12.12.1962
Sameinað þing: 20. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 227 í D-deild Alþingistíðinda. (2965)
59. mál, vegabætur á Vestfjörðum
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Ég ætla nú ekki að blanda mér inn í þessar umr. Það eru aðeins ummæli hv. þm. Sigurvins Einarssonar áðan um það, að flugvöllurinn á Patreksfirði hafi verið byggður í heimildarleysi (SE: Án fjárveitingar.) — eða án fjárveitingar. Getur það nú ekki í þessu tilfelli verið nokkuð það sama að byggja völlinn án fjárveitingar eða í heimildarleysi? Ég held, að það hljóti að vera eitt og það sama, því að ef það er gert án fjárveitingar, þá er féð tekið án heimildar.
Hv. þm. ætti ekki að vera svona óvarkár í ummælum sínum hér á hv. Alþ. Hv. þm. fer algerlega rangt með, og ég tel ástæðu til að vekja athygli á því. í fjárlögum yfirstandandi árs eru veittar 10 millj. 720 þús. kr. til flugvalla. Þessu fé er ekki skipt, vegna þess að ætlazt er til, að flugráð geri það. Flugráð gerði till. til rn. um flugvöll á Patreksfirði. Þess vegna var hann byggður fyrir hluta af því fé, sem veitt var á þessu ári til flugvallagerða.
Ég sé ekki ástæðu til að orðlengja meira um þetta. En þakklæti hv. þm. fyrir þessa framkvæmd kemur dálítið einkennilega út, þegar hann í leiðinni gerir tilraun til þess að blekkja hv. alþm. og þjóðina alla, sem fær fréttir hér úr þinginu, með því að segja: Að vísu var þar unnið gott verk, að þessi flugvöllur er kominn, en það var gert í heimildarleysi.