06.02.1963
Sameinað þing: 28. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 268 í D-deild Alþingistíðinda. (3026)
96. mál, jarðhitarannsóknir á Norðurlandi eystra
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Það er aðeins til staðfestingar á því, sem hv. síðasti ræðumaður var að segja í sambandi við rannsókn eins þm. á Austurlandi, hvort þar væri jarðhiti nærri byggð. Það getur vel verið, að hann hafi hætt sér óþarflega langt út á ísinn, en það liggur fyrir, að hann fór nægilega langt til þess að sannfærast um, að þarna var hiti, og þess vegna sneri hann sér til raforkumálastjórnarinnar og hefur beðið um rannsókn á þessu nánar. — Ég vildi aðeins láta þetta koma fram hér að gefnu tilefni.