29.01.1963
Sameinað þing: 26. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 246 í D-deild Alþingistíðinda. (2991)

68. mál, laxveiðijarðir

Halldór E. Sigurðsson:

Herra forseti. á siðasta Atþingi barst okkur þm. Vesturl. erindi frá nokkrum bændum í Álftaneshreppi í Mýrasýslu um athugun á þessu máli. í hópi okkar þm. Vesturl. lagði ég þetta mál fyrir. Var þá ákveðið, að við ynnum sameiginlega að því að reyna að finna, lausn á þessu vandamáli. Þetta var seint á þinginu, sem okkur barst þetta erindi, og vannst okkur þess vegna ekki tími til að finna þau úrræði, sem við töldum mundu henta.

Á fyrsta fundi, sem við þm. Vesturlands héldum á yfirstandandi Alþingi, hreyfði ég þessu máli á nýjan leik í þeirri von, að við gætum allir staðið að því. Á þeim fundi var hv. 5. þm. Vesturl. ekki. Það var álit okkar hinna 4, að við skyldum vinna áfram að þessu máli og reyna að finna þá lausn, sem að gagni mætti koma. Nokkrum dögum eftir að við héldum þann fund, birtist á þskj. þáltill. sú, sem hér er til umr. Nú hefur hver þm. auðvitað rétt til þess að flytja mál svo sem honum sýnist og jafnvel þó að annar hafi lagt það fyrir í þingmannahópi, eins og á sér stað með þetta. Hins vegar er það í fyrsta sinn, sem þannig hefur verið farið með mál innan okkar þingmannahóps.

Hver og einn ræður því, hvaða vinnuaðferð hann kýs helzt. Hér er um mikið vandamál að ræða, og skiptir því mestu, að lausn finnist á vandanum. Það hefur mjög borið á því í Borgarfirði, að jarðir hafa verið keyptar upp meðfram laxveiðiánum og þær ekki nýttar að öðru leyti en því, að laxveiðin hefur verið notuð, en jörðin sjálf farið í eyði. Þetta er að verða mjög áberandi kringum Langá, og horfir til stórra vandræða, ef svo heldur áfram.

Ég hef átt hlut að því að ræða þetta mál við mjög færa menn, bæði á sviði lögfræði og forustumenn í landbúnaði, vegna þess að mér er það fullkomlega ljóst, að hér er um stórkostlegt vandamál að ræða. En vandinn liggur í því, að þegar fráfarandi vill selja, þá, verður erfitt að banna kaupanda að kaupa jörðina, nema annar kaupandi sé til staðar, þó að það hins vegar leiði til þess, að jörðin verði lögð í eyði. En þar sem hér getur verið um að ræða svo alvarlegt vandamál, að heilt hreppsfélag gæti lagzt næstum því í auðn vegna þessara framkvæmda, þá þarf að taka föstum tökum á málinu.

Ég held, að það muni ekki nægja, þó að Alþingi láti í ljós áhyggjur sínar, eins og tekið er fram í grg. fyrir þessari þáltill. Hér þarf að taka á þessu vandamáli með festu, og það er mjög erfitt viðfangs. En það er enn þá verið að vinna að því á vegum okkar þm. Vesturl. að leita eftir frekari úrræðum en hér er bent á, því að hér er nánast ekki bent á annað en að Alþingi hafi áhyggjur af málinu. Og er von um það, að lausn megi finnast til þess að leysa þennan vanda, það er aðatatriði málsins, og skiptir þá ekki máli, hvort þessi till. verður samþ. eða ekki í þeim efnum.