13.12.1962
Sameinað þing: 21. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 425 í B-deild Alþingistíðinda. (301)

1. mál, fjárlög 1963

Björn Fr. Björnsson:

Herra forseti. Ég leyfi mér ásamt hv. 2. og hv. 6. þm. Sunnl. að flytja við fjárl. nokkrar brtt. og einnig brtt. við till. á þskj. 175, og leyfi ég mér að fara um þessar till. flestar örfáum orðum, en sé ekki ástæðu til þess að viðhafa langt mál, heldur aðeins vekja athygli á þessum till., sem allar eru að áliti okkar flm. hinar merkustu og mikil nauðsyn þess, að fram nái að ganga.

Ég get þá fyrst um till. nr. 1 á þskj. 191. Það er till. frá okkur hv. 2. þm. Sunnl., brtt. við 12. gr. IX, bygging sjúkrahúsa o. fl. Við gerum till. um það, að upphæðin 7 millj. hækki upp í 10 millj., og í öðru lagi, að aftan við þennan lið bætist svo hljóðandi aths.: „Þar af 500 þús. kr. til sjúkrahússins á Selfossi og 2 millj. 500 þús. til sjúkrahússins í Vestmannaeyjum.

Við höfum áður á undanförnum þingum flutt brtt. í líka átt og þessa varðandi sjúkrahúsið á Selfossi, en því miður hafa þær till. ekki fundið náð hjá meiri hl. þingheims og verið felldar. Þá hef ég á undanförnum tveim árum átt hlut að því að flytja frv. til l. um breyt. á l. um fjórðungssjúkrahús, þar sem nýtt sjúkrahús væntanlegt í Vestmannaeyjum yrði tekið í tölu fjórðungssjúkrahúsa vegna sérlegrar aðstöðu Vestmannaeyja í þessu efni og mörgu öðru. Nú er svo komið, að sjúkrahúsmálið í Vestmannaeyjum er komið á nokkra hreyfingu og heimamenn þar reiðubúnir að leggja af mörkum tilskilinn kostnaðarhluta af sinni hálfu. Ég tel, að það sé engin ástæða til þess, að ganga eigi svo frá næstu fjárl., fjárl. fyrir 1963, að ekki sé tekið þar alveg sérstaklega fram, að leggja skuli þessa fjárhæð, 2 millj. 500 þús. kr., til sjúkrahúsbyggingarinnar í Vestmannaeyjum af hálfu ríkissjóðs. Kostnaður alls mun vera milli 20 og 30 millj. og verður kannske einhver meiri og vafalaust, eftir því sem dýrtíðarspólan heldur áfram og eykur á sig, þannig að þessi fjárhæð, 2 millj. 500 þús. kr., sýnist engan veginn vera of stór fjárhæð, jafnvel síður en svo. En við töldum þó rétt að staldra við þessa fjárhæð í þetta sinn og sjá til. Því var heitið í umr. í fyrra um frv. okkar nokkurra þm. Sunnl. um fjórðungssjúkrahús í Vestmannaeyjum eða styrk til þess með sama hætti og veittur er til fjórðungssjúkrahúsa, að sjúkrahúsmáli í Vestmannaeyjum yrði verulegur gaumur gefinn af stjórnarvöldum. En ég hef ekki orðið var við, að þau hafi enn sérstaklega lagt á sig eða lagt af mörkum til þess máls. En vænta má þess, að svo verði á næsta ári eða næstu árum. Ég þarf ekki að rökstyðja þessa miklu þörf Vestmanneyinga á nýju sjúkrahúsi. Það hefur oft verið gert hér, og ég vænti þess, að þm. viti um hana og þegar til kemur um þessa brtt. við fjárl., greiði atkv. með henni.

Þá er það 3. brtt. á þskj. 191. Hún fjallar um skólamál eða nánar tiltekið um nýbyggingu barnaskóla o. fl., brtt. við 14. gr. A. X, nr. 23. Það eru þrír nýir liðir. Tveir liðanna eru varðandi barnaskóla, sá fyrri, að heimavistarbarnaskóli að Kirkjubæjarklaustri í Vestur-Skaftafellssýslu fái í fyrsta áfanga 300 þús. kr. Annar liðurinn er till. um framlag til íþróttahúsbyggingar í Hveragerði að fjárhæð 250 þús. kr. Og þriðja atriðið er svo till. um 500 þús. kr. fjárframlag úr ríkissjóði til byggingar heimavistar og skólastjóraíbúðar að Skógum undir Eyjafjöllum. Vil ég þá leyfa mér að taka hvern lið fyrir sig og ræða hann örlítið og byrja þá austast, að Kirkjubæjarklaustri.

Árið 1960 voru allir hreppar í Vestur-Skaftafellssýslu milli Mýrdalssands og Skeiðarársands sammála um það að byggja heimavistarskóla að Kirkjubæjarklaustri og töldu ekki verða hjá því komizt og verkið yrði að vinnast sem allra fyrst. Var ráðgert, að þar yrði miðstöð þessara hreppa, sem munu vera fjórir, Hörgslandshreppur, Kirkjubæjarhreppur, Leiðvallarhreppur og Skaftártunguhreppur, og fyrir því ráð gert, að skólinn verði bæði fyrir börn og unglinga á öllu þessu stóra svæði. Gerð hefur verið kostnaðaráætlun um þennan skóla, og er hún á þá lund, að heildarkostnaður er áætlaður 7 millj. kr., hlutur ríkissjóðs 5 millj. 250 þús., og 1/5 hluti af ríkissjóðstillagi yrði þá eða fyrsti áfangi samkv. þessari áætlun 1 millj. og 50 þús. kr. Við drögum dálítið úr byrjunarfjárhæð ríkissjóðs, helmingum hana og gerum till. um 500 þús. kr. í okkar till. Ég vil í sambandi við þennan skóla taka það fram, að þessir hreppar og margir aðrir í Vestur-Skaftafellssýslu byggðu sín skólahús strax eftir að fræðslulögin frá 1907 tóku gildi eða um það leyti, og flest þeirra eru, held ég, að ég megi segja, í notkun enn í dag, og má þá hver sjá og vita, hversu mjög þau hljóta að vera ófullnægjandi, enda hygg ég, að engum dyljist það. Það er því mikil nauðsyn þess að reisa fjögurra hreppa skóla á þessum stað, sem yrði heimavistarskóli. Eins og allir vita, er á Kirkjubæjarklaustri nokkur miðstöð þegar og nokkuð margt um manninn. Þar hafa mörg hús verið byggð. Ég held, að þar hafi læknir aðsetur og margir fleiri. Þar er veitingastaður mjög fjölsóttur, aðallega að sumarlagi, þó þannig, að þetta er orðið vísir að miðstöð á þessu stóra svæði fyrir austan sandinn, og skólabygging af þessu tagi mundi leysa mjög þann vanda, sem er á um barnafræðslu á þessum slóðum. Okkur flm. er það ljóst eins og öllum þm., að skólamálin taka drjúgum til sín úr ríkissjóði, og er stórfjárhæð veitt til þeirra mála, og má ævinlega deila um það, hver röð eigi að vera á framkvæmdum í þessu efni, en ég hygg, að skólabygging eins og á Kirkjubæjarklaustri eigi að koma í fremstu röð og eins þær skólabyggingar aðrar, sem við gerum till. um. Mér segir Aðalsteinn Eiríksson námsstjóri, að undirbúningur undir þessa skólabyggingu sé hinn ágætasti á alla lund og áhugi, eins og ég hef áður drepið á, heimamanna mjög mikill fyrir því, að hún geti hafizt sem fyrst.

Þá vil ég leyfa mér að koma að Hveragerði. Þar gerum við till. um, að íþróttahús verði byggt í fyrsta áfanga á næsta ári og með framlagi af ríkisins hálfu 250 þús. kr. Ég vil geta þess, að byggingu núv. skólahúsnæðis í Hveragerði lauk árið 1947 og kennsla hófst í því sama ár. En það fórst fyrir að ráðast í byggingu leikfimihúss eða íþróttahúss þá þegar, en tekið það ráð að innrétta eina kennslustofuna sem leikfimistofu. Sú stofa er harla lítil og ónóg. Í barnaskólanum eru 173 nemendur og í miðskólanum 57, eða samtals 230 nemendur. Ég vil geta þess, að í sambandi við leikfimistofuna, þessa litlu leikfimistofu, sem er um 48 fermetrar, eru engin böð og nemendur hafa því ekki tök á því, eftir því sem skólanefnd segir, að þvo af sér eftir hverja leikfimistund. Umsókn af hálfu skólanefndar og hreppsnefndar í Hveragerði um byggingu á nýju leikfimihúsi var send til fræðslumálastjóra 1957, en enn í dag hefur ekki fengizt nein fjárveiting til þessarar framkvæmdar. Er auðsætt, að við það er ekki hægt að búa, að það dragist lengur úr hömlu af hálfu ríkissjóðs að leggja af mörkum til framkvæmda á þessum stað. Biðin er orðin æðilöng og allt of löng, og við flm. till. eigum von á því, að meiri hl. þingheims fallist á að samþykkja till. okkar. Hún hefur lengi verið á áskaskrá, en aldrei náð fram til fjárl.

Þá er það 3. till. um skólabyggingar. Hún er um það, að ríkissjóður leggi af mörkum 500 þús. til byggingar heimavistarskóla og skólastjóraíbúðar að Skógum undir Eyjafjöllum. Í mörg ár hefur skólanefnd Skógaskóla og héruðin, bæði Rangárvallasýsla og VesturSkaftafellssýsla, óskað eftir því, að húsnæði í Skógaskóla yrði aukið, þannig að til viðbótar fengjust tvær íbúðir kennara og auk þess heimavistarhús fyrir allt að 32 nemendur. Flestir okkar vita um, hversu mikill öndvegisstaður Skógar eru orðnir undir forustu þeirra skólastjóra, sem þar hafa ráðið ríkjum frá árinu 1949, er þessi héraðsgagnfræðaskóli tók til starfa. Og fyrir löngu hefur hann sprengt af sér allt húsnæði. Í vetur munu vera hartnær 120 nemendur í skólanum fyrir utan kennara marga og starfsfólk annað. En ekki var gert ráð fyrir því, að hann gæti tekið, eins og á stendur og á hefur staðið um nokkurra ára bil, fleiri nemendur en 90–100, og aðsóknin er geysileg. Má geta þess, að hartnær 50–80 umsóknum til skólavistar af hálfu nýrra nemenda hefur orðið að kasta fyrir róða á hverju ári núna síðustu 2–3 árin.

Þá má geta þess, að enn vantar húsnæði og hefur vantað í raun og veru frá upphafi til þess að halda uppi verklegri kennslu, smíðum og öðru slíku. En til þess ráðs var brugðið nokkuð jafnsnemma og skólinn tók til starfa að láta slíka kennslu fara fram í tiltölulega ómerkilegum og illa byggðum skúr, sem byggður var utan um rafmagnsvélar skólans. En fyrir 2–3 árum brann þessi skúr, og síðan hefur þessi kennsla verið mjög á hrakhólum. Í sambandi við þá byggingu, sem nú er áformað að leggja í eða framkvæma, er gert ráð fyrir því, að komið verði upp húsnæði fyrir verknám að einhverju leyti og a.m.k. að frekara leyti en áður hefur verið.

Þá vil ég geta þess, að húsnæðisvandræði í Skógum hafa leitt til þess, að það hefur verið ákaflega erfitt að fá kennara og varla um annað að ræða en skólanefnd hlíti því, að sá kennari, sem kemur til starfa hverju sinni, sé einhleypur. Þannig stendur á um kennarahúsnæðið. Og því er það, að kennaraskipti hafa verið ærin og ískyggileg, og vafalaust er það, að ef ekki verður ráðin bót á hið allra fyrsta, þá mun verr fara á þessum stað.

