa brtt., verið með hugann ákaflega mikið í hernámsgöngu á því svæði, þar sem hann hefur æft sig í hernámsgöngu undanfarin ár, og alveg gleymt því, hvað gert er á öðrum stöðum í landinu, og hafi þess vegna hugsað eingöngu um þennan kafla í landinu, þar sem hann gefst upp annað hvert ár og lætur bílinn hirða sig, svo að hann geti komizt í bæinn, — hann hafi þá gleymt Vestfjörðunum og Austurlandinu á sama tíma.
Ég skal ekki eyða tíma hv. Alþ. til þess að ræða meira þessi atriði, óska eftir því, að till. verði látin ganga til allshn. Ég á þar sæti sjálfur og fæ þá, tækifæri til þess að athuga málið og m.a. fá hv. flm. á fund með allshn. til þess að fá nánari skýringu á því, hvað þeir meina með sinni till., sem mér sýnist að sé heldur óskýrt orðuð, eins og hún er hér á blaðinu. Ég skal með ánægju biðja hv. formann n. um að kalla þá á fund til n. til þess að vita, hvort þeir gætu gefið frekari skýringar, hvað þeir meina með till.