06.02.1963
Sameinað þing: 28. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 263 í D-deild Alþingistíðinda. (3020)

96. mál, jarðhitarannsóknir á Norðurlandi eystra

Flm. (Karl Kristjánsson):

Herra forseti. Við sex, sem erum þm. fyrir Norðurl. e., ásamt tveimur landskjörnum þm. úr því kjördæmi, höfum leyft okkur að leggja fram till. á þskj. 116 til þál, um jarðhitarannsóknir, jarðhitaleit og áætlanir um hagnýtingu jarðhita á Norðurlandi eystra.

Í jarðhitanum á Íslandi eru mikil auðæfi, sem enn eru ekki hagnýtt nema að örlitlu leyti. Samt er talið, að nú orðið muni meir en 1/4 hluti landsmanna búa í húsum, sem hituð eru með jarðhita. Gróðurhús eru allvíða rekin við jarðhita, og um 80 sundlaugar í landinu nota hveravatn. Reynslan er alls staðar hin æskilegasta, þar sem tekizt hefur að ná til nægilegs hita og hagnýta hann, lífsþægindin mikil fyrir notendur, framleiðsluaukning af jarðargróða og mikill gjaldeyrissparnaður. Eðlilegt er, að fólk, sem býr, þar sem líklegt er, að hagnýta megi þessar auðlindir, hafi áhuga á, að skilyrði verði rannsökuð. En slíkar rannsóknir verða ekki gerðar yfirleitt, svo að gagni komi, nema af kunnáttumönnum. Jarðboranir eru kostnaðarsamar, og má því ekki í þær ráðast nema að vel og vísindalega athuguðum aðstæðum. Hið opinbera verður þess vegna að hafa í þessum málum forgöngu í framkvæmdum og leggja til hina fræðilegu forsjón og fyrirhyggju. Auk þess verður hið opinbera að taka á sig um leið að verulegu leyti fjárhagslega áhættu af jarðhitaleit, bera kostnað, ef leitin mistekst eða ber ekki árangur.

Lögin um jarðhitasjóð og jarðboranir ríkisins frá 25. marz 1961 eru líka byggð á þeirri hugsun. Sú hugsun er grundvöllur þeirra laga og andi þeirra.

Sá landshluti, sem hér á Alþingi er orðið fast í máli að kalla Norðurland eystra, liggur að verulegu leyti í aðaljarðhitabelti landsins eða rétt við það. Heitt vatn dreifist með sprungum víðs vegar um þennan landshluta út frá jarðhitabeltinu sjálfu.

Dálítið hafa menn á Norðurlandi eystra nú þegar getað tekið jarðhitann til þjónustu. Ólafsfjarðarkaupstaður hefur til þess að gera á auðveldan hátt getað náð heitu vatni til húsahitunar hjá sér. Nokkur býli hér og þar hafa heitt vatn til híbýlahitunar. Nokkrir skólar og sundlaugar hafa verið byggð við auðfenginn jarðhita, einnig fáein gróðurhús. Þá er heilsuhælið að Kristnesi hitað á þann hátt, þó að þar þyrfti aukningar við. En sá jarðhiti, sem þannig notast nú í þessum landshluta, er aðeins örsmátt brot af þeim auðlindum, sem Norðurland eystra býr yfir í þessum efnum.

Húsavíkurkaupstaður hefur þegar kostað allmiklum fjárhæðum til rannsókna á jarðhitaskilyrðum sínum. Sterkar líkur eru taldar benda til, að árangur geti borið að bora þar eftir heitu vatni. Eru nú byrjaðar boranir hjá Húsavíkurkaupstað með hinum svonefnda Norðurlandsbor, sem ríkið á. Borinn hefur unnið þar í nokkra daga, en verkið er skammt á veg komið ag ekki svo langt, að von sé, að komið hafi í ljós árangur. En menn eru þar bjartsýnir um, að vel muni takast. Jarðhitamál Húsavíkur má því telja komið á góðan rekspöl til framkvæmda.

Gert er ráð fyrir, að Norðurlandsborinn verði, þegar hann hefur lakið starfi í Húsavík, látinn bora eftir gufu á háhitasvæðinu við Námafjall vegna fyrirhugaðrar kísilgúrverksmiðju við Mývatn. Þá mun Norðurlandsborinn í þriðja lagi eiga að starfa að leit að heitu Vatni fyrir Akureyrarbæ. En þó að þessi þrjú fyrirhuguðu og stóru verkefni, sem ég hef nefnt, verði vonandi leyst með Norðurlandsbornum, til ómetanlegs gagns fyrir þá, er þess njóta, þá verða ótal verkefni eftir að því er jarðhitann á Norðurlandi eystra snertir. Mörg af þeim eru þannig, að fáir standa að þeim heima fyrir, a.m.k. í byrjun. Víða stendur svo vafalaust á, að betur hæfa minni tæki en Norðurlandsborinn til að vinna þar.