Eins og ég hef áður sagt, hefur skólanefnd í nokkur ár óskað eftir því að mega leggja í þessa framkvæmd, sem höfuðnauðsyn er að leggja til atlögu við, og ég vil vænta þess, að þessum till. varðandi skálabyggingar sjái þingheimur eða meiri hl, hans sér fært að ljá atkv. sitt.

Ég vil geta þess í sambandi við þessar framkvæmdir í Skógum, að það er gert ráð fyrir því í fjárhagsáætlun, að fyrsta greiðsla yrði, ef til kæmi, 875 þús. kr. af hálfu ríkisins, en við gerum ráð fyrir aðeins 500 þús. kr. og lítum með samúð á þá erfiðleika, sem stjórnarvöld eiga í um fjártillög til þessara mála.

Þá er komið að 5. lið á þskj. 191. Það er brtt. frá okkur hv. 2. þm. Sunnl. á þá leið, að nýr liður komi við 16. gr. D. XIII, til jarðborana á Selfossi, 300 þús. kr. Fyrir hv. Alþingi liggur till. til þál. um leit að heitu vatni á Selfossi og að Laugardælum, sem flutt er af hv. 2. þm. Sunnl. og hv. 6. þm. Sunnl. Í þessari þáltill. segir:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að hlutast til um, að á vegum jarðhitasjóðs verði gerð leit að heitu vatni í Selfosshreppi og að Laugardælum og verði sú leit við það miðuð, að möguleikar finnist til þess að auka hitaveitu til hitunar íbúðarhúsa og iðnaðarframkvæmda á Selfossi.“

Eins og kunnugt er, hefur hitaveitan verið í starfi á Selfossi nú um langt skeið. Upphaflega var það Kaupfélag Árnesinga, sem hratt henni af stað og lét koma henni upp í nágrenni Selfoss, þar sem heitt vatn var að Laugardælum, en Laugardælatorfan var á þeirri tíð eign Kaupfélags Árnesinga. Að komið var heitu vatni upp til afnota á Selfossi, var því fyrir tilstilli og á kostnað Kaupfélags Árnesinga. Nú hefur byggðin á Selfossi þanizt út með hverju ári, og munu vera þar íbúar allt að eða rúmlega 2000, og er verulega mikil byggð fyrir vestan ána. Þangað hefur heitt vatn ekki verið leitt, og nú undanfarið hafa hreppsyfirvöld í Selfosshreppi gengizt fyrir því með nokkurri aðstoð af opinberri hálfu að hefja leit að heitu vatni vestan árinnar. En þessar upphafsrannsóknir munu hafa leitt það í ljós, að þarna verður mjög að vinna, og mun valda geysilega miklum kostnaði, ef framkvæmdin á að hafast, að heitt vatn komist til skila, svo að í lagi sé. Og víst er um það, að opinberir aðilar á Selfossi eða hreppsnefndin mun ekki hafa tök á að standa undir nema örlitlum hluta þess kostnaðar, sem af þessari borun eða hitaleit kann að leiða, og þess vegna er þessi till. að sjálfsögðu fram borin um það, að ríkið hjálpi eða hlaupi þarna undir bagga. Okkur flm. þótti rétt að fara með fjárhagshliðina einmitt inn á fjárl, og þess vegna er till. fram komin. Er vafalaust, að kostnaðurinn getur orðið margfalt meiri en þessi, þess er ekki að dyljast, — en við sáum okkur þó ekki fært að hafa fjárhæðina öllu hærri en þessa, 300 þús. kr. til jarðborana á Selfossi, og ég vænti þess, að hv. alþm. sjái, hver nauðsyn er á að hlynna að þessu máli hins blómlega og merkilega þorps, sem þarna er að rísa upp á öndvegisstað á Suðurlandi, og komi þannig til móts við það fólk, sem þar er við landnám og vinnur að því að byggja stóra og mikilfenglega borg í þessu viðlenda og fagra héraði.

Þá hef ég lítillega minnzt á þær till., sem við sunnlenzku þm., sem ég hef áður talið upp, leyfum okkur að flytja, og ég vil endurtaka þá ósk mína, að hv. þm. sjái sér fært að greiða atkv. sitt með till. okkar.