06.03.1963
Sameinað þing: 35. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 290 í D-deild Alþingistíðinda. (3073)
136. mál, farþega- og vöruflutningaskip fyrir Austfirðinga
Jónas Pétursson:
Herra forseti. Þáltill. sú, sem hér liggur fyrir, er flutt af varamanni Sjálfstfl. í Austurlandskjördæmi, Einari Sigurðssyni, og fjallar um smíði og rekstur farþega- og vöruflutningaskips fyrir Austurland, 700–900 rúmlestir.
Strandsiglingum til Austurlands eða Austfjarða er nú haldið uppi af Skipaútgerð ríkisins, og ég býst við, að það muni flestum hv. a1þm. kunnugt, að yfirleitt ríkir altmikil óánægja með þá þjónustu, sem Skipaútgerðin veitir. T.d. berast oft til okkar þm. Austurl. kvartanir um ófullnægjandi skipakomur, og fjölmargar samþykktir hafa borizt frá sveitarstjórnum með áskorunum til alþm. að beita sér fyrir betra ástandi í strandsiglingum. En þetta ástand hefur aft verið rætt meðal alþm. Austurl. ag einnig við forstjóra Skipaútgerðarinnar.
Það virðist liggja orðið nokkuð ljóst fyrir, að sá skipakostur, sem nú er í strandsiglingum, sé óhentugur og óhagkvæmur. Er það raunar ekki undarlegt, þar sem skipin eru tekin að eldast og smíðuð við allt aðrar aðstæður en nú eru. Annars vegar hefur til komið stóraukið vegakerfi — aukið og bætt — og flugsamgöngur, sem hafa gerbreytt þörfinni með farþegarými skipanna, þannig að mjög hefur dregið úr fólksflutningum með ströndunum, en hins vegar hefur stóraukizt viðskiptalíf í landinu, sem hefur stóraukið aðra flutningaþörf. En þegar jafnframt er á það litið, að stórfelldur halli er á rekstri Skipaútgerðarinnar, er alveg ljóst, að hér er um mál að ræða, sem þarf að taka til úrbóta, í stuttu máli: hagkvæmari þjónustu í strandsiglingunum. Þessi þáltill. markar ákveðið svið, þ.e. um sérstakt skip fyrir Austurland með hraðsiglingum til Reykjavíkur. til frekari rökstuðnings fyrir því vísa ég til þeirrar grg., sem fylgir þáltill.
Sams konar mál hafa verið flutt, sem snerta Vestfirði, og ég treysti því, að sú n., sem fær till. til athugunar og ég vildi leggja til að yrði allshn., þar sem hún mun hafa fengið aðrar hliðstæðar till., — ég vil vænta þess, að hún afgreiði málið svo fljótt, að till. geti fengið afgreiðslu á þessu þingi. Ég ætla ekki að fjölyrða meira um málið. Ég legg til, að umr. verði nú frestað og till. vísað til allshn. til athugunar.