Við, sem flytjum þessa till., báðum raforkumálastjóra ríkisins um skrá um þá jarðhitastaði, sem jarðhitadeildinni væri kunnugt um á Norðurlandi eystra. Raforkumálastjóri brást vel við beiðni okkar og sendi okkur lista um jarðhitastaðina, yfirborðshitastig flestra þeirra og rennsli í sekúndulítrum, þar sem um vatn er að ræða og vatnið hefur verið mælt. Hitastaðir þessir, sem raforkumálastjóri telur, eru um 90 talsins, en vitanlega mjög misjafnlega þýðingarmiklir, misheitir, misvíðfeðmir, misjafnlega vel settir fyrir mannabyggðir til hagnýtingar. Einhverja staði með jarðhita, sem eru ekki taldir á skýrslunni, munu íbúar á Norðurlandi eystra þekkja, og væntanlega munu fleiri koma í ljós við ýtarlegar rannsóknir. En þeir, sem taldir eru á listanum, nægja til að sýna, að till. okkar er af fullum tilefnum flutt.

Menn gera sér með hverju árinu sem líður ljósara en verið hefur, hve jarðhitinn getur verið dýrmætur. Þeir, sem hafa jarðhita í nágrenni sinu, þurfa sem allra fyrst að vita með sannindum, hvað þar er um að ræða, til þess að geta haga,ð sér samkv. því, valið sér stað fyrir nýbýli, fært sinn gamla bæ með tilliti til jarðhita, ef þeir endurbyggja hann, staðsett byggðahverfi og iðjuver með aðstöðu til jarðhita, ef hans er kostur, reist skólahús, félagsheimili og sundlaugar á jarðhitastöðum, ef þeir fyrirfinnast á hæfilegum svæðum eða í hæfilegum aðstæðum, stundað ylrækt, þar sem það hentar o.s.frv. í fáum orðum sagt, það þarf að taka þessi mál þjóðfélagslegum tökum af vísindalegri kunnáttu og hagsýni.

Till. er í þrem málsgr., og með leyfi hæstv. forseta, ætla ég að lesa hana:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að sjá um, að á vegum jarðhitasjóðs verði hið fyrsta rannsókn gerð á jarðhitasvæðum þeim, sem vitað er um á Norðurlandi eystra og ekki hafa enn þá verið rannsökuð nægilega, en ætla má, að hagfellt geti verið að nytja.

Enn fremur, að framkvæmd verði í þeim landshluta rækileg jarðhitaleit á þeim stöðum, sem líklegt þykir, að hagnýtur jarðhiti sé finnanlegur með viðráðanlegum kostnaði.

Í sambandi við þessar athafnir verði svo jafnóðum gerðar bráðabirgðaáætlanir um hagnýtingu jarðhitans á hverjum etað.“

Till. þessi er, eins og ég sagði áðan, í samræmi við anda jarðhita,laganna. Hún er að áliti mínu mjög hófleg. Það er beðið um rannsókn, en á þeim svæðum einum, sem ætla má, að hagfellt geti verið til nytja. Ýmsir afskekktir staðir liggja því þarna fyrir utan.

Það er beðið um jarðhitaleit, en aðeins þar sem frumrannsókn hefur verið lokið og hefur sýnt, að líklegt sé, að jarðhiti sé finnanlegur með viðráðanlegum kostnaði. Loks ætlast till. til, að þegar jákvæðar niðurstöður fást af rannsóknum og jarðhitaleit, verði jafnharðan gerðar bráðabirgðaáætlanir um hagnýtingu jarðhitans, til þess að hlutaðeigendur fái strax upplýsingar um, hvað þeir eigi í vonum, og geti hagað sér og athöfnum sínum samkv. því.

Þetta, að gera gangskör að nýtingu á jarðhitanum, er einn þátturinn í, að þjóðin nemi land sitt skipulega og skynsamlega í samræmi við þá kosti, sem það hefur að bjóða, og láti ekki gull liggja ónotað hjá garði.

Það hefur verið ákveðin ein umr. um þessa till., en ég vil leyfa mér að óska þess, að umr. verði frestað og málinu vísað til hv. fjvn. til umsagnar og athugunar